blaðið - 21.07.2007, Blaðsíða 16

blaðið - 21.07.2007, Blaðsíða 16
16 FRETTIR LAUGARDAGUR 21. JÚLl 2007 blaöió Lífið á átakasvæðunum Þórður Snær Júlíusson blaðamaður hefur undanfarna daga farið um ísrael og sjálfstjómarsvæði Palestínumanna með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur utanríkisráðherra. Friðrik Tryggvason ljós- myndari var nýlega á sömu slóðum og fylgja myndir beggja um- fjölluninni í dag. Mótmæli eru tíð á Vesturbakkanum Það kemur í hlut ungra og óreyndra hermanna Israelshers að halda aftur af mótmælendum. ,Þeir hrópa „farðu heim, farðu heim!“,‘‘ segir einn hermannanna. „Eg þrái ekkert meira en að fá að fara heirn." Sýnagóga í ísraelska bænum Sderot sem varð fyrir Kassam-flugskeyti Tveimur mínútum áður var herbergið fullt af fólki. Ungir hermenn búa sig undir langhlaup frá Jerúsaiem til Gólanhæða Hermenn- irnir bera persónulega ábyrgð á vopnum sínum og mega ekki skilja þau við sig, jafnvel ekki á langhlaupum. Drengir í Betlehem Þessir drengir rótuðu í ruslahaug í leit að einhverju nýtilegu. Jósef stendur inni í húsi sínu í Sderot sem varð fyrir Kassam-flugskeyti Fimm ára sonur hans særðist á fæti og eiginkonan er ílla haldin. Hún var beint undir sprengj- unni er hún sprakk. Fyrrverandi verslunargata í Hebron Verslununum var lokað í óþökk Palestínu- manna vegna nærliggjandi landtökubyggðar Gyðinga. Það þurfti að setja vírvirki yfir götuna vegna stöðugs grjótkasts. Sprengjuskemmdir í Sderot Ummerki sprengingar sem varð fyrir utan fataverslun í Sderot. Miðaldra kona lést í sprengingunni.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.