Bændablaðið - 12.06.2007, Blaðsíða 22
Bændablaðið | Þriðjudagur 12. júní 200722
Vélfang ehf. afhenti á dögunum
stærstu dráttarvél sem fram-
leidd er í Evrópu til Skarphéðins
Jóhannesonar í Heflun ehf. Vélin er
að gerðinni Fendt 936 Vario og er
360 hestöfl. Í fréttatilkynningu frá
Vélfangi segir að vélin sé vel útbú-
in og tæknilega fullkomin. Nefna
þeir sérstaklega gírkassa vélarinnar
og nýja tegund af vél sem ku vera
einkar sparneytin sem munar um á
tímum hás olíukostnaðar. Þess má
geta til að ímynda sér stærð Fendt
936 að þyngdarklossinn framan á
vélinni 2,5 tonn en heildarþyngd er
12,6 tonn.
Litskrúðug
lömb
Áætlað er að í sauðburðinum á
Íslandi komi um 800.000 lömb í
heiminn. Að sjálfsögðu eru þau
margvísleg að lit og hér fylgja
með tvær myndir sem blaðinu
bárust af skemmtilegum litaaf-
brigðum. Fréttaritari okkar í
Mývatnssveit sendi okkur þenn-
an pistil um hrútlambið litskrúð-
uga:
Það er einstaklega fallegt þetta
þrílita hrútlamb í búi Halldórs
Árnasonar í Garði í Mývatnssveit.
Ég fékk Árna Halldórsson til að
litgreina lambið. Hann segir það
goltótt með hvíta sokka á afturfót-
um en hvíta leista á framfótum.
Lambið er líka hvítkrúnótt og með
hvítan dindil. Móðirin er kollótt
og mórauð, ættuð úr Strandasýslu
og þangað var sótt sæðið sem hún
fékk og gaf mórauða gimbur auk
hrútlambsins. Gimbrin var vanin
undir aðra á. Þeir Garðsfeðgar vilja
síður láta gemlinginn ganga með 2
lömb í sumar. Árni segir að guli lit-
urinn hverfi með tímanum og verði
hvítur að mestu. Trúlegast verður
hann settur á vetur, sá litli. BFH
Við þetta má bæta að Ólafur
Dýrmundsson kallar þetta litaaf-
brigði golsuflekkótt, nánar tiltekið
golsuarnhosótt. Hann segir að þetta
sé ekki algengt en komi þó fyrir af
og til.
Frá Jóni S. Sigmarggyni barst
einnig mynd af lambi sem fæddist
að Desjamýri í Borgarfirði eystra.
Það er hvítt með svartan blett í
andliti. Ólafur sagði að þetta væri
í raun ekki sjálfstætt litaafbrigði en
skemmtilegt engu að síður að sjá
svona lamb.
Bóthildur hefur borið
26 lömbum á níu árum
Ærin Bóthildur á Heydalsá við
Steingrímsfjörð bar á dögunum
þremur lömbum en það hefur hún
gert árlega síðan árið 2000. Sem
gemlingur var hún tvílembd en
ekki hefur brugðist að hún kæmi
með þrjú lömb síðan.
Það er Branddís Ösp Ragnarsdóttir
sem á þessa frjósömu kind og eru þær
jafnöldrur, báðar níu ára. Kindina
fékk Branddís að gjöf þegar hún
var á fyrsta ári, frá föðurforeldrum
sínum þeim Braga Guðbrandssyni
og Sólveigu Jónsdóttur sem einnig
búa á Heydalsá. Í fyrrahaust höfðu
lömb alls 944 kg að þyngd komið
af fjalli undan Bóthildi, að vísu með
hjálp „kjörmæðra“ því þriðja lambið
hefur jafnan verið vanið undir aðra
á. Samtals hefur hún borið 26 lömb-
um á níu árum og hafa þau öll lifað.
Bóthildur hafði þá skilað tæpum 250
kílóum af kjöti en einnig hefur mikið
verið látið lifa undan henni.
Bóthildur er undan hrútnum
Þyrli 94-399 frá Heydalsá en sá
mun hafa verið afar frjósamur.
Eru hrútar undan honum notaðir á
sæðingarstöðvum og afkvæmi til
undan honum víða um land. Ragnar
Bragason, bóndi á Heydalsá, segir
þrjár ær enn vera á lífi undan Þyrli.
Hann telur að Bóthildur muni senn
ljúka ævistarfinu, enda orðin níu
vetra og þar með elsta ærin í fjárhús-
inu.
Á myndinni að ofan er Branddís
með lömbin Rose og Jack sem
heita eftir persónum úr uppáhalds-
kvikmyndinni, Titanic. Þriðja lamb-
ið, Aron, var vanið undir aðra á. Á
hinni myndinni eru systurnar Þórey
og Branddís að skoða lítið lamb.
kse
Stærsta dráttarvél í Evrópu til Íslands
Blaðið Landnámshænan 2007
er komið út. Eigenda- og rækt-
endafélag Landnámshænsna
(ERL) gefur árlega út þetta
tímarit sem er helgað ræktun
landnámshænsna á Íslandi.
Blaðið er fullt af fræðandi efni
um landnámshænuna og falleg-
um myndum af þessum litríka
hænsnastofni. Því er ætlað að
vekja áhuga á ræktun land-
námshænsna og kynna kosti
þessa einstaka stofns, sem nú
telur líklega um 3000 einstakl-
inga víðs vegar um landið, og
auglýsa árlega sýningu félagsins
sem verður 30. júní næstkom-
andi.
Blaðið er allt litprentað en
meðal efnis er veggspjald í und-
irbúningi þar sem landsmenn eru
beðnir að láta vita ef þeir eiga lýs-
ingar á mynstri og litum hænsn-
anna á veggspjaldinu sem er mis-
munandi eftir landshlutum; mynd-
ir af sýningu félagsins 2006; grein
um rannsóknir sem sýna ótvírætt
að egg úr lausagönguhænum eru
mun næringarríkari og hollari en
egg úr verksmiðjubúum; grein um
fóðrun hænsna og umgengni barna
við hænur, svo fátt eitt sé nefnt.
Tímarit um landnáms-
hænur komið út