blaðið - 30.08.2007, Blaðsíða 14
14
FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2007
blaöió
blaði
Útgáfufélag: Árvakur hf.
Ritstjóri: Ólafur Þ. Stephensen
Fréttastjórar: Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Þröstur Emilsson
Ritstjórnarfulltrúi: Elín Albertsdóttir
Nýi gjafakvótinn
Heimildir til útblásturs gróðurhúsalofttegunda verða ekki boðnar upp
hér á landi, heldur úthlutað án endurgjalds til stóriðjufyrirtaekja. Þetta er í
samræmi við lög, sem fóru í gegnum Alþingi á lokaspretti þinghaldsins síð-
astliðið vor og voru aðallega rædd seint á kvöldin og á nóttunni.
Þar fóru þó fram talsverðar umræður um innihald þessara laga. I áliti
minnihluta umhverfisnefndar, sem innihélt m.a. annan núverandi stjórn-
arflokka, Samfylkinguna, kom fram að minnihlutinn teldi fullkomlega
óeðlilegt að úthluta heimildunum án endurgjalds. Þær væru takmörkuð
verðmæti í þjóðareigu sem ætti að afhenda til tímabundinnar nýtingar gegn
gjaldi.
Mörður Árnason, þáverandi þingmaður Samfylkingarinnar og ffam-
sögumaður álits minnihluta umhverfisnefndar, sagði í umræðunum um
þetta mál: „Sjálfsagt er að skapa hagræna hvata sem víðast til að draga úr
notkun losunarheimildanna. Hætt er við að með úthlutun gjaldfrjálsra los-
unarheimilda sé ýtt undir hefðarhald á þessum heimildum, að fyrirtækin
sem úthlutað verður ókeypis kvóta telji sig eiga hann með nokkrum hætti
og geri á þeim grunni kröfur í framhaldinu, eftir árslok 2012. Saga fiskveiði-
stjórnar á Islandi undanfarna áratugi sýnir vel hætturnar sem í þessu felast.“
Þingmaðurinn benti líka réttilega á að það gengi þvert á stefnumótun
auðlindanefndar forsætisráðherra að úthluta útblástursheimildum án end-
urgjalds. Þáverandi stjórnarandstaða lagði til að 100 króna gjald yrði lagt á
hverja heimild, sem hefði þýtt að fyrir heimildirnar, sem úthlutað verður
endurgjaldslaust í næsta mánuði á grundvelli „fýrstur kemur, fyrstur fær“-
reglunnar, hefðu verið greiddar um 100 miUjónir króna, þótt raunverulegt
markaðsverðmæti þeirra gæti raunar verið tíu sinnum meira.
1 Blaðinu í gær kemur fram að ráðherrar Samfylkingarinnar, sem málið
er skylt, þau Þórunn Sveinbjarnardóttir og Össur Skarphéðinsson, telja
ennþá æskilegt að „í framtíðinni“ verði greitt fyrir losunarheimildir. Össur
segir hins vegar nú að Evróputilskipun - sem hefur þó ekki lagagildi hér á
landi - bindi hendur stjórnvalda. Það taldi Samfýlkingin ekki hindrun fýrir
kosningar og raunar er sú tilskipun ekki tilgreind sem ástæða fýrir því að
ekki eigi að fara útboðsleið í frumvarpinu sem síðan varð að núgildandi lög-
um. .
Flest af því, sem Samfýlkingin hafði um petta mál að segja fýrir kosn-
ingar, er rétt. Auðvitað á að úthluta takmörkuðum gæðum eins og útblást-
ursheimildum með uppboði, í stað þess að beita matskenndum aðferðum á
borð við þá að ákveða hvaða stóriðjufýrirtæki sé lengst komið í undirbún-
ingi að því að reisa verksmiðju.
Hvernig ætli ráðherrum Samfýlkingarinnar líði með að standa að því að í
næsta mánuði verði stóriðjufýrirtækjum úthlutað nýjum gjafakvóta? Þau
telja sig kannski ekki geta breytt því úr þessu en þau hljóta að beita sér fýrir
því að þannig verði fyrirkomulagið ekki til frambúðar.
Ólafur Þ. Stephensen
SÆKTU LEIÐARANN A WWW.MBL.IS/PODCAST
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjóm & auglýsingan Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711
Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins
SMÁAUGLÝSINGAR
blaðiðH
SMAAUQLYSINQAR@BUDJD.NET
Tll hvers að vera í pólitík?
„Hvernig nennirðu eiginlega að
standa í þessu?" „Er þetta ekki ein-
tómt rifrildi og baktjaldamakk?“
Þetta eru meðal þeirra spurninga
sem við fáum reglulega, þau okkar
sem hafa ákveðið að leggja fýrir sig
stjórnmálastörf og eru kjörnir
fulltrúar. Svo virðist sem þessi mik-
ilvægu störf í umboði almennings
hafi ekki á sér sérlega jákvæða
ímynd; átök, stóryrði og inni-
stæðulaus loforð séu lögmál leiks-
ins en ekki einlægur vilji til þess að
vinna landi sínu og umhverfi gagn
og láta gott af sér leiða.
Hér skal ekki gert lítið úr því, að
væntanlega er framganga stjórn-
málamanna sjálfra stór ástæða fýrir
þessari neikvæðu ímynd. Rétt eins
og sagt er að rónarnir komi óorði á
brennivínið, er auðvitað ljóst að
margt af því ómálefnalegasta sem
gerist á vettvangi stjórnmálanna er
komið frá stjórnmálamönnunum
sjálfum. 1 hráskinnaleik stjórnmál-
anna virðist sem sumir haldi að allt
sé leyfilegt. Persónulegar árásir,
dylgjur og meiðyrði séu bara allt í
lagi og „hluti af pólitíkinni“ og
pólitískur pópúlismi sömuleiðis.
Sem betur fer eru þeir þó enn
margir stjórnmálamennirnir sem
vilja hafa hlutina öðruvísi og leggja
meiri áherslu á árangur og upp-
byggilegt aðhald, firemur en per-
sónulegt skítkast. Að sama skapi
leyfir maður sér að halda því fram,
að spurn eftir slíkri pólitík sé einn-
ig að aukast meðal almennings og
þeirra sem fylgjast grannt með
þjóðmálaumræðunni.
En því þessi inngangur nú? - Jú,
vegna þess að í þessari umræðu
allri gleymist að mínu mati allt of
oft, að pólitíkin er líka vettvangur
heilbrigðra skoðanaskipta, vett-
vangur nýrra hugmynda sem geta
síðar orðið að veruleika og jafnvel
valdið straumhvörfum í einu sam-
félagi til lengri framtíðar.
Ég vil leyfa mér að halda því
fram, að á vettvangi borgarstjórnar
Reykjavíkur hafi verið unnið að
einmitt þessum þáttum stjórnmál-
anna síðustu misserin. Árangurinn
er að koma í ljós með markvissum
aðgerðum þessa dagana, en ég er
þess þó fullviss að áhrifin muni
ekki síður setja mark sitt á samfélag
okkar til lengri framtíðar.
Björn Ingi Hrafnsson
Meðal þeirra verkefna sem hér
um ræðir er frístundakortið sem
tekur gildi fýrir öll börn í borginni,
6-18 ára, nú um mánaðamótin.
Græn skref í umhverfismálum sem
fela m.a. í sér tilraun með ókeypis
strætó fýrir framhalds- og háskóla-
nema, bláar endurvinnslutunnur
fyrir pappír, gjaldfrjáls stæði fyrir
visthæfar bifreiðar falla einnig í
þann flokk, ásamt fjölmörgum
öðrum málum. Unnið er að nýrri
sýn í skipulagsmálum, m.a. með
metnaðarfullum áformum um
uppbyggingu í miðborginni og á
áhrifasvæði hennar í Örfirisey og
Vatnsmýrinni. Með endurskoðun
aðalskipulags og nýrri hugsun í
borgarskipulagi og úthlutun
íbúða- og athafnalóða verður
áreiðanlega grundvallarbreyting á
borgarmyndinni til allrar ffamtíðar
með aukinni áherslu á lífsgæði, frí-
tímann og umhverfið.
Þetta eru verkefni sem byggjast á
ffamtíðarsýn og markvissri stefnu-
mótun. Þau byggjast á metnaðar-
fullri sýn á það umhverfi sem við
búum í og samfélagið sem við vilj-
um að þróist hér til framtíðar.
Samfélag þar sem vel er búið að
fjölskyldunni og börnunum okkar;
áhersla er aukin á forvarnir og heil-
brigt líferni. Bætt er aðgengi að
grænum svæðum og útivist, íbúða-
hverfi hönnuð með tilliti til þess og
umhverfið og góð umgengni sett í
enn ffekari forgang en áður.
I dægurþrasinu fer ekki alltaf
mest fýrir þessum brýnu framfara-
málum. Það heyrist ekki alltaf hæst
í þeim sem vinna skipulega að
framförum eða eru ánægðir með
lífið og tilveruna. Það er auðvitað
eðlilegt og ekki skal lítið gert úr
þeirri staðreynd að bæta þarf úr á
mörgum sviðum. En það er samt
notalegt til þess að vita, að brýn
uppbyggingarverkefhi standi yfir
og unnið sé eftir metnaðarfullri
ffamtíðarsýn í íslenskum stjórn-
málum og í nærumhverfi okkar.
Þá finnst manni það þess virði
að standa í argaþrasinu blessuðu.
Höfundur er formaður borgarráðs
KLIPPT OG SKORIÐ
Sigurjón Þórðar-
son fýrrum
þingmaður frjáls-
lyndra gagnrýnir á
bloggi sínu ráða-
leysi Jóhönnu Sig-
urðardóttur félagsmálaráðherra í
réttindamálum erlendra verka-
manna þrátt fyrir harða gagnrýni
í stjórnarandstöðu. „Nú þegar
Samfýlkingin er komin í mjúk
sæti virðist ekkert vera að gerast,
það þarf að kanna, skoða, leita
leiða og bíða eftir nefnd sem
mun athuga hvort mögulegt sé
að gera eitthvað."
Síminn á heimili I.úðvíks Giz-
urarsonar lögmanns hefur
ekki þagnað í dag
frá því Lúðvík fékk
það staðfest eftir
DNA-rannsókn að
99,9% líkur séu á að
hann sé sonur Her-
manns Jónassonar, fýrrverandi
forsætisráðherra,“ var ritað á vef
Mannlífs í fyrradag og fullyrt að
Lúðvík hygðist engu svara um
málið að svo stöddu en senda frá
sér fréttatilkynningu. Tilkynn-
ingin barst fjölmiðlum og veitti
Lúðvík svo Fréttablaðinu viðtalið
sem Mannlífsmenn vildu svo
gjarnan fá. „Að svo stöddu“ var
því að því er virðist bókstaflegt
svar til Mannlífsmanna, en ekki
endanlegt.
Fangaklefi er
síðasta úr-
ræði fýrir börn
sem eru sér og
öðrum hættuleg,
nú þegar neyð-
arvistunar Stuðla nýtur ekki
við. RÚV greindi frá. Klippari
veltir fyrir sér hvort Mannrétt-
indaskrifstofa íslands geti þá
bætt við málum í bréfið til eft-
irlitsnefndar Sameinuðu þjóð-
anna, en hún hefur tekið sam-
an fjögur mál þar sem hún
telur meðferð yfirvalda hafa
brotið gegn rétti borgara, að
sögn Guðrúnar Guðmunds-
dóttur framkvæmdastjóra.
gag@bladid.net