Bændablaðið - 12.06.2007, Page 32
Bændablaðið | Þriðjudagur 12. júní 200732
Um þessar mundir er þess minnst
að 20 ár eru liðin síðan nefnd á
vegum Sameinuðu þjóðanna um
umhverfis- og þróunarmál lagði
fram tillögur sína. Formaður
nefnd arinnar var Gro Harlem
Brundtland, fyrrverandi forsæt-
isráðherra Noregs, og boðskapur
nefndarinnar var: Sjálfbær þróun.
Hverju hafa tillögurnar svo feng-
ið áorkað nú 20 árum eftir að þær
voru lagðar fram sem tímamóta
stefnumörkun? Svarið er: Engu.
Fyrir nokkru flutti Gro Harlem
Brundtland ræðu á þingi norska
verkamannaflokksins. Þar gagn-
rýndi hún þá sem vildu gera aðgerð-
ir í veðurfarsmálum að spurningu
um meinlætalíf og sjálfsaga.
Brundtland-nefndin boðaði hvor-
ugt. Nei, við hagvexti ríkra landa
mátti alls ekki hrófla til að gefa
fátækum löndum svigrúm til að
jafna aðstöðu sína gagnvart efnuðum
löndum. Boðskapur nefndarinnar var
samstiga boðskap Bush forseta eldri
til umhverfisráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna í Rio de Janeiro árið 1992:
„Breyting á bandarískum lífsstíl er
ekki á dagskrá hér.“
Alls lagði Brundtland-nefndin
til fimm- til tíföldun á iðnaðarfram-
leiðslu ríkja heims næstu 40 árin.
Þessari aukningu er þegar náð, 20
árum síðar, ekki síst með hjálp olíu
og kola sem unnin eru úr jörðu.
En fljótlega eftir að tillögurnar
komu fram fóru að heyrast varn-
aðarorð. Tryggve Haavelmo, norsk-
ur nóbelsverðlaunahafi í hagfræði,
sagði í viðtali þegar árið 1990:
„Aukinn hagvöxtur í ríkum lönd-
um er skelfileg tilhugsun. Hann
stenst ekki gagnvart umhverfinu.
Fríverslun ógnar einnig umhverf-
inu með því að auka neysluna. Án
þeirra hliðaráhrifa væru skipti á
vörum og þjónustu af hinu góða. Ég
vara hins vegar við því að andrúms-
loftið verði mengað með útblæstri
frá bílum og skipum í því skyni.“
Hvað hefði Haavelmo, sem nú er
látinn, sagt um það að flytja fisk frá
Barentshafinu til Kína til flökunar
og síðan aftur til Evrópu í fiskborð
verslana?
Nationen
Utan úr heimi
Orkuráð Sameinuðu þjóðanna
leggur áherslu á þá möguleika
sem fylgja framleiðslu á líforku
en einnig á hættur því fylgjandi
ef ekki er hugað vel að mikilvægi
matvælaframleiðslu, áhrifum á
veðurfar og líffræðilegan fjöl-
breytileika.
Skýrslan, sem birt var snemma í
maí, leggur áherslu á að huga verði
jafnt að efnahagslegum, umhverf-
islegum og félagslegum afleiðing-
um af framleiðslu líforku áður en
teknar verða ákvarðanir um þróun
og val á tækni við framleiðsluna.
„Hún á bæði að tryggja framboð
á orku og að staðbundið jafnt sem
hnattvænt umhverfi njóti vernd-
ar,“ segir Mats Karlsson, formaður
orkuráðs SÞ.
Samkvæmt skýrslunni getur
aukin áhersla á ræktun líforku
dregið úr fátækt, aukið framboð á
orku og styrkt búsetu í dreifbýli.
Jafnframt fjallar hún um hvaða
áhrif framleiðsla líforku getur haft
á matvælaöryggi, breytingar á veð-
urfari og líffræðilegan fjölbreyti-
leika, náttúruauðlindir, sem og
atvinnutækifæri og viðskipti.
Reglur um vottun
Að áliti orkuráðs SÞ gæti sá skaði,
sem yrði á mannlegu samfélagi og
umhverfi, vegið upp kostina við
aukna notkun á líforku, ef ekki væru
jafnframt gerðar framkvæmdaáætl-
anir til að verja viðkvæm svæði
og beina þróuninni í sjálfbæra átt.
Þar má nefna að framleiðsla líf-
orku hefði neikvæð áhrif ef gam-
all skógur yrði ruddur til að rækta
þar gróður til orkuframleiðslu. Það
gæti leitt til mikillar losunar kol-
tvísýrings, bæði frá trjábolunum og
því kolefni sem safnast hefur fyrir í
jarðvegi þar sem skógurinn vex.
Af þeim ástæðum þarf að koma
á fót alþjóðlegu vottunarkerfi sem
fylgist með losun gróðurhúsaloft-
tegunda til þess að tryggja að fram-
leiðsla líforku uppfylli umhverf-
isstaðla í ferlinum frá ræktunar-
staðnum til eldsneytistanksins.
Með þessum fyrirvörum er það
niðurstaða skýrslunnar að mark-
aður fyrir líforku opni nýja mögu-
leika fyrir bændur. Nationen
Útlit og horfur fyrir sölu búvara
á heimsmarkaði eru mjög bjartar
um þessar mundir. Sérfræðingar
Efnahags- og framfarastofn-
unarinnar, OECD, og Matvæla-
og landbúnaðarstofnunar Sam-
einuðu þjóðanna, FAO, eru á
einu máli um að eftirspurn eftir
búvörum haldi áfram að aukast,
og það hækkar það verð sem
bændur fá fyrir þær.
Staðan á heimsmarkaði fyrir
búvörur var rædd á fundi Alþjóða-
sam taka bænda, IFAP, í Vínarborg
í lok apríl sl. þar sem sérfræðingar
upp lýstu að eftirspurnin væri veru-
lega meiri en framboðið.
Ástæða þessa er aukinn hagvöxt-
ur í heiminum, einkum í austanverðri
Asíu þar sem kjöt og mjólk ur vörur
eru eftirsóttastar. Nýtil komin fram-
leiðsla á líforku þrýstir einnig verði
á búvörum enn frekar upp.
Menn sáu hins vegar ekki neina
árekstra í uppsiglingu milli fram-
leiðslu á búvörum og líforku; frek-
ar að þessar greinar bættu hvor
aðra upp.
Eftirspurn á heimsmarkaði eftir
mjólk og mjólkurvörum vex hraðar
en mjólkurframleiðslan, upplýsti
talsmaður Alþjóðasamtaka mjólk-
uriðnaðarins. Spáð er að eftirspurn
eftir mjólk muni aukast um 125
milljónir tonna fram til 2015 en
framboðið aðeins um helming þess.
Áætlað er að í Kína vaxi eftirspurn-
in um 12-15 milljónir tonna á ári,
sem mæta verði með innflutningi.
Udo Folgart, formaður samtaka
mjólkurframleiðenda í Þýskalandi,
upplýsti að þróunin á þýska mjólk-
urmarkaðnum hefði orðið allt
önnur en spáð var fyrir fáum árum.
Offramleiðslan hefði horfið og
salan slegið öll fyrri met. Það hefði
auðveldað mjólkurbúum að hækka
verðið, einnig á heimamarkaði.
Landsbygdens Folk
Uppgangur á alþjóðlegum
mörkuðum fyrir búvörur
Sá sjúkdómur sem hér um ræðir
nefnist svartryð (svartrost) og
honum veldur sveppur (Puccinia
graminis). Hin ýmsu afbrigði
hans leggjast á allar korntegund-
ir og fjölda villtra grastegunda.
Nafnið kemur af svörtum vetr-
argróum. Gróin þurfa annan hýsil
til að lifa, sem er berberisrunninn
(Berberis vulgaris). Þau dreifast
með vindi og skordýrum og lifa
veturinn af í villtu grasi.
Hér er ekki á ferð nýr sjúkdómur,
Rómverjar til forna óttuðust hann og
tilbáðu meira að segja “ryðguð” sér
til halds og trausts. Svartryð getur á
skömmum tíma eyðilagt þroskaðan
kornakur og valdið gífurlegu tjóni.
Það er því ekki óvænt að á tímum
kalda stríðsins áttu bæði Sovétríkin
og Bandaríkin birgðir af svar-
tryðsgróum, sem hugsanlega mátti
nota sem lífrænt vopn.
Nær öll kornræktarlönd hafa
orðið fyrir svartryðsfaraldri. Síðasti
faraldurinn í Bandaríkjunum varð
árið 1954 þegar sveppurinn eyði-
lagði um 40% af hveitiuppsker-
unni. Þegar “Græna byltingin”,
kom til sögunnar fundust þolnir
hveitistofnar gegn honum sem hafa
haldið sjúkdómnum í skefjum.
Nú hefur það hins vegar gerst að
mjög kröftugt afbrigði af svartryði,
nefnt Ug99, er farið að dreifa sér.
Það kom upp í Uganda í Afríku árið
1999 og hefur síðan hægt og bít-
andi dreift sér um Austur-Afríku.
Í janúar á þessu ári barst það yfir
til Jemen og norður á bóginn til
Súdan. Sérfræðingar telja að áður
en langt um líður berist svepp-
urinn til Egyptalands, Tyrklands
og Miðausturlanda og þaðan til
Indlands. Eftir það er það aðeins
spurning um tíma hvenær hann
berst til annarra heimsálfa.
Sá langi tími, sem nú hefur liðið
frá síðasta faraldri, hefur skapað
falskt öryggi meðal þeirra sem bera
ábyrgð á þessum málaflokki. Faðir
„Grænu byltingarinnar“, Nóbels-
verð launahafinn Norman Bor laug,
varaði alþjóðasamfélagið við þegar
árið 2002, þegar sveppurinn hafði
skotið rótum í Kenya, en ekki var
tekið mark á þeim viðvörunum.
Síðasta aldarfjórðung hefur
lítil áhersla verið lögð á að rækta
með kynbótum þolna hveitistofna
gegn svartryði. Alþjóðlega mið-
stöðin fyrir þróun nýrra hveiti- og
maísstofna, CIMMYT, hefur fyrst
nýverið beint kröftum sínum að
því og reynir nú að afla aukins fjár-
magns til verkefnisins.
Hinn hávirki stofn af svartryði,
Ug99, er miklu skæðari en þeir
sem fyrir voru. Af 50 genum hveit-
isins sem veita vörn gegn svartryði
eru einungis 10 sem í nokkrum
mæli gefa mótstöðuafl gegn Ug99.
Stofnar með þessi gen hafa nú
verið víxlfrjóvgaðir með uppskeru-
miklum hveitistofnum frá Kenya
og Eþíópíu. Í Afganistan, Indlandi,
Nepal og Pakistan fara nú einnig
fram tilraunir með að rækta nýja
hveitistofna.
Verkefnið er þannig komið af
stað en áætlað er að það taki 5-8 ár
að rækta þolið útsæði. Sérfræðingar
halda því fram að til þess að þetta
takist þurfi að leggja 3-5% af
hveitiökrum undir ræktun á svar-
tryðsþolnu útsæði.
Það veldur svo enn frekari
áhyggjum að virkni Ug99 svar-
tryðsins fer enn vaxandi, auk þess
sem dreifingarmöguleikar svepps-
ins aukast jafnt og þétt. Hveitiakrar
nú á tímum eru þéttir, þeir fá mik-
inn áburð og jafnvel vökvun. Við
þessi skilyrði nýtur sveppurinn sín
sérlega vel og dreifist hratt.
Við þær miklu samgöngur sem
eiga sér stað nú á tímum þá berst
sveppurinn auðveldlega milli landa
og heimsálfa. Að sögn tímaritsins
New Scientist hefur öryggismála-
ráðuneyti Bandaríkjanna þegar
fjallað um þá áhættu að hryðju-
verkamenn beri með sér gró af ryð-
sveppi milli landa.
Unnt er að verjast ryðsveppnum
með því að sprauta akrana. Í fátæk-
um löndum, þar sem hættan er mest,
hafa bændur yfirleitt ekki ráð á að
kaupa úðunarefni, þó að góð efni
séu á boðstólum. En jafnvel ríkt
land eins og Bandaríkin á ekki nóg
af varnarefnum ef jafnframt þarf að
berjast gegn sojabaunaryði sem er
vandamál í sojabaunarækt þar.
Ef svartryðið nær fótfestu í mörg-
um löndum samtímis má vænta þess
að fátækustu löndin mæti afgangi í
baráttunni við sjúkdóminn. Að sögn
Norman Borlaug verður að treysta
á úðun í fyrstunni en stefna síðan á
þolna stofna, sem henta ræktunar-
skilyrðum á hverjum stað, þegar frá
líður. Hann telur einnig að gagnleg
mótstöðugen finnist í grasi í nátt-
úrunni og öðrum gróðri. Hann bend-
ir jafnframt á að sveppurinn ráðist
ekki á hrísgrjónajurtina og spyr sig
hvað því valdi. Landsbygdens Folk
Sjúkdómur herjar á hveitirækt
Varnaðarorð frá orkuráði SÞ um líforku
Varast ber að
grilla pylsur
við opinn eld
Komið hefur í ljós að vara-
samt er að grilla pylsur við
logandi eld. Lengi hefur verið
vitað að grillun og steiking
getur myndað skaðleg efna-
sambönd í mat.
Matvælaeftirlitið í Noregi
fól norskri vísindanefnd um
matvælaöryggi að meta hvort
samband væri á milli mikillar
neyslu á grillmat og krabba-
meins. Niðurstaða nefndarinnar
var sú að þarna væri samhengi
á milli við yfirdrifna neyslu
á grillmat, þ.e. 30 sinnum eða
oftar á sumri.
Grillun yfir opnum eldi
getur valdið því að efnið PAH
(Polysykliske aromatiske
hydrokarbonater) og HA
(heterosykliske aromatiske
aminer) myndist en þessi efni
geta valdið krabbameini.
Helle Knutsen, sem á sæti í
vísindanefndinni um matvæla-
öryggi, staðfesti að hæstu gildi
þessara efna væru í pylsum
grilluðum við logandi eld. Hún
mælir með því að grilla á glóð-
unum.
Mette Habberstad, talsmað-
ur Norska ferðafélagsins (Den
Norske Turistforening), bendir
á að orð hafi lengi legið á því að
brenndar pylsur væru ekki holl-
ur matur en bendir jafnframt á
að það sé svo margt matarkyns
sem megi grilla. Einnig má
grilla mat í álpappír til að auka
hollustu hans. Helle Knutsen
staðfestir að þannig megi forð-
ast hin varasömu efnasambönd.
Nationen
Tillögur Brundtland-nefndar SÞ í
umhverfismálum frá 1987
hafa ekki reynst haldbærar