blaðið - 26.04.2007, Page 17

blaðið - 26.04.2007, Page 17
blaöið FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2007 17 Atvinnuréttindi I aðdraganda alþingiskosninga er ástæða til að vekja athygli á, að vinstrisinnaðir stjórnmála- foringjar hafa gerst hallir undir ofstækisfull viðhorf þrýstihópa, sem skerða vilja tiltekna löglega og hagkvæma atvinnustarfsemi. Stjórnmálamenn, sem þannig fjandskapast við einstök fyrirtæki og atvinnustarfsemi, gera sig seka um forsjárhyggju af versta tagi, því að með undirróðri sínum kunna þeir að draga úr atvinnufrelsi hér- lendis og stríða gegn jafnræðis- reglu (65. og 75. gr.) stjórnarskrár- innar. Að setja á atkvæðagreiðslu í sveitarfélagi (Hafnarfirði) um framtíðarþróun fyrirtækis (ISAL), sem aflað hefur sér starfsleyfis á nýrri lóð, vekur spurningar um ólögmæta skerðingu eignarréttar og atvinnufrelsis hjá fyrirtæki, sem á í samkeppni um aðföng inn- anlands, orku, fólk og þjónustu, og sölu afurða erlendis. (búalýðræði Almennar atkvæðagreiðslur um deiliskipulag sveitarfélaga eiga sér ekki hefð hérlendis og orka mjög tvímælis, þegar þær snúast að stofni til um, hvort íbúarnir sam- þykkja eða hafna áformum fyrir- tækis um að auka starfsemi sína með takmörkunum og skilyrðum, sem lög og reglugerðir setja. Sér- staklega á þetta við, þegar und- irbúningur hefur farið fram um árabil með vitund og vilja sveit- arstjórnar og komið er að fyrstu skóflustungu. Stjórnmálamenn eru kosnir til að móta stefnu og stjórna og þá er í anda lýðræðis, að þeir hafi opinbera skoðun. Stjórn- málaflokkarnir eiga að gera kjós- endum grein fyrir afstöðu sinni til helstu mála fyrir kosningar. Ef þeir, oft fyrir tilverknað ábyrgð- arlausra þrýstihópa, treysta sér ekki til að taka af skarið, geta þeir við vissar aðstæður boðað til almennrar atkvæðagreiðslu. Slík kosning ætti þá að varða almenna stefnumörkun, en ekki tæknilega útfærslu, t.d. deiliskipulag, sem fyrirtæki eða einstaklingar hafa varið fé til undirbúnings á. íbúa- lýðræði er vandmeðfarið, ef gæta skal réttlætis og jafnréttis gagn- vart einstaklingum og lögaðilum. Alþingismenn ættu þess vegna að hugleiða á næsta þingi að setja lög, þar sem m.a. verði tilgreint, hvers konar mál og við hvaða aðstæður mismunandi yfirvöld mega stofna til almennrar atkvæðagreiðslu, og hvaða skilyrði hún þarf að uppfylla til að geta talist bindandi. Það eru fjölmörg réttarfarsleg atriði, sem þarfnast rýni í þessu sambandi, t.d. eignarréttur, réttur til athafna og síðast en ekki síst rétturinn til atvinnu. 1 Þóknanleg atvinna Nú grassera í landinu þrýsti- hópar, sem berjast gegn virkj- unum orkulinda fslands. Stjórn- málamenn, sem ginnkeyptir eru fyrir áróðri þessara hópa, stuðla að því, að þúsundir manna verði rændir atvinnutækifærum í iðn- aði. Verkafólk fær hvergi öruggari og betur launuð störf en í álverum. Vinstri flokkarnir á íslandi berj- ast nú með oddi og egg gegn hags- munum þessa verkafólks undir merkjum umhverfisverndar. Þeir hafa í a.m.k. áratug verið krafðir um, hvers konar störf væru þeim fremur þóknanleg, en vafist tunga um tönn. Þessi spurning er hins vegar úrelt. Nú á tímum á það alls ekki að vera í verkahring stjórn- málamanna að ákveða, hvað þegn- arnir vinna við. Þannig var það þó löngum á nýliðinni öld, að stjórnmálamenn forræðishyggju ginu yfir atvinnulífinu. Nú er það hins vegar tímaskekkja, að stjórnmálamenn berjist fyrir eða gegn tiltekinni atvinnustarfsemi. Kjósendur verða að koma vinstri- sinnuðum stjórnmálamönnum og þrýstihópum í skilning um þetta í vor. Stjórnmálamenn leggja stein í götu erlendra fjárfestinga á íslandi með því að berjast gegn ál- iðnaði. Alls staðar eru erlendar fjár- festingar taldar nauðsynlegar fyrir blómlegt atvinnulíf og þær eru tiltölulega litlar á íslandi. Forræðis- hyggjuflokkarnir gera sig, með úr- eltum viðhorfum sínum, seka um að stuðla að einhæfara atvinnulífi og minna vinnuframboði í land- inu, sem leiðir til lægri kaupmáttar og meira atvinnuleysis. Vinstri flokkarnir á fslandi vinna þannig Aðeins einn stjórnmálaflokkur í landinu er í takt við nútímann Umrœðan Bjarni Jónsson gegn hagsmunum hinna vinnandi stétta, ekki síst verkalýðsstéttanna, og er þetta enn ein birtingarmynd afstæðishyggjunnar („postmod- ernism”). Aðeins einn stjórnmála- flokkur í landinu er í takt við nú- tímann; vinnur ekki gegn neinni löglegri starfsemi í landinu, en vill gera öllum viðurkenndum atvinnu- greinum jafnhátt undir höfði með því að draga hið opinbera sem mest út úr atvinnulífinu. Þessi flokkur er Sjálfstæðisflokkurinn. Eignarrétturinn Adam Smith setti fram kenn- ingu sína um séreignarréttinn árið ^776 sem grundvöll hagkvæmrar auðlindanýtingar. Á íslandi ver 72. gr. stjórnarskrárinnar eignar- rétt, og um auðlindir gildir, að þær fylgja eignarrétti á landi, og á sjó fylgir aflamark eignarrétti skips. Þjóðareign er merkingarlaust hug- tak í eignarréttarlegum skilningi. Fundið hefur verið að því, að ríkið reki stóriðjustefnu með eignarhlut í virkjanafyrirtækjum. Sala ríkis- eigna hefur leyst fjármagn úr læð- ingi. Eðlilegt er þess vegna að setja lög um sölu á hlutdeild ríkisins í orkufyrirtækjum til lögaðila, sem verði að vera skráðir á íslandi. Með því er tryggt, að arður af nýtingu fallvatna og jarðvarma rennur til ríkisins i þeim mæli, sem lög mæla fyrir um í formi tekjuskatts. Höfundur er rafmagnsverkfræðingur PRECISION B-URNER Light Fitubrennsla • Orka • Einbeiting tmw, &Mma: Hámarks fitubrennsla í flösku! Precision Burner Light er fáanlegur í öllum betri heilsuræktarstöðvum, matvöruverslunum og bensínstöðvum. Nánari upplýsingar um Precision Burner Light fást í síma 555-2866 eða á www.eas.is. Freyja Sigurðardóttir Margfaldur íslandsmeistari í Fitness Tvær frábærar bragðtegundir! Nú fáanlegar í næstu verslun

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.