blaðið - 04.07.2007, Síða 6
6
FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2007
blaóiö
Vistmönnum drengjaheimilis boöiö í viðtal
Ekki tímabært að ræða
Breiðavíkurbætur
Breiðavíkurnefnd hyggst hafa
samband símleiðis við alla
einstaklinga sem dvöidust á
meðferðarheimilinu í Breiða-
vík á þeim tíma sem talið er að
ofbeldi og misþyrming hafi átt
sér stað.
„Ótímabært er að velta skaða-
bótum einstaklinga fyrir sér
eins og staðan er í dag,“ segir
Róbert R. Spanó, prófessor
við lagadeild HÍ og formaður
Breiðavíkurnefndar. „Vissulega
er það eðli máls samkvæmt eitt
af því sem kemur inn í starfið,
en eins og staðan er núna er
ekki hægt að tala um það.“
Nefndin hefur aflað gagna um
rekstur meðferðarheimilisins,
einstök tilvik og einstaklingana
sjálfa, hagi þeirra, ástæður
fyrir vistun og veru þeirra á
staðnum. „Það hefur farið
fram viðamikil gagnaöflun um
mismunandi tímabil drengja-
heimilisins, til undirbúnings
því að viðtöl geti átt sér stað við
einstaklingana sem þar voru
vistaðir,“ segir Róbert.
Hann segir markmið nefndar-
innar þríþætt. „í fyrsta lagi að
kanna ástæður og tildrög þess
að einstaklingar voru settir í
vistun. f öðru lagi að leggja mat
á sannleiksgildi þess að þarna
hafi menn verið misnotaðir og
beittir ofbeldi. f þriðja lagi að
koma með tillögur.“
Aðspurður hvort samtöl við
vistmenn meðferðarheimilisins
kunni að ýfa upp gömul sár
nefnir Róbert að með skipun
nefndarinnar sé leitast við að
halda ákveðnu jafnvægi milli
upplýsingaöflunar og þess að
hún Ieiði ekki til þess að hug-
arró fyrrum vistmanna verði
raskað. bm
Eldur í Malbikunarstöðinni
Engin slys urðu á fólki þegar eldur
kom upp í Malbikunarstöðinni
Höfða á Sævarhöfða í Reykjavík á
ellefta tímanum í gær. Slökkvilið
höfuðborgarsvæðisins var kallað á
vettvang og gekk greiðlega að kom-
ast að og slökkva eldinn. Talið er
að eldurinn hafi komið upp þegar
neisti hljóp í olíu í blöndunarturni
stöðvarinnar, þar sem bikinu er
blandað saman við möl.
Mikinn og dökkan reyk lagði frá
stöðinni og hvatti slökkviliðið
nágranna til að loka gluggum. Lög-
regla lokaði nálægum götum vegna
sprengihættu þar sem nokkrar ol-
íuleiðslur og tankar eru á svæðinu..
Sjúkraflutningar á höfuðborgar-
svæðinu röskuðust eitthvað vegna
eldsins. aí
Fyrsta björgun TF
Einum manni var bjargað þegar
mikill reykur gaus upp í hvala-
skoðunarbátnum Eldingu II rétt
fyrir utan Reykjavíkurhöfn um
hádegisbil í gær. Þyrla Landhelg-
isgæslunnar, TF Gná, var send á
vettvang og hífði manninn um
borð, en þetta var fyrsta björgunar-
flug þyrlunnar.
Enginn eldur reyndist þó vera um
borð heldur hafði gúmmíbarki
bráðnað. Nálægur fiskibátur dró
bátinn til hafnar. Vika er síðan
eldur kom upp í hvalaskoðunarskip-
inu Hafsúlunni í Kollafirði með 75
manns innanborðs. aí
Hæstaréttar-
dómari hættir
Björn Bjarnason, dóms- og
kirkjumálaráðherra, lagði á ríkis-
stjórnarfundi í gærmorgun fram
lausnarbeiðni Hrafns Bragasonar
hæstaréttardómara. Hrafn baðst
lausnar úr embættinu sökum
aldurs, en hann er 69 ára gamall.
Forseti Islands þarf að samþykkja
lausnarbeiðnina en að því loknu
verður embættið auglýst laust til
umsóknar. Hrafn hefur setið í emb-
ætti hæstaréttardómara i 20 ár, eða
frá árinu 1987.
Gnár
ijtii. 1
Skipar nefnd um
peningaþvætti
Björgvin G. Sigurðsson viðskipta-
ráðherra lagði til í ríkisstjórn í gær
að skipuð yrði nefnd um málefni
tengd peningaþvætti.
Blaðið upplýsti um liðna helgi að
úttekt Financial Action Task Force
á vörnum gegn peningaþvætti
hefði leitt í ljós að framkvæmd
þeirra laga væri ábótavant. Sagði að
lagaumhverfið hér væri í lagi en að
töluvert vantaði upp á að eftirlitsað-
ilar hefðu bolmagn og úrræði til að
sinna starfi sínu sem skyldi. þsj
Björn svarar ekki fyrirspurn
Björn Bjarnason, dóms- og kirkju-
málaráðherra, neitaði á mánudag
að svara efnislega spurningum
blaðamanns Blaðsins. Spurning-
arnar voru sendar í kjölfar frétta-
skýringar um úttekt á vörnum
fslands gegn peningaþvætti og
fjármögnun hryðjuverka.
Spurningarnar voru fimm talsins
og tengdust þeirri gagnrýni sem út-
tektaraðilinn setti fram. Þær voru
sendar til Björns í tölvupósti.
Svar Björns: „Spurningar þínar eru
þess eðlis, að ég get ekki svarað
þeim, því svörin hljóta að byggjast
á vangaveltum, sem ég ætla ekki að
stunda. íslensk stjórnvöld leitast að
sjálfsögðu við að uppfylla skyldur
slnar á þessu sviði eins og öðrum.“
þsj
Það verður
skipað herráð
■ Meirihlutinn í Árborg hyggst afgreiða umdeilt miðbæjarskipulag
í dag H Miðbæjarfélagið skipar herráð og safnar undirskriftum
Eftir Björgu Magnúsdóttur
bjorg@bladid.net
Fresta þurfti bæjarstjórnarfundi
á Selfossi til dagsins í dag þar sem
til stóð að afgreiða skipulagstillögu
nýs miðbæjar. „Ástæðan er sú að þau
mál sem sett voru á dagskrá fundar-
ins voru vanbúin til afgreiðslu. Bæj-
arfulltrúar höfðu ekki nægjanleg
gögn auk þess sem villur fundust í
skjölum sem lögð voru fram málinu
til stuðnings,“ segir Eyþór Arnalds,
fulltrúi minnihluta bæjarstjórnar.
Ónóg gögn
Ragnheiður Hergeirsdóttir, bæj-
arstjóri Árborgar, segir frestun
bæjarstjórnarfundarins aðallega
vegna þess að fólki hafi ekki borist
öll gögn. „Um mistök var að ræða
í útsendingu gagna þannig að ekki
bárust öll gögn tímanlega í hendur
bæjarstjórnarfulltrúa."
Eyþór segir mjög sjaldgæft að til
frestunar bæjarstjórnarfunda komi,
sérstaklega á þeim sem eru boðaðir
MIÐBÆJARSKIPULAG
►
10 tillögur bárust í hug-
myndasamkeppni um
svæðið
W. í Miðbæjarfélaginu eru
^ yfir 300 manns sem berjast
gegn núverandi skipulagi
gagngert í sumarfríi til afgreiðslu
skipulagstillagna.
„Við bentum á bréf Skipulags-
stofnunar máli okkar til stuðnings
þar sem margar athugasemdir eru
gerðar við hliðstæða skipulagstill-
ögu, meðal annars misræmi í heild-
arstærð húsa sem bendir til þess að
málið sé ekki faglega unnið.“
Þarf að komast í gegnum kerfið
Ragnheiður segir að varðandi
villur í skjölunum séu þær ekki stór-
vægilegar. „Það eru aðallega orða-
lagsbreytingar sem flokkast undir
prófarkalestursmál."
Ennfremur segir hún að bæjar-
stjórnarfundur sé áætlaður í dag.
„Það þjónar engum tilgangi að til-
lagan sé lengur í kerfinu. Hún þarf
að komast í auglýsingu til þess að
fólk geti skoðað hana og gert athuga-
semdir ef einhverjar eru.“ Aðspurð
hvort hún haldi að tillagan komist
loks í gegn á væntanlegum bæjar-
stjórnarfundi segist Ragnheiður
halda það þar sem meirihluti leggi
hana fram.
„Það verður skipað herráð,“ segir
Árni Valdimarsson, talsmaður Mið-
bæjarfélagsins, um næstu skref hins
þverpólitíska félags um skipulags-
mál. Miðbæjarfélagið hefur áður
skorað á bæjarstjórnina að segja
upp núverandi skipulagssamningi.
„Það voru góð tíðindi að bæjarstjórn-
arfundinum skyldi frestað, þó það
breyti sjálfsagt ekki miklu,“ segir
Árni. Hann bætir við að félagið hafi
alls ekki gefist upp og hyggist safna
undirskriftum gegn skipulagstillö-
gunni ef engar breytingar verða
gerðar.
Helmingur malbikunar sökum nagla
Kosta borgina 250 milljónir
Nagladekk spæna upp um 10 þús-
und tonn af malbiki í Reykjavík á
ári hverju, sem er helmingur þess
malbiks sem áætlað er að lagt verði í
borginni í sumar. Kostnaður vegna
endurmalbikunar sökum slits af
völdum nagladekkja nemur um 100
til 200 milljónum króna. Að þessari
niðurstöðu komst vinnuhópur um
notkun nagladekkja í Reykjavík.
Við það bætist ýmis kostnaður, svo
sem vegna hreinsunar svifryks og
hefur Guðbjartur Sigfússon borgar-
verkfræðingur komist að þeirri nið-
urstöðu að að þessum kostnaði við-
bættum megi reikna með að notkun
nagladekkja kosti Reykjavíkurborg
um 250 milljónir króna á ári hverju.
„Við það bætist svo ýmis kostnaður
sem erfiðara er að reikna, svo sem
vegna heilsutjóns af völdum svif-
ryks sem naglarnir spæna upp,“
segir Dofri Hermansson, varaborg-
arfulltrúi Samfylkingarinnar.
hlynur@bladid.net