Bændablaðið - 12.06.2007, Blaðsíða 15
Bændablaðið | Þriðjudagur 12. júní 200715
Nýverið hlaut Elías Guðmundsson
frá ferðaþjónustufyrirtækinu
Hvíldarkletti ehf. á Suðureyri
fyrstu verðlaun fyrir bestu mark-
aðsáætlunina við útskrift í verk-
efninu Útflutningsaukning og
hagvöxtur (ÚH) ásamt Sigrúnu
Guðjónsdóttur frá hugbúnaðar-
og ráðgjafarfyrirtækinu Innn hf.
í Reykjavík.
„Við erum stolt af því að fá
svona klapp á bakið og það er alltaf
gaman þegar tekið er eftir því sem
maður gerir. Nú stöndum við í stór-
ræðum á Suðureyri og Flateyri við
að taka á móti þýskum sjóstanga-
veiðimönnum en uppbókað er að
mestu í sjóstangaveiðina í sumar.
Það hefur gengið nokkuð vel þrátt
fyrir leiðinlega tíð en það er ótrú-
legt hvað Þjóðverjarnir láta veðrið
hafa lítil áhrif á sig,“ segir Elías
Guðmundsson, framkvæmdastjóri
Hvíldarkletts.
Ferðamenn og daglegt líf
þorpsbúa
Útflutningsráð Íslands stendur að
verkefninu Útflutningsaukning
og hagvöxtur í samvinnu við
Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins,
Landsbanka Íslands, Bakkavör
Group, Byggðastofnun, Samtök
iðnaðarins og Félag kvenna í
atvinnurekstri. Þetta er í 17. sinn
sem ÚH-námskeið er haldið á
vegum Útflutningsráðs en um er að
ræða þróunarverkefni fyrir lítil og
meðalstór fyrirtæki sem hafa áhuga
á að hefja útflutning eða festa í sessi
útflutning sem þegar er hafinn.
Markaðsáætlun Hvíldarkletts
byggist á sjávarþorpinu Suðureyri.
Í raun gengur verkefnið út á að
breyta Súgandafirði í nokkurs konar
„þemagarð“ þar sem ferðamenn
geta komið í heimsókn og tekið þátt
í daglegum störfum þorpsbúa; veitt
sér í soðið, unnið í frystihúsinu
og svo framvegis. Íbúarnir verða
þannig á vissan hátt þátttakendur í
sínum eigin raunveruleikaþætti.
ehg
Hvíldarklettur ehf. á Suðureyri á hraðri siglingu