Bændablaðið - 22.10.2009, Síða 7
7 Bændablaðið | fimmtudagur 22. október 2009
Pöntun
Skömmu eftir aldamótin 1900
fór flokkur vegavinnumanna frá
Reykjavík upp í Kollafjörð til
starfa. Þeir fengu vistir með bát
vikulega og sendu um leið nýja
vistapöntun. Einn úr hópnum
sendi eitt sinn pöntun í bundnu
máli og fylgir hún hér á eftir.
Nú, öld síðar, er fróðlegt að
sjá hvaða vörur og gripir voru
mönnum í huga hér á landi á
þeim tíma. Margt er þar enn í
fullu gildi en annað horfið eða
orðið að safngripum. Orðið
„drifholt“ er t.d. heiti á trébút,
sem notaður var til að slá niður
gjarðir á tunnum og var í fullu
gildi hér á landi fram yfir miðja
síðustu öld. Á hinn bóginn
eru sími, rafmagn og vélknúin
ökutæki ekki komin þarna til
sögunnar.
Pöntun
Ég panta sóda og sápu
saltkjöt og rúgbrauð mörg,
klofhá stígvél og kápu,
kaffi og alls kyns björg,
rauðmaga, reglustikur,
rúsínur, margarín,
kringlur, kex og sykur,
kvenfólk og brennivín.
Fá vil ég líka frakka,
flibba, lykil og skrá,
geltinn og röskan rakka,
því reka þarf ég frá,
skóflu, pál, skæri og brýni,
skrúfhamar, töng og þjöl,
tóbak í munn og trýni,
tertur og haframjöl.
Grjótklöppu, grútarlampa,
griffil og reiknispjald,
sódapúlver og svampa,
sjálfskeiðing, húfu og tjald,
sög, öxi, hamar, hefil,
hárgreiðu, vagn og plóg
stormjakka og stóran trefil,
strákúst og leðurskó.
Svo þarf ég salt og rengi,
silung og prjónabol,
hespu, lás, hurð og kengi,
hálfbaunir, grjón og kol,
fáeina harða fiska,
fingravettlinga og nál,
skeiðar og djúpa diska,
drifholt og matarskál.
Flesk þarft og flautaþyril,
fýlunga, skyr og mjólk,
hnappeldu, snæri, sneril,
snældu, kopp, orf og hólk,
kartöflur, krítarmola,
kynbótahrút og á,
hest, meri, belju, bola,
brauðhníf og sláttuljá.
Eins þarf ég pott og pönnu,
prímus, skilvindu og strokk,
ketil, skörung og könnu,
klifbera og spólurokk.
Torfljá og þverbakstösku,
trog, ausu, kjöt og lax,
fernisolíu í flösku,
og fá vil ég dótið strax.
Um höfund Pöntunarinnar og
birtingarstað liggja ekki lengur
fyrir upplýsingar, en umsjón-
armaður lærði ljóðið fyrir hart-
nær 60 árum.
Botninn sleginn
Vel fer á því að Steinn Steinarr
eigi lokaorðið að þessu sinni,
en kveðskapur hans með hefð-
bundnum háttum mun ekki síður
halda nafni hans á loft en hinn
óhefðbundni:
Bragarföngin burtu sett,
botn í söng minn sleginn.
Situr löngum sorgum mett
sál mín öngu fegin.
Umsjón:
Matthías Eggertsson
me@bondi.is
Í umræðunni
MÆLT AF
MUNNI FRAM
Gríðarlegt gengisfall krónunnar
hefur leitt til mikilla verðhækk-
ana á öllum aðföngum til mjólk-
urframleiðslu og haft veruleg
áhrif til hins verra á afkomu
kúabænda. Nú hillir hins vegar
loks undir að starfsemi bank-
anna komist í eðlilegt horf eftir
lömunarástand frá hruni þeirra
síðastliðið haust. Fyrir mjólkur-
framleiðsluna skiptir miklu
hvern ig til tekst og hvaða lausnir
bjóð ist skuldugum bændum.
Framleiðsla á mjólk hefur aldrei
verið jafnmikil á einu verðlagsári
og því sem nú er nýliðið, tæplega
126 milljónir lítra og nær 340 þús-
und betur. Sala á mjólkurafurðum
á innanlandsmarkaði var nokkuð
minni en vænst hafði verið og hafa
umtalsverðar tilfærslur orðið á milli
flokka. Ekki hefur náðst viðunandi
árangur í sölu mjólkurafurða á
erlenda markaði, en heildarendur-
skoðun á útflutningi stendur yfir
og verða niðurstöður kynntar innan
skamms. Veðrátta hefur víðast hvar
verið kúabændum hagstæð, þó
þurrkar og kuldar hafi sett strik sitt
í reikninginn við fóðuröflun, eink-
um hvað varðar kornrækt nyðra en
sunnan heiða var hún aftur á móti
góð. Handhöfum beingreiðslna
hefur lítillega fækkað, þeir voru
706 alls í byrjun október í fyrra en
eru nú 697.
Haustfundur Landssambands
kúa bænda, sá fyrsti í röð nokkurra
slíkra, var haldinn með ey firskum
og suðurþingeyskum bændum í
Sveinbjarnargerði á Sval barðs-
strönd í liðinni viku. Sigurður
Lofts son formaður LK og Baldur
Helgi Benjamínsson framkvæmda-
stjóri héldu framsögu og fóru yfir
síðasta starfsár sambandsins, þar
sem ofangreint kom m.a fram.
Mikilvægt að lausnir leiði ekki til
mismununar milli framleiðenda
„Frá bankahruninu síðasta haust
hefur bændum fátt staðið annað til
boða í úrlausn vegna skuldavanda
en skammtímaúrræði. Nú virðist
þó loks vera að hilla undir einhverj-
ar raunhæfar framtíðarlausnir,“
sagði Baldur Helgi. Hann nefndi
að Kaupþing hefði nýverið kynnt
þær lausnir sem mögulegar eru í
stöðunni fyrir bændum og bún-
aðarsamböndum. Annars vegar
væri um að ræða úrræði í takt við
það sem stjórnvöld hafa kynnt og
hins vegar sértæk úrræði frá bank-
anum sjálfum. Líklegt þótti fram-
kvæmdastjóra sambandsins að
úrræði hinna ríkisbankanna yrðu á
svipuðum nótum. Almennu úrræð-
in felast í því að greiðslujöfnunar-
vísitala sem sett er saman úr launa-
vísitölu og atvinnuleysi er nýtt til
greiðslujöfnunar á verðtryggðum
lánum. Greiðslujöfnun erlendra
lána miðist við 1. maí árið 2008, en
þá var gengisvísitalan um það bil
150. Í báðum tilvikum færist það
sem út af stendur við hvern gjald-
daga afturfyrir og lengir lánið sem
því nemur. Þá væru væntanleg lög
sem kveði á um að lánstími leng-
ist að hámarki um þrjú ár. „Þessar
lausnir gagnast hins vegar fyrst og
fremst þeim sem hafa nægjanlegt
veðhlutfall,“ sagði Baldur Helgi.
Hann nefndi einnig að til standi að
boða skuldbreytingaaðgerðir fyrir
bændur þar sem skuldsetning er
umfram greiðslugetu bús og mjög
oft umfram markaðsvirði eigna og
rekstrar. Þar eru í boði þrjár leiðir
sem valdar yrðu eftir stöðu hvers
og eins.
Fram kom að af um 280 kúa-
bændum sem eru í viðskiptum við
Kaupþing teljist um 70 þeirra þurfa
á endurskipulagningu skulda að
halda. Þá væri greinilegur sá vilji
bankans að fá viðskiptamenn til að
færa sig úr erlendum lánum í inn-
lend. Sagði Baldur Helgi það fagn-
aðarefni að lausnir væru í sjónmáli
varðandi skuldavanda kúabænda.
Að mati sambandsins væri samt
afar mikilvægt að þær leiði ekki
til óeðlilegrar mismununar milli
einstakra framleiðenda. Eins væri
nauðsynlegt að þeir bændur sem
þurfi á fjárhagslegri endurskipu-
lagningu að halda leiti sér ráðgjafar
og umsagnar hjá þriðja aðila, t.d.
ráðgjöfum búnaðarsambandanna.
Meðalverð birgða hærra en fyrir
ári vegna neyslubreytinga
Sigurður Loftsson fór í sínu máli
yfir framleiðslu og sölu mjólkuraf-
urða og nautakjöts. Framleiðsla á
mjólk var 1,1% meiri á nýliðnu
verðlagsári en því fyrra. Hvað sölu
varðar var meiri sala í drykkjar-
mólk og viðbiti en áður, en sam-
dráttur í sölu á jógúrt. Aðrir flokkar
voru í jafnvægi, en þó vekti athygli
að lítilsháttar samdráttur varð í sölu
á ostum og væri það í fyrsta sinn
í langan tíma sem sú staða kæmi
upp. Útflutningur á mjólkurvörum
gengur ekki vel og er skilaverðið
afar lágt, um 20 til 25 krónur fyrir
lítrann. Tap er af slíkri útflutnings-
starfsemi, en mjólkuriðnaðurinn og
LK vinna sameiginlega að stefnu-
mörkum um útflutningsmál mjólk-
urafurða.
Ríflega 20 þúsund nautgripum
var slátrað á nýliðnu verðlagsári, af
þeim komu um 3.700 tonn af kjöti.
Sala á nautakjöti var svipuð milli
áranna 2008 og 2009. Sigurður
benti á að neyslubreytingar hefðu
gert vart við sig í nautakjötssölu,
hakk selst mjög vel, en millidýr-
ir vöðvar síður. Meðalverð birgða
hjá kjötvinnslum er því talsvert
hærra en var fyrir ári. Innflutningur
nautakjöts hefur dregist umtalsvert
saman á liðnum mánuðum eða um
75%. Á fyrstu 6 mánuðum þessa
árs voru flutt inn 71 tonn af nauta-
kjöti, en voru 276 tonn fyrir sama
tímabil í fyrra. „Enn má þó finna í
frystiborðum verslana lundir sem
fluttar voru inn fyrir hrun og eru
því komnar nokkuð nálægt síðasta
söludegi,“ sagði Sigurður.
Verð á nautakjöti hefur ekki
breyst frá því vorið 2008, en til-
kostnaður er aftur á móti mun meiri
en á þeim tíma. Nægir þar að nefna
að áburður vegur mun þyngra í
framleiðslu nautakjöts en mjólk-
ur. „Afkoma framleiðslunnar fer
því hratt versnandi og er hægt að
merkja lítilsháttar samdrátt í ásetn-
ingi nautkálfa á síðustu mánuðum,“
sagði Sigurður.
MÞÞ
>| #
"
# += Um 70 kúabændur af um 280 í viðskiptum við
Kaupþing þurfa að endurskipuleggja skuldir
Suður-Þingeyingarnir glaðbeittir, Ketill
Indriðason, Ytra-Fjalli, Hallgrímur Óli
Guðmundsson, Grímshúsum og Sigurður
Árni Snorrason, Miðhvammi.
Kristján Jónsson, Tréstöðum, Anna Jónsdóttir, Svalbarði, Leifur Guðmundsson, Klauf, og Sigurður
Ingólfsson, Gröf, á haustfundi Landssambands kúabænda í Sveinbjarnargerði á dögunum.
Bernharð Arnarson
og Þórdís Þórisdóttir,
Auðbrekku glugga í
pappíra fyrir haust-
fundinn.
Frummælendur og forystumenn, Baldur Helgi Benjamínsson fram-
kvæmdastjóri og Sigurður Loftsson formaður Landssambands kúabænda.