Bændablaðið - 01.04.2008, Blaðsíða 25
Bændablaðið | Þriðjudagur 1. apríl 200825
Um 7 þúsund
áskrifendur í
24 löndum
Um 5.200 áskrifendur nýttu sér
WorldFeng, upprunaættbók
íslenska hestsins, síðasta hálfa
árið. Um eitt hundrað áskrif
endur gerðu fyrirspurnir um alls
3.000 hross eða meira á þessu
tímabili. Algengast var að áskrif
endur gerðu fyrirspurnir um
200300 hross á þessu 6 mánaða
tímabili.
Skráðir áskrifendur World Fengs
í dag eru um 7 þúsund sem eru
búsettir í 24 löndum. World Fengur
er samstarfsverkefni Bænda sam
taka Íslands og FEIF, alþjóðasam
taka eigenda íslenskra hesta, en í
samtökunum eru 19 lönd. World
Fengur var formlega opnað ur á
Heims meistaramóti íslenska hests
ins í Austurríki í ágúst 2001.
Öll aðildarlönd FEIF eru með
skrásetjaraaðgang að WorldFeng
og hafa eftirtaldin lönd samið um
frían aðgang allra sinna félaga:
Austurríki, Bandaríkin, Bretland,
Danmörk, Finnland, Frakkland,
Holland, Noregur, Slóvenía, Sviss,
Svíþjóð og Þýskaland. Á Íslandi er
samkomulag á milli Félags hrossa
bænda og þriggja hestamanna
félaga í LH (Hörður, Máni og Sörli)
um frían aðgang félagsmanna.
Að sögn Jóns Baldurs Lorange,
verkefnisstjóra WorldFengs, eru
mikilvægustu verkefnin framundan
að tryggja alþjóðlega samvinnu um
DNA ætternisgreiningar, söfnun og
varðveislu þeirra í upprunaættbók
inni, ná samkomulagi við FEIF um
frían aðgang allra félaga í FEIF og
að gera WorldFeng að eina ættbók
arkerfi allra FEIF landa en sam
þykkt liggur þegar fyrir um það
háleita markmið.
„Það þarf að styðja við bakið á
aðildarfélögum FEIF á næstu miss
erum og árum til að unnt sé að ná
þessu fram enda þýðir þetta að
ættbókarkerfi sem t.d. Danir nota
í dag verður aflagt og eingöngu
treyst á WorldFeng í framtíðinni
við útgáfu allra formlegra skjala
á grundvelli laga og reglna hvers
lands og Evrópusambandsins,“
sagði Jón Baldur.
Áskrifendur geta valið á milli níu
tungumála, íslensku, ensku, þýsku,
hollensku, dönsku, norsku, sænsku,
frönsku og finnsku. Hvert aðildarland
skipar WorldFengs skrá setjara sem
ber ábyrgð á skráningum síns lands
og var haldin ráð stefna WorldFengs
fyrir skrásetjara í London í nóv
ember sl. Kyn bótadómar allra aðild
arlanda FEIF eru skráðir beint í
WorldFeng á meðan á kynbótasýn
ingum stendur en allar skráningar
og reglur um kynbótadóma eru sam
eiginlegar og byggja á alþjóðlegum
reglum (FIZO) sem eru samþykktar
af FEIF. WorldFengur inniheldur
í dag upplýsingar um tæplega 300
þúsund hross í 31 landi. Í núverandi
FIZO reglum er kveðið á um ættern
issannanir á grunni DNA greininga
og þurfa öll folöld sem fædd eru á
Íslandi frá og með árinu 2007 að hafa
slíka sönnun til að fá A gæðavottun.
Hýsi - verslun ehf.
Völuteigur 7 • 270 Mosfellsbær • Sími: 534 6050 Fax: 534 6051 • hysi@hysi.is • www.hysi.is
Hús og húshlutar
Þegar kemur að lausnum þar sem þaks og
veggja er þörf erum við í HÝSI í essinu okkar
Z strukture hús Stálgrindarhús
Límtré Yleiningar
BogahýsiGluggar, hurðir og sérlausnir.
Z structure hús
Þegar kemur að hagkvæmum
lausnum á byggingum þá
er varla hægt að finna
hagkvæmari kost en
Z structure húsin frá
JorisIde í Belgíu. Allt
stál er galvaníserað og
samsetningarjárn eru
heitgalvaníseruð. Húsin koma
með öllum nauðsynlegum
áfellum og frágangslistum.
Nýja fjölnotahúsið á
Halldórsstöðum í Eyjafirði er
gott dæmi um hve glæsileg
þessi hús eru uppkomin en
þau eru einnig afar fljótleg í
uppsetningu.
Hýsi - verslun ehf.
Völuteigur 7 • 270 Mosfellsbær
Sími: 534 6050 • Fax: 534 6051
hysi@hysi.is • www.hysi.is