blaðið - 30.08.2007, Blaðsíða 22
22
FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2007
blaðið
LÍFSSTÍLL48K
48k@bladid.net
Hægt að horfa á það vídeó sem er inni
á PS3-tölvunni á PSP-tölvunni, ásamt
því að horfa á sjónvarpsstöðvarnar í
PSP-tölvunni.
KÍLÓBÆT
• Það lifir!
Eidos kynnti á
dögunum leik-
inn Monster
Lab fyrir
Nintendo Wii
sem hefur alla
burði til að trylla Wii-eigendur af
gleði. Leikurinn setur leikmenn
í fótspor klikkaðs vísindamanns
sem blandar saman alls konar
skrimslum til að búa til svakaleg
stríðstól. í leiknum verður hægt
að blanda saman um 150 mismun-
andi skrímslum eftir hjartans lyst.
• GT-for-
leikur
ókeypis
Leikjavefur-
inn Games-
pot greinir
nú frá því
að Gran Turismo 5 Prologue, sem
átti að verða seldur í PSN-búðinni,
verði ekki seldur heldur muni
notendur geta náð í hann ókeypis.
Það munu vera mjög góðar fréttir
fyrir leikjafíkla því þá geta allir
Playstation 3-eigendur fengið að
njóta þeirrar miklu veislu sem
Gran Turismo 5 er.
• Segulbandstónhlaða
Þeir sem eru að velta því fyrir sér
hvað eigi að gera við gamla seg-
ulbandstækið
geta loksins
sofið rólegir.
Kínverskt
fyrirtæki
hefur kynnt
tónhlöðu í
0'
gervi gamaldags spólu. Henni er
hægt að stinga beint í tækið og
spila eins og venjulega. Þeir sem
halda því fram að segulbandið sé
dautt geta þvi formlega borðað
hattinn sinn.
fram úr 35mm filmu, eða tvisvar
sinnum meiri en hefðbundið há-
skerpusjónvarp. Þeir sem hyggja
á stuttmyndagerð í vetur geta
eignast gripinn fyrir rétt rúma
milljón íslenskra króna.
• PS-sími
Nú hafa sögusagnir
um Playstation-far-
síma farið á flug með
yfirlýsingum Peter
Ahnegard hjá Sony
Ericsson um að það sé
verið að skoða þann
möguleika. Hann sagði í viðtali
við Pocket Gamer að einhverra
frétta væri að vænta um þetta mál
fyrir jólin. Hann tókþað bara
ekki fram hvaða jól, svo biðin
gæti orðið löng.
• Manhunt væntanlegur
Rockstar hefur greinilega eytt
dágóðum tfma í að hreinsa upp
grófasta ofbeldið í Manhunt
2-leiknum því nú hefur aldurstak-
mörkunum
á honum
verið breytt
í Banda-
ríkjunum.
Leikurinn
hefur því
losað sig við Adults Only-stimp-
ilinn og skartar nú aðeins rýmri
aldurstakmörkum. Leikurinn er
væntanlegur í amerískar búðir á
hrekkjavöku, í lok október.
• RED
Fyrsta ofur-
háskerpu-
myndavélin
RED rúllar
af færiband-
inu í dag.
Vélin var kynnt á NAB-sýning-
unni í fyrra og er fyrsta stafræna
myndbandstökuvélin sem býður
upp á gæði sem fara jafnvel
• NýriPod?
Þær sögusagnir ganga nú á Net-
inu að þann fimmta september
muni Apple efna til blaðamanna-
fundar, þar sem þeir kynni sjöttu
kynslóðina af iPod-spilaranum
vinsæla. En iPod-spilararnir
hafa ekki verið uppfærðir síðan
2005. Sögur herma að spilarinn
muni halda hjólinu gamla í stað
þess að nota snertiskjá eins og
iPhone-síminn.
MEGABÆT
Litlar systur
Freísið þær í
guðanna bænum
Stórleikurinn Bioshock hefur
verið að gera góða hluti síðan
hann kom út en leikurinn er
til að mynda uppseldur hér á ís-
landi. Leikurinn hefur þó fengið
á sig nokkra gagnrýni og eru
það einna helst hinar svoköll-
uðu litlu systur sem hafa fengið
harða gagnrýni. Litlu systurnar
í Bioshock eru litlar stelpur í
annarlegu ástandi, hálfgerðir
draugar sem vappa um hina nið-
urníddu borg Rapture og safna
hinu mikilvæga ADAM-efni úr
föllnum íbúum borgarinnar.
Þegar svoleiðis stúlkur verða á
vegi leikmannsins hefur hann
tvo kosti. Annars vegar að frelsa
stúlkuna úr prísund sinni eða
að draga ADAM-efnið úr henni
sem getur skipt sköpum við
spilun leiksins, en sú aðgerð
Ieiðir til dauða barnsins. Þessi
valkostur í leiknum hefur opnað
fyrir mikla gagnrýni sem fyrst
og fremst snýst um það að þarna
sé hreinlega verið að slátra
litlum börnum. Því hefur verið
haldið fram að yngri spilarar
hafi ekki sömu skynjun á réttu
og röngu og eldri leikmenn og
því geti þessi athöfn í leiknum
valdið því að börn og unglingar
verði, með tímanum, ónæm
fyrir drápum á börnum.
Þetta mál sýnir bara enn betur
fram á mikilvægi þess að
foreldrar skilji og fari eftir gild-
andi reglum um aldursflokkanir
leikja því þessar flokkanir sýna
greinilega fram á að Bioshock
á alls ekki að vera spilaður af
börnum.
Sony kynnir PlayTV
Playstation3
sigrar stofuna?
Á leikjaráðstefnunni í
Leipzig kynnti Sony nýja
viðbót fyrir Playstation3-
tölvuna, PlayTV
Eftir Elías R. Ragnarsson
elli@bladid.net
PlayTV mun í raun leysa gamla
góða vídeóið af hólmi og DVD-
upptökutæki sem aldrei hafa náð
þeim vinsældum sem vonast var
til. En með PlayTV verður hægt
að taka upp sjónvarpsefni beint
inn á harðan disk Playstation
3-tölvunnar. Slíkar lausnir hafa
verið á markaðnum í þó nokkurn
tima og er t.d. Tivo mjög vinsælt
í Bandaríkjunum. í Evrópu hafa
slík upptökutæki ekki náð jafn
miklum vinsældum. Með PlayTV
verður PS3-tölvan í raun mið-
punktur heimabíósins, en tölvan
mun stjórna sjónvarpsstöðvunum,
geyma það efni sem tekið hefur
verið upp úr sjónvarpinu ásamt
því að geta geymt öll þau hljóð og
vídeó sem notandinn getur sett
inn á. Tölvan getur einnig tengst
heimilistölvunni og spilað vídeó
og tónlist beint af henni.
PlayTV er í raun lítill kubbur sem
tengist við PS3-tölvuna, en kubb-
urinn hefur þau tengi sem þarf og
inniheldur tvo sjónvarpsmóttakara.
Ástæðan fyrir því að þeir eru tveir
mun vera sú að með því er hægt að
taka upp efni á einni rás og horfa
á aðra. Að sögn Sony mun PlayTV
aldrei verða úrelt því hugbúnaður-
inn verður reglulega uppfærður.
Þráðlaust sjónvarp
Þráðlaus tenging á milli Playst-
ation3 og PSP-tölvunnar er fídus
sem Sony hefur auglýst þó nokkuð
og með PlayTV hafa þeir nýtt þessa
tengingu til fulls. Hægt verður að
nota PSP-tölvuna til að stjórna
öllu saman en einnig verður hægt
að horfa á það vídeó sem er inni á
PS3-tölvunni á PSP-tölvunni, ásamt
því að horfa á sjónvarpsstöðvarnar
í PSP-tölvunni. Það merkilega við
þennan fídus er að hægt verður að
gera þetta hvar sem er í heiminum
svo lengi sem PSP-tölvan kemst í
nettengingu.
PlayTV mun koma út snemma
árs 2008, en þó aðeins í stóru Evr-
ópulöndunum eins og Englandi,
Þýskalandi og Italíu. Að sögn Sony-
manna er áformað að setja PlayTV
á markað í fleiri Evrópulöndum
seinna á árinu, þar á meðal í Skand-
inavíu. Enn sem komið er eru engin
áform um útgáfu í Bandaríkjunum,
sem er nokkuð einkennilegt þar
sem Bandaríkjamenn eru oftast
þeir fyrstu til að fá leiki á græjur, en
að öllum líkindum vill Sony prófa
sig áfram í Evrópu og sjá hvernig til
tekst, áður en þeir fara í beina sam-
keppni við fyrirtæki á borð við Tivo
í Bandaríkjunum.
Sony-menn eru ekki þeir einu
sem hafa séð möguleikana sem fel-
ast í því að nota leikjatölvurnar til
að sýna sjónvarpsefni. Helsti keppi-
nautur Sony á leikjatölvumark-
aðnum, Microsoft, byrjaði fyrir
skömmu að bjóða upp á sjónvarps-
þætti á Xbox Live-netþjónustunni í
HD-gæðum. Sá hængur er þó á að
þessi þjónusta er aðeins til staðar
innan Bandaríkjanna.
Smávaxin snilld
Ratchet & Clank: Size
Matters er skólabókardæmi
um það hvers megnug litla
leikjatölva Sony, PSP, er í
raun og veru. í leiknum
fer leikmaðurinn í fótspor
þeirra félaga Ratchet og
Clank, þar sem þeir berjast
við harðskeyttar en ótrúlega
smávaxnar geimverur sem
nefnast Technomites en
þau kvikindi hafa skelfileg
áform um heimsyfirráð og
spilar Ratchet sjálfur stórt
hlutverk í þeim áformum.
Það fyrsta sem ber að nefna varð-
andi Racthet og Clank er það hversu
vel leikurinn lítur út. Þetta er án
efa einn af flottustu PSP-leikjunum
enn sem komið er. Öll grafík er til
fyrirmyndar og er það mesta furða
að þessi leikur hafi rúmast á litlum
UMD-diski. Hljóðið
er líka með ágætum
eins og venjan er fyrir
þessa leiki.
Það sem hefur hins
vegar verið aðalsmerki
þessara leikja eru
vopnin og það er vissu-
lega nóg af þeim þó
svo að vissulega vilji
maður alltaf meira.
Vopnin eru fjölbreytt
og eru allt frá því að
vera teiknimyndaút-
gáfur af haglabyssu
yfir í hina geysiskemmtilegu byssu
Mootator sem breytir óvinunum í
kýr sem síðan springa.
Leikurinn er því miður ekki full-
kominn. Hann er í styttri kantinum
sem er skiljanlegt miðað við gæðin
á grafikinni en einnig gera mynda-
Viggó Ingimar Jónasson viggo@bladid.net
= 85%
vélarnar í leiknum manni stundum
erfitt fyrir með því að fela aðalsögu-
hetjurnar eða hættulega óvini.
Ratchet & Clank er engu að síður
frábær PSP-leikur og hann sómir sér
vel í leikjasafni hvers PSP-eiganda.