Bændablaðið - 12.06.2007, Blaðsíða 2

Bændablaðið - 12.06.2007, Blaðsíða 2
Bændablaðið | Þriðjudagur 12. júní 20072 Fréttir Allir tollar voru afnumdir af garð plöntum þann 1. mars sl. við harðorð mótmæli garðyrkju- bænda sem sögðu um mismun- un að ræða. Viðurkennt var af yfirvöldum að þarna hefði minni hagsmunum verið fórn- að fyrir meiri í samningum við Evrópusambandið. Því má búast við umtalsverðum innflutningi á garðplöntum á þessu sumri. Vegna þeirrar samkeppni ætla íslenskir garðplöntuframleið- endur að taka upp merking- ar á íslenskri framleiðslu með íslensku fánaröndinni. Eins og allir vita hefur íslenskt grænmeti verið í sérmerktum pakkningum um árabil og tilbúna vendi úr afskornum blómum var byrjað að sérmerkja í fyrra. En nú er komið að garðplöntunum. Íslenskir garðplöntuframleið- endur leggja metnað sinn í að bjóða garðplöntur sem henta íslensku veðurfari og hafa sannað sig við íslenskar aðstæður og verið aðlag- aðar þeim. Sameiginlegur gagnagrunnur Helga Hauksdóttir, framkvæmda- stjóri Sambands garðyrkjubænda, sagði í samtali við Bændablaðið að í byrjun þessa árs hafi garðyrkju- bændur komið sér upp sameig- inlegum gagnagrunni. Þar er komið fyrir öllum þeim upplýsingum sem liggja fyrir hjá garðplöntubænd- um. Þeir hafa að sjálfsögðu mikla reynslu af mismunandi tegundum og yrkjum sem engir aðrir hafa. Síðan ætla þeir að koma með sam- eiginlegar merkingar á sína vöru. Helga segir að nú fari að koma í ljós fyrstu áhrif þess að tollar voru afnumdir af garðplöntum 1. mars sl. Þegar eru komnir til lands- ins nokkrir gámar fullir af sum- arblómum sem koma á markaðinn nú þegar sumarblómatíminn hefst af fullum krafti. Helga telur að á næstu árum verði áhrifin af þessu afnámi tolla enn meiri. Þess vegna sé nauðsynlegt fyrir íslenska garð- plöntuframleiðendur að merkja sína vöru því þeir séu með plöntur sem aðlagaðar hafa verið íslensku veð- urfari. Íslenskir garðplöntufram- leiðendur hafa í gegnum árin verið að þróa sínar trjáplöntur og fjölær blóm þannig að þau þola fullkom- lega íslenskt veðurfar. Að herða blóm Varðandi einæru blómin er ekki um mikla þróun að ræða en hinsvegar hafa garðplöntubændur valið úr harð- gerðustu tegundirnar. Síðan kemur það sem kallað er að herða ein- ærblóm eins og til að mynda stjúpur. Þá eru þær ræktaðar inni framan af en seinni hluta ræktunartímabilsins eru þær settar út og þar með aðlagast þær hinum lága hita sem er hér á landi. Þar sem þetta er ekki gert þola sumarblómin ekki kuldakast eins og koma svo oft hér á landi, þau láta þegar í stað á sjá á meðan ekkert sér á hertu blómunum. Vegna þessa er nauðsynlegt að sérmerkja íslensku framleiðsl- una því hún hefur verið aðlöguð íslensku veðurfari og hitastigi þolir hvoru tveggja betur en suðræn blóm. S.dór Íslenskar garðplöntur merktar með fánaröndinni Ragna Helgadóttir, heimasætan á Kjarri í Ölfusi, með nýju merkimiðana fyrir íslensku garðplöntuframleiðendurna. Á spjaldinu eru góðar upplýsingar um plöntuna og íslenska fánaröndin er neðst á því eins og sjá má. Ljósm. MHH Dómkórinn syngur í Grundar- fjarðarkirkju Dómkórinn í Reykjavík hef- ur haft þann sið um árabil að ljúka vetrarstarfi sínu með ferðalagi og tónleik- um á landsbyggðinni. Hefur hann sungið víðsvegar um landið á þessum ferðum. Að þessu sinni er ferðinni heit- ið á Snæfellsnes og verða tónleikar haldnir í Grundar- fjarðar kirkju laugardaginn 16. júní kl. 14. Þar syngur kórinn íslensk þjóð lög og sálmalög, erlenda madrigala, sönglagaflokk eftir Johannes Brahms og fleira. Aðgangur er ókeypis og öllum frjáls meðan húsrúm leyfir. Kórinn skipa rúmlega 50 söngv- arar en stjórnandi er Marteinn H. Friðriksson dómorganisti. Gamlir Landróverar gætu orðið ný útflutningsgrein hjá bænd- um ef marka má reynslu Torfa Þórarinssonar bónda á Skógum í Hörgárdal. Hann auglýsti einn slíkan í Bændablaðinu ekki alls fyrir löngu og fékk mun meiri viðbrögð en hann átti von á. Nú er bíllinn seldur – til Danmerkur! Og Danir vilja fá fleiri. Forsaga málsins er sú að Torfi auglýsti í Bændablaðinu í vetur eftir Landróver af lengri gerðinni. Ekki bar það árangur en hann keypti hins vegar jeppa af styttri gerðinni austan af landi. Svo frétti hann af öðrum af lengri gerðinni og keypti hann. Þá hafði hann ekkert við þann stutta að gera lengur og auglýsti hann til sölu í Bændablaðinu. „Viðbrögðin voru langt umfram það sem ég átti von á. Ég fékk fjölda símtala og þar á meðal frá útlöndum. Og nú er jeppinn sem ég keypti í vetur á leið til Danmerkur. Sá sem kaupir er íslenskur húsa- smiður sem býr í Hróarskeldu og er að læra gamla byggingarlist. Hann er félagi í Landróverklúbbi Danmerkur og þegar hann sagði frá auglýsingunni varð uppi fótur og fit í klúbbnum. Hann hafði samband við mig og spurði hvað ég gæti útvegað marga bíla. Ástand bílanna skipti engu máli, hann gæti selt allt sem ég gæti útvegað,“ sagði Torfi. Félagarnir í Landróverklúbbnum gera bílana upp sjálfir og þeim fannst þeir hafa himin höndum tekið þegar þeir fréttu að bak við annan hvern hól á Íslandi lægi gam- all Landróver. „Þeir ryðga svo illa niður þarna úti að þeir hverfa bók- staflega svo það er ekkert framboð af notuðum jeppum. Kaupandinn sagði mér að það væri hægt að fá alla varahluti í Landróver og að þeir kostuðu ekki mikið, hurðin með öllu tilheyrandi fæst til dæmis á 7.000 íslenskar krónur og gal- vaníseruð grind á 110.000,“ segir Torfi. Fáum sögum fer af því til hvers þeir dönsku nota bílana eftir að þeir hafa gert þá upp en Torfi segir að þar sem Landróver sé ekki með afl- mestu bílum henti hann áreiðanlega vel í danskar fjallaferðir! Þeir sem hafa áhuga á að gera sér mat úr gamla jeppahræinu sínu ættu að hafa samband við Torfa en hann svarar í símann 897 7178. ÞH Ný útflutningsgrein: gamlir Landróverar Danskir áhugamenn um Landróver væru eflaust til að í að greiða morðfjár fyrir þennan, verst þó að hann skuli líta svona vel út því aðalsportið hjá þeim er að gera þá upp. Banni við silungs- veiðum í net í Eyjafirði aflétt Fyrir þremur árum setti veiði- málastjóri reglugerð sem bann- aði allar silungsveiðar í net í Eyjafirði en bændur höfðu margir lagt net út frá sínu landi og veitt sér í soðið. Bannið náði til allra bæja í austanverðum Eyjafirði, það er í Svalbarðs- og Grýtubakkahreppum, en vest- anmegin fjarðarins hafði silungs- veiði í net verið bönnuð í mörg ár á undan. Þá náði reglugerð veiði- málastjóra um bann við silungs- veiðum í net í sjó alveg austur í Þistilfjörð. Ástæða sjóveiðibannsins var sögð sú að koma í veg fyrir að lax veiddist í netin. Hins vegar er enginn lax í Eyjafjarðará þannig að þetta bann gat ekki átt þar við. Bændur sem urðu fyrir veiðibann- inu undu því ekki og lögðu fram stjórnsýslukæru en henni var hafn- að. Þá sendu þeir málið til umboðs- manns Alþingis sem úrskurðaði bændum í hag í fyrra. Samt var það ekki fyrr en nú í vor sem bréf var sent út frá Landbúnaðarstofnun um að netaveiðibanninu í Eyjafirði austanverðum væri aflétt. Bréfið sem bændur við Eyjafjörð austanverðan fengu er eftirfarandi: Reglur um afnám reglna nr. 373, 29. apríl 2004, um bann við netaveiði göngusilungs við Eyjafjörð. 1. gr. Með hliðsjón af ítarlegri ákvæðum nýrra laga nr. 61/2006 um lax- og silungsveiði varðandi netaveiðar á göngusilungi í sjó eru felldar úr gildi reglur nr. 373, 29. apríl 2004, um bann við netaveiði göngusil- ungs við Eyjafjörð. 2. gr. Reglur þessar, sem settar eru sam- kvæmt 15. gr. laga nr. 61/2006, um lax- og silungsveiði, öðlast gildi við birtingu. 3. gr. Reglur þessar fella ekki úr gildi aug- lýsingu nr. 197/1943 um bann við veiði göngusilungs við Fnjóskárósa. Undir bréfið ritar Jón Gíslason, forstjóri Landbúnaðarstofnunar. Varðandi svæðið austur um til Þórshafnar sagði Viktor Stefán Pálsson að hjá Landbúnaðarstofnun væri verið að skoða aðstæður á því svæði. Þar eru nokkrar laxveiðiár sem gæti þurft að verja fyrir neta- veiðum í sjó. S.dór Vilja afnema nýju vatna- lögin Þingflokkur Vinstri grænna hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um að lög nr. 20/2006, vatnalög, falli brott og að lög nr. 15/1923, vatnalög með síðari breytingum, haldi gildi sínu. Í greinargerð með frumvarpinu segir: ,,Setning nýrra vatnalaga, heildarlaga í stað þeirra sem gilt höfðu allt frá 1923, var eitt umdeildasta mál 132. lög- gjafarþings. Þáverandi stjórn- arandstaða sameinaðist í and- stöðu við málið og lagði til að því yrði vísað frá, samanber nefndarálit á þingskjali 864 frá því þingi. Meginrök stjórn- arandstöðunnar voru að með frumvarpinu væri hróflað með óábyrgum og óvarlegum hætti við farsælli niðurstöðu Alþingis um nýtingarrétt á vatni frá 1923 og einkaeignarétti gert of hátt undir höfði. Við lokameðferð málsins náðist sú málamiðlun að fresta gildistöku hinna nýju vatnalaga fram yfir kosningar á þessu vori og þar til nýtt þing hefði komið saman og gæti tekið afstöðu til málsins...“ Samtökin Landsbyggðin lifi héldu byggðaþing á Hvanneyri sl. laugardag í samvinnu við Land búnaðarháskóla Íslands. Voru þar flutt fimm erindi um mál sem varða landsbyggðina miklu og að þeim loknum voru pall borðsumræður. Verða þing- inu gerð nánari skil hér í Bænda- blað inu á næstunni. Á sunnudaginn var svo haldinn aðalfundur samtakanna og fór þar allt fram með hefðbundnum hætti. Í frétt frá samtökunum segir að mikil eindrægni hafi ríkt um kjör nýrrar stjórnar. Stjórnarfundur sem hald- inn var strax í kjölfar aðalfundarins skipti verkum milli stjórnarmanna. Í stjórn sitja nú: Formaður er Ragnar Stefánsson, Laugasteini, Svarf aðardal, varaformaður Sveinn Jóns son kenndur við Kálfskinn, ritari er Þórarinn Lárusson, Egils- stöðum og Stefán Á Jónsson, Kag- aðarhóli Austur-Húnavatnssýslu er gjaldkeri. Meðstjórnendur eru Elísabet Gísla dóttir, Reykjavík, Sigríður Svavarsdóttir, Akureyri og Guðjón D. Gunnarsson, Reyk- hólum. Varamenn í stjórn eru: Stefánía V. Gísladóttir, Kópaskeri, Þórunn Egils dóttir, Vopnafirði, Þormóður Ásvaldsson, Þingeyjarsveit, Silja Sig urðardóttir, Seyðisfirði og Pétur Tryggvi Hjálmarsson, Ísafirði. Byggðaþing haldið á Hvanneyri um helgina Starf nautgriparækt- arráðunauts auglýst Bændasamtök Íslands auglýsa á bls. 20 eftir landsráðunaut í nautgriparækt. Starfinu hefur Jón Viðar Jónmundsson sinnt af stakri prýði um langt árabil jafnframt starfi landsráðunaut- ar í sauðfjárrækt. Landsráðunautsstörfum fyrir báðar stóru búgreinarnar í land- inu hefur vissulega fylgt mikið vinnuálag og ábyrgð sem ekki er á allra færi að rísa undir. Það er sameiginlegur vilji stjórnenda BÍ og Jóns Viðars að samtökin leiti nú eftir starfsmanni sem uppfyllir hæfniskröfur til að sinna nautgrip- aráðunautsstarfinu. Það myndi létta vinnuálagi af Jóni og gæfi honum aukið svigrúm til að sinna spenn- andi verkefnum í sauðfjárræktinni.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.