Bændablaðið - 22.10.2009, Side 2

Bændablaðið - 22.10.2009, Side 2
2 Bændablaðið | fimmtudagur 22. október 2009 Fréttir BÍ aðili að Ráðgjafastofu um fjármál heimilanna Síðastliðinn mánudag, 19. október, var undirritaður aðildarsamningur Bændasamtaka Íslands (BÍ) að Ráð gjafarstofu um fjármál heimilanna. Með aðildinni styrkir BÍ enn frekar ráðgjafastarf sitt og búnaðar- sambanda á sviði fjármála og tryggir bændum eins víðtæka þjónustu og unnt er á því sviði. Eiríkur Blöndal framkvæmdastjóri BÍ og Böðvar Héðinsson, formaður framkvæmdastjórnar ráðgjafastofn- unnar, undirrituðu samninginn. Með þeim á myndinni eru Ásta Sigrún Helgadóttir, forstöðumaður Ráðgjafastofu um fjármál heimilanna, og Jóhanna Lind Elíasdóttir ráðunautur BÍ. -smh Í haust bar á því að menn beittu torfæruhjólum við smala- mennsku, meðal annars í Borg- ar firði í nágrenni Hreða vatns. Víða skilja hjólin eftir sig ljót sár á landinu en utanvegaakstur af þessu tagi er með öllu bannaður. Birgir Hauksson einn landeig- enda Hreðavatns segir aðfarir af þessu tagi ólíðandi. „Ég vona að þetta endurtaki sig ekki. Vissulega hefur maður heyrt af því sögur að akstur af þessu tagi eigi sér stað víðar, meðal annars uppi á afréttum. Það er hins vegar fortakslaust bann við utanvegaakstri af þessu tagi. Það sem okkur gengur til með því að vekja máls á þessu er að stoppa þetta af strax. Nú fer rjúpna- veiðitímabilið að ganga í garð og þá geta menn freistast til að keyra þessi för með því fororði að þeir séu hreinlega að keyra á slóðum. Svo er ekki ólíklegt að menn hreinlega átti sig ekki á að akstur þarna sé bannaður þegar menn sjá þessi för í landinu.“ Birgir segir að smalamennska í haust hafi meðal annars verið mönnuð af sveitarfélaginu. Land- eig endur hafa sent fjallskilanefnd erindi þar sem farið er fram á skýr- ingar því auðvitað sé ótækt að fram- ferði af þessu tagi sé skipulagt af sveitarfélagi og fjallskilanefnd. Því segist Birgir reyndar ekki vilja trúa. Ólafur Dýrmundsson ráðunaut- ur hjá Bændasamtökum Íslands segir að bændur verði að hafa var- ann á við notkun tækja af þessu tagi til smalamennsku og annarra ferða utan vega. „Umferð fjór- hjóla og sexhjóla er óheimil utan vega og bændur ættu að kynna sér reglur um akstur utan vega. Bændur hafa gagnrýnt það árum saman að fólk keyri utan vega og valdi landsspjöllum. Þess vegna er það afar sorglegt að menn skuli fara fram með þessum hætti við smalamennsku. Það er mjög alvar- legur hlutur og bændur mega ekki láta það um sig spyrjast. Það er líka vert að vekja athygli á því að um níutíu prósent sauðfjárbænda eru með gæðastýringu sem er vottorð meðal annars um góða meðferð á landi. Það á líka við um umferð um land. Menn verða að vera vakandi fyrir þessum hlutum.“ fr Notkun torfæruhjóla við smala- mennsku veldur landsspjöllum Mikil kjötsúpuveisla er fram- undan í Reykjavík en þar ætla bændur að bjóða almenningi upp á hressingu á næstu dögum. Í tengslum við matreiðsluþætt- ina „Eldum íslenskt“, sem sýndir eru á ÍNN og mbl.is, munu bænd- ur skenkja ekta íslenska kjötsúpu í verslunum Krónunnar á Granda og í Lindum Kópavogi fimmtudag- inn 22. október og föstudaginn 23. október kl. 16. Tiltækið er unnið í samstarfi Krónunnar, Lands- samtaka sauðfjárbænda, Bænda- samtakanna, ÍNN, mbl.is og mat- reiðslumanna í „Eldum íslenskt“. Laugardaginn 24. okt. á fyrsta vetrardag verður síðan hinn árlegi kjötsúpudagur Markaðsráðs kinda- kjöts. Þá er gestum og gangandi boðið í kjötsúpu á Skólavörðustíg í Reykjavík frá kl. 13-16. Þetta er sjötta árið í röð sem Markaðsráð gengst fyrir kjötsúpudeginum í samvinnu við verslunareigend- ur í götunni. Siggi Hall, Úlfar Eysteinsson, Snorri Birgir Snorra- son og Friðgeir Ingi Eiríksson, sjá um súpugerðina – hver með sínum hætti. Ýmislegt verður til skemmt- unar s.s. Kvæðamannafélagið Ið unn, harmonikkufélagið Vind- belg irnir og fleiri tónlistarmenn, ásamt söngelsku fé á hjólum. Menn- ing ar ganga Birnu Þórðar verð ur um Skólavörðustíginn kl. 14. Þá má að einnig nefna að í þætt- inum „Eldsnöggt með Jóa Fel“, sem sýndur er á Stöð 2 fimmtudag- inn 22. okt. kl. 20:10, mun hann taka kjötsúpuna fyrir og gera með sínum hætti - en eins og menn vita er engin ein uppskrift rétt að íslenskri kjötsúpu. Heitir kjötsúpupottar verða á eftirtöldum stöðum: Fimmtudagurinn 22. október Krónan á Granda í Reykjavík kl. 16. Krónan í Lindum í Kópavogi kl. 16. Föstudagurinn 23. október Krónan á Granda í Reykjavík kl. 16. Krónan í Lindum í Kópavogi kl. 16. Laugardagurinn 24. október Skólavörðustígurinn í Reykjavík kl. 13-16. Bændur bjóða í kjötsúpuveislu www.bbl.is Þann 8. október sl. hófst form- lega starfsemi í Matvæla mið stöð Austurlands í húsi Mjólkur- stöðvarinnar á Egilsstöðum. Aust urlamb reið þá á vaðið og stendur vinna þar yfir við sögun, pökkun og sendingar kjöt afurða Austurlambs. Að sögn Sigurjóns Bjarnasonar umsjónarmanns Austurlambs ættu allir þeir sem hafa pantað kjöt fyr- irfram að hafa fengið það í hendur núþegar. Hann segir að pantanir í forsölu hafi verið 20-20% fleiri í ár en í fyrra, en reiknað er með að starfsemin í Matvælamiðstöðinni standi til 25. október. „Einhverjir bændur hafa selt upp nú þegar, en aðrir hafa góðar birgðir, svo að hægt verður að gera innkaup fram eftir vetri,“ segir Sigurjón. Góð aðstaða Að sögn Sigurjóns er Matvæla- miðstöðin rúmgóð og snyrtileg og hafa heilbrigðisyfirvöld veitt tímabundið leyfi til starfsem- innar á meðan á vinnslu stendur. „Væntum við þess að framhald geti orðið á þessu samstarfi og að fleiri bændur nýti sér þessa aðstöðu. Austurlamb er alltaf reiðubúið til viðræðna um sam- starf við þá sem vilja selja kjöt- afurðir sínar beint til neytenda,“ segir hann. Í viljayfirlýsingu um Matvæla- miðstöð Austurlands kemur fram að meginmarkmið verkefnisins sé að byggja upp þróunarsetur fyrir smáframleiðslu matvæla á Austurlandi, með vöruþróun og rannsóknum á afurðum úr hér- aði. Það rými sem í mjólkurstöð- unni sem ekki er notað til mjólk- urvinnslu í dag mun verða nýtt í þessum tilgangi. Auðhumla leggur til húsnæðið og verður samið sér- staklega um það, sem og búnaðinn sem tiltækur er. Samstarfsaðilar um verkefnið munu í sameiningu vinna að því að tryggja framgang verkefnisins svo hægt verði að nýta aðstöðuna í mjólkurstöðinni, m.a. til þróunarstarfs, kennslu, námskeiða og tilraunastarfsemi í matvælaiðnaði. Þróunarfélag Austurlands hefur stýrt þessu verkefni í samvinnu við mjólk- urframleiðendur á Héraði, Búnaðarsamband Austurlands og Auðhumlu. Til liðs við verkefnið hafa síðan komið Matís og sveit- arfélagið Fljótsdalshérað. -smh          Austurlamb vinnur kjöt, pakkar og sendir Húsnæði Matvælamiðstöðvar Austurlands er í húsi Mjólkurstöðvarinnar á Egilsstöðum. Bændafundaferð Bændasamtaka Íslands á komandi vetri hefst í Eyjafirði 5. nóvember. Fundað verður í Hlíðarbæ kl. 20:30 en framsögumaður verður Har ald- ur Benediktsson formaður sam- takanna. Daginn eftir verður fund ur formanna búnaðarsam- bandanna þar sem m.a. verða rædd ar nýjar hugmyndir um skipulag, stjórnun og fjármögn- un ráðgjafarþjónustu í landbún- aði. Víst er að bændafundirnir munu bera keim af því árferði sem nú er í landinu. Haraldur Benediktsson segir að nánari dagskrá bændafundanna verði auglýst von bráðar. Hann boðar hins vegar að fundirnir verði færri en undanfarin ár og dreifist jafnvel yfir lengra tímabil en áður. „Helgast það fyrst og fremst að því bændur hafa verið mjög virk- ir á margskonar bændafundum sl. mánuði. Í apríl var fundarherferð um búvörusamninga og einnig voru bændafundir í aðdraganda kosninga mjög fjölsóttir. Þá eru bæði Landssamtök sauðfjárbænda og Landssamband kúabænda með fundarröð þessi dægrin þar sem fundir hafa verið góðir og fjölsótt- ir,“ segir Haraldur. Hann segir að eins og á almenn- um bændafundum verði leitast við að ræða um viðfangsefni heildar- samtakanna. Nú verður bændum sendar upplýsingar fyrir fund- ina sem gera ýmsum málum skil. Tilgangurinn með því er að koma bændafundaefni beint heim til bænda. Haraldur segist vona að fundirnir verði nýttir til þess að ræða þau stórmál sem uppi eru. „Þá er rétt að minna á að óskir um aðkomu BÍ að fundum eru vel þegnar og reynt að verða við þeim. Við höfum velt fyrir okkur hug- myndum að miðla efni bændafunda á nýstárlegri hátt en áður en meira um það síðar,“ segir Haraldur Benediktsson. Bændafundir framundan Haraldur Benediktsson formaður BÍ er að ferðbúast þessi dægrin á haustfundi bænda. Hvort hann fari um landið á dráttarvélinni skal ósagt látið en myndin er tekin að sumarlagi á Vestri-Reyni.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.