Bændablaðið - 12.06.2007, Blaðsíða 30

Bændablaðið - 12.06.2007, Blaðsíða 30
Bændablaðið | Þriðjudagur 12. júní 200730 Laugardaginn 26. maí 2007 var mikill dag- ur á Möðruvöllum. Þá var Leikhúsið vígt eftir glæsilega uppbyggingu. Þar er komið safnaðarheimili kirkjunnar og aðstaða til funda- og veitingasölu. Til vígsluhátíð- arinnar komu yfir 120 gestir. Dagskráin hófst á því að Kirkjukór Möðru- valla klaustursprestakalls söng ljóð Jónasar Hallgrímssonar, Smávinir fagrir. Það var Davíð Stefánsson, formaður sjálfseignar- stofn unar innar Amtmannssetursins á Möðru- völlum, sem setti hátíðina og bauð menn vel komna. Hann skipaði séra Solveigu Láru Guðmundsdóttur veislustjóra. Fyrst las Þór- odd ur Sveinsson stuttan kafla úr bókinni Minn- ingar frá Möðruvöllum og Guðrún Jónsdóttir arkitekt las kafla úr endurminningum móður sinnar, Huldu Á. Stefánsdóttur. Þá söng kirkju- kórinn Fífilbrekka gróin grund og séra Gylfi Jónsson las hluta af ljóði Davíðs Stefánssonar sem nefnist Möðruvallaskóli fimmtugur. Þar eru meðal annars þessi er indi: Vorið er komið heim í Hörgárdalinn, heilsar á ný og fagnar gömlum vinum, ber frá þeim kveðju, er kól og féllu í valinn, kemur með söng og gleðst með öllum hinum. Vorið það heilsar vinum sínum öllum: Velkomnir aftur heim að Möðruvöllum! Margt hefur breytzt, og margs er hér að sakna. Mörgum er ljúft að gista fornar slóðir. Moldin er trygg, og minningarnar vakna. Máli hins liðna tala steinar hljóðir. Margt hafa árin tengt við gamla grunninn. Geymt er hér margt – og þó er skólinn brunninn. Bræður og vinir, blessum liðna daga. Breytingum tímans æðri kraftar ráða. Vel er, ef okkar verk og æfisaga verða þeim ungu hvöt til nýrra dáða. Þá hafa rætzt í Íslandsbyggðum öllum óskir, sem fengu líf á Möðruvöllum. Þá kynnti Bjarni E. Guðleifsson bygging- arsögu Leikhússins og Solveig Lára sagði frá framtíðaráformum um notkun hússins og uppbyggingu á staðnum. Hún fór að lokum með húsblessun og síðan tóku allir undir sönginn Ísland ögrum skorið. Að því loknu þáðu gestir veitingar og spjölluðu saman. Í tilefni af vígslunni voru Amtmannssetrinu færðar margar góðar gjafir. Saga Leikhússins í stuttu máli Árið 1880 var stofnaður gagnfræðaskóli á Möðruvöllum sem var undanfari Mennta- skólans á Akureyri. Möðruvallaskóli var þó einungis starfræktur í 22 ár því þegar skóla- húsið brann árið 1902 var skólinn fluttur til Akureyrar. Á tímum skólans bjuggu á Möðru- völlum margir merkismenn sem unnu mik- ilvægt brautryðjendastarf í skólamálum og á sviði náttúruvísinda. Skólinn útskrifaði yfir 230 nemendur sem margir urðu áberandi í þjóðlífinu. Til dæmis var algengt að Möðru- vellingar gerðust kennarar í sínu heimahér- aði. Þá má geta þess að alls 18 nemendur skólans voru kosnir þingmenn til Alþingis. Einu sýnilegu minjar skólans sem eftir eru á Möðruvöllum er sk. Leikhús sem var byggt sem leikfimihús og pakkhús. Leikfimihúsið var byggt sumarið 1881 og var það einn- ig nefnt danshús eða leikhús. Þar var kennd leikfimi og þar glímdu nemendur. Leikhúsið var þó tvímælalaust þekktast sem dans- og samkomuhús sveitarinnar en þar voru haldin harmóníkuböll nánast á hverjum sunnudegi. Leikhúsið var lítt innviðað, nema skilrúm um það nokkuð austan við miðju. Í vestari endanum var stórt salargólf. Leiksalurinn var 10x12 álnir að gólffleti eða 43 fermetrar en austurendi byggingarinnar var pakkhús. Skilrúm var á milli húsanna upp að skamm- bitum, en uppi var opið milli skemmuloftsins og leikfimihússins. Á fánastöng hússins var fáni með íslenska fálkamerkinu dreginn að húni við hátíðleg tækifæri. Vesturendinn á þessu húsi, hið raunveru- lega Leikhús, var rifinn 1911-1912 og við- urinn notaður í viðbyggingu íþróttahúss Mennta skólans á Akureyri, viðbyggingu sem kölluð er Fjós. Eftir stóð þá Pakkhúsið. Þegar Bjarni E. Guðleifsson flutti í Möðruvelli árið 1978 var Pakkhúsið orðið mjög lúið og hlaðið drasli. Síðar var fleygt inn í það hey böggum sem reyndar voru aldrei notaðir. Við vesturstafninn hafði verið byggð ein lyft skúrbygging með flötu þaki og var sagt að þar hefði fólk búið eftir að íbúðar hús brann á Möðruvöllum árið 1937. Fannst Bjarna og ýmsum öðrum að þetta næstelsta hús staðarins ætti skilið verðugra hlutverk en að grotna niður. Var gerð áætlun um það hve mikið mundi kosta að endurbyggja húsið svo að það yrði nothæft, en hugmyndin var þá að í hús- inu yrði hægt að vera með sölu á ýmiss konar handverki og framleiðslu manna í nágrenn- inu. Var árið 1981 áætlað að það myndi kosta 150.000 krónur. Í grein í Heimaslóð árið 1982 var spurt: Hver vill fjármagna svona fyrirtæki? Þá veitti Menningarsjóður KEA fyrsta styrkinn til þessarar uppbyggingar, krónur 3.500. Endurreisnin Það var ekki fyrr en Húsafriðunarsjóður byrj aði að styrkja bygginguna um 1990 að framkvæmd- ir hófust. Árið 1995 stofnuðu tíu áhugamenn sjálfseignarfélagið Leikhúsið á Möðruvöllum og var fjármagns til uppbyggingar leitað víða með litlum árangri. Sjálfseignarfélag þetta ákvað að nota virðulegra nafnið, Leikhús, og undir því nafni er húsið nú. Var félag þetta skráð með kennitölu og tóku þá að berast fyrirspurnir um það hvað væri á fjölunum í Leikhúsinu á Möðruvöllum og voru forsvars- menn hússins stundum í virðulegum bréfum ávarpaðir sem leikhússtjórar. Hlutverk þessa sjálfseignarfélags var að vinna að endurbygg- ingu Leikhússins. Seinna komu fram áform um enn meiri uppbyggingu hér á staðnum og upp úr því var árið 2006 formlega stofnuð sjálfseign- arstofnunin Amtmanssetrið á Möðruvöllum og að henni standa Landbúnaðarháskóli Íslands, Möðruvallaklausturssókn, Arnarneshreppur og Prestsetrasjóður. Hlutverk þess er fyrst og fremst að sjá um uppbygginguna á Möðru- völlum og er endurbygging Leikhússins fyrsti liðurinn í því starfi. Fjármagns í endurbygg- inguna hefur verið leitað víða en það var ekki fyrr en Arnarneshreppur kom inn sem eins konar kjölfestufjárfestir á árinu 2006 sem hlut- irnir fóru að ganga. BEG/ÞS Amtmannssetrið vígir Leikhúsið á Möðruvöllum Það eru margir Íslendingar sem muna eftir Jósef á gula hjól- inu, enda hefur hann ferðast um Ísland á hverju sumri í 24 ár. Hann kemur á hverju vori, birgir sig upp af mat og heldur út í nátt- úruna. Núna er hins vegar mikil breyting á ferðahögum hans því hann hefur lagt gula hjólinu og innréttað lítinn rauðan Suzuki jeppa sem húsbíl. Jósef Niderberger er með sanni hægt að kalla ferðalang Íslands. Á hverju vori heldur hann frá heima- landi sínu Sviss áleiðis til Íslands. Hann hefur farið út um allt land, farið hringinn í kring um landið en segist kunna best við sig á norð- austurhorninu. „Það er svo mikið af lækjum hérna og það er gott til að gera Bragakaffi,“ segir hann brosandi en hann hefur tileiknað sér íslenska tungu nokkuð vel. Síðasta haust áður en hann fór aftur heim fékk hann vil- yrði fyrir því að innrétta þessa rauðu Suzuki bifreið sem húsbíl. Hann var gestur á Ytra-Álandi í Þistilfirði þegar blaðamaður Bændablaðsins hitti á hann en það var Skúli Ragnarsson bóndi þar sem gaf honum bílinn. Til landsins kom hann 18. maí og byrj- aði strax að vinna í bílnum en hann var nánast fullbúinn þegar myndirnar voru teknar. Baðar sig í ísköldum ám og lækjum Jósef stoppar vanalega um 2-3 vikur á hverjum stað. Í sumar ætlar hann að fara úr Þistilfirðinum, í gegn- um Raufarhöfn og Kópasker og til baka yfir Öxarfjarðaheiði. Áður tjaldaði hann alltaf en núna leggur hann húsbílnum og á þá auðveldara með að færa sig úr stað. Hann sest að við á eða læk enda finnst honum íslenska vatnið svo gott. Á hverjum morgni vaknar hann um átta, fær sér morgunmat og baðar sig svo í köldum læknum. Þá stendur hann útí vatninu í stígvélunum einum saman og þvær sér. „Ef það líður dagur á milli þá fer ég aðeins ofaní vatnið, í svona 10 sekúndur,“ segir hann og hlær dátt að grettu á svip blaðamanns, „það er svo gott fyrir hjartað, já, já.“ Jósef segir að hann labbi svo um, fylgist með fuglunum og blómunum, skrifi bréf til vina sinna heima og teikni aðeins. Innrétting bílsins er úthugsuð, þar er hver rúmsentimetri nýttur og hann er búinn að útbúa eldhús, skrif- stofu og svefnpláss, auk þess sem farangurinn fær sitt pláss. Húsbíllinn er að sjálfsögðu bara fyrir einn, enda er bílstjórasætið eina sætið sem eftir er. Þar situr hann með þar til gerð- an planka yfir stýrinu og er þar með kominn með skrifstofu. Eldhúsið er til hliðar, þar setur hann upp prím- us til að elda á en undir plötunni er matargeymslan. Síðan setur hann upp rúmið sitt ofan á sama plank- anum, sem nær frá mælaborðinu og alveg aftur að aftuhurðinni og notar einungis þunna tjalddýnu undir. Farangursrýmið var ekki alveg fullbúið en hann var þó búinn að setja spýtu fyrir aftan bílstjórasætið þannig að ef hann stoppar snögglega þá fer farangurinn ekki í höfuðið á honum. Ísskápinn grefur hann í jörðu, setur kassa af mat ofaní holuna og segir að þar sé vanalega um 5°C hiti í jörðinni þannig að maturinn hald- ist góður, smjörið endist í margar vikur. Áður en hann leggur af stað upp í sumardvölina kaupir hann um 30 kíló af mat og þarf þá ekki að fara í kaupstað í nokkrar vikur. Þegar mjólkurvörurnar eru búnar, skyr, súrmjólk og fleira, hefur hann farið í kaupstað einu sinni í viku, hann nýtir sér ferðir póstbílsins sem fer frá Akureyri til Þórshafnar og til baka aftur. Sá bíll stoppar í eina klukkustund á Þórshöfn og þar með hefur Jósef nógan tíma til að versla, fara í pósthúsið eða sinna öðrum erindum. Aðspurður um hvort hann eigi sér einhverja uppáhaldsfugla á Íslandi segir hann að þrjár tegund- ir séu honum sérstaklega kærar, í móunum er það heiðlóan sem syng- ur svo fallega, í loftinu er það krían en á sjónum finnst honum lóm- urinn vera fallegastur. „Lómurinn er svolítið líkur Íslendingum, hann horfir svolítið upp og er stoltur, alveg eins og Íslendingar,“ segir Jósef og minnist svo sérstaklega á íslenskar konur, „hér eru karlar og konur jöfn, gera svo margt af því sama og allar konur kunna að keyra. Konurnar hér eru sjálfstæð- ar og það líkar mér, franskir menn hlaupa og opna dyr fyrir konum en konur eru engin börn, þær geta alveg opnað dyrnar sjálfar.“ Lítið fjallaþorp í Sviss Vetrursetu hefur Jóesef í litlu fjalla- þorpi í Sviss. Hann er kominn á eftirlaun en starfaði sem rafvirki. Þorpið er fyrir ofan þéttbýlan dal- inn en í þorpinu er ekkert fyrirtæki heldur sækja íbúarnir vinnu niður í dalinn. Þar búa um 130 manns og þar af eru 5 bændur. Jósef segir að hann labbi stundum upp fjallið og fái sér morgunmat, þar er lítil kaffi- tería sem einn bóndi rekur með búskapnum. „Ég nota tímann á vet- urna til að undirbúa næsta sumar, gera við tjaldið mitt og fötin mín. Svo mála ég kannski aðeins heima hjá mér, vinn aðeins með timbur og labba í fjöllunum, alltaf nóg að gera,“ segir hann. „Ég fór fyrst til Íslands árið 1982, svo fór ég sum- arið 85 og á hverju ári eftir það. Ég er hálfur Íslendingur, blóðið er ekki íslenskt en hjarta mitt er íslenskt,“ segir hann brosandi. Hann ber Íslendingum góða söguna, segir að eftir að hann fór að hægja á sér, vera lengur á sama stað þá kynn- ist hann fólkinu í sveitinni. Oft fær hann heimboð og einnig gefa margir sér tíma til að stoppa við hjá honum og spjalla. En hvað gerist ef bíllinn bilar? „Ef bíllinn bilar þá bara bíð ég ef ég á nógan mat, svo sendi ég skila- boð til Skúla og hann kemur þá kannski á næstu dögum og kíkir á mig,“ segir hann sæll og ánægður með nýja bílinn sinn. Jósef lagði af stað til sumardvalarinnar í íslenskri náttúru skömmu eftir að hann gaf sér tíma til að spjalla við blaða- mann og fréttist til byggða að hann væri mjög ánægður með vistina í húsbílnum sínum. GBJ Hjarta mitt er íslenskt Jósef á gula hjólinu kominn á Suzuki-jeppa Rúmið er hvorki stórt né útbúið neinum nútíma þægindum en Jósef vill ekki hafa þykka dýnu undir sér. Undir rúminu eru box undir mat og aðrar nauðsynjar. Það verður eflaust rjúkandi heitt Bragakaffi í eldhúsinu hjá honum í sumar. Einföld lausn á skrifstofunni, þarna les hann og teiknar. Harmóníkan þanin aftur í Leikhúsinu eftir ríf- lega hundrað ára hlé. Vígslugestir viðra sig í góða veðrinu. Þessi fallegi bjarndýrafelldur er gjöf Helenu Dejak eiganda Ferðaskrifstofunnar Nonna til Amtmannssetursins. Rithöfundurinn Nonni (Jón Sveinsson) sem ferðaskrifstofan er nefnd eftir fæddist á Möðruvöllum. Ísbirnir koma mikið við sögu í bókum Nonna.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.