blaðið - 21.07.2007, Blaðsíða 27

blaðið - 21.07.2007, Blaðsíða 27
blaöið LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2007 27 'Thi;, Tríó Varioso á tónleikum Tríó Varioso leikur í Lista- safni Sigurjóns á næstu sumar- tónleikum safnsins á þriðju- daginn klukkan 20.30. Tríóið er skipað þeim Ingibjörgu Guðjónsdóttur sópran, Einari Jóhannessyni klarínettuleik- ara og Valgerði Andrésdóttur píanóleikara, en þau hyggjast leika tónverk eftir Johann W. Kalliwoda, Hafliða Hallgríms- son, Jón Þórarinsson, Laszló Draskóczy og Franz Schubert. Aðgangseyrir er 1500 krónur og hægt er að panta miða við innganginn og í síma 5532906. U>WWiwWW» Kraftverk Listaverk sem sjaldan hafa komið fyrir almenn ingssjónir — mörg hver með áhugaverða sögu sem tengist Landsvirkjun og orkumálum. Kjarval, Ásgrímur, Gunnlaugur Blöndal og fleiri. Ljósafossstöö við Sog Kynnist Kárahnjúkavirkjun! Upplýsingar um Kárahnjúkaframkvæmdirnar ásamt ferðamennsku og útivist norðan Vatnajökuls. Góður viðkomustaður áður en haldið er upp á Fljótsdalsheiði. Végaröur í Fljótsdal. OpiÖ 9-17 alla daga. Innsetningar í Gallerí Dvergi Myndlistarsýning Önnu Lindar Sævarsdóttur og Lindo Rogn opnar í sýningarrým- inu Gallerí Dvergur í dag klukkan 18.30, en hún er hluti af sýningunni „Miðbaugur Kringla -Leis- ure, administration and control" sem fram fer á nokkrum stöðum borgarinnar. Anna Lind er búsett í Reykja- vík og útskrifaðist úr Listahá- skóla íslands árið 2006. Hún hefur í verkum sínum fengist mikið við jaðarmenningu og skuggahliðar samfélagsins á ljóðrænan hátt enda undir miklum áhrifum frá Ijóðlist og hefur gefið út tvær bækur með eigin ljóðum. Líður að Reykholtshátíð Senn líður að hinni vinsælu, ár- legu Reykholtshátíð, sem haldin verður dagana 26. til 29. júlí. I ár verða í fyrsta sinn í ellefu ára sögu hátíðarinnar haldnir samtals sex tónleikar en þeir hafa hingað til verið fernir. Karlakór Basil-dómkirkjunnar í Moskvu opnar hátíðina með tvennum tónleikum dagana 26. og 27. júlí. Kórinn hefur getið sér gott orð víða um heim og er skipaður atvinnusöngvurum sem allir hafa hlotið æðstu framhaldsmenntun í söng. Hann er af mörgum kunnur síðan hann kom fram á Listahátíð 2004 við góðar undirtektir. Kórinn var bannaður af kommún- istastjórninni frá 1930 fram til 1991 þegar hann kom fram aftur undir stjórn Sergei Krivobokov. Frá þeim degi hefur hann sungið reglulega í dómkirkjunni St. Basil í Moskvu ásamt því sem hann tekur þátt í tón- listarhátíðum víða um lönd. Hann flytur meðal annars rússnesk þjóð- lög, miðaldatónlist og lög eftir rúss- nesk tónskáld. Einnig koma fram á hátíðinni Hanna Dóra Sturludóttir sópran, Auður Hafsteinsdóttir fiðluleikari, Steinunn Birna Ragnarsdóttir pí- anóleikari, Lothar Odinius, tenór frá Þýskalandi, franski kvartettinn Hummel ensemble og Christopher- hljómsveitin frá Vilníus í Litháen. Karlakór Basil-dómkirkjunnar Kórinn fékk afar góðar viðtökur á Listahátíð 2004, en hann kemur fram á tvennum tónleikum á Reykholtshátíð í ár. Fassbinder og Íraksstríð Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík fer fram í fjórða sinn frá 27. september til 7. október næstkomandi. Alls verða um áttatíu myndir á dagskránni. Þýska stórstjarnan Hanna Schygulla verður gestur á hátíðinni í byrjun október þar sem henni verða veitt sérstök heiðursverðlaun fyrir framlag sitt til kvikmyndalistarinnar. Auk þess mun hún halda sérstaka tónleika hér á landi, en hún heldur einungis örfáa tónleika ár hvert. Verkum þýska leikstjórans Rainers Werners Fassbind- ers verður skipað í öndvegi og sýnt verður veglegt úrval verka hans, en hann var með iðnustu leikstjórum kvik- myndasögunnar og leikstýrði 42 myndum á ferlinum. f ár eru liðin 25 ár frá því að Fass- binder lést, einungis 37 ára að aldri. Nánari upplýsingar má nálg- ast á vefsíðunni www.riff.is. Landsvirkjun býður landsmönnum að heimsækja sex stöðvar í sumar þar sem bæði er hægt að kynna sér staðreyndir um umhverfisvæna íslenska orku og skoða fjölbreyttar sýningar um menningu, list og sögu. „Hvað er með Ásum?“ Ævintýraferð í goðheima fyrir alla fjölskylduna. Goðastyttur Hallsteins Sigurðssonar við texta Árna Björnssonar, þjóðháttafræðings. Laxárstöðvar í Aöaldal irfir : Orka í iðrum jarðar! Heimsækið gestastofuna í Kröflu, sjáið myndir trá Kröflueldum. Kynnist jarðvarma og orkuvinnslu. Kröflustöð í Mývatnssveit _______________________________________y Islensk orkumál og virkjanir - alþjóðleg fyrirmynd í umhverfismálum Líf í Þjórsárdal Ómissandi viðkomustaður á leiöinni inn á Sprengisand og í Veiðivötn. Sultartangastöö ofan Þjórsárdals Heimsókn í Húnaþing Kynnið ykkur orkumál og starfsemi Blöndustöðvar I starfsmannahúsi stöðvarinnar. Blöndustöö, Húnaþingi Kynnist okkur af eigin raun Heimsækið Landsvirkjun í sumar. Stöðvarnar eru opnar alla eftirmiðdaga í sumar. Nánari upplýsingar á www.landsvirkjun.is og í síma 515 9000 Landsvirkjun J m

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.