Orðlaus - 01.06.2003, Blaðsíða 46

Orðlaus - 01.06.2003, Blaðsíða 46
HVERNIG PASSA STJO VATNSBERI FISKUR HRÚTUR NAUT TVÍBURI KRABBI Þið eruð bæði ævintýragjörn og vitið hvernig þið getið æst hvort annað líkamiega sem og andiega. 1 ilj Hann lifir fyrir það að láta drauma \v Yrm / II Þ'na rætast °9 eigið þið spennandi % vl* £ /l/ framtíðfyrirhöndum. ★★★★* Þú heillast af kynlífsfimi hans en þú þráir meira öryggi í sambandinu. Hann þykist skilja þig en gerir það í raun ekki og hann þráir mun meira frelsi en þú ert tilbúin að gefa honum. Hann getur þó verið umburðarlyndur. ★★ Kynlífið er orkumikið og hann er sannarlega fær á sínu sviði þar. Þú heillast af því hvað hann er einlægur og veitir þér þá athygli sem þú þarfnast. Það er líf og fjör alla daga og ólfklegt að missætti vari f lengri tíma. Þú gætir verið með framtíðarmakann. ★★★★★ Hann er ailt of mikið uppi í skýjunum á meðan þú ert mun jarðbundnari. Þó að hann geti verið erótískur áttu erfitt með að tengjast honum nokkrum tilfinningaböndum. ★ Fullkomið. Þið eruð örvandi, með mikla kynlífslöngun og uppfull af ástríðum. Þið vekið áhuga hvors annars og komið hvort öðru sífellt á óvart. Sambandið einkennist af góðu jafnvægi. ★★★★★ Hann kann svo sannarlega að fullnægja þér en það er bara ekki nóg. Þú þráir tilfinningasemi og er hann ekki líklegur til mikilla afreka á því sviði. Það er því ekki líklegt að þetta samband nái að verða alvarlegt. ★★ . Erótíkin sem er til staðar í fyrstu hverfur fljótt þegar þú finnur hvað /j|S. hann er háður þér. Hann vill að þú skipuleggir lífið ykkar en þú vilt v5( ® njóta frelsis og sjá hvað gerist næst jgX/ án þess að vera búin að plana allt. Ekki búast við því að vera saman að eilífu. ★★ þið þarfnist bæði sterks elskhuga en þið eruð það ekki. Þið eigið auðvelt með að verða ástfangin en getið aldrei tekið neinar alvarlegar ákvarðanir og eruð bæði það viðkvæm að lítið má af bera til að allt fari í háaloft. ★★ Hann er ástríðufullur og skilur þínar erótísku þrár og uppfyllir þær á meðan þú uppfyllir hans. Þið eruð þó afskaplega ólík á allan annan hátt sem getur verið bæði kostur og galli,fer bara eftir því hvernig þið farið að. ★★★-/ Þú elskar villt ímyndunarafl hans og þú verður örugg í kringum hann. Hann veitir þér umhyggju og kynlífið verður sífellt ástríðufullara. Þið verðið þó að gæta þess að auðvelt er að spenna myndist en yfirleitt er auðvelt að leysa það. ★★★★ i Þú þarfnast öryggis og rómantíkur og það er eitt sem hann getur ekki veitt þér án þess að þú fáir hreinlega innilokunarkennd. Þið getið átt saman f rúminu en önnur samskipti einkennast fremur af margskonarflækjum. ★ Þið þráið nálægð hvors annars og skiljið tilfinningar hvors annars fullkomlega. Hvort sem það er að slaka á uppi f sófa eða skella sér út á Iffið, þú færð alltaf ómælda athygli og umhyggjusemi. Langvarandi hamingja bíðurykkar. ***** Ævintýraleit hans ýtir undir sköpunargáfur þínar. Þið eruð jC^vYvji ástríðufull og hann nær að halda lllf* jJJll1 Þér nær jörðinni. Þið laðist að W* ^vort öðru líkamlega í fyrstu en það þróast fljótlega í alvarlegra samband ef þú sýnir umburðarlyndi og hann nærgætni. ★★★★★ Þú dregst að færni hans á kynlífssviðinu og hann er sterkur maður sem þú getur leitað til í hvers kyns vandamálum.Gallinn er bara sá að hann er ekki nógu rómantískur, þú þarft að segja honum hvers þú krefst af honum og þá gæti þetta gengið. ★★★V Þið viljið bæði fá að ráða ferðinni þannig að auðvelt er að ágreiningur komi upp í sambandinu. Þið eigið þó bæði erfitt með að sleppa hendinni þar sem sambandið er ástríðufullt og eldheitt í svefnherberginu. ★★★ Þú vilt rómantík en hann er alltaf að flýta sér. Þú villt stöðugleika og átt það til að vera afbrýðissöm út í hinn fjörmikla hrút. Andstæður þessa merkja geta skapað árekstra sem erfitt er að leysa. ★★★ Þið eruð bæði ævintýragjörn í kynlífinu og eruð fljót að verða ástfangin upp fyrir haus. Þú blæst sífellt lífi í hann og sambandið mun vera síbreytilegt, en skemmtilegt. ★★★★•* Lítur vel út. Þettageturveriðheittástaramband en þú munt ekki nenna að standa í því að eltast við hann til lengdar. Hann á auðvelt með að særa þig og veitir þér ekkert öryggi. Hann er ástríðufullur í rúminu en líl j skilurekki þörf þínafyrirfrelsi.Hann ((( ]|) getur fengið minnimáttarkennd og C /II ^und'st hann vanmetinn og þú færð fljótt leið á endalausu tuðinu íhonum. ★ Karlmannleikinn heillar þig og þú finnur fyrir öryggi í nautnafullu sambandinu sem verður þeim mun ástríðufyllra þegar á líður. Ekki láta ósjálfrátt tilfinningaleysi hans fara fyrir brjóstið á þér, þá er von á löngu, ástríku sambandi. ★★★★^ Þú vilt lifa í núinu og gera hlutina af sjálfsdáðum en hann er of varkár, eigingjarn og hræddur við að gera eitthvað nýtt þannig að hann heldur aftur af ævintýraþörf þinni. Líklegt er að þú hlaupir í burtu. ★★ Þið gefið ykkur bæði þann tfma sem þið þarfnist (rúminu. Hann er tryggur og ekki llklegur til að gera eitthvað sem þér mislikar. Þið eruð bara bæði jarðföst og þrjósk en skortur á örvun getur leitt til loka sambandsins. **i Ástríðurnar sem eru til staöar núna eru fljótar að snúast upp í reiði. Daðrið í þér gerir hann brjálaðann og hann heldur aftur af athafnasemi þinni. ★★* Erótfskt fmyndunarafl þitt og ákafi hans mynda óvenjulega fullnægjandi samband. Þið eruð heimakær og ykkur líður vel í návist hvors annars. ****i Þið færið bæði sköpunarmátt og skemmtun inn í svefnherbergið og á meðan þið eruð saman er lítið (/Jl um svefn.Þið heillist einnig af hvort # vJJ ö^ru ancl*e9a °9 fáið aldrei leið á að hlusta á hvort annað. ★★★★★ Hann er of tilfinningalega lokaður og þið hafið meiri áhuga á að hitta annað fólk. Ykkur getur komið ágætlega saman í rúminu en hann á of erfitt með að standa við skuldbindinguna. ★ Horfurnar eru svo sannarlega góðar. Þið eruð bæði hrifin af því að prófa nýja hluti og hann jafnar tilhneigingu þína til að stjórna út með sérfræðikunnáttu sinni á kynlífssviðinu. Ef þið haldið rétt á spilunum er framtíðin björt. ★★★★■^ Þið eigið eflaust eftir að skemmta ykkur vel saman í nokkurn tfma og hann á auðvelt með að láta þig hlæja, en hann er of fstöðulaus og óalvarlegur til þess að sambandið geti varað f lengri tíma ef þið reynið ekki að sætta ykkar ólíku sjónarmið. **i Þið örvið hvort annað með skemmtilegum kynlífsleikjum, upplifið skemmtileg ævintýri saman og eruð á sífelldu iði, en tilfinningalegt samband stefnir í algjöra óreiðu.Gætið ykkar! ★★•* Hann er nýjungagjarn í rúminu,en einnig hverflyndur og daðurgjarn. Þið hafið gerólík áhugamál og er ólíklegt að þú getir sýnt áhuga á því sama og hann til lengdar. Gott kynlíf mun ekki halda sambandinu gangandi. ★★ Hann er of tilfinninganæmur og /f/r& vlll halda þér fastri. Þú þráir aftur II vTTá móti frelsi og eftir að neistinn í \l\ f III svefnherberginu slokknar er lítið %vTf ' sem heldur í þig. ★★■* Hann er rómantískur og erótískur. Hann er oftast sá sem ræður en þú hefur líka ekkert á móti því að hann ráði ferðinni í svefnherberginu. Þar upplifir þú líka alla þína drauma. Ef þið varist að velta ykkur upp úr vandamálunum er útlitið gott, ★★★★★ Þú hefur mikið kynferðislegt aðdráttarafl en krabbinn er allt of hægur, viðkvæmur og tilfinninganæmur fyrir þig og heldur aftur af lífslöngun þinni. Meiri iíkur eru á að úr þessu verði vinátta en langtímasamband. ★ Þú getur treyst á hann og þið upplifið rómantfk, ástrfður og hamingju með hvort öðru. Hann er trúr og traustur og örlftið feiminn en það er það sem þér Ifkar. ****i Hann er viðkvæmur og þú munt vera sá sem ræður f sambandinu. Óöryggi hans mun fljótlega gera þig leiða á honum og hætta er á árekstrum þar sem þú þarfnast mun meira svigrúms en hann gefur þér. ★★ Byrjunin lofar góðu en þar sem þið eigið það til að vera skapstór og viðkvæm mun það leiða ykkur í sundur ef þið gerið ekki eitthvað f ykkar málum. ★★ Hann er frábær elskhugi og þið uPPl'fið eflaust margskonar Ifí C ( ÍuWl æv'ntÝn í rúminu, en hann þráir of ((( m'^*a athygH sem Þu nennir ekki að veita honum endalaust. Þetta ///sfiy getur verið gaman svo langt sem það nær. **y Þú ert viðkvæm en hann er ágengur og frekur og þiggur allt sem sjálfsagðan hlut. Þú verður fljótt leið á hrokanum í honum og þið skiljið fljótlega að þið eigið ekki saman á nokkurn hátt. ★★ Saman grípið þið hvert tækifærið á fætur öðru. Sambandið mun einkennast af rómantík, skemmtun og ánægjulegu kynlífi þar sem þið eruð ekki feimin við að prófa nýja hluti. Ef þið temjið ykkur sjálfsstjórn og þolinmæði eruð þið fullkomið par. ★★★★★ Hann á auðvelt með að æsa þig en þú færð fljótt leið á athyglissýkinni hans og sjálfsdýrkun. Andstæður ykkar geta jafnað hvort annað út að einhverju marki en þú verður að gæta þess að vera ekki of gagnrýnin. ★★ Hann elskar hvað þú veitir honum mikla athygli og er fljótur að launa þér með rómantík sem gerir þig alveg villta af ástríðu. Þið eruð líflegt og ástleitið par. ★★★★ Glaðlyndi, karlmannleiki og jákvæð sýn á lífið einkenna hann og þú finnur rómantíkina í nærveru hans. Þið eruð bæði tilfinningarík og ef þið gætið þess að láta tilfinningarnar ekki leysast upp í misskilning mun framtíðin 1 lofa góðu. ★★★★V Þið hugsið voðalega svipað, en kynferðislega eigið þið ekkert ffl/lr^l/jf 'w s^r*e9a ve* saman- Hann er full II/// A jlj alvörugefinn og tilfinninganæmur W/ og ekki eins opinn og þú. Það —•JJff skortir allan ástríðuhita og væruð þið líklega betri sem vinir. ★* Hann er hlédrægur og á erfitt með að sýna tilfinningar slnar og getur virkað sem góður með sig. Hann mun aldrei veita þér almennilega fullnægju eða þá rómantík sem þú leitar að. Á meöan meyjan fer eftir reglunum elskar þú að brjóta þær. Hætt er við þvi að honum finnist þú yfirþyrmandi og of áhættusöm. Ef þið viröið ekki hversu óllk þið eruð er hætta á þvíað upp úr flosni. *i Ekki láta hlédrægni hans blekkja þig. Um leið og þú nærð að tæla hann mun hann opna sig og þínar dýpstu þrár verða að veruleika. Þið eruð bæði áreiðanleg, hagsýn og traustsins verð og þyrfti mikiö að gerast til þess að þetta samband færi út um þúfur. ***** Þið náið saman þar sem þið heillist af visku hvors annars en litlar ástríður eru til staðar. Þið eigið það til að vera full gagnrýnin á hvort annað og langtímarómantík er fremur ólíkleg. ★ Þú getur treyst þvf að hann standi við loforðin sem hann gefur þér. Þið æsið hvort annað og uppfyllið fantasíur hvors annars. Ef þið eruð meðvituð um ólfk skapbrigði ykkar getur sambandið orðið mjög örvandi. ★★★★ Það eru miklir neistar á milli ykkar og hann kann að meðhöndla r Þrjóskuna í þér. Þið eruð bæði # \ )il m'*ci'r skemmtanafíklar og jy JIII er því ólíklegt að annar aðilinn ~a verði afbrýðissamur, en aðal skemmtunun hjá ykkur er í svefnherberginu ★★★★★ Þið eruð bæði rómantísk en hvorugt ykkar er nógu sterkt til að styðja hvort annað tilfinningalega. Kynlífið er líklega fullnægjandi en á öðrum sviðum eruð þið ekki samstíga. ★★★ Þið eruð algjörar andstæður. Ákveðni þín mun kenna honum að uppfylla þínar þarfir um nokkurn tíma en á endanum mun aðgerðarleysi hans hrekja þig í burtu ef þið reynið ekki að finna jafnvægi á milli ykkar ólíku þarfa.. ★★ Hann á það til að hoppa úr einu ( annað og er allt of óákveðinn fyrir þinn smekk. Hann má þó eiga það að hann er rómantískur þegar hann reynir, en daðurgirni hans ýtir undir það versta f þfnu fari. Þið eruð bæði þrjósk og er þvf erfitt að sætta ágreininga. *, Þið hafið bæði áhuga að prófa nýja hluti ( kynlífinu og er það f senn skemmtilegt og spennandi þar sem þið eigið mjög auðvelt með að hrífa hvort annað. Þið viljið bæði lifa ( núinu og hentið hvort öðru á allan hátt. ***** Hann er ekki sá trausti maður sem þú ert að leita að. Þú vilt gott • kynlíf, hann vill móta þig eftir sfnu höfði og þú færð brátt nóg af því. Sambandið er því mjög óstöðugt og hann leitar allt of mikið í skemmtun með félögunum. *i Hann er ákafur og getur verið frekur. Þið eruð algjörar andstæður III lyV ™ og eigið erfitt með að skilja lll 1)1 tilfinningar hvors annars. Þú þarfnast mun meira en hann er til íaðbjóða. *i Þið hafið bæði djúpa og fullnægjandi kynhvöt og skiljið langanir hvors annars fullkomlega. Sambandið er rómantískt. Ákafi hans og mildi þín mynda einstakt jafnvægi og þú unir vel með hann sem verndarann þinn. ★★★★•* Þið eruð bæði tilfinninganæm og viljið bæði forystu-hlutverkið. Líkamlegar ástríður koma fram 1 svefnherberginu og eigiö þið auðvelt með að fullnægja hvort öðru. Þið þurfið bara að gera málamiðlanir til þess að sambandið nái að rúlla. ★★★ Þið hafið bæöi mikinn áhuga á hvort öðru kynferðislega en Iftinn áhuga á öðru.Sporödrekinn er ástríðufullur en nautið mun jarðbundnara og auðvelt er að metingur komi í veg fyrir langvarandi samband. * Þó svo að aðdáun hans sé heillandi 1 fyrstu finnst þér þú vera að kafna eftir nokkurn tíma. Þörf þín fyrir félagslffi getur gert hann afbrýöisaman. Það sem vegur upp á móti er ákafinn f svefnherberginu því líkamlega eigið þiö fullkomlega saman. **i Ást og hamingja einkenna ykkar samband. Hann lætur skapsveiflurnar þfnar ekki angra sig og um leið og innilegt samband ykkar vex verður ástin dýpri og rómantfkin meiri. Þegar þið finnið að þiö eruö ástfangin er ólfklegt aö þið vaxið í sundur. ***** Þið hafið ímyndunaraflið og eruð til 1 a® Pr°ffl *1va® sem er- Þið myndið ([( M mJ°9 örvandi samband og hann lll 5 er ei<i<ert a® P'rra si9 vfir Þvi a® wfþú viljir fara út að skemmta sér án Mrajr hans þvl hann veit hvað bíður hans þegar þú kemur aftur. ★★★★★ Hann er ekki mikið fyrir það að setjast að, þar á meðal í rúminu, og þú þarfnast mun meiri ástar en hann gefur þér. Hann lítur á þig sem ávinning og er líklegt að þú standir uppi með brostið hjarta og horfinn mann. iri Ástarlíf ykkar er erótískt og ævintýraríkt og það eru miklir neistar á milli ykkar. Hann er þó heldur mikill glaumgosi fyrir þinn smekk og ekki Ifklegur til þess að festa ráö sitt, en njóttu augnabliksins þvf framtfðar- samband er ekki Ifklegt. ★★★ Þið eigið fátt sameiginlegt, hann hefur mun meira gaman af því að fara út á llfið heldur en að eiga rólegt kvöld með þér heima. Hann býður ekki upp á neitt öryggi en ef þú virkilega reynir geturðu náð honum niður á jörðina til þfn. ★ ímyndunarafl þitt og bjánalega hliðin í honum mynda þvílíka neista í rúminu,en þið eruð bæði eirðarlaus og er líklegt að þið verðið fýrir vonbrigðum með hvort annað. Þið eruð sífellt í leit að einhverju nýju og er óvíst að þið náið að slaka á með hvort öðru. ★★ Hann er geislandi af lífi og fjöri í rúminu og það heillar þig upp úr skónum en þú villt fá meira út úr sambandinu en það. Þetta er eflaust gaman á meðan á þvf stendur en ekki búast við stórri skuldbindingu. ★★ - Þú upplifir ekki mikið frelsi með honum og eigið þið erfitt með að tengjast einhverjum sterkum .4 J böndum. Þið getið skemmt ykkur IW Jj vel saman en sambandslega séð /f/ verður þetta alltaf meiri vinátta en nokkuð annað. ★★ Karlmannleiki hans og rómantlskt eðli þitt blandast vel á kynllfssviðinu og hann gerir allt til að gera þig ánægða. Hann rffur þig upp og finnur þú fyrir öryggi með honum. Ef þú passar að vera ekki of ströng við hann eruð þið hið besta par. ****i Þú heillast af ákafa hans í að ná frama og hann elskar hvað þú gerir hlutina af sjálfsdáðum en það að hann krefjist kynlífs eftir pöntun mun á endanum gera þig brjálaða. Segöu honum hvað þú vilt og vilt ekki og útlitið gæti orðið gott. Ef þú finnur rómantfska blettinn innra með honum eigið þið eftir að skemmta ykkur vel saman og lifa heilbrigðu kynllfi. Þið leitiö bæði að öryggi sem þið finniö hjá hvort öðru. Hann mun veita þér óskipta athygli og eigið þið einstaklega vel saman. ***** Þú hefur hvorki þolinmæðina né áhugann á þvf að ná fram ástrfðum hans og þaö er Iftið sem hann getur gefið þér sem þú getur ekki einfaldlega gert sjálf. Hann er of venjubundinn til þess aö kveikja eitthvað Iff f þér. ★ Kynlífið er áhugavert en hann á allt of erfitt með að tjá tilfinningar sínar. Sambandið er líklegt til að enda í hörmungum nema þú með einhverjum undraverðum hætti náir að opna tilfinningaskjöldinn hans. ★★

x

Orðlaus

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Orðlaus
https://timarit.is/publication/942

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.