blaðið - 21.07.2007, Blaðsíða 8

blaðið - 21.07.2007, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIR blaóiö TUBORC TliBORG TUBORG b/nrúr: lé"°' UþþbftuY) fyrír Þjóðhétíð á Players Kóþavogi ZOGAR - þaf)S á rósuito í b/ö(<i - (augarclaglm 11*jú(\ • Ární JohnJen MæKr MæH<í +íiv»r)te?ð vkkur rvícfaí •vBí&íy. FLUBFELAG VESTMAN NAEYJA www.eyjaflug.is lettöl Harðviðarpallaefni, Massaranduba 25 x 145 mm, lengd: 215 - 430 sm HARÐVIÐARVAL þegar þú kaupir gólfefni Krókhálsi 4 * 110 Reykjavík Sími 567 1010 « www.parket.is Sólin örvar hagkerfið Veðurblíða ýtir undir verslun á sumarvörum Blíðan örvar verslunina H Sumarvörur rokseldust í góða veðrinu ■ Útsölum flýtt í rigningunni í Bretlandi Eftir Björgu Magnúsdóttur bjorg@bladid.net VÍNSALA í VEÐURBLÍÐU Veðurblíðan undanfarnar vikur hefur ýtt undir smásöluverslun. 1 Bretlandi hefur hins vegar verið auglýst verðhrun á hinum ýmsu sum- arvörum og sumarútsölur þar hófust fýrr en áður hefur tíðkast. Ástæðan er sú að breska sumarið hefur verið það votviðrasamasta í manna minnum og innfæddir eru nánast búnir að útiloka frekari notkun á léttum klæðum og ýmsum sumar- vörum þangað til að ári. Lára Ósk Hjörleifsdóttir, verslun- arkona hjá Sævari Karli, segir rjóma- blíðu í Reykjavík hafa komið vel við fataskápa landans. „Islenskar konur hafa lagt svörtu fötin á hillurnar og ég finn fyrir mikilli aukningu í sölu litríkra kjóla og léttra flíka. Það hefur verið mikið streymi í miðbænum vegna veðurblíðunnar og fólk er já- kvæðara og hefur meira gaman af því að koma og kaupa sér sumarföt,“ segir verslunarmærin. Það eru ekki einungis fataversl- anir sem hafa mokað út sumar- vörum. „Hér finnum við fyrir mikilli söluaukningu í vörum fyrir sólpalla: pallaklæðningum, palla- olíu, skjólveggjum, skrúfum og fleiru," segir Björn Þór Karlsson hjá Húsasmiðjunni. Þá nefnir hann að garðúðarar hafi mokselst, sem og reiðhjól, tjöld og sláttuvélar og mikil ös hafi verið í Blómavalsverslun fyr- irtækisins. „I samanburði við aðra verslunarmenn eru jólin hér í Húsa- smiðjunni á sumrin.“ W 15. apríl -15. maí 2007 ^ var heildarsala ÁTVR 1.432.583.183 krónur ► 15. júní - 15. júlí 2007 var heildarsala ÁTVR 1.842.954.731 krónur ► Sala í ÁTVR í Borgarnesi um miðjan júlí hefur tvöfaldast frá því í vor Grillmatur og léttvín rokselst Breskir stórmarkaðir og sérvöru- verslanir með mat hafa fundið harka- lega fyrir því þetta sumarið að illa hefur viðrað til að grilla úti en sala í fyrrnefndum búðum hefur verið sú slakasta í tæpan áratug. Skúli Hansen, yfirmaður versl- unar Gallerí Kjöt & Fiskisögu í Búða- kór segir að hér á klakanum hafi landsmenn hins vegar stokkið til og keypt sér mat á grillið þegar sólin fór að skína. „Tvímælalaust er söluaukn- ing þegar hér er Mallorca-veður viku eftir viku. Það er ýmislegt sem lands- menn kaupa, bæði lamb, naut, alls kyns grillpinnar og fiskmeti.“ Fannar Gíslason, starfsmaður rekstrardeildar ÁTVR, er sama sinnis og segir blíðviðri auka áfengis- sölu hér á landi. „Á sólardögum tæm- ast geymslukælar betur en á öðrum dögum. Sérstaklega eykst sala á bjór og hvítvíni í góðu veðri og á sumar- kvöldum er rauðvín alltaf vinsælt með grillmat." Björgóitur téklc þúsund kr. styrk Björgólfur Guðmundsson, for- maður bankastjórnar Landsbankans, fékk í gær eitt þúsund króna styrk. Brissó B. Johannsson veitti honum styrkinn úr eigin vasa. Hún segir Björgólf vera vel að styrknum kom- inn vegna þess hve ötullega hann hefur styrkt aðra til fræða og lista. „Það er samasemmerki á milli pen- inga og valds og í stað þess að Björg- ólfur eignist fræða- og listamenn með peningagjöfum sínum er rétt að við snúum þessari einstefnu öðru hverju við, og gefum Björgólfi pen- ing,“ segir Brissó. Björgólfur fagnaði styrknum og sagði að það væri langt síðan honum hefði verið veittur styrkur, ef nokkurn tímann. ejg

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.