blaðið - 26.04.2007, Qupperneq 12
blaði
Útgáfufélag:
Ritstjóri:
Fréttastjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Ár og dagurehf.
Trausti Hafliðason
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Þröstur Emilsson
Elfn Albertsdóttir
Jeltsín allur
Boris Nikolajevich feltsín, fyrsti lýðræðiskjörni forseti Rússlands, var
borinn til grafar í gær en hann lést á mánudaginn 76 ára að aldri. Jeltsín
var um margt mjög merkilegur leiðtogi. Hann var kjörinn forseti árið
1991. Ásamt Mikhaíl Gorbatsjov átti Jeltsín stóran þátt í því að járntjaldið
féll og Sovétríkin liðuðust í sundur. Hann sat í forsetastólnum allt til árs-
ins 1999 og stýrði þjóð sinni á tímabili mikilla breytinga.
„Það sem við héldum að yrði auðvelt reyndist verða sársaukafullt og
erfitt,” sagði Jeltsín í frægu nýársávarpi árið 1999 - ávarpi þar sem hann
tilkynnti afsögn sína. Þessi orð endurspegla á margan hátt stjórnartíð
mannsins, sem ólst upp í borginni Yekaterinburg (áður Sverdlovsk) í Síb-
eríu og gekk í Kommúnistaflokkinn árið 1961, þá þrítugur að aldri.
Jeltsín var litríkur stjórnmálamaður með augljósa pólitíska hæfileika.
Þó flestir vestrænir leiðtogar beri Jeltsín vel söguna þá gerir Gorbatsjov
það ekki, en þeir voru um tíma mjög nánir samstarfsmenn. Gremja
Gorbatsjovs kom meðal annars berlega í ljós þegar hann flutti erindi í
Háskólabíói á síðasta ári. Hann taldi Jeltsín hafa svikið sig þegar komm-
únískir harðlínumenn gerðu valdaránstilraun sumarið 1991. Þá var
Gorbatsjov í stofufangelsi í sumarhúsi sínu en Jeltsín í Moskvu. Ef það
var einhver atburður sem gerði Jeltsín að því sem hann varð þá var það
stundin þegar hann stóð ofan á skriðdreka fyrir framan þinghúsið í
Moskvu og hvatti fólk til að bæla niður valdaránstilraunina. Það tókst
og Jeltsin varð forseti.
Jeltsíns verður minnst fyrir líflega eða kannski frekar undarlega fram-
komu á tíðum, þar sem hann hreinlega virtist drukkinn í opinberum
heimsóknum og viðtölum við fjölmiðla. Hans verður líka minnst fyrir
stórfellt klúður í einkavæðingu ríkisfyrirtækja þar sem þröngur hópur
viðskiptamanna fékk ábatasöm ríkisfyrirtæki afhent á silfurfati. Síðan
má ekki gleyma svartasta blettinum í stjórnartíð Jeltsíns, þegar hann
skipaði hernum að ráðast inn í suðurhluta Tsjetsjeníu árið 1994. Talið er
að að minnsta kosti 50 þúsund hermenn, skæruliðar og óbreyttir borg-
arar hafi látist í stríðinu sem stóð í tvö ár.
Þrátt fyrir ofangreint á eftir að koma í ljós hvernig sagan mun dæma
Jeltsín. Á þessum tímamótum verður hans helst minnst fyrir að hafa
losað þjóð sína úr spennitreyju miðstýringar og ofurvalds. Leyst upp Sov-
étríkin og innleitt frjálsræði. Þó Jeltsín hafi gert margt heimskulegt er
alveg ljóst að kraftur hans og áræðni bar ávöxt. I stað Sovétríkjanna eru
nú til, auk Rússlands, fjórtán sjálfstæð ríki. í fyrstu var Jeltsín elskaður
af flestum en þegar yfir lauk var hann bæði elskaður og hataður.
Trausti Hafliðason
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711
Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net
Prentun: Prentsmiðja Morgunbiaðsins
Yamaha LL series
kassagítarar ra
Med öllum LL kassa-
gítörum fylgir nú hörd
taska, standur og
stillitæki. Eðal gítarar
á einstöku verdi.
HLJOÐFÆRAHÚSIÐ
ugavegi 176 105 Roykjavík ujuJui.hHoclfaerahusid.is ínfocihljodfaerahtisid.is sími 591 5340
12
FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2007
blaöiA
GÓíU FRÍrrlHMAít 1. MAHS l/ORU fál M þjj
VAR. LÆKKAm ViRP/SAUKflSKATTuH.
vom nÉmMnVúdíi w v/fnmm'
upp SjftLrHBMTUSKQTruFL
5J0PPI/0G \/ErnuC,AUúsqF[G£MÞA
Enn ein púðurkerling
Samfylkingar
Fyrir fáeinum vikum höfðu ýmsir
stjórnarandstæðingar, ekki síst sam-
fylkingarmenn, uppi stór orð um að
verðbólga og vaxtahækkanir undan-
farinna missera hefðu étið upp kaup-
máttaraukningu almennings. Þessar
raddir eru nú þagnaðar. Ástæðan
er sú að fram eru komnar upplýs-
ingar um þróun kaupmáttar á und-
anförnum árum, sem leiða í ljós að
kaupmáttur ráðstöfunartekna hefur
aukist um 75 prósent frá árinu 1994
og það þegar búið er að taka tillit til
verðbólguþróunar og vaxtakostn-
aðar, breytinga á sköttum og bótum
og öðrum þeim atriðum sem máli
skipta. Það var með öðrum orðum
engin innistæða fyrir hinum stóru
fullyrðingum - þær áttu sér enga
stoð í raunveruleikanum.
Þetta er gott dæmi um vandræða-
gang samfylkingarmanna í þessari
kosningabaráttu. Hvað eftir annað
fara þeir af stað með einhver mál
- einhverjar stórar bombur - sem
eiga nú aldeilis að koma ríkisstjórn-
arflokkunum í klípu. Þegar málin
eru hins vegar skoðuð nánar og
rýnt í hagtölur og niðurstöður rann-
sókna, þá kemur jafnan í ljós að ekki
stendur steinn yfir steini í þessum
málflutningi - stóru bomburnar
reynast hreinar púðurkerlingar. Við-
brögðin eru þá alltaf á sama veg; tals-
menn flokksins reyna að skipta um
umræðuefni, slá fram einhverjum
nýjum fullyrðingum og vona að al-
menningur gleymi sem fyrst hinum
eldri stóryrðum.
Fátæktartal rennur út í sandinn
Dæmin um þetta eru fjölmörg.
Það er til dæmis full ástæða til að
rifja upp að snemma árs leit út fyrir
að Samfylkingin ætlaði að gera
meint misrétti, fátækt og stéttaskipt-
ingu að höfuðmáli kosningabaráttu
sinnar. Einhvern veginn rann þessi
málflutningur út í sandinn, sérstak-
lega þegar hver rannsóknin á fætur
annarri sýndi allt aðra mynd heldur
en talsmenn flokksins höfðu látið
í veðri vaka. Ég get mér þess til að
Birgir Ármannsson
mestu muni um þær niðurstöður
Hagstofunnar, sem birtust í byrjun
febrúar, að hætta á að heimili lendi
undir fátæktarmörkum sé minni hér
á landi en í öllum löndum ESB og Evr-
ópska efnahagssvæðisins fyrir utan
Svíþjóð. Um leið greindi Hagstofan
frá því að tekjudreifing væri jafnari
hér en víðast hvar í þessum saman-
burðarlöndum; þrjú lönd kæmu jafn
vel eða betur út í þeim samanburði
en 27 af þessum ríkjum byggju við
meiri ójöfnuð.
Það kom með öðrum orðum í ljós
að hinar stóru fullyrðingar um fá-
tækt og stéttaskiptingu voru ekki í
neinu samræmi við niðurstöður rann-
sókna sem byggðust á alþjóðlegum
viðmiðum og samanburði. Það varð
því nokkurt hlé á þessum málflutn-
ingi samfylkingarmanna, en nú á
síðustu metrunum í kosningabarátt-
unni hefur hann skotið upp kollinum
aftur - ekki síst hjá Össuri Skarphéð-
inssyni þingflokksformanni. Hann
hefur þó ekki vísað til neinna gagna
í því sambandi og væri ekki úr vegi
að spyrja Össur - næst þegar hann
talar um að ísland sé að verða stétt-
skiptasta land Evrópu - hvort hann
rengi niðurstöður Hagstofunnar um
fátækt og misskiptingu í evrópskum
samanburði eða hvort hann búi yfir
einhverjum öðrum upplýsingum um
þessi mál, sem ekki hafi komið fram
opinberlega.
Stóryrði skapa ekki traust
Svona má lengi telja. ítrekaðar til-
raunir stjórnarandstöðunnar með
Samfylkinguna í fararbroddi til að
gera lítið úr árangri ríkisstjórna Sjálf-
stæðisflokks og Framsóknarflokks
hafa jafnharðan farið út um þúfur.
Tilraunir þeirra til að gefa þá mynd
af sér að þar fari ábyrgir flokkar,
sem treystandi sé fyrir landsstjórn-
inni, renna út í sandinn um leið og
talsmenn þeirra missa taumhald á
sér í loforðakapphlaupinu, eins og
ótal dæmi eru um frá síðustu vikum.
Þeim virðist ganga illa að læra af
reynslunni, sem sýnir auðvitað að
kjósendur meta meira traust og trú-
verðugleika heldur en fullyrðingag-
lamur og yfirboð á síðustu dögum
kosningabaráttunnar.
Höfundur er þingmaður
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
Klippt & skorið
Frjálslyndi flokkurinn hefur
verið sakaður um kynþátta-
fordóma og berst gegn
stimplinum hörðum höndum.
Klippari hefur heyrt á tal manna *
sem telja frjálslynda hafa eignast bandamann um
ólinkindina gagnvart innflytjendum. (fréttum
Stöðvar 2 hefur Lóa Pind Aldísardóttir gert áhuga-
verðar úttektir á stefnu flokkanna. Hún spurði í
fyrradag um menntamálin. Spurningin: Þarf
að grípa til sértækra aðgerða til að sporna við
brottfalli innflytjenda úr framhaldsskólunum?
Já, svöruðu allir flokkarnir nema Baráttusam-
tökin sem svöruðu: „Innflytjendur geta stundað
framhaldsnám ef þeir vilja vera Islendingar." Þá
stungu þeir upp á prófi fyrir innflytjendur meðal
annars í íslenskum þjóðfræðum til að meta hvort
þeir komist í framhaldsskólana.
Nú þurfa íslendingar vart að
óttast umheiminn lengur.
Norski herinn ætlarað gæta
landsins á friðartímum! Fréttamaður
Norska ríkisútvarpsins, NRK, spurði
utanríkisráðherra sinn hvað Norðmenn fengju
fyrir sinn snúð. Mikilvægt væri að þétta pólitískt
samstarf Norðurlandaþjóðanna, svaraði hann.
RÚV greindi frá. Björg Eva Erlendsdóttir sagði
einnig ffá sjónarmiðum ritstjóra Aftenposten í há-
degisfréttum ígær. Hann sagði (slendinga vana því
að greiða ekkert sérstaklega fyrir varnir landsins.
Norskir ráðamenn hlytu að horfa til þess að með
samstarfinu, sem (slendingar sóttust eftir, vonist
þeir eftir meiri stuðningi íslenskra við sjónarmið
Norðmanna í deilumálum landanna, sérstaklega á
Svalbarðasvæðinu. Þar hefur verið barist um síldar-
kvóta og sagði í Fréttablaðinu í janúar að kvótinn
væri um 50 milljarða virði. Samið var um að fslend-
ingar veiddu 14,51 prósent kvótans.
r
Arleg sjávarútvegssýning MKHSM
stendur yfir í Brussel. Sú
stærsta í heimi. Eins og í,
fyrra standa stöndug fyrirtæki fyriri jr
stórveislum. Icelandic Group, Marel, v ■
Eimskip og Landsbankinn héldu stærðarveislu í
fyrrakvöld, sem atburðafyrirtækið Practical hélt
utan um, fyrir íslenska og erlenda viðskiptavini.
Gestir stóðu agndofa yfir glæsilegheitunum.
Þemað; sirkus, og fólk því í öllum skúmaskotum,
jafnvel hangandi úr loftinu. Einkavélar fluttu ein-
hverja (slendingana á sýninguna en átta hundruð
sóttu veislu stórfyrirtækjanna að þessu sinni.
gag@bladid.net