blaðið - 21.07.2007, Blaðsíða 9

blaðið - 21.07.2007, Blaðsíða 9
blaóiö LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2007 FRÉTTIR 9 Elstu íbúar íslands Talið er að tvær nýjar tegundir grunnvatnsmarflóa, sem fundust á fslandi, hafi lifað ísöldina af og numið hér land fyrir 30 til 40 milljónum ára. Þessar tegundir hafa einungis fundist á f slandi og eru þær einu innlendu tegundirnar sem vitað er af. Eru þetta því elstu íbúar fs- lands en ekki er vitað um margar aðrar tegundir í heim- inum sem hafa verið til í svo langan tíma. Grunnvatnsmarflærnar eru mjallahvitar, með nánast engin augu og eru fætur og fálmar mjög langir. Önnur tegundin hefur einungis fundist í Þingvallavatni og Herðubreiðariindum en hin á yfir þrjátíu stöðum víðs vegar um ísland en það voru Bjarni K. Kristjánsson og Jörundur Svavarsson, líffræðingar, sem fundu þær. Bjarni segir að einungis sé búið að finna kvendýr af þessum tveimur tegundum: „Það er mjög erfitt að nálgast búsvæði dýranna og höfum við hingað til einungis verið að finna þau í upp- sprettum. Við erum að reyna að finna leiðir til að kom- ast ofan í neðanjarðaræðar til að vita meira um þau.“ Bjarni og Jörundur, ásamt Snæbirni Pálssyni, eru að fara af stað með erfðafræðirannsóknir á marflónum til þess að fræðast meira um uppruna þeirra. Vonast er til að rannsóknir geti hafist í haust. heida@bladid.net Kjósa um tengsl ríkis og trúmála ■ Kannanir benda til að Erdogan og flokkur hans hafi sigur ■ Tyrkneski herinn vill varðveita kerfi Atatiirks Eftir Atla ísleifsson atlii@bladid.net Tyrkir ganga að kjörborðinu á morgun og kjósa sér nýtt þing. Skoðanakannanir benda til þess að hægriflokkurinn AKP, sem nú situr við völd, muni hafa sigur og tryggja sér fimm ár til viðbótar við stjórnvölinn. Kosningarnar eru taldar vera þær mikilvægustu frá árinu 1983 sem voru þær fyrstu eftir valdarán hersins þremur árum áður. Tyrkir líta á kosning- arnar sem tækifæri til að kjósa um hver tengsl ríkis og trúmála skulu vera, en þrátt fyrir það hefur kosn- ingabarátta siðustu vikna reynst frekar dauf. Trúmálin áberandi Málið sem brennur mest á Tyrkjum í aðdraganda kosning- anna eru tengsl ríkis og trúmála. Hundruð þúsunda manna komu saman til að mótmæla stefnu rík- isstjórnarinnar í stórborgum í apríl og maí. Kannanir sýna þó að stjórnarandstöðuflokkarnir hafi ekki getað nýtt sér áhyggjur og ótta fleiri milljóna Tyrkja að Recep Tayyip Erdogan forsætisráð- herra og flokkur hans muni ráðast í breytingar sem grafa undan að- skilnaði ríkis og trúmála. Erdogan flýtti þingkosningum í vor eftir að stjórnlagadómstóll lagðist gegn og ógilti kjör þingsins á nýjurn forseta, Abdullah Giil ut- anríkisráðherra. Erdogan og Gul eru báðir mjög trúaðir múslímar og ganga eiginkonur beggja með höfuðfat. Yfirstjórn tyrkneska hersins hefur verið fremst í flokki þeirra sem leggja mikla áherslu á að varðveita það kerfi sem Kemal STUTT • Stórflóð Breska veðurstofan hefur gefið út viðvaranir vegna hættu á miklum flóðum í Eng- landi og Wales. Veðurstofan spáir um 100 millimetra úrkomu í dag, sem er á við tveggja mán- aða meðaltalsúrkomu. Mikilli úr- komu er einnig spáð í Danmörku og Svíþjóð. • Flugslys Talsmenn TAM-flug- félagsins hafa staðfest að vitað var um bilun í bremsubúnaði Airbus 320-flugvélarinnar sem hlekktist á við lendingu í Sao Paolo á mánudaginn. Um 200 manns létust í slysinu. KOSIÐ í TYRKLANDI Mikilvægasta verkefni nýkjörins þings verður að kjósa nýjan forseta. W Erdogan forsætisráðherra ^ hefur hótað að hætta afskiptum af stjórnmálum fái flokkur hans ekki skýrt umboð kjósenda. W. Aðildarviðræður Tyrkja ^ að ESB hófust árið 2005. Tyrkir virðast verða sífellt tortryggnari í garð sam- bandsins, en Evrópumálin hafa ekki verið áberandi í kosningabaráttunni. Atatúrk kom á á þriðja áratug síð- ustu aldar. Þá kom hann á kerfi þar sem ríkisvaldið var veraldlegt og ekki byggt á íslömskum lögum. Breska nafnbótahneykslið Ekki ákært Saksóknarar í Bretlandi hafa tilkynnt að enginn verði ákærður í nafnbótahneykslinu svokallaða. Rannsókn hefur staðið yfir í sex- tán mánuði þar sem kannað var hvort heiðursnafnbótum hefði verið úthlutað í skiptum fyrir styrki til breska Verkamanna- flokksins. Fjórir voru handteknir vegna málsins, þar á meðal tveir nánir samstarfsmenn Tonys Blair, fyrrum forsætisráðherra. al Kosningamál I kosningabaráttunni hafa allir flokkar gagnrýnt hernað Banda- ríkjanna í írak, nágrannaríki Tyrklands. Margir álíta að stríðið og óöldin þar í landi muni leiða af sér sjálfstætt ríki Kúrda og að slíkt myndi ýta undir aðskilnaðar- stefnu Kúrda í Tyrklandi. í ríkisstjórnartíð AKP sem hófst árið 2002, hefur hagkerfi Tyrklands vaxið um meira en sjö prósent á ári hverju, verðbólga minnkað og erlendar fjárfestingar aukist gríðarlega. Atvinnuleysi mælist þó enn hátt og háir vextir hafa komið fyrirtækjum og neyt- endum illa. VILT U VITA MEIRA? Hringdu í síma 510 3700 eða sendu póst á bladid@bladid.net ísrael Föngum sleppt ísraelsstjórn sleppti rúmlega 250 palestínskum föngum úr fangelsi í gær. Mönnunum, sem allir eru liðsmenn Fatah, var fagnað sem hetjum þegar þeir komu til Ramallah á Vesturbakkanum. Abbas Palestínuforseti þakkaði Guði fyrir að Palestínumenn hefðu verið heiðraðir með heim- komu frelsishetjanna og sagðist ætla að halda áfram að vinna að lausn fleiri palestínskra fanga úr ísraelskum fangelsum. ai afslætti. Hjón meö 2 börn, 2-11 ára, 4. janúar, 11 nætur, E! Cortijo - íbúðir. Beint morgunflug - með íslensku flugfelagi Jamaica 8 dagar - frá aðeins 98.490 kr. Kanarí Ótrúlegt verð! - frá aðeins 43.395 kr. * Hjón með 2 börn, 2-11 ára, vikuferð 2. eða 9. janúar, í íbúð með 2 svefn- herbergjum á Parquemar. Netverð á mann með 10.000 kr. afslætti. Beint morgunfiug . með íslensku flugfelagi Skíðaferðir Frá aðeins 29.990 kr. Flugsæti með sköttum. Fargjald A. Beint morgunf . með íslenskuflugfelagi Flug með Primera Air Það er íslenska flugfélagið JetX sem annast allt leiguflug Primera Air fyrir Heimsferðir á Islandi og fyrir önnur dótturfyrirtæki Primera Travel Group í Skandinaviu. Þjónusta um borð er fyrsta flokks og að sjálfsögðu á íslensku. Mundu MasterCard /erðadvbunlmt/MS^ • ^HF Heimsferðir Skógarhlíð 18 • 105 Reykjavík • Sínil 595 1000 • Fax 595 1001 Akureyri sími: 461 1099 • Hafnarfjörður sími: 510 9500 Dóminíska Glæsileg gisting í boði! Allt innifalið í 11 daga - frá aðeins 84.945 kr. Tenerife Ótrúlegt verð! - frá aðeins 49.995 kr.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.