blaðið - 30.08.2007, Page 26
26
FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2007
blaðiö
LÍFSSTÍLLM ATU R
matur@bladid.net
Það er hægt að sitja við barinn og borða
þannig að við kokkarnir sjáumst alveg
og fólk getur fylgst með okkur ef það
hefur áhuga á því.
Lamb á disk
Sláturtíð fer í hönd og því án efa
margir með hugann við lamba-
kjöt um þessar mundir. Þó að fólk
hneigist gjarnan til íhaldssemi
þegar matreiðsla á lambakjöti
er annars vegar býður það upp
á marga möguleika og því ekki
úr vegi að reyna eitthvað nýtt og
. framandi. Á vefsíðunni lamb-
akjot.is er að finna stórt safn
lambakjötsuppskrifta af ýmsu
tagi. Þá er enn fremur á síðunni
leitarvél sem gerir notendum
auðveldara að finna uppskrift við
hæfi. Þannig er til dæmis hægt
að leita eftir tegund máltíðar
(forréttir, aðalréttir o.s.frv.), upp-
- runa uppskrifta eftir löndum og
heimsálfum, erfiðleikastigi mat-
reiðslunnar, eldunaraðferð og
hluta lambsins (til dæmis bógur,
innmatur, hryggur og læri).
Kaffikynning
á Ljósanótt
Mikið verður um að vera í
höfuðstöðvum Kaffitárs að
Stapabraut í Reykjanesbæ um
helgina í tengslum við Ljósanótt.
Kaffibrennslan verður opin milli
kl. n og 17 á laugardag og meðal
annars boðið upp á leiðsögn um
um hana kl. 11 og kaffismökkun
kl. 14. Þá heldur Ricardo Rosales,
kaffibóndi á Jesus Maria-búgarð-
inum í Níkaragva, erindi um
kaffiræktun og vinnslu kl. 15.
Kaffibrennslan verður einnig
opin almenningi á sunnudag frá
kl. 13 til 16. Ragnheiður brennslu-
meistari brennir Níkaragva
Cortes-kaffi kl. 14 og geta gestir
pakkað ilmandi baunum beint
úr ofninum og haft með sér heim.
Þá verður einnig boðið upp á kaff-
ismökkun og ýmislegt fleira.
Grænmeti
í nestið
Upphaf skóla og uppskerutíð
helst í hendur hér á landi sem
víðar. Því er margt vitlausara
en að nota tækifærið og senda
börnin í skóla með nýtt og brak-
andi ferskt grænmeti í nestisbox-
inu. Grænmetið nýtur sín vel eitt
og sér eða sem álegg á brauð eða
flatkökur. Tómatar eru alltaf vin-
sælir og það sama má segja um
gulrætur og agúrkur. Síðast en
ekki síst er nýtt grænmeti hollt
og gott fyrir unga krakka í örum
* vexti.
Landsliðskokkur opnar nýjan veitingastað
Eldar fyrir opnum tjöldum
Landsliðskokkurinn Hrefna Sætran hefur að
undanförnu staðið í ströngu við að undirbúa
opnun nýs veitingastaðar, Fiskmarkaðarins, í Að-
alstræti. í vikunni var efnt til prufukvöldverðar
og nú um helgina verður staðurinn opnaður fyrir
gesti. „Við erum með íslenskt þema og stílum svo-
lítið inn á íslenskt hráefni svo sem fisk og lamba-
kjöt sem við síðan útfærum á asískan hátt,“ segir
Hrefna. Meðal annars býr Fiskmarkaðurinn yfir
forláta japönsku robata-kolagrilli sem Hrefna
segir að hafi ekki verið notað hér á landi áður.
„Það eru sérstök kol í grillinu sem verða mjög
heit og tvær stangir sem liggja nánast alveg við
kolin. Það kemur því smáreykbragð af matnum,“
segir Hrefna sem gerði sér ferð til útlanda ásamt
félögum sínum til að læra að nota grillið. „Við
fórum til London þar sem við unnum um tíma
á veitingastaðnum Nobu. Síðan fór ég líka á veit-
ingastað úti í New York sem heitir Megu og var
aðeins að prófa þar en þeir eru með svona grill
þannig að við erum búin að kynna okkur þetta
vel,“ segir Hrefna.
Bryddað er upp á fleiri nýjungum á Fiskmark-
aðinum en japönsku kolagrilli því að þar verður
svokallað opið eldhús.
„Það er hægt að sitja við barinn og borða
þannig að við kokkarnir sjáumst alveg og fólk
getur fylgst með okkur ef það hefur áhuga á
því,“ segir Hrefna sem hlakkar til að elda fyrir
opnum tjöldum. „Þetta er alveg nýtt fyrir mér og
ég held að það verði alveg rosalega gaman. Þetta
býður líka upp á persónuleg tengsl við gestina.
Maður er oftast bara að elda fyrir Jón og Gunnu
sem maður sér ekki. Núna getur fólk líka spurt
meira hvað við séum að gera og svo framvegis,“
segir Hrefna.
Á eigin veitingastað Fiskmarkaðurinn,
nýr veitingastaður Hrefnu Sætran, verður
opnaður almenningi um helgina en þar
elda kokkarnir fyrir opnum tjöldum.
Það kennir ýmissa grasa á þemadögum Domo
Vildu bjóöa upp á krókódíl
RAGNAR ÓMAR5SON
Ragnar Ómarsson og
félagar á Domo brydda
upp á þemadögum í
vetur. Meðal annars verða
Ástralskir dagar þar sem
hægt verður að gæða
sér á kengúru, strúti og
baramúndí svo fátt eitt sé
nefnt.
Eftir Einar Örn Jónsson
einar.jonsson@bladid.net
Veitingastaðurinn Domo hyggst
efna til sérstakra þemadaga öðru
hverju í haust og vetur þar sem
boðið verður upp á forvitnilegan
og stundum nokkuð framandi mat.
Samhliða þemadögunum verða
kynningar á vínum sem henta mat-
argerðinni. Sem dæmi um slíka
þemadaga má nefna ostrudaga,
villibráðardaga, humardaga og
ástralska daga. Ragnar Ómarsson,
yfirkokkur á Domo, segir að kokk-
arnir hafi viljað brydda upp á ein-
hverju nýju og skemmtilegu enda
hugmyndaríkir drengir sem vinni
í eldhúsinu. „Við erum búin að ná
ótrúlegum vinsældum frá upphafi
og viljum halda því áfram og sýna
gestum okkar að við séum á tánum
og alltaf með eitthvað nýtt í gangi,“
segir Ragnar og bendir á að sam-
hliða nýjungunum verði boðið upp
á sérréttamatseðil á þemadögum.
Hann útskrifaðíst frá Hót-
el- og veitingaskóla íslands
árið 1994.
Hann er yfirmatreiðslumað-
ur á Domo en hefur áður
meðal annars unnið á Salti,
í Leikhúskjallaranum og á
Hótel Holti.
Hann hefur verið í íslenska
landsliðinu í matreiðslu frá
árinu 2000.
í matreiðslu. Við ætlum kannski að
vera með eitthvert þema í tengslum
við hana, bjóða upp á matinn sem
ég fer með í keppnina eða eitthvað
slíkt,“ segir Ragnar og bendir jafn-
framt á að valið á þemunum eftir
áramót velti á því hvað birgjarnir
geti boðið upp á.
Krókódíll smakkast sem kjúklingur
Slíkur matur er yfirleitt ekki á
hvers manns borði og segir Ragnar
að hann hafi fengið heildsölu til að
útvega sér kjöt af þessum framandi
tegundum.
„Við vildum fá krókódíl en það er
bannað samkvæmt lögum að flytja
hann inn. Það hefði verið gaman
að bjóða upp á hann,“ segir Ragnar
sem hefur sjálfur bæði eldað og
smakkað krókódílakjöt. „Þetta er
svipað og kjúklingur með pínulitlu
sjávarbragði ef ég ætti að orða það
einhvern veginn. Þetta er sérstakt
kjöt og gaman að hafa prófað það,“
segir hann.
Búið er að setja saman dagskrá
þemadaga fram að jólum og verður
væntanlega bryddað upp á frekari
nýjungum eftir áramót. „Ég er að
fara að taka þátt í Bocuse d’or sem er
heimsmeistarakeppni einstaklinga
Ostrudagar 7.-8. september.
f'V Villibráðardagar 19.-22. september, 26.-29. september og 3.-6.
október.
þHumardagar 12.-20. október og 24.-27. október.
> Ástralskir dagar 7.-10. nóvember og 14.-17. nóvember.
Frá ostrum til strúta
Fyrstu þemadagarnir verða
ostrudagar sem fram fara 7.-8. sept-
ember þar sem Alfreð Ómar Al-
freðsson, félagi Ragnars úr íslenska
kokkalandsliðinu, kynnir nýjar
og ferskar ostrur frá Irlandi fyrir
gestum. „Hann ætlar að vera inni
í sal í góðu stuði og poppa þetta
upp. Hann verður bara á gólfinu og
talar við gestina og gefur öllum að
smakka sem vilja prófa. Svo getur
fólk keypt sér meira ef það er hrifið
af þessu,“ segir Ragnar og bendir á
að ostrur geti farið misvel í fólk en
flestir þekki þó sín takmörk.
Óvenjulegasti maturinn verður
án efa á borðum á áströlskum
dögum sem fram fara 7.-10. nóv-
ember og 14.-17. nóvember. Eins og
nafnið bendir til verður uppistaðan
í matseðlinum hráefni frá Ástralíu
og munu matreiðslumenn Domo
fara ótroðnar slóðir í matreiðslu
og framsetningu. Meðal þess sem
boðið verður upp á er kengúra,
strútur, dúfur og baramúndí og úti-
lokar Ragnar ekki að eitthvað fleira
skemmtilegt kunni að bætast við.
DAGSKRÁ ÞEMADAGA DOMO HAUST/VETUR 2007