blaðið - 26.04.2007, Page 33

blaðið - 26.04.2007, Page 33
Bláskógabyggð,Grímsnes-og Grafningshreppi, Hrunnamannahreppi Skeiða-og Gnúpverjahreppi og Flóahreppi 12 Hamarsheiði II í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Trantur, frístunda- byggð. Tillaga að deiliskipulagi frístundabyggðar á Tranti í landi Hamarsheiðar II. Skipulagssvæðið er í heild um 14 ha og er þar gert ráð fyrir 5 lóðum á bilinu 1,5 - 2,6 ha. Innan hverrar lóðar eru 1-3 byggingar- reitir þar sem heimilt er að reisa allt að 100 m2 frístundahús og allt að 25 m2 aukahús. Samtals er gert ráð fyrir 8 byggingarreitum fyrir frístundahús og aukahús. Aðkoma að svæðinu er um heimreið að Hamarsheiði I og II. 13 Réttarholt í Skeiða- og Gnúpverjahreppi Tillaga að deiliskipulagi sem nær yfir hluta jarðarin- nar Réttarholt. Skipulagssvæðið er í heild 349 ha og fylgir eignarlandi sveitarfélagsins sunnan þjóðvegar nr. 32. Eldri deiliskipulagsáætlanir innan svæðisins falla úr gildi við gildistöku þessa skipu- lags. í tillögunni felst eftirfarandi: • Um 45 ha svæði fyrir frístundabyggð og er gert ráð fyrir 37 lóðum á bilinu 0,7 - 1,7 ha þar sem heimilt verður að reisa allt að 150 fm frístundahús og 30 fm aukahús. • Um 133 ha svæði fyrir smábýlabyggð. Lóðirnar eru 26 og eru á bilinu 2,2 -8 ha og verður heimilt að reisa allt að 400 fm íbúðarhús auk 1-2 aukahúsa. • Um 13 ha svæði fyrir 26 athafnalóðir og gámasvæði. • Hesthúsasvæði fyrir 16 um 2.000 fm lóðir umhverfis reiðvöil. Á hverri lóð má reisa 150-250 fm hesthús. • Um 44 ha svæði milli Búrfellslínu og jarðarinnar Stóra-Hof fyrir 18 holu golfvöll. Breyting á aðalskipulagi sveitarfé lagsins er auglýst samhliða. 14 Breiðholt í Flóahreppi. Frístundabyggð. Tillaga að deiliskipulagi tveggja frístun dahúsalóða á um 1 ha spildu úr landi Breiðholts í fyrrum Villingaholtshreppi. Heimilt verður að reisa allt að 100 fm frístundahús á hvorri lóð og er aðkoma að svæðinu frá þjóðvegi 305. 15 Ölvisholt í Flóahreppi. Frístunda- byggð á Miklholti. Tillaga að deiliskipulagi fyrir hluta af 48,3 ha landsspildu, Miklholt, úr landi Ölvisholts í fyrrum Hraungerðishreppi. Á norður hluta svæðisins er í dag eitt frístundahús og með deiliskipulaginu er gert ráð fyrir að þar rétt hjá megi reisa nýtt allt að 250 fm frístundahús og allt að 300 fm hesthús eða skemmu. Samkvæmt l.mgr. 26.gr. skipulags-og byggin- garlaga nr. 73 1997 er hér með auglýst eftir athugasemdum við eftirfarandi deiliskipulags- breytingar: 16 Brjánsstaðir í Grímsnes-og Grafningshreppi. Frístundabyggð við Heiðarbraut. Tillaga að breytingu á skilmálum deiliskipulags við Heiðarbraut í landi Brjánsstaða. í breytin- gunni felst að heimilt verður að reisa allt að 40 fm aukahús á hverri lóð í stað 10-15 fm. Nýtingarhlutfall lóðar má þó ekki vera hærra en 0.03. 17 Hestur í Grímsnes- og Grafningshreppi. Frístundabyggð. Tillaga að breytingu á skilmálum deiliskipulags frístundabyggðar í landi Hests í breytingunni felst að hámarksstærð frístundahúsa verður 150 fm í stað 80 fm og hámarksstærð aukahúsa verði 40 fm í stað 10-15 fm. Nýtin- garhlutfall lóðar má þó ekki vera hærra en 0.03. Tillagan gerir auk þess ráð fyrir ákvæðum sem miða að því að fella hús betur að umhverfi sínu. Um mitt ár 2005 var auglýst breyting á skilmálum deiliskipulagsins og var búið að samþykkja þá breytingu í sveitarstjórn en hún hafði þó ekki tekið gildi með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda. Breytingin sem hér er auglýst er eins og sú sem áður var auglýst nema að leyfileg stærð aukahúsa hefur breyst. 18 Syðri-Brú í Grímsnes- og Grafningshreppi. Frístundabyggð. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi frístund- abyggðar í landi Syðri-Brúar, á svæði milli þjóðvegar nr. 36 (Sogsvegar) og fjallsins Búrfell. í breytingunni felst að skipulagss- væðið stækkar um 45 ha, úr 120 ha í um 165 ha og lóðum fjölgar um 114 en húsum um 98. Samhliða breytist afmörkun útivistarsvæða, golfvallar og leiksvæða, auk þess sem annað af tveimur efnistökusvæðum fellur út. Skilmálar deiliskipulagsins breytast ekki. 19 Syðra-Langholt í Hrunamannahreppi. Frístundabyggðin Holtabyggð. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi frístundabyg- gðar í Syðra-Langholti IV, Holtabyggð. Í tillögunni felst að lóð 110 (2,1 ha) og 111 (3,6 ha) eru sameinaðar í eina 5,7 ha lóð þar sem heimilt verður að reisa 6 allt að 100 fm frístundahús ætluð til útleigu. 20 Úthlíð í Biskupstungu. Breytingu á skilmálum frístundabyggðar. Tillaga að breytingu á skilmálum deiliskipulags frístundabyggðar í landi Úthlíðar. Á undanförnum misserum hafa verið samþykktar breytingar á deiliskipulagi svæðisins og nú svo komið að mismunandi skilmálar gilda um svæðin. Með þessari breytingu er verið að samræma skilmála varðandi stærðir húsa. í tillögunni felst að hámarksstærð frístundahúsa verður 280 fm auk þess sem heimilt verður að reisa allt að 30 fm aukahús á hverri lóð. Nýtingarhlutfall lóðar má þó að hámarki vera 0.03. Skipulagstillögurnar liggja frammi á skrifstofu viðkomandi sveitarféiags og hjá embætti skipulagsfulltrúa uppsveita Árnessýslu, Dalbraut 12, Laugarvatni á skrifstofutíma frá 26. apríl til 24. maí 2006. Að auki er hægt að nálgast tillögurnar á vefslóðinni httpV/www.sveitir.is/skipulagsfulltrui/auglysin gar/Athugasemdum við skipulagstillöguna skulu berast til skipulagsfulltrúa uppsveita Árnessýslu í síðasta lagi 7. júní 2006 og skulu þær vera skriflegar. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests, telst vera samþykkur henni. Pétur Ingi Haraldsson Skipulagsfulltrúi uppsveita Árnessýslu € i (Vuglýsingasíminn er 510 3728 Auglýsingin þín í rúmlega 100.000 eintökum um land allt blaðið. Kjörskrár vegna kosninga tii Alþingis sem fram eiga að fara laugardaginn 12. maí 2007 skulu lagðar fram eigi síðar en miðvikudaginn 2. maí 2007. Kjörskrá skal leggja fram á skrifstofu sveitarstjórnar eða á öðrum hentugum stað sem sveitarstjórn auglýsir sérstaklega. Kjörskrá skal liggja frammi á almennum skrifstofutíma til kjördags. Þeim sem vilja koma að athugasemdum við kjörskrá er bent á að senda þær hlutaðeigandi sveitarstjórn. Athygli er vakin á því að sveitastjórn getur allt fram á kjördag gert leiðréttingar á kjörskrá, ef við á. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 23. apríl 2007.

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.