Bændablaðið - 12.06.2007, Síða 33
Bændablaðið | Þriðjudagur 12. júní 200733
Nýliðið vor var óvanalega þurrt
og hlýtt víða í Mið- og Austur-
Evrópu. Þurrkarnir valda bæði
bændum og kornfyrirtækjum
áhyggjum og þau hafa nú þegar
varað við samdrætti í kornfram-
leiðslu og verðhækkunum.
Kröftugt háþrýstisvæði hefur
valdið því að hiti sl. vor var eins
og um hásumar um nær alla Mið-
Evrópu. Jafnvel um páskaleytið var
hiti víða allt að 30°C.
Verst kemur ástandið niður á
ræktun maltbyggs, sem notað er til
ölgerðar, og ölgerðir spá nú þegar
verðhækkun á öli þegar líður á árið.
Kornskortur á alþjóðlegum
mörkuðum
Alþjóðlegir kornmarkaðir hafa
þegar látið í ljós áhyggjur yfir þurrk-
unum í Evrópu en í Bandaríkjunum
hafa vorfrost einnig skaðað korn-
ræktina. Afleiðingin er sú að verð
á hveiti og maís á mörkuðum hefur
þegar hækkað verulega.
Hveitibirgðir í heiminum eru nú
þær minnstu í 25 ár. Með það í huga
hafa fregnir um hugsanlegan sam-
drátt í hveitiframleiðslu í Evrópu
valdið áhyggjum. Láti úrkoman á
sér standa getur það haft alvarleg-
ar afleiðingar í för með sér, að áliti
franska markaðsráðgjafarfyrirtæk-
isins Aqvitel.
Alþjóða kornráðið, International
Grain Counsil (IGC), hefur einnig
uppi varnaðarorð. Mark aðs fræð-
ingar þess benda á að eftirspurn
eftir korni sé vaxandi og að 100
milljóna tonna framleiðsluaukn-
ing í ár nægi ekki til að fullnægja
aukinni eftirspurn. IGC bendir
einnig á að kornbirgðir hafi ekki
verið minni síðan á 8. áratug síð-
ustu aldar. Markaðsfræðingarnir
hafa þegar dregið úr uppskeruspá
í Bandaríkjunum um eina milljón
tonna en þeir hafa enn ekki metið
uppskeruhorfur í Evrópu.
IGC áætlaði kornbirgðir í heim-
inum um sl. áramót 115 milljónir
tonna en þær voru 134 milljónir
tonna um áramótin 2005/06.
Varúðaráætlun á Ítalíu
Á Ítalíu hyggst ríkisstjórnin
leggja fram varúðaráætlun vegna
hinna miklu þurrka sem þar hafa
verið síðan í september í fyrra.
Kornforðabúr landsins, Pódalurinn,
hefur sérstaklega orðið illa úti.
Vatnsstaðan í Pófljótinu er sex
metrum lægri en eðlilegt má teljast
og margar hliðaránna, en þær eru
alls 141, eru vatnslausar.
Þriðjungur af uppskeru nytja-
gróðurs í Ítalíu fellur til í Pódalnum.
Bregði ekki til úrkomu fljótlega
hefur það alvarlegar afleiðingar.
Árið 2003 voru þarna miklir þurrkar
og samtök ítalskra bænda, Coldiretti,
óttast að það endurtaki sig.
Náttúruverndarsamtökin WWF
gagnrýna ítalskan landbúnað
fyrir að fara illa með vatnið með
útiræktun á tegundum sem þurfa
mikla vökvun, svo sem fljótvaxin
jarðarber, sykurrófur og maís. Ítalir
vökva 1,6 milljónir hektara.
Þurrkurinn hefur einnig bitnað
á mikilvægum kornræktarsvæðum
í Austur-Evrópu. Í Ungverjalandi
stigu upp mikil rykský við sáningu
á maís og í Úkraínu, einkum sunn-
an- og austanverðum hlutum lands-
ins, hefur hiti og þurrkur valdið
skaða. Landsbygdens Folk
Þurrkar hafa áhrif á kornuppskeru í Evrópu í ár