blaðið - 30.08.2007, Blaðsíða 24
24
FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2007
blaðið
LÍFSSTÍLLKONAN
konan@bladid.net
Nú í kvöld klukkan 20 stöndum við til dæmis
fyrir bingókvöldi í Alþjóðahúsinu og þar er
markmiðið að byggja brú á milli kvenna og
eiga ánægjulegt kvöld saman
Samtök kvenna af erlendum uppruna
Styrkja ímynd erlendra
kvenna á íslandi
Namazie
á íslandi
Maryam Namazie verður með
erindi á hádegisfundi Kvenrétt-
indafélags íslands í samkomusal
Hallveigarstaða næstkomandi
miðvikudag, þann september,
klukkan 12, en hún verður stödd
hér á landi í boði Háskóla íslands.
Namazie á ættir að rekja til
írans en bjó lengst af í Banda-
ríkjunum þar sem hún hlaut
háskólamenntun sína, en nú býr
hún í Bretlandi. Hún hefur látið
mjög að sér kveða í mannréttinda-
málum kvenna, málefnum sem
lúta að íran, flóttamönnum og
islam svo fátt eitt sé nefnt.
Sykursýki á
meðgöngu
Ef konur sem fá sykursýki á
meðgöngu, hljóta meðferð við
sjúkdómnum, minnka líkurnar
mikið á því að barnið eigi eftir að
stríða við offituvandamál síðar
samkvæmt nýlegri bandarískri
rannsókn. Þar kom fram að því
meira sem blóðsykurmagnið er
í blóði móðurinnar á meðgöngu,
þeim mun meiri líkur eru á því
að barnið verði of feitt við 5 til
7 ára aldurinn, jafnvel þótt móð-
irin hafi ekki verið greind með
sykursýki.
Ef ekki er veitt meðferð við of
háu hlutfalli blóðsykurs í blóði
móðurinnar meðan á meðgöngu
stendur eykur það líkur á offitu
barnsins um allt að helming.
Kalsíum gegn
beinþynningu
Konum er gjarnan ráðlagt að
vera duglegar að neyta kalsíums
til þess að minnka líkur á þær
þjáist af beinþynningu á sínum
efri árum. Misjafnt er hvort
konur kjósa að taka sérstakar kal-
síumtöflur eða tryggja að fæðan
sem þær innbyrða innihaldi
ráðlagðan dagskammt af kalsíum.
Samkvæmt rannsóknum vís-
indamanna í Washington virðist
ýmislegt benda til þess að mun
áhrifaríkara sé að neyta kalsíum-
ríkrar fæðu en að taka kalsíum-
töflur og að það veiti betri vörn
gegn beinþynningu.
Erlendar konur eru virkir
þátttakendur í íslensku
samfélagi og eru Sabine
Leskopf og aðrar í stjórn
Samtaka kvenna af
erlendum uppruna dug-
legar að vekja athygli á
því.
Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur
hilduredda@bladid.net
Samtök kvenna af erlendum upp-
runa eru frjáls félagasamtök og
voru stofnuð á kvennafrídeginum
24. október árið 2003, en í þeim
eru konur frá öllum heimshornum
sem eiga það eitt sameiginlegt að
búa og starfa á íslandi. Sabine Le-
skopf, einn stjórnarmanna í sam-
tökunum, segir hlutverk samtak-
anna meðal annars vera að fræða
erlendar konur um réttindi þeirra
og skyldur í íslensku samfélagi
ásamt því að styrkja ímynd erlendra
kvenna. „Við minnum á að erlendar
konur eru mjög virkir þátttakendur
í íslensku samfélagi og við höfum
töluvert verið að blanda okkur í
umræðuna á pólitískum vettvangi
sem okkur finnst mjög mikilvægt.
Við höfum alltaf fengið töluverða at-
hygli frá fjölmiðlum, til dæmis í um-
ræðu varðandi heimilisofbeldi, sem
er auðvitað mjög mikilvægt málefni
þótt það sé alls ekki það eina sem
skiptir máli í sambandi við erlendar
konur,“ segir hún. „Oft vantar þær
upplýsingar varðandi mennta- og
heilbrigðiskerfið og við höfum
meðal annars staðið fyrir fyrir-
lestrum um þau mál ásamt því sem
við höfum haldið tölvunámskeið
fyrir konur frá Taílandi, Póllandi
og víðar. Hér er allt svo tölvuvætt
og margar erlendar konur gera sér
ekki grein fyrir því hvað þær missa
af miklum upplýsingum ef þær nota
ekki tölvur, ekki bara varðandi ís-
lenskt samfélag heldur líka þeirra
heimalönd."
Tvöfalt misrétti
Sabine segir Samtök kvenna af
erlendum uppruna hafa notið mik-
ils stuðnings hér á landi, ekki síst
frá kvennasamtökum. „Til dæmis
höfum við átt gott samstarf við
hreyfingar á borð við Allar heims-
ins konur sem vinnur að mennta-
verkefnum fyrir erlendar konur.
Önnur kvennasamtök styðja líka
við bakið á okkur enda er mikið
talað um launamun kynjanna hér
á landi. Fólk af erlendum uppruna
á oft erfitt með að fá menntun sína
Sabine er frá Þýskalandi.
Hefur búið á íslandi í 7 ár.
Starfar sem verkefnisstjóri
túlka- og þýðingarþjónustu
Alþjóðahúss.
metna hér á landi þannig að er-
lendar konur búa í raun við tvöfalt
misrétti að því leyti," bendir hún á.
Bingó í kvöld
En samtökin standa ekki bara
fyrir fræðslufundum og fyrir-
lestrum heldur einnig skemmti-
samkomum. „Nú í kvöld klukkan
20 stöndum við til dæmis fyrir bin-
gókvöldi í Alþjóðahúsinu og þar er
markmiðið að byggja brú á milli
kvenna og eiga ánægjulegt kvöld
saman. Þetta er ekki fjáröflunar-
kvöld enda kostar spjaldið bara 100
krónur. Svona kvöld hafa nokkrum
sinnum verið haldin og alltaf heppn-
ast mjög vel enda er þetta mjög góð
leið til þess að virkja erlendar konur.
Svo eru þessi kvöld líka opin ís-
lenskum konum þannig að þeim er
velkomið að koma líka og taka þátt í
að byggja þessa brú á milli kvenna,"
segir Sabine.
Ekki föst féalgaskrá
Spurð um fjölda meðlima í sam-
tökunum segir Sabine þau ekki
halda. neina fasta félagaskrá, en
að á annað hundrað kvenna séu
á póstlista hjá þeim. „Við viljum
ekki hafa þetta of formfast enda er
öllum erlendum konum velkomið
að taka þátt í starfinu með einum
eða öðrum hætti. Við sem þegar
erum virkar í starfinu reynum líka
að vera duglegar að vekja athygli
kvenna á því og virkja þær,“ segir
hún og bætir því við að engin félags-
gjöld séu innheimt af samtökunum.
„Við störfum heldur ekki á vegum Al-
þjóðahússins þó svo að ég og fleiri
séum að vinna þar. Reyndar hefur
Alþjóðahús alltaf lánað okkur að-
stöðu fyrir fundi og námskeið og
ég sem starfsmaður Alþjóðahúss
þakka fyrir að hafa vinnuveitanda
sem sýnir mér alltaf fullan skiln-
ing þegar ég þarf til dæmis að fara
á ráðstefnur og fleira á vegum
Samtaka erlendra kvenna. En þó
við innheimtum ekki félagsgjöld
höfum við stundum fengið styrki
frá félagsmálaráðuneytinu og fleiri
aðilum, til dæmis til að sækja ráð-
stefnur og námskeið, ásamt því
sem við eigum gott samstarf með
svipuðum samtökum á Norðurlönd-
unum og víðar.“
KONA VIKUNNAR
Svanhildur Hólm Valsdóttir er kona vikunnar í
Blaðinu að þessu sinni, en hún tók nú nýlega við
starfi sem ritstjóri íslands í dag á Stöð 2.
Hvað œtlaðirþú að verða þegarþú varst lítil?
Fornleifafræðingur, dýralæknir, lögfræðingur.
Efekki hér, þá hvar? Dalvík.
Hvað er kvenlegt? Mæður.
Er munur á körlum og konum og ef svo er hver er
hann? Karlmenn geta ekki með góðu móti orðið
mæður og öfugt.
Erfullu jafnrétti náð? Neineinei.
Hvað skiptir þig mestu máli í lífinu? Mínir
nánustu.
Helstu fyrirmyndir? Foreldrar mínir.
Ráð eða speki sem hefur reynst þér vel? Góðir
hlutir gerast hægt.
Uppáhaldsbók? Algjörlega ómögulegt að velja úr
öllum þeim fjölda sem ég hef lesið. Elías og Páll
Vilhjálmsson komast þó ofarlega á lista.
Draumurinn þinn? Að vera í skemmtilegri vinnu,
hafa nóg að bíta og brenna og nægan tíma til að
sinna fjölskyldu, heimili, vinum og köttum.