Bændablaðið - 12.06.2007, Page 25

Bændablaðið - 12.06.2007, Page 25
Bændablaðið | Þriðjudagur 12. júní 200725 í verknám á sveitabæi þar sem aðstaða sé til þess. Sverrir segir það auðvitað mis- jafnt hvernig börnin séu innbyggð; eitt sé meira á heimspekilegri nót- unum á meðan annað sé meira í verklegu. Það skipti ekki máli hvar fólk sé fætt og uppalið, það sé öllu heldur hvernig hver og einn sé inn- byggður og hvort hann finni sér þannig rétta braut í lífinu. Hundarnir sjá að mestu um smölun Sverrir nýtir sér hundana sína mikið við smölun. Hann segir það mesta mun og vinnusparnað að hafa þá. Nú eiga þau fimm Border Collie hunda. Sjálfur temur hann hundana og hefur farið á nokkur nám- skeið hjá Gunnari á Daðastöðum í Öxarfirði, sem er mikill hundarækt- andi og Sverrir sækir hunda sína hiklaust til. En þetta er ekki það eina sem sparar vinnu; í fjárhúsinu er einnig búið að setja upp gjafa- kerfi þannig að það þarf ekki að vera stanslaust að gefa á garðann, heldur aðeins að setja rúllur undir þar til gerða talíu sem færir heyið fram í hús. Þar kemst um þriðjung- ur af kindunum að í einu og hafa þær því alltaf hey til átu. Sverrir segir að það sé miklu meira rými í húsinu eftir að hann breytti þessu, sauðburðaraðstaða sé góð og mun minni tími fari í gjafir og brynn- ingu. Hann segi að fósturtalning í ánum sé einnig mikil bylting sem auðveldi um margt sauðburðinn. Það nýjasta er svo örmerking á lömbin þar sem allar upplýsingar eru settar inn í litla vasatölvu og merkið á lambinu síðan skannað til að sjá þær. „Þetta er það sem koma skal og á eftir að verða mikil breyt- ing. Allt svona lagað gefur bænd- um færi á að hagræða í vinnu og auka þá jafnvel við sig fé og bæta framleiðsluna. Það verður að vera framþróun, það dugir engin aft- urhaldssemi ef bændur eiga að vera samkeppnishæfir á markaðinum,“ segir hann. Það er í nógu að snúast á stóru heimili eins og á Ytra-Lóni. Þau tína eitthvað af æðardúni úr hreiðr- um og segja að varpið sé ágætt í ár. Einnig nýta þau allan rekavið en hver einasta spýta í farfugla- heimilinu er úr rekaviði af nesinu. Nú fer þó mestur viðurinn í girð- ingarstaura sem þau nota sjálf en einnig selja þau töluvert af staurum á hverju ári. Nokkrar kanínur og íslenskar hænur eru á bænum, sem og 17 hross sem notuð er til gagns og gamans. Það er heilmikil uppbygging sem þau hafa staðið fyrir á bænum og mikil vinna lögð í að gera far- fuglaheimilið sem notalegast. Þau eru nokkuð bjartsýn á íslenskan landbúnað og hafa trú á sinni sveit. Heimasíða farfuglaheimilisins er http://www.visitlanganes.com Texti og myndir: GBJ

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.