Bændablaðið - 29.05.2007, Qupperneq 36
Bændablaðið | Þriðjudagur 29. maí 200736
Á sólríkum sumardögum er sér-
lega skemmtilegt að leggja aðeins
aukreitis í matseldina og sleppa
sér örlítið, jafnvel á virkum
dögum. Þá eru heitir og kaldir
og jafnframt einfaldir eftirréttir
með rjóma eða ís tilvaldir fyrir
heimilisfólkið.
Sætir riddarar
Fyrir 4
6 sneiðar franskbrauð
2 dl mjólk
4 dl heslihnetur, hakkaðar
2 msk. sykur
1 tsk. kanill
3 msk. smjör, til steikingar
Aðferð:
Setjið mjólkina í skál og veltið
brauðsneiðunum upp úr. Veltið
þeim nokkrum sinnum en pass-
ið að brauðið verði ekki gegnsósa
í mjólk. Blandið saman hnetum,
sykri og kanil og veltið brauðsneið-
unum upp úr blöndunni. Steikið
í smjöri á pönnu í um mínútu á
hvorri hlið. Berið fram með sultu
og sýrðum rjóma.
Ávaxtasalat
1 epli
1 banani
20 hindber
12 jarðarber
6 msk. möndluspænir
4 msk. síróp (low carb)
60 g rjómi, þeyttur
Aðferð:
Skerið epli og banana í bita og sker-
ið jarðarberin til helminga. Blandið
saman í fallega skál. Dreifið mönd-
luspæni yfir ásamt þeyttum rjóma
og loks sírópinu yfir. Skemmtilegt
er að skreyta með kókosflögum og
súkkulaðispæni. Einfaldara getur
það ekki verið!
Bananapönnukökur með
súkkulaðibitum
2 bollar hveiti
1 tsk. lyftiduft
½ bolli Canderel-strásæta
2 léttþeyttar eggjahvítur
50 g Létt og laggott, brætt
300 ml léttmjólk
1 tsk. vanilludropar
2 fullþroskaðir bananar, stappaðir
¼ bolli súkkulaðispænir
smjör, til steikingar
kanill
Aðferð:
Setjið hveitið í skál og gerið holu
í miðjuna. Hrærið saman strásætu,
lyftidufti, eggjahvítum, Létt og
laggott, mjólk og vanilludropum.
Hellið blöndunni í holuna í hveit-
inu og þeytið þar til blandan verður
mjúk og jöfn. Hrærið bönunum og
súkkulaðispænum saman við. Setjið
lítið af smjöri og deigi á pönnuna
og steikið við meðalhita þar til loft-
bólur byrja að myndast. Snúið þá
pönnukökunni við og steikið þar til
hún verður gyllt og súkkulaðispæn-
irinn farinn að mýkjast. Dreifið
kanil yfir hverja pönnuköku.
Berið fram stafla af heitum pönnu-
kökum með ferskum skornum bön-
unum, jarðarberjum og ís. ehg
MATUR
Fljótlegir og funheitir eftirréttir
2
4
3 1 7 8
6 7 5
2 5 3 4
4 8 6
7 8 9 1
2
4
8 6 4
2
7 3 5 1
2 5
9 6
7 1
1 3 7 9
1
9 3
9 1 7
1 6 3
8 2 5 1
2 9 6
8 6 2
8 3 9 5
5 2 7
6 7 4
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er
að setja réttar tölur frá 1-9 í eyðurn-
ar. Sama talan má ekki koma fyrir
tvisvar í línu lárétt og lóðrétt og
heldur ekki innan hvers reits sem
afmarkaður er af sverari línum.
Þrautirnar eru miserfiðar, sú
sem er lengst til vinstri er léttust og
sú til hægri þyngst en sú í miðjunni
þar á milli.
Hægt er að fræðast nánar um
Sudoku-þrautirnar á vefsíðunni
www.sudoku.com og þar er einn-
ig að finna fleiri þrautir ef þessi
skammtur nægir ekki.
Líf og lyst
Sætir og einfaldir riddarar.
Íslensku hráefni er víða gert hátt
undir höfði og nú hefur veitinga-
staðurinn Einar Ben í Reykjavík
bæst í hóp þeirra sem velja
íslenskt. Í júní verður kynntur
þar nýr matseðill sem inniheldur
eingöngu íslenskt hráefni.
„Þessi hugmynd fór í gang um
áramótin og fer nú senn að líta
dagsins ljós. Á nýja matseðlinum
verður eingöngu íslenskt hráefni
í öllum sínum fjölbreytileika.
Matseðilinn verður mismunandi
frá degi til dags,“ segir Steinar Þór
Þorfinnsson, yfirkokkur á veitinga-
staðnum, og bætir jafnframt við:
„Við ætlum að reyna að vera
með uppruna hráefnisins á mat-
seðlinum, eins og til dæmis frá
hvaða bónda nautakjötið kemur
en ekki er víst að okkur takist það.
Viðskiptavinirnir hafa gaman af að
vita upprunann. Það hefur alltaf
tíðkast erlendis og er að verða hér í
meiri mæli.“ ehg
Steinar Þór Þorfinnsson yfirkokkur
á tröppum veitingahússins Einars
Ben við Ingólfstorg í Reykjavík.
Eingöngu íslenskt hráefni á matseðlinum
Silvía Rún Rúnarsdóttir frá Neðra-Vatnshorni í Vestur-Húnavatnssýslu
kom í starfskynningu til Bændasamtakanna á dögunum. Hún var hálfan
dag í Bændahöllinni og nýtti tímann vel til þess að kynna sér þá starfsemi
sem fram fer í húsinu. Einnig tók hún að sér nokkur verk fyrir samtök-
in, vann í myndasafninu og skrifaði fréttir fyrir nýja Bændablaðsvefinn.
Daginn áður var Silvía í starfskynningu hjá Ferðaþjónustu bænda en bær-
inn hennar, Neðra-Vatnshorn, starfar einmitt innan þeirra vébanda.
Aðstandendum fornleifarannsóknarinnar á hval-
stöðinni í Hveravík við Steingrímsfjörð bárust gleði-
leg tíðindi þegar það kom í ljós að Fornleifasjóður
hefði ákveðið að leggja til þriggja milljóna króna
framlag til verkefnisins á þessu ári.
Að sögn Ragnars Edvardssonar fornleifafræðings
gerir það verkefninu kleift að ná fram markmiðum
sínum og vinna við rannsóknina hefst aftur strax
í næsta mánuði. Undanfarin tvö haust hefur verið
unnin undirbúningsrannsókn í Hveravík og meðal
annars komið í ljós bræðsluofn frá 17. öld. Í sumar
mun Ragnar ásamt Magnúsi Rafnssyni sagnfræð-
ingi vinna að rannsókninni. Einnig taka þátt í henni
danskur fornleifafræðingur og fornleifafræðinemar
frá Bandaríkjunum sem lagt hafa stund á beinarann-
sóknir. Það er Strandagaldur ásamt Náttúrustofu
Vestfjarða sem standa að verkefninu. Frá þessu er
skýrt á vefnum Strandir.is
Veglegur styrkur til fornleifarannsókna