Bændablaðið - 12.06.2007, Blaðsíða 13
Bændablaðið | Þriðjudagur 12. júní 200713
Sumarið er tími bænda- og
sveitamarkaða í mörgum löndum
en hérlendis hefur þessi skemmti-
legi möguleiki framleiðenda til að
koma vörum beint til neytenda
ekki verið mikið notaður fram til
þessa. Þeir markaðir sem verið
hafa í gangi á síðustu misserum
virðast samt stöðugt vera að
eflast og festa sig æ meir í sessi.
Bændablaðið ræddi við talsmenn
nokkurra þeirra markaða sem
verða munu starfræktir á kom-
andi sumri. Fyrst má nefna að
starfsemi Kolaportsins verður í
gangi um helgar sem verið hefur
en Kolaportið er lang stærsti
markaður landsins.
Í Dalseli í Mosfellsbæ hefur
verið starfræktur vinsæll bænda-
markaður til fjölda ára og þangað
kemur fjöldi íbúa af höfuðborg-
arsvæðinu að ná sér nýtt grænmeti,
blóm o.fl. Markaðurinn verður í
gangi á komandi sumri og er stefnt
að opnun um miðjan júlímánuð
en markaðurinn verður opinn á
sunnudögum milli 12:00-17:00 alla
sunnudaga fram í byrjun septemb-
er.
Í Eyjafirði var starfræktur
skemmti legur sveitamarkaður við
gróður húsið gengt Jólahúsinu á
síð asta sumri. Markaðurinn naut
fádæma vinsælda og var mikið
sóttur af heimamönnum og ferða-
fólki. Að sögn aðstandenda mark-
aðarins á að endurtaka leikinn á
komandi sumri. Stefnt er að því að
markaðurinn fari að stað um miðj-
an júlí og verði fram til ca. 20 ágúst
en markaðurinn verður væntanlega
opinn 11:00-17:00 á sunnudögum.
Konurnar í lifandi landbún-
aði á Snæfellsnesi hyggjast standa
fyrir markaði fyrsta laugardaginn
í júlímánuði og er ætlunin að hafa
hátíðarumgjörð um uppákom-
una. Markaðutrinn verður haldinn
í samkomuhúsinu í Breiðabliki
og stefnt að fjölbreyttu vörufram-
boði og skemmtan (heimabakstur,
kaffi, tónlist, kompuhorn o.m.fl.).
Þetta verkefni er að sögn sprottið
út úr verkefninu Byggjum-brýr sem
margar konur á Snæfellsnesi voru
þátttakendur í.
Á síðasta ári stóðu Búnaðarsam-
band Vesturlands fyrir bændamörk-
uðum á Hvanneyri sem þótti heppn-
ast vel og vera góð viðbót við
aðra möguleika fyrir ferðafólk á
Hvanneyri. Þessa dagana er verið
að safna liði á ný og ætlunin að
standa fyrir mörkuðum allt eftir
áhuga framleiðenda.
Á Laxá í Leiraársveit var einn
fjölsóttasti sveitamarkaður landsins
á liðnu ári og verður leikurinn end-
urtekinn á komandi sumri og mark-
aðurinn opinn alla sunnudaga frá
kl 13:00-16:00.
Árni Jósteinsson hjá Bændasam-
tökunum sagði blaðamanni að hann
hefði haft fregnir af markvissum
þreifingum um stofnun bændamark-
aða á vestfjörðum og á austurlandi
en slíkt biði frekari kynningar síðar
meir. Árni minnti ennfremur á að
aðilarnir á bak við verkefnið beint
frá býli væru tilbúnir að veita frum-
kvöðlum aðstoð við að koma fleiri
mörkuðum á laggirnar og gæti fólk
haft samband gegnum netfangið
aj@bondi.is.
Sumarið er tími markaða
Beint frá býli – sala heimavinnsluafurða