Bændablaðið - 29.05.2007, Blaðsíða 39
Bændablaðið | Þriðjudagur 29. maí 200739
Nýr reiðstígur með fram Reykjafjalli í Ölfusi
Nýr og glæsilegur reiðstígur hefur verið tekinn í notkun meðfram
Reykjafjalli í Ölfusinu í landi Landbúnaðarháskóla Íslands. Það er
reiðveganefnd Hestamannafélagsins Ljúfs í samtarfi við skólann og
Vegagerðina sem unnu stíginn undir forystu Holgers Hansens hjá
Landbúnaðarháskólanum. Guðni Tómasson, skrúðgarðyrkjumeist-
ari í Hveragerði, og starfsmenn hans unnu stíginn.
Samhliða reiðstígnum er göngustígur fyrir þá fjölmörgu sem fara í
heilsubótargöngu með fram fjallinu. „Við erum afskaplega ánægð með
þennan stíg enda gjörbreytir hann allri aðstöðu fyrir hestamenn sem
þurfa að ríða úr hesthúsahverfinu í Hveragerði út úr bænum. Þá hefur
framkvæmdin öll verið til fyrirmyndar enda er þetta einn af glæsilegustu
reiðstígum landsins,“ sagði Helga Ragna Pálsdóttir, hestamaður í Kjarri
í Ölfusi, sem á sæti í reiðveganefnd Ljúfs. Hún bætti því við að nefnd-
in hefði að undanförnu unnið markvisst að úrbótum í reiðvegamálum á
svæðinu en áhersla hefur verið lögð á að færa reiðleiðir frá akvegum þar
sem því verður við komið. MHH
Reiðstígurinn var vígður formlega þegar nokkrir hestamenn úr Ljúfi, ásamt
forsvarsmönnum Landbúnaðarháskólans og Vegagerðarinnar riðu hann á
hestum frá Eldhestum. Leiðin er hluti af heildstæðu reiðvegakerfi í Ölfusi
og Hveragerði. Eins og sjá má á myndinni er riðið í gegnum skóglendi
meðfram hlíðum Reykjafjalls.
Holger Hansen, garðyrkjustjóri
Landbúnaðarháskólans á Reykjum,
opnaði stíginn formlega með því að
klippa á borða líkt og ráðherrarnir
gera. Holger var einn aðalmaðurinn
við lagningu stígsins.
Svanur G. Bjarnason, umdæmis-
stjóri Suðursvæðis hjá Vegagerð-
inni, fór m.a. á hestbak við vígslu
nýja stígsins og reið hann fram og
til baka með hópnum. Stígurinn
er um 2 km að lengd og fjármagn-
aður af Sveitarfélaginu Ölfusi,
Hveragerðisbæ og reiðvegasjóði
Landssambands hestamanna.
Æðarbændur
Tökum á móti
æðardúni til
hreinsunar og
sölu.
Hafið samband í síma 892-8080
Dúnhreinsunin ehf.
Digranesvegi 70 - 200 Kópavogur