blaðið - 30.08.2007, Blaðsíða 38

blaðið - 30.08.2007, Blaðsíða 38
38 FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2007 blaðið FÓLK folk@bladid.net Nei, engan veginn. En það er aldrei hægt að gera ölium til geðs. Það hefur aldrei verið hægt og maður reynir það ekki einu sinni! Stefnir í myrka Ljósanótt? Rúnar Júlíusson mun flytja Ljósanæturlagið á samnefndri hátíð Suðumesjamanna sem hefst þann 30. ágúst. Lagiö heitir Ó, Keflavík, og hefur vakið reiði íbúa annarra sveitarfélaga í Reykjanesbæ, sem segja hlut Keflavikur fullmikinn. HEYRST HEFUR Morgunhaninn á Útvarpi Sögu 99,4, Jóhann Hauksson, er hættur á stöðinni samkvæmt heimildum Blaðsins. Þær Hildur Helga Sigurðardóttir og Arnþrúður Karlsdóttir rífast nú um laun og Arnþrúður sparaði ekki stóru orðin í beinni útsend- ingu í fyrradag, þegar hún sagði að fólk þyrfti að mæta í vinnu til að fá greidd laun. Hún bætti einnig um betur og sagði: ^„Og þegar fólk mætir þarf það að vera í þannig ásig- komulagi að það geti sinnt vinnunni." Nýsklpaður ritstjóri DV, Reynir Traustason, mun draga fram slorstuttbuxurnar næsta sumar þegar hann hyggur á túnfisk- veiðar við Möltu. Reynir sótti siðast sjóinn fyrir 15 árum, en bauðst óvænt afleysingastaða á rækjutogaranum Eyborgu, sem er stýrt af Ólafi Ragnarssyni, er landaði 21 flóttamanni í júní síðastliðnum. Mun Ólafur vera viðtalsefni Reynis í næsta Mannlífs- blaði... Ólafur Kristjánsson, þjálfari Breiðabliks, var frekar ósáttur með Egil Má Markússon sem dæmdi leik Blika og Víkings um daginn. Ólafur sagði eftir leik- inn: „Ég hef svo sem ekki mikið vit á dómgæslu og veit ekki hvað Egill Már var að hugsa, en ég mun hugsa mig tvisvar um áður en ég stig næst upp í flugvél.“ Taka skal fram að Egill er einnig flugumferðarstjóri. Guðjón Guð- mundsson, spéfugl og íþrótta- frét tamaður, minntist lítillega á viðtalið á blaðamannafundi í gær þegar hann spurði Ólaf, sem mætir FH i undanúrslitum bikarkeppninnar á sunnu- dag: „Hvernig er það, Ólafur Kristjánsson, ert þú ekki fyrst og fremst ánægður með að spila á Laugardal- svellinum og að hafa ekki þurft að fljúga í leik- inn?“ Þá varð heldur fátt um svör... Auðunn Sólberg Segir síöuna hafa fekið kipp í ágúst rnjar Gauti Auðunn Sólberg Valsson lætur gott af sér leiða Vill endurgjalda aöstoöina Auðunn Sólberg Vals- son heldur úti heima- síðunni Af litlum neista. Þar skiptast menn á ýmsum hlutum, allt frá bréfaklemmum til Bítla- platna. Ágóðinn af síð- asta hlutnum mun síðan renna til CP-samtakanna á íslandi. Eftir Trausta Salvar Kristjánsson traustis@bladid.net „Við eigum lítinn sjö ára strák sem er með sjúkdóm er nefnist tvennd- arlömun, eða cerebral palsy (CP). Hann hefur fengið frábæra aðstoð og ummönnun frá hinu opinbera og fleiri aðilum og þetta er mín leið til að endurgjalda þá hjálp,“ segir Auð- unn sem fékk hugmyndina lánaða erlendis frá. Bréfaklemma verður að íbúð „Ég sá svipaða skiptisíðu á Net- inu sem gekk mjög vel í Bandaríkj- unum. Þar var byrjað á einfaldri bréfaklemmu og endað á tveggja herbergja íbúð í Kanada eftir aðeins tíu skipti. Sjálfur er ég einungis milli- maður fyrir skiptin, en ég byrjaði einnig á að bjóða bréfaklemmu og var boðinn penni i skiptum fyrir hana. Fyrir pennann fékk ég síðan geisladisk og fyrir diskinn fékk ég forláta Tupperware-örbylgjuílát. Fyrir það fékk ég hreingerningar- pakka frá Enjo, sem var skipt fyrir ansi veglegt LP-plötusafn Bítlanna. Fyrir það fékkst loks gjafabréf á veit- ingahúsið Hornið fyrir tiu manns, sem stendur enn til boða. Og ef ein- hver hefur í huga að bjóða góðu fólki með sér á Hornið, þarf hann aðeins að bjóða hlut sem er ögn verðmætari en gjafabréfið sjálft," segir Auðunn sem byrjaði á heimasíðunni í okt- óber síðastliðnum. „Hugmyndin er síðan að láta þetta ganga áfram fram að 15. október 2007, en þá er ár síðan þessu var startað. Þá mun síðasti hlut- urinn verða boðinn upp og andvirðið mun renna til CP-samtakanna.“ Skæður sjúkdómur Enski læknirinn William Little rannsakaði árið 1870 fyrstur manna óþekkta hreyfihömlun sem greind- ist á uppvaxtarárum barna. Ein- kennin lýstu sér í erfiðleikum með að grípa um hluti, skríða og ganga. Ástandið hvorki batnaði né versnaði með árunum. Cerebral palsy eða spastísk tvenndarlömun, er algeng- asta tegund hreyfihömlunar meðal barna og er hún margbreytileg og eru einkenni hennar mismunandi. MAÐURINN Auðunn er 43 gamall mat- reiðslumeistari. Hann vinnur sem kokkur hjá Frjálsa fjárfestingarbank- anum. Slóðin á heimasíðuna er: af- litlumneista.blogspot.com Henni geta fylgt bæði flogaveiki og greindarskerðing. Á Islandi fæðast að jafnaði um tiu börn á ári með þennan sjúkdóm og um 200 börn undir 18 ára aldri lifa með honum idag. „Strákurinn minn er sem betur fer ekki mjög illa haldinn miðað við önnur börn, en hann fékk sjúk- dóminn í lappirnar. Hann þarfnast þó aðstoðar við að komast ferða sinna, en hefur blessunarlega sloppið við hjólastólinn,“ segir Auðunn. Hann segist einnig von- ast til að landsmenn taki við sér á lokasprettinum. „Þetta byrjaði mjög vel í fyrstu, en datt síðan aðeins niður í sumar. Þetta hefur tekið aðeins við sér aftur nú í ágúst og ég hef reynt að vekja svolitla athygli á þessu. Og ef góður skriður kemst á þetta er aldrei að vita nema ég framlengi frestinn eitthvað." BLOGGARINN... Baunaö á Björn „Það er ég aldeilis handviss um að þessi maður (Páll Hreinsson - sem ég þekki ekki neitt og veit ekkert um) hefur verið miklu, miklu hæfari og frambærilegri en Sigriður Ingvarsdóttir sem einnig sótti um. Björn Bjamason hefði aldrei farið að fara eftir öðru en menntun og hæfni við mannaráðningar er það? - Alla vega ekki kynferði - enda á það náttúrulega ekki að vera ráðandiþátturístöðuveitingum ... “ Sóley Tómasdóttir soley.blog.is Jafnréttis-Bjössi „Það var syo sem ekki við öðru að búast en að Sóley Tómasdóttir, ritari VG og ofurfem- fnisti, myndi tjá sig um skipun nýs dómara við Hæstarétt íslands..Að sjátfsögðu er hún hneyksluð yfir þvi að ekki skyldi hafa verið ráðin kona, jafnvel þótt aðeins ein kona hafi verið meðal umsækjenda. Reynd- ar færir Sóley engin rök fyrir hneykslan sinníen það hefur nú ekki stoppað hana áður. Síðan fer Sóley með þær dylgjur að núverandi dómsmálaráðherra, Bjöm Bjamason, skipi fyrst og fremst karlmenn í áhrifastöður. Björn hefur í núverandi ráð- herrastól skipað: 4 sýslumenn, 3 konurog 1 kari. 8 héraðsdómara, 4 konur og 4 karla, 4 saksóknara, allt konur. “ Gísli Freyr Valdórsson gislifreyr.blog.is Miðjumoðhausar „Ekki kom mér á óvart, að bandarísk könn- un sýndi vinstri menn lesa fieiri bækur en hægri menn. Ekki heldur, að notendur Fox sjónvarpsins em heimskari og fáfróðari en annað fólk. Hitt kom mérá óvart, að þeir, sem telja sig miðjumenn, lesa langtum færri bækur en hægri og vinstri menn. Fólk er líka heimskara á miðjunni. Kannski er það gáfumerki Islendinga að hafa hafnað Framsóknarftokknum. Málið er kannski, að miðjufólkið er fáfrótt og ánægt. En jaðar- menn til allra átta eru að leita að einhverju. Til dæmis í bókum. Og kannski er skemmri leið frá vinstri til hægri en til miðjunnar. “ Jónas Kristjánsson www.jonas.is LAUGARDAGAR ORÐLAUSTÍSKA Auglýsingasíminn er 510 3744 blaðið= Su doku 7 1 2 6 4 3 5 1 3 8 7 2 1 8 3 9 5 1 7 6 9 4 8 4 1 3 5 2 7 Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir i hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. Geturðu bent á manninn, sem kýldi þig í hnéð? 8-10 O Jim Unger/dist. by United Media, 2001 HERMAN eftir Jim Unger

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.