blaðið - 30.08.2007, Blaðsíða 4
Allra
síðustu
sætin!
J öfnunarstyrkur
tíl náms
- Umsóknarfrestur er til 15. október 2007 -
Nemendur á framhaldsskólastigi sem ekki
njóta lána hjá LIN geta sótt um styrk til
jöfnunar á námskostnaði. Styrkurinn ræðst
af búsetu og er fyrir þá sem verða að stunda
nám íjarri heimili sínu.
• Dvalarstyrkur (fyrir þá sem verða að
dvelja fjarri lögheimili og íjölskyldu
sinni vegna náms).
• Styrkur vegna skólaaksturs (fyrir þá
sem sækja nám frá lögheimili og
íjölskyldu íjarri skóla).
Nemendur og aðstandendur þeirra eru
hvattir til að kynna sér reglur um styrkinn
/
ávefLIN (www.lin.is).
Umsóknarfrestur vegna skólaársins
2007-2008 er til 15. október nk.
Sækja má um styrkinn á heimasíðu LÍN.
Móttaka umsókna hefst í september nk.
Lánasjóður íslenskra námsmanna
Námsstyrkjanefnd
Súpersól til
Salou
8 9
frá
eptember
Terra Nova býður ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum til Salou og Pineda i september.
Salou og Pineda eru tallegir bæir á Costa Dorada ströndinni, sunnan Barcelona. Þar er
Port Aventura, stærsti og glæsilegasti skemmtigarður Spánar. Stórkostlegar strendur,
fjölbreytt aðstaða og litríkt næturlíf. Þú bókar og tryggir þér sæti og 4 dögum fyrir
brottför færðu að vita hvar þú glstir.
tHL
mvÚ --~u v. ^^2«
Kr. 29.995
Netverð á mann, m.v. 2 fulloröna og 2 börn í viku.
Súpersól tilboð 7., 14. og 21. september.
Kr. 39.990
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna í viku.
Súpersól tilboð 7., 14. og 21. september.
TerraNova
PRIMERA GR0UP
Skógarhlíð 18-105 Reykjavík
Sími: 591 9000 • www.terranova.is
Akureyri sími: 461 1099
Hafnarfjörður sími: 510 9500
Brýtur gegn ríkjandi
hefð í umhverfisrétti
■ Samfylking og VG mótmæltu gjöfum á losunarheimildum
■ Stjórnvöld sögð brjóta gegn jafnræðisreglunni
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynur@bladid.net
„Samkvæmt alþjóðlegum umhverf-
isrétti og þeim umhverfisrétti sem
hefur verið að ryðja sér rúms, á sá
sem mengar að borga fyrir það. Mér
finnst mjög hart að fyrirtæki hér á
landi verði ekki látin bera ábyrgð,
t.d. með því að borga fyrir meng-
unarkvóta, á þeirri mengun sem
þau valda umhverfi sínu á næstu
fimm árin,“ segir Árni Finnsson,
formaður Náttúruverndarsamtaka
fslands.
í vor var samþykkt frumvarp til
laga um losun gróðurhúsaloftteg-
unda, sem kveður á um að losun-
arheimildir skuli afhenda endur-
gjaldslaust en óframseljanlega þeim
stóriðjufyrirtækjum sem lengst eru
komin í uppsetningu verksmiðja
hér á landi. Þáverandi minnihluti
umhverfisnefndar Alþingis, Sam-
fylking og vinstri grænir, mótmælti
frumvarpinu og lagði til að hver
heimild yrði seld fyrir ío prósent
markaðsverðs; þannig stæðu fyrir-
tæki á f slandi ekki höílum fæti gagn-
vart fyrirtækjum á ESB svæðinu,
þar sem ríkisstjórnir eru skikkaðar
til að afhenda fyrirtækjum frá og
með á næsta ári 90 prósent heim-
ilda sinna gjaldfrjálst. Tillaga sú var
felld í atkvæðagreiðslu.
Stærsti vörumarkaður í heimi
„Því er spáð að markaður með los-
unarheimildir verði stærsti einstaki
LÖG UM LOSUN
► Samkvæmt lögum um losun
gróðurhúsalofttegunda skal
afhenda þeim fyrirtækjum
fyrst heimildir sem hafa haf-
ið starfsemi fyrir 1. janúar
2008.
►
Eftir það gildir sú regla að
þau fyrirtæki sem komin
eru lengst á veg með upp-
byggingu verksmiðja ganga
fyrir.
► Sótt hefur verið um heim-
ildir fyrir 34 prósent meiri
losun en ísland hefur til
úthlutunar.
vörumarkaður í heiminum innan
fárra ára,“ segir hagfræðingurinn
Berþóra Arnarsdóttir. Hjá nýsköp-
unar- og frumkvöðlasetrinu Innovit
hafaþau Bergþóra og Þorsteinn Ingi
Sigfússon, prófessor við Raunvís-
indadeild Háskóla Islands, unnið að
verkefni sem fjallar um möguleika
þess að stofna íslenska viðskipta-
stofu með kolefniskvóta.
„Framboð á losunarheimildum
gróðurhúsalofttegunda verður tölu-
vert minna en eftirspurn, og því
verða þær mjög verðmætar. Það er
ekki spurning að samkvæmt jafn-
ræðisreglunni ætti að ganga jafnt
yfir alla við úthlutun heimildanna,
og langeðlilegast að þær séu boðnar
upp. Við erum á leið með að gera
sömu mistök og gerð voru við upp-
haf núverandi fiskveiðistjórnunar-
kerfis,“ segir Bergþóra.
Andri Heiðar Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri Innovit, tekur í sama
streng. „Þetta er sameiginleg auð-
lind sem allir ættu að hafa jöfn tæki-
færi til að komast í. Því finnst mér
langeðlilegast að markaðurinn fái
að ráða dreifingu gæðanna, og þetta
sé selt á opnum markaði. Þannig fær
seljandinn, þ.e. ríkið, líka mest fyrir
sinn snúð.“
Hvetja fyrirtæki til að áframselja
Eins og fram kom í Blaðinu í gær
er tilskipun frá ESB, um að frá ár-
inu 2008 skuli ríki úthluta a.m.k.
90 prósentum af losunarheimildum
sínum endurgjaldslaust, eitt af því
sem stendur í vegi fyrir því að ís-
lensk stjórnvöld taki gjald fyrir los-
unarheimildirnar. Tilskipun þessi
fellur að vísu ekki undir samning-
inn um Evrópska efnahagssvæðið,
en í samtali við Blaðið lýsti Össur
Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra,
því yfir að íslendingar myndu fylgja
ESB-ríkjunum í þessum efnum.
Magnús Jóhannesson, ráðuneyt-
isstjóri umhverfisráðuneytisins,
segist telja rök ESB fyrir því að vilja
afhenda meirihluta heimilda endur-
gjaldslaust, vera þau að þannig sé
hvati fyrir fyrirtækin sem fá heim-
ildir til að menga minna og áfram-
selja þær heimildir sem þau nota
ekki. Eins og segir hér að ofan leyfa
a.m.k. íslensk lög hins vegar ekki að
heimildirnar séu áframseldar.
Konur verða fyrir alvarlegra ofbeldi en karlar og afleiðingar eru meiri
100 karlar í ofbeldismeðferð
Samkvæmt nýrri sænskri könnun
er ofbeldi gegn körlum algengara en
ofbeldi gegn konum. Konur verða
hins vegar fyrir alvarlegra ofbeldi
en karlar og afleiðingarnar verða
langvinnari.
Ingólfur V. Gíslason, sviðsstjóri
hjá Jafnréttisstofu, segir að hér á
landi verði miklu fleiri karlar fyrir
ofbeldi en konur en þegar um heim-
ilisofbeldi sé að ræða séu það fleiri
konur sem verða fyrir ofbeldi og auk
þess alvarlegra ofbeldi en karlar.
Verkefnið Karlar til ábyrgðar er
eina sérhæfða meðferðarúrræðið
fyrir karla sem beita ofbeldi á heim-
ilum. Um var að ræða tilraunaverk-
efni sem sett var á laggirnar 1998
og komið af stað aftur í fyrra eftir
fimm ára hlé og er það nú á fjár-
lögum. Alls hafa nær 100 karlar
tengst úrræðinu á einn eða annan
hátt, að sögn Ingólfs.
Hann segir erfiðara hafa reynst
að fá menn til að hætta andlegu of-
beldi en líkamlegu. „Úttekt sem gerð
var í Bretlandi fyrir nokkrum árum
leiddi í ljós að líkamlegt ofbeldi
karla gegn konum minnkaði þegar
þeir voru sektaðir, dæmdir í fangelsi
eða dæmdir í meðferð. Það var hins
vegar bara meðferðarúrræðið sem
dró einnig úr stjórnunaráráttunni.“
lngibjorg@bladid.net
Alvarlegra ofbeldi Konur verða
sjaldnar fyrir ofbeldi en karlar, en
þá alvarlegra. Myndin er sviðsett.
Bláðiö/ÞÖK