Bændablaðið - 22.10.2009, Síða 1

Bændablaðið - 22.10.2009, Síða 1
11 17-18 Evrópskir bændur í uppreisn vegna lágs mjólkurverðs 18. tölublað 2009 Fimmtudagur 22. október Blað nr. 313 Upplag 20.500 8-9 Jón Bernódusson stýrir repjuverkefni Siglingastofnunar Er þetta hið nýja Ísland? Beint frá býli hlaut á dögunum Fjöreggið 2009, verðlaun Mat- væla- og næringarfræðafélags Íslands (MNÍ), fyrir lofsvert framtak á matvælasviði. Er þetta í 17. sinn sem verðlaun- in eru afhent og þykir mik- ill heiður fyrir aðila í mat- vælaframleiðslu að fá þau. Verðlaunin voru afhent á árleg- um matvæladegi MNÍ sem að þessu sinni bar yfirskriftina „Matvælaframleiðsla og gjald- eyrissköpun“. Hlédís Sveinsdóttir, formaður Beint frá býli, tók við verðlaun- unum en í umsögn dómnefndar segir: „Vinnsla og sala á mat- vælum beint frá býli til neyt- enda miðar að því að auka sókn- arfæri til fjölbreyttari og vaxandi heimavinnslu þar sem öryggi og gæði framleiðslunnar eru höfð að leiðarljósi. Heimavinnsla tengist mjög ferðaþjónustu og kröfum neytenda um fjölbreyttara vöru- úrval og nýja þjónustu.“ Þess má geta að samtökin Beint frá býli hafa komið sér upp nýju félagsmerki og hafið útgáfu á sérstöku gæðamerki sem bænd- ur þurfa að uppfylla strangar kröfur til þess að merkja fram- leiðslu sína með. Sjá nánar á bls. 20. ehg Hlédís Sveinsdóttir, formaður Beint frá býli, tók við Fjöregginu 2009, sem eru verðlaun Matvæla- og næringarfræðafélags Íslands. Hvað segirðu, eigum við að borga Icesave-reikninginn? mynd | smh Verkefni Fjarskiptasjóðs og verktakans Símans hf. um teng- ingu rúmlega 1.700 heimila og fyrirtækja víðsvegar um landið er á áætlun og í nóvember hefst sala í þriðja áfanga verksins þar sem Aust- og Vestfirðingum verð- ur boðið að tengjast háhraðaneti. Í nóvember hefst sala í þriðja áfanga. Um er að ræða Borg ar fjarð- ar hrepp, Fljóts dals hérað, Fljóts- dals hrepp, Ísa fjarðar bæ, Reyk- hóla hrepp, Seyðis fjarðar kaup stað, Súða víkurhrepp, Tálkna fjarðar- hrepp, Vesturbyggð og Vopna fjarð- ar hrepp. Sjóðurinn sendir alltaf kynningarbréf á heim ilis föng á staðarlista í hverjum áfanga áður en sala hefst. Alltaf má fylgjast með staðarlista og stöðu verkáætl- unar á heimsíðu Fjar skipta sjóðs www.fjarskiptasjodur.is „Mismunandi tækni er notuð til að tengja hvern stað en hraði hverrar tengingar er meðal ann- ars háður því hvaða tækni er notuð og fjarlægð staðar frá sendistöð. Tengingar í boði með 3G kerfi Símans verða 1Mb/s-2Mb/s fram að verklokum. Eftir það verður boðið upp á pakka með meiri hraða. ADSL-tengingar verða í boði þar sem hentugt verður að koma þeim við. Notuð verður gervihnattatækni í nokkrum undan tekningartilvikum þar sem erfitt verður að koma við hefðbundnum aðgangsnetum,“ útskýrir Gunnar Svavarsson, for- maður Fjar skiptasjóðs. Heimili í Skagafirði og Akra- hreppi urðu fyrst fyrir valinu í verk- efninu í lok ágúst en í september byrjaði Síminn hf. í kjölfar kerfis- uppbyggingar að selja þjónustu og setja upp teng ingar hjá notendum í sveitar fé lög unum Arnarneshreppi, Dal vík urbyggð, Eyja fjarðarsveit, Fjalla byggð, Grýtu bakka hreppi, Hörg ár byggð, Langa nes byggð, Norð ur þingi, Skútu staða hreppi og í Þing eyjar sveit. „Símanum hf. ber að bjóða íbú- um þjónustu en þess er vænst að aðrir söluaðilar netþjónustu bjóði íbúum einnig þjónustu enda stend- ur það öllum söluaðilum til boða. Gera má ráð fyrir mikilli svörun í þessu verkefni, en vissulega er það svo að hver og einn notandi tekur ákvarðanir um tengingar og þá um leið þjónustuaðila. Þar sem skammt er síðan sala hófst hefur ekki verið kannað til hlítar hvert hlutfall þeirra sem gerast áskrif- endur er, hinsvegar hafa margir beðið í nokkur ár eftir möguleika á háhraðaneti,“ segir Gunnar sem bendir á að verkinu eigi að ljúka seinnihluta ársins 2010. ehg Vel miðar með háhraðatengingar Beint frá býli hlaut Fjöreggið 2009 Næsta Bændablað kemur út 5. nóvember Mjólka/KS Enn beðið úrskurðar Samkeppniseftirlits Kaup KS á Mjólku eru enn til skoðunar hjá Sam keppn is eftir- litinu. Óhætt er að segja að aðil- ar málsins séu orðnir langeygir eftir niðurstöðu stofnunarinnar en nokkuð langt er um liðið síðan Samkeppniseftirlitinu voru send þau gögn sem stofnun in bað um. Samkomulag náðist um kaup KS á Mjólku í heild sinni og helm- ingshlut í Vogabæ í ágúst síðast- liðnum en fyrirtækin hafa verið rekin hvort á sinni kennitölunni til þessa. Stutt er í að upphaflegur frestur Samkeppnisstofnunar til að úrskurða um málið renni út en kallað var eftir fleiri gögnum frá Mjólku og má búast við að miðað verði við þann tíma sem liðinn er síðan þeim var skilað. Ekki fengust þó upplýsingar um hversu langan tíma stofnunin hefur eða ætlar sér til að klára málið. Páll Gunnar Pálsson for- stjóri Samkeppniseftirlitsins segir að málefni Mjólku og KS séu í vinnslu. „Samruni Mjólku og KS er til skoðunar af hálfu Sam keppn- is eftir litsins, en eftirlit ið kallaði eftir upplýsingum vegna samrun- ans. Meðal annars er til skoð- unar hver staða Mjólku er gagnvart búvörulögunum, það er hvort þau ákvæði búvörulaga sem heimila samruna afurðastöðva í trássi við samkeppnislög taka til Mjólku.“ Rétt er að taka fram að búvöru- lög eru sérlög sett af Alþingi og ganga því framar almennri löggjöf sem samkeppnislögin eru. fr Ögmundur segir bænd- ur lífakkeri þjóðarinnar Á 42. þingi BSRB sem stend- ur yfir dagana 21.-23. október mun Ögmundur Jónasson láta af embætti for- manns eftir að hafa gegnt því starfi í 21 ár. Í for- mannstíð sinni lagði Ögmundur áherslu á góð samskipti við bænd- ur og Bændasamtök Íslands. Ögmundur ávarpaði þingið við setningu þess í gærmorgun og flutti þar kveðjuræðu sína. Í henni sagði hann meðal annars: „Á þess- um tíma hófst einnig afar farsælt samstarf við Bændasamtökin með áherslu á hagstætt verðlag nauðþurfta, mikilvægi innlendrar hágæðamatvöru, matvælaöryggis og einnig vilja til að efla byggðir landsins. BSRB hefur litið á bænd- ur landsins sem lífakkeri þjóðarinn- ar, nokkuð sem mun koma í ljós að byggir á raunsærri framtíðarsýn.“ Bændur þakka Ögmundi sam- starfið í gegnum tíðina og óska honum velfarnaðar í framtíðinni. Jafnframt vonast Bændasamtök Íslands eftir áframhaldandi góðu samstarfi við BSRB og nýjan for- mann. fr

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.