blaðið

Ulloq

blaðið - 30.08.2007, Qupperneq 1

blaðið - 30.08.2007, Qupperneq 1
gw í hjólastól ■ Tryggvi Ólafsson list- ■ málari lenti í alvarlegu ■ slysi í Danmörku og ■ fer um í hjólastól. Hann f hyggst flytja heim til fs- lands aftur og ná heilsunni á nýjan leik. Krókódíll bannaður Af litlum neista Ragnar Ómarsson, mat- reiðslumeistari á Domo, vildi bjóða gestum upp á krókódíl en fékk ekki leyfi til að f lytja inn slíkt dýr. í staðinn býður hann upp á kengúru og strút. Auðunn Sólberg Valsson heldur úti heimasíðunni Af litlum neista. Þar skiptast L menn á hlutum, allt frá bréfaklemmum til Bítla P„ platna, til styrktar CP-samtökunum. ÓLK»38 MATUR»26 KOLLA20 162. tölublað 3. árgangur Fimmtudagur 30. ágúst 2007 FRJALST, OHAÐ & OKEYPIS! 1000 útköll vegna erja í samböndum ■ Barsmíðar á konum í nær 200 tilvikum ■ Erfiðara að fá menn til að hætta andlegu ofbeldi Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@bladid.net Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fer í um 1000 útköll á ári vegna ágreinings í samböndum og vegna fyrrverandi sambanda. í 200 tilvikum af þessum 1000 útköllum er um ofbeldi að ræða, langoftast gegn konunni, að sögn Rannveigar Þór- isdóttur, félagsfræðings hjá lögregluembættinu. Rannveig segir fjölda útkallanna hafa verið svip- aðan frá árinu 2000. „Miðað við íbúafjölda getur verið um fækkun að ræða,“ segir hún og bendir á að samfélagsaðstæður kvenna hafi breyst. „Því hefur verið haldið fram að þær hafi meiri mögu- leika á að leita sér hjálpar en áður.“ MEÐFERÐARÚRRÆÐI ► Karlar til ábyrgðar er eina sérhæfða meðferðarúrræðið fyrir karla sem beita ofbeldi í samböndum. Körlum er kennd reiðistjórnun og aðrar aðferðir til að tak- ast á við ágreining án ofbeldis. Könnun sem gerð var meðal sænskra lögreglu- manna leiddi í ljós að meirihluti þeirra telur sig hafa of litla þekkingu á kynferðisbrotum og of- beldi gegn konum. Rannveig minnist þess ekki að slík könnun hafi verið gerð meðal lögreglu- manna hér á landi. „En ríkislögreglustjóri gerði átak hér í hittifyrra til að kynna þessi mál meðal lögreglumanna," greinir hún frá. Samkvæmt nýrri sænskri könnun verða konur fyrir alvarlegra ofbeldi en karlar og afleiðing- arnar verða langvinnari. Ingólfur V. Gíslason, sviðsstjóri hjá Jafnréttisstofu, segir erfiðara að fá menn til að hætta andlegu ofbeldi en líkamlegu. „Úttekt sem gerð var í Bretlandi fyrir nokkrum árum leiddi í ljós að líkamlegt ofbeldi karla gegn konum minnkaði þegar þeir voru sektaðir, dæmdir í fangelsi eða dæmdir í meðferð. AÐEINS EITT SÉRHÆFT MEÐFERÐARÚRRÆÐI »4 Sektir vofa yfir 15 fyrirtækjum Vinnumálastofnun hefur sent 15 fyrirtækjum lokaviðvörun vegna brota á skráningu erlendra starfs- manna. Stofnunin hefur sent um þúsund viðvörunarbréf en ^ aldrei gripið til sekta. 9rnm Vildu rukka fyrir losunarheimildir Samfylkingin, sem nú fer með stóriðjumál í ríkisstjórn, og VG mótmæltu í vor gjöfum á losunarheimildum vegna gróður- húsalofttegunda og vildu að hver heimild yrði seld fyririo% \\yi markaðsverðs. Kærastaleit í rigningunni „Björguðum ánamaðkinum Elísabetu" Börnin á barnaheimilinu Ósum í Reykjavík létu rigninguna í gær ekki stoppa sig heldur tóku fram pollagallana og stígvélin. Það er hægt að finna sér margt til dundurs í rigningunni og notuðu mörg barnanna leiktímann úti til að hoppa í pollum og drullumalla. Vinkonurnar á myndinni brugðu sér hins vegar í hlutverk björgunarmanna. „Við björguðum ánamaðkinum Elísabetu," sagði ein stelpnanna. Voru þær önnum kafnar við að finna kærasta handa Elísabetu þegar myndin var tekin. ' Grillaður kjúklingur franskar og 2 I Coca Cola kr 899 pk Opið alla daga frá kl. 10.-20. S? ,.R Bæjarlind 1 - Sími 544 4510 Gætu klifið lóðrétta veggi Ný rannsókn bendir til þess að búningur, sem gerir þeim sem klæðist honum kleift að klifra upp lóðrétta veggi líkt og Kóngulóarmaðurinn, geti á næstu árum orðið að veruleika. í grein sem birtist í vísinda- tímaritinu Journal of Physics segir að hár, sambærileg þeim sem kóngulær og gekkó-eðlur nota til að festast við ýmiss konar yfirborð, geti gagnast mannfólki sem vill klifra upp veggi bygginga eða hanga á hvolfi í loftinu. Vísindamenn í Torino á Ítalíu skoða nú hvernig nota megi slík hár til að hanna búninginn. aí NEYTENDAVAKTIN 1 Kjarna jarðarberjagrautur Verslun krónur Bónus 159 Hagkaup 286 Samkaup-Úrval 281 Melabúðin 249 10-11 356 Nettó 162 Verð á Kjarna jarðarberjagraut 1 lítri Upplýsingar frá Neytendasamtökunum GENGI GJALDMIÐLA SALA % mm usd 63,93 -1,35 ▼ ^ P GBP 129,00 -0,86 ▼ 5S dkk 11,74 -1,09 ▼ • JPY 0,55 -2,08 ▼ H EUR 87,45 -1,03 ▼ GENGISVÍSITALA 118,39 -1,13 ▼ ÚRVALSVÍSITALA 8.173 0,02 A Barnahúsgögn sem stækka Sérverslun með barnahúsgögn og fylgihluti Fossaieynir 6 - 112 Reykjavík - Sími: 586 1000 - www.husgogn.is

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.