blaðið - 26.04.2007, Síða 24
32
FIMMTUDAGUR 26. APRIL 2007
konan
konan@bladid.net
blaðiö
Konur í meirihluta
Það er ánægjulegt að sjá að í nýrri ríkisstjórn Finna
eru konur ekki í minnihluta eins og tíðkast heldur í
meirihluta. Af 20 finnskum ráðherrum eru 12 konur.
Það verður forvitnilegt að sjá nýja ríkisstjórn eftir alþingiskosningar
12. maí næstkomandi. Ætli fslendingar komist með tærnar þar sem
Finnar eru með hælana, hvað varöar hlutfall kvenna í ríkisstjórn?
Viðhorf sam-
félagsins skaöleg
Jafnréttisbaráttan kemur ölium við,
konum jafnt sem körlum, enda eru
flestir sammála um að jafnrétti sé
eitthvað sem er eftirsóknarvert.
Á síðunni Xyonline.net má finna
áhugaverðar greinar um karlmenn
og fyrir karlmenn, greinar um allt
frá föðurhlutverkinu og heilsu
karlmanna til sambandsins á milli
karlmennsku, stéttar, kynhneiaðar,
kynþátta og heimilisofbeldis. A
heimasíðunni kemur fram að XY
var stofnuð vegna þeirrar trúar að
mörg viðhorf samfélagsins um karl-
mennsku séu skaðleg karlmönnum
og strákum á margan hátt auk
þess að vera kúgandi fyrir konur
og börn. XY einblínir því á karl-
menn, karlmennsku og kynjafræði
þar sem má finna persónulegar
sögur, bókadóma og margt fleira.
Ár jafnra
tækifæra
Evrópuárið 2007, Ár jafnra tæki-
færa fyrir alla, var sett formlega
í Iðnó í gær en árið á að vekja
athygli almennings á að allir eigi
rétt á jöfnum tækifærum án tillits
til uppruna, kyns, trúar, lífsskoð-
unar, kynþáttar, fötlunar, kyn-
hneigðar og aldurs. Fjölbreytileiki
mannfólksins í Evrópu er dýrmæt
auðlind en vannýtt sökum fordóma
og staðalmynda. Á árinu verður
einblínt á kosti fjölbreytileikans og
unnið gegn hvers konar mismunun.
ísland tekur fullan þátt í verkefninu
og af því tilefni var haldin ráðstefna
á vegum félagsmálaráðuneytisins
ígær.
Laufey Guðjónsdóttir, forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar íslands
Mikil gerjun í
heimildarmyndagerð
Eftir Svanhviti Ljósbjörgu Guðmundsd.
svanhvit@bladid.net
Laufey Guðjónsdóttir hefur starfað
sem forstöðumaður Kvikmynda-
miðstöðvar íslands í rúmlega fjög-
ur ár og líkar vel við starfið. „Kvik-
myndagerð er skemmtileg grein og
það er gaman að sjá hvað íslenskir
leikstjórar eru að gera góða hluti í
samanburði við kollega sína. Það
má því segja að ísland sé inni á hin-
um stóra velli sem jafningi," segir
Laufey og bætir við að jafnan séu
framleiddar að meðaltali 3-4 leikn-
ar kvikmyndir í fullri lengd á ári.
„Með nýjum samningi við ráðuneyt-
in í lok síðasta árs jókst framlag til
kvikmyndagerðar, framleiðsluum-
gjörðin er því betri og traustari. Það
gefur okkur aukið svigrúm til að
framleiða fleiri myndir sem og leik-
ið sjónvarpsefni.“
Meira íslenskt efni
Laufey segir að heimildarmynda-
gerð hafi verið á mjög skemmtilegu
róli og í góðri þróun síðustu ár.
„Framlög til heimildarmyndagerðar
aukast ekki á þessu ári en samt sem
áður hefur gerð heimildarmynda
aukist og þó nokkrar þeirra voru
sýndar í almennum sýningum í kvik-
myndahúsum. Um þessar mundir er
verið að sýna myndina Tímamót í
Háskólabíói og skemmst er að minn-
ast góðs árangurs mynda á borð við
Jón Pál, myndina um Bubba, Lalla
Johns og Hlemm og fleiri," segir
Laufey sem vonast til þess að ís-
lenskt efni á sjónvarpsstöðvunum
aukist. „Sjónvarpsstöðvarnar hafa
sýnt eitthvað af íslensku efni og
með nýjum þjónustusamningi hjá
Ríkissútvarpinu má búast við að
framleitt verði meira af íslensku
efni. Auk þess mun þessi gerjun í
heimildar- og stuttmyndagerð og
leiknum myndum skila sér í sjón-
varp fyrr eða síðar.“
Stuðningur nauðsynlegur
Samkvæmt Laufeyju er alltaf erf-
itt að framleiða myndir á íslandi,
vegna þess að landið er einungis 300
þúsund manna málsvæði. „Það get-
ur verið erfitt fyrir framleiðendur
að fá fjárframlög og aðstoð ríkisins
hefur verið mjög mikilvæg, bæði
með framlögum héðan og eins hef-
ur verið veittur 14 prósenta afslátt-
ur af öllum framleiðslukostnaði.
Án þessa stuðnings væri þetta ekki
hægt. Einkaaðilar hafa styrkt kvik-
myndagerð í auknum mæli síðustu
misseri og það er gott að vita að
fjárhagsleg velgengni hefur skilað
sér í kvikmyndagerð,“ segir Laufey
og viðurkennir að það sé sjaldgæft
að framleiðendur íslenskra mynda
græði á þeim. „Sem betur fer græða
þeir á myndum sem ganga vel og
það hefur undantekningarlaust
skilað sér beint inn í greinina aft-
ur. Kvikmyndagerð er fyrsta útrás-
argreinin og við höfum alltaf verið
háð góðri samvinnu við erlenda
framleiðendur sem hafa flutt fjár-
magn og þekkingu með sér.“
Innréttingar í öll herbergi heimilisins.
Fagleg ráðgjöf og glæsilegur sýningarsalur.
JKE
DESIGN
Óteljandi möguleikar
Mörkinni 1 108 Reykjavík
simi 515 0700 www.jke-design.is
Veldu möguleika