Bændablaðið - 12.06.2007, Blaðsíða 7

Bændablaðið - 12.06.2007, Blaðsíða 7
Þjóðlendu mál in hafa vak ið upp miklu fleiri spurn ingar en fengist hafa svör við í meðferð þeirra fyrir Óbyggða nefnd og dóm stólum. Meðal þess sem fræði menn velta fyrir sér er heimilda notkun þess- ara stjórnvalda og málskilningur dómara og annarra lögfræðinga á forn um bréfum og heimildum sem þeir styðjast við. Um þetta fjall aði Einar G. Pétursson rann- sóknarprófessor á Árnastofnun í erindi sem hann flutti á málþingi í Heklusetri 2. júní sl. Einar hóf erindi sitt á vangavelt- um manna um eignir kirkjujarða á fjalldölum. Tók hann dæmi úr sinni heimasveit, Fellsströnd í Dalasýslu þar sem Staðarfell hefur um langan aldur átt Flekkudal sem er langt frá öðru landi jarðarinnar. Flekkudalur er eign Staðarfells í kaupbréfi fyrir Staðarfelli frá árinu 1385. Staðarfell hefur alla tíð verið bændakirkja og þess vegna hefur Flekkudalurinn fylgt jörðinni og gerir það enn. Mjög víða eiga kirkjur fjalllendi. Þúsundir óskoðaðra bréfa Því miður eru heimildir um eignir jarða ekki alltaf svona skýrar. Einar notaði einkum Íslenzkt fornfréfa- safn, sem nær þó aðeins fram til 1570, og vísitasíubækur Brynjólfs Sveinssonar biskups. Við rannsókn- ina á eignarhaldi Flekkudals rakst hann á bréf frá 1613 sem staðfesti eldra bréfið en það bréf barst hon- um í hendur þegar hann tók á móti bréfum í handritaskilum úr Árna- safni í Kaupmannahöfn. Í erindi sínu harmaði Einar hversu illa hafi verið staðið að út- gáfu fornbréfa og heimilda á síð- ustu áratugum. Það hafi verið gert af myndarskap meðan á sjálfstæð- isbaráttunni stóð en eftir það hafi áhuginn fjarað út. Nú sé staðan sú að í Árnastofnun liggi „skjöl svo þúsundum skiptir, sem ekki hafa verið skoðuð fyrir Óbyggðanefnd og enginn veit í raun hvað geyma“. Hvað merkir afréttur? Einar fjallar nokkuð um merkingu orðanna „af réttur“ og „afréttar eign“ sem fræði menn hef ur greint á um lengi hvað feli í sér. Þegar fossa- mál in komu til umræðu á al- þingi 1917 var Bjarni Jónsson frá Vogi feng- inn til að kveða upp úr um það hvað orðið „afréttur“ þýddi og var niðurstaða hans sú að yfirráð einstaklinga og sveitarfélaga yfir slíku svæði takmörkuðust við það sem „ríkið vill veita þeim“. Eggert Briem bóndi í Viðey birti um svipað leyti grein þar sem hann komst að þveröfugri niðurstöðu, þe. að ókleift væri að draga afrétt- ir undir landssjóð fremur en hverja aðra jarðeign í landinu. Árið 2001 ritaði Gunnar F. Guð- mundsson sagnfræðingur sem var um tíma starfsmaður Óbyggða- nefndar grein þar sem hann benti á ýmsar veilur í rökstuðningi Bjarna og segir að ekki sé hægt að full- yrða „að afréttareign hafi einungis falið í sér beitarítak og e.t.v einhver takmörkuð not sem annaðhvort var eigendalaust eða í eigu ríkisins“. Segir Gunnar einnig að þjóðlendu- lögin eigi sér frekar réttlætingu í einhvers konar „heildarhagsmunum þjóðarinnar“ en að þau styðjist við söguleg rök. Einar ræðir um notkun lögfræð- inga á fjallskilareglum sem heimild og hefur það við þær að athuga að slíkar reglur hafi fyrst verið sett- ar um aldamótin 1800 og eigi því ekki við þegar eldri heimildir segi annað. Ofsatrú á Landnámu Eina heimild hafi lögfræðingar sem vélað hafa um þjóðlendumál þó talið afar trausta og er marg oft vitnað í hana í hæstaréttar dóm um. Það er Landnáma. Þar er lýst um 400 landnámum í upphafi Íslands- byggðar. Gallinn er hins vegar sá að hún var sennilega samin rúmlega 200 árum eftir að landnám hófst fyrir 900 og mjög breyttar gerðir hennar sem hafa varðveist eru frá því um 1300. Á hinn bóginn hafi þessir sömu lögfræðingar ekki haldið á lofti ákvæði sem finna má bæði í Jóns- bók og Grágás og segja til um það að ekki sé skylda að ganga á merki á fjöllum uppi, þe. ekki sé þörf á að tilgreina nákvæmlega landamerki á vatnaskilum. Einar bendir einnig á þá staðreynd að á landnámsöld náði byggð lengra inn á hálendið en nokkru sinni síðar. Um þetta segir hann að engu sé líkara en að sumir lögfræðingar, þar með taldir hæsta- réttardómarar, skilji ekki mælt mál. Máldagar, þ.e. eignaskrár kirkna, eru teknir með mikilli varfærni. Aftur á móti meta lögfræðingar Land námu svo mikils að ekki þarf að ræða heimildagildi hennar. Þegar málið um hvort Skjald- breiður væri þjóðlenda var fyrir héraðsdómi Suðurlands 13. október 2005 er eftirfarandi rökstuðningur tilgreindur af hálfu ríkisins: „Það liggi ljóst fyrir, að réttarþróun allt að núverandi stöðu mála sé á þá lund, að enginn hafi getað eignast grunnrétt að hálendissvæðum utan landnáma. Við athugun á því hvað felist í hugtökunum „almenningur“ og „afréttur“ séum við Íslendingar í þeirri einstæðu aðstöðu, að hafa skjallegar frásagnir um landnám Íslands, en þær frásagnir hafi verið taldar áreiðanlegar af sagnfræðing- um. Samkvæmt þessum heimildum sé greint frá yfir 400 landnámum og sé hvergi getið um þau, nema þar sem um sé að ræða eignarlönd sem síðar hafi verið byggð. Einnig sé talið áreiðanlegt, að Jónsbók í núverandi afritum sýni hver lög voru talin gilda hér 1281.“ Einar spyr hvaða sagnfræðingar það séu sem telji Landnámu áreiðanlega, skjallega heimild? Málaferlin gætu dregist á langinn Lokaorð Einars í erindinu eru á þessa leið: „Ekki er gott að segja til um hvernig þjóðlendumál þróast í fram- tíðinni. Nokkur mál eru nú kom in fyrir Evrópudómstólinn og yrðu þau tekin fyrir þar og ynnust, gæti það þýtt að málaferli héldu lengi áfram. Öruggt er aftur á móti, að sökum þess hve illa var staðið að leit að skjölum eiga einhver gögn eftir að koma í ljós, sem verða grundvöllur nýrra málaferla. Ótrúlegt er annað en sagnfræðing ar hnekki trú lög- fræðinga á Landnámu. Hér eiga vel við orð Þór arins skólameistara á Akureyri, er sagði: „Spillt þjóð fé- lag þarf marga lögfræðinga.“ Fyrir skömmu endurtók ég ofangreind orð í eyru prófessors í lögum, sem bætti við: „Og gjörspillt geysi- marga.““ –ÞH Ragnar Ingi Aðalsteinsson spyr um höfund þessarar vísu: Gakktu á skíðum gleðinnar í grónum hlíðum lukkunnar. Farðu á skautum farsældar fram hjá brautum glötunar. Kristján Bersi telur að þetta sé ein af þeim vísum sem gjarnan voru settar í minningabækur skólabarna um 1950. Heiður heillar sveitar Sigurður Sigurðarson spurði um höfund þessarar vísu á Leir og fékk svar að hún væri eftir Borgfirðinginn Jakob á Varma læk. Það myndi heiðri heillar sveitar bjarga, hryggja fáa, en gleðja æði marga og menninguna stórkostlega styrkja, ef Sturla í Fossatúni hætti að yrkja. Ný ríkisstjórn Auðvitað tóku hagyrðingar til við að yrkja um nýja ríkisstjórn á ýmsan hátt. Kristján Bersi á þessa: Boðaðrar stjórnar er beðið enn, bráðum er látið vaða og Bleikjustjórnin birtist senn bæði til gagns og skaða. Benedikt Jónsson orti: Löngum reynist lánið valt, en lukkan mætust. Ingibjörg var þá eftir allt allra stelpna sætust. Kristján Bersi orti þessa vísu að loknum lestri á Reykjavíkurbréfi Moggans. Sumum verður í hamsi heitt og hatast við frama Ingibjargar. En að henni finna má ekki neitt, – Alveg sama hvað Styrmir þvargar. Hjálmar Freysteinsson sagði: Annað skemmtilegt í fréttum, sem féll auðvitað í skuggann, var að Frjálslyndir hefðu boðið gömlu stjórninni aðstoð sína. Er þraukaði stjórn við þunga nauð þrotið var afl og kraftur, góðhjartaður Guðjón bauð að gefa þeim sleggjuna aftur. Kristbjörg heitir höfundur þessarar vísu sem birtist á Leir: Nú var Framsóknarflokkurinn kvaddur förinni lokið, sagan skráð, nú er þar margur í nauðum staddur nú þarf að stofna sendiráð. Þessi spurning vaknaði hjá Hjálm- ari Freysteinssyni: Spurningar þeirrar spyrja má spekinga í eðlisfræði, hvort ríkisstjórn mynda eigi á alræmdu sprungusvæði. Og hann bætir við: Ég hef tekið eftir því að óvenju- mikið kossaflens fylgir myndun þessarar stjórnar. Man ekki til að Halldór og Davíð hafi sést kyssast hér fyrrum þó ég efi ekki að þá hafi langað til þess. Ingibjörg hefur nú tilkynnt að kynjaskipting verði jöfn í ráðherraliði Samfylkingar. Efalítið er til bóta, engan vegin skaðað getur að Ingibjörg noti kynjakóta svo „kossastjórnin“ endist betur. Séra Hjálmar Jónsson flutti Geir og flokksráði Sjálfstæðisflokksins þessa limru: Þó að oft megi árangurs vona og Ingibjörg Sólrún sé kona og stjórnin sé klár og kvitt næstu ár þá kysstu´ekki konuna svona. Umsjón: Sigurdór Sigurdórsson ss@bondi.is Í umræðunni Bændablaðið | Þriðjudagur 12. júní 20077 MÆLT AF MUNNI FRAM Fáir þekkja stöðuna í þjóðlend- umálunum betur en Ólafur Björnsson, lögmaður á Selfossi. Bændablaðið bað hann að skýra og meta stöðuna í málunum eins og hún er núna. ,,Það má segja að þjóðlendumálin séu í miðju kafi um þessar mundir. Það er búið að taka um það bil hálft landið til meðferðar. Suðurlandið er lengst komið í því. Það er búið að fara í gegnum óbyggðanefnd, héraðsdóm og Hæstarétt. Nokkur mál vestast í landnámi Ingólfs eru þó um þessar mundir að fara fyrir héraðsdóm. Þrjú mál úr Austur- Skaftafellssýslu hafa verið kærð til Mannréttindadómstóls Evrópu. Þær kærur fóru nú í vor. Nýbúið er að kveða upp úrskurði á N-Austurlandi og menn eiga alla möguleika á að skjóta þeim úrskurðum til dómstóla og hafa til þess sex mánuði. Ég reikna með að flestir bændur fari með málin fyrir dómstóla,“ sagði Ólafur. Málin á öllum stigum Hann segir að nú sé verið að vinna að málum bæði í Norður- og Suður-Þingeyjarsýslum en það sé á byrjunarstigi. Til standi að skila kröfulýsingum og greinargerðum og flytja mál fyrir Óbyggðanefnd í september nk. ,,Það má því segja að þjóð- lendumálin séu á öllum stigum því norðvestanvert og vestanvert landið, sem og Vestfirðir, eru alveg eftir. Það er því ljóst að áratugur eða meira mun líða þar til þessum málum lýkur,“ segir Ólafur. Umdeilt atriði Fyrir kosningarnar í vor var rætt um að reyna að leysa þessi mál meira í sátt en gert hefur verið. Það segir Ólafur að gæti flýtt afgreiðslu málanna umtalsvert. Dæmi hafa verið nefnd um að bændur hafi keypt lönd af ríkinu sem nú séu allt í einu úrskurðuð þjóðlendur og þar með eign rík- isins. Ólafur segir að í flestum þeim tilvikum hafi verið um að ræða gamlar kirkjujarðir og gömul afréttarlönd kirknanna og því verið um afréttaralmenning að ræða. Það geti enginn selt meira en hann eigi og það skipti því engu máli þótt einhver embættismaður hjá ríkinu hafi afsalað landi. Inntak eignarrétt- ar breytist ekki. Landið verði áfram afréttaralmenningur og þar með þjóðlenda. Ekki sé hægt að breyta því í eignarland með einfaldri sölu embættismanns. Slíkt yrði að gera með lögum, að sögn Ólafs. Hann tekur fram að þetta sé þó mjög umdeilt meðal löglærðra manna sem leikmanna og því margt óljóst í málinu enn þá. Um 80 þúsund mál bíða afgreiðslu Aðspurður hvort hann telji öruggt að Mannréttindadómstóllinn taki málin fyrir segir hann að því fari fjarri að það sé öruggt. Það væri hrein heppni ef svo færi enda bíði um 80 þúsund mál afgreiðslu hjá dómstólnum. Og jafnvel þótt dóm- stóllinn tæki málin fyrir sé ekki öruggt að landeigendur vinni þau. Ólafur segir að menn hafi deilt um eignarrétt á hálend- inu í hátt í hundrað ár. Það byrj- aði allt með Bjarna frá Vogi 1907 þegar átök hófust um fossana og svo kölluð fossalög voru sett. Síðan hafa fallið dómar eins og Landmannaafréttardómur fyrri 1955 og Landmannaafréttardómur síðari 1981. Þá komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að Landmannaafrétt ætti enginn, hvorki ríkið, hrepparnir né bændur. Um væri að ræða almenn- ing óháðan öllum. Árið 1997 féll dómur um Auðkúluheiði og þjóð- lendumálin hófust svo árið 1999 en lög þar um höfðu verið sett árið áður. Þjóðlendumálin hafa því stað- ið yfir í 80 ár. S.dór Þjóðlendumálin gætu að óbreyttu tekið meira en áratug Á hverju byggjast úrskurðir í þjóðlendumálum? Einar G. Pétursson gerir alvarlegar athugasemdir við meðferð og túlkun lögfræðinga á heimildum þegar þeir fjalla um eignarhald á landi Þjóðlendumálin geta snúist um veruleg verðmæti.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.