Bændablaðið - 22.10.2009, Qupperneq 11

Bændablaðið - 22.10.2009, Qupperneq 11
11 Bændablaðið | fimmtudagur 22. október 2009 Það stendur til heilmikil upp- stokkun í ríkiskerfinu ef allar þær hugmyndir og tillögur sem ríkisstjórnin hefur kynnt að und- anförnu ná fram að ganga. Það á að sameina og fækka ráðuneyt- um og ríkisstofnunum, endur- skoða og hagræða hér og þar. Auk þess er verkefnum sveiflað milli ráðuneyta. Einnig á að sam- eina sveitarfélög og fækka þeim verulega og síðast en ekki síst á að setja ráðherrum og starfsfólki ráðuneyta siðareglur. Um síðustu mánaðamót breytt- ust nöfn fjögurra ráðuneyta. Sam- gönguráðuneytið heitir nú sam- göngu- og sveitarstjórnarráðu- neyti í takt við þá tilfærslu sem gerð var í byrjun árs 2008; mennta- málaráðuneytið heitir nú mennta- og menningarmálaráðuneytið en sú breyting varð að ýmis verkefni á sviði menningarmála, einkum umsjón safna og menningarsetra, fluttist frá forsætisráðuneytinu; dóms mála ráðuneytið heitir nú dóms mála- og mannréttinda- ráðu neyti en þar er nú öll fram- kvæmd kosninga, fasteignamat og -skráning, neytendamál og fleira; viðskiptaráðuneytið heitir nú efna- hags- og viðskiptaráðuneytið en þangað flyst forræði efnahags- mála sem áður var í forsætis- og fjármálaráðuneytum. Nú heyra því bæði Hagstofa, Seðlabanki og Fjármálaeftirlit undir þetta ráðu- neyti. Breytingar voru gerðar á for- sætis- og fjármálaráðuneytum en það fyrrnefnda á fyrst og fremst að sinna verkstjórn innan Stjórn- ar ráðs ins. Skipuriti hefur verið breytt og stofnaðar fjórar ráðherra- nefndir sem fjalla um jafnréttis- mál, Evrópumál, efnahagsmál og ríkisfjármál. Til fjármálaráðuneyt is flyst eignarhald ríkisins í opinber- um hlutafélögum á borð við Ríkis- útvarpið, Íslandspóst o.fl. Áfram verður haldið að sameina og fækka ráðuneytum því ríkis- stjórnin hefur boðað að fyrir árslok verði lagt frumvarp fyrir Alþingi þess efnis að iðnaðarráðuneytið og sjávarútvegs- og landbúnaðar- ráðu neytið sameinist í atvinnu- vega ráðu neyti. Í tengslum við það verður endurskoðuð verkaskipt- ing milli þessa nýja ráðuneytis og umhverfisráðuneytisins sem að þeim breytingum loknum mun nefnast umhverfis- og auðlinda- ráðuneyti. Að þessu loknu verður tekið til við að sameina félags- og tryggingamálaráðuneyti og heil- brigðisráðuneytið í velferðarráðu- neyti og dóms- og mannréttind- aráðuneyti verður sameinað sam- göngu- og sveitarstjórnarráðuneyti í innanríkisráðuneyti. Þegar allt þetta verður komið til framkvæmda verða ráðuneytin orðin níu en eru nú 12. Skattstjórar, lögreglan og fleira Þessar breytingar í Stjórnarráðinu kalla svo á ýmsar breytingar í rík- isrekstrinum og þær hafa einnig verið kynntar. Forsætisráðuneytið birti á dögunum lista yfir 19 atriði sem á að breyta „á næstu miss- erum, aðallega á árinu 2010,“ eins og segir í frétt frá ráðuneytinu. Þar kennir ýmissa grasa: Það á að fækka og stækka lög- regluembætti og sýslumannsemb- ætti (vinnu við það síðarnefnda var þó frestað núna í vikunni), sameina héraðsdómstóla í einn og gera land- ið að einu skattumdæmi. Í heilbrigðiskerfinu á að koma á markvissari verkaskiptingu milli heilbrigðisstofnana, sameina átta heilbrigðisstofnanir á Vesturlandi og tvær í Fjallabyggð. Í sjávarútvegs- og landbúnað- ar ráðuneytinu er boðuð mikil upp stokkun sem fylgja á í kjölfar athug unar á öllum stærri stofnunum ráðuneytisins „undir forystu sjálf- stæðs ráðgjafa, þar sem farið er yfir verkefni, mögulega skörun, breytta verkaskiptingu, aukið samstarf og hvað annað sem getur leitt til hag- ræðingar…“. Það vekur athygli að þetta er eina tilvikið þar sem sér- staklega er kveðið á um að sóttur skuli utanaðkomandi ráðgjafi til að stjórna endurskoðuninni. Auk þessa á að móta stefnu í nytjaskógrækt og leggja mat á skipulag og rekst- ur landshlutaverkefna í skógrækt af sérstakri nefnd. Ýmis önnur ráðuneyti verða skoð uð ofan í kjölinn og reynt að sameina stofnanir og hagræða í rekstri þeirra. Til dæmis er til skoðunar að sameina stofnanir á veg um samgönguráðuneytisins, Vega gerðina, Siglingastofnun, Um ferðar stofu og Flugmálastjórn, auk þess sem boðuð er sameining Kefla víkur flugvallar og Flugstoða. Loks er rætt um endurmat á há- skóla kerfinu, svo sem aukið sam- starf eða sameiningu háskóla, þar á meðal er rætt um hugsanlega sam- einingu Háskóla Íslands og Land- bún aðar háskóla Íslands. Og það á að leggja nýstofnaða Varnar mála- stofn un og dreifa verkefnum henn- ar á aðrar stofnanir. Sveitarfélög sameinuð Í þessari frétt er líka minnst á flutn- ing verkefna frá ríki til sveitarfélaga en það tengist undirritun samkomu- lags á milli samgöngu- og sveit- arstjórnarráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga á dögunum. Í því samkomulagi er kveðið á um stofnun fjögurra manna samstarfs- nefndar sem fara á um landið, ræða við sveitarstjórnarmenn og íbúa og leggja síðan fram tillögur um sam- einingarkosti í hverjum landshluta. Í kjölfarið verður lögð fram áætlun um sameiningu sveitarfélaga sem á að verða komin til framkvæmda fyrir sveitarstjórnarkosningarnar árið 2014. Eins og alþjóð veit hefur það lengi verið á óskalista stjórnvalda að fækka sveitarfélögum og stækka þau svo þau geti tekist á við stærri verkefni. Þar hefur í fyrsta áfanga verið rætt um tilfærslu málefna fatlaðra og aldraðra til sveitarfélaga sem á að gerast á árunum 2011- 12, en næstu skref gætu orðið þau að sveitarfélögin taki við rekstri heilsugæslu og framhaldsskóla, auk verkefna á sviði samgöngumála. Ýmsum aðferðum hefur verið beitt til að knýja sveitarfélög til sameiningar, efnt til kosninga og frumvörp boðuð um að færa lög- bundinn lágmarksíbúafjölda sveit- arfélaga úr 50 eins og hann er nú í 400 eða jafnvel 1.000. Þetta hefur borið þann árangur að sveitar- félögum hefur fækkað úr 229 árið 1950 þegar þau voru flest í 77. En betur má ef duga skal. Samband íslenskra sveitarfélaga hefur hvatt til sameiningar en ekki viljað fara þá leið að þvinga sveit- arfélög til sameiningar með því að lögbinda lágmarksíbúafjölda. Nú hefur því verið ákveðið að fara eins konar millileið, senda vaska sveit manna um landið til þess að snúa upp á handleggi oddvita og sveit- arstjóra og sannfæra þá um ágæti þess að fækka fyrirmönnum í hér- aði eins og stundum er sagt. Hefur verið rætt um að reyna að búa til sveitarfélög sem eru eðlilegar heildir út frá landfræði- og menn- ingarlegum aðstæðum. Ekki vilja menn gefa upp hversu mörg þau eiga að vera, en fyrir hálfum öðrum áratug var talað um þau gætu orðið 25 og nú er jafnvel rætt um að þau verði enn færri. Greinilegt er að áhugi sveitar- stjórnarmanna á sameiningu hefur farið vaxandi að undanförnu. Það sést meðal annars á því að á þingum landshlutasamtaka á Vestfjörðum og Austfjörðum nú í haust var ályktað um nauðsyn þess að kanna kosti og galla þess að sameina þessa landshluta í sitt sveitarfélagið hvorn. Nú eru samtals 19 sveitar- félög á þessum svæðum. Siðareglur fyrir stjórnarráðið Allar þessar breytingar gera að sjálfsögðu miklar kröfur til stjórn- enda og starfsmanna hins opinbera um að þeir tileinki sér ný vinnu- brögð og nýja hugsun. Til þess að auðvelda mönnum þann umsnún- ing og til að mæta háværum kröf- um um að klíkuskap og geðþótta- ákvörðunum verði úthýst úr starf- semi ríkisins hefur ríkisstjórnin látið semja siðareglur fyrir ráðherra og starfsfólk Stjórnarráðsins. Reglurnar eru samdar af þriggja manna nefnd, tveggja úr stjórnsýsl- unni og eins utanaðkomandi sér- fræðings, og þær fjalla um grunn- gildi stjórnsýslunnar sem eru óhlut- drægni, ábyrgð, þjónusta og heil- indi. Reglurnar eru ítarlegri en svo að hægt sé að fjalla um þær hér en lesendum er bent á að þær má nálg- ast á heimasíðu forsætisráðuneytis- ins, http://www.forsaetisraduneyti. is/utgefid-efni/nr/3987. Almenningi gefst færi á að segja álit sitt á siða- reglunum og setja fram tillögur um breytingar fyrir 9. nóvember nk. Athugasemdir er hægt að senda á netfangið postur@for.stjr.is fyrir þann tíma. –ÞH Í tengslum við þær breytingar sem boðaðar hafa verið á íslenskri stjórnsýslu og tíundaðar eru hér á síðunni hefur verið unnið að því sem nefnt er Sóknaráætlun 20/20, „nýrri sókn í íslensku atvinnulífi og samfélagi“. Um markmið hennar segir í frétt frá nefndinni: „Verkefnið felst í því að draga fram styrkleika og sóknarfæri þjóðarinnar og gera tillögur og áætl- anir á grunni þeirra. Lögð er áhersla á að ná breiðri samstöðu um sameiginlega framtíðarsýn og lyk- ilákvarðanir í endurreisnarstarfinu. Markmiðið er að forgangsraða fjármunum, nýta auðlindir og virkja mannauð þjóðarinnar til að vinna gegn fólksflótta og leggja grunn að almennri velsæld.“ Sjö svæði en mörkin sums staðar óljós Meðal þess sem nefndin hefur unnið að er að skipta landinu upp í sjö svæði „sem hvert um sig stefnir að sameiginlegum markmiðum til samfélagslegrar upp- byggingar“. Svæðaskiptinguna má sjá á korti sem birt er efst á síðunni. Í greinargerð með þessari skiptingu segir að þörf sé á að henni, ekki síst í ljósi þess að hið opinbera hefur stuðst við ekki færri en 14 mismunandi skil- greiningar á skiptingu landsins í umdæmi eða svæði. Þegar litið er á skiptinguna sést að hún er keim- lík gömlu kjördæmaskiptingunni, þó með nokkrum undantekningum. Ýmislegt er óljóst í þessari tillögu, svo sem staða sveitarfélaga syðst á Vesturlandi og vestast á Suðurlandi, en þau virðast ýmist eiga að starfa með sínum landshlutasamtökum eða sem hluti af Stórhöfuðborgarsvæði sem nær þá frá Borgarnesi til Árborgar og inniheldur einnig Reykjanesskagann. Ekki þriðja stjórnsýslustigið Þegar fjallað er um það hvers konar skipting hér er á ferðinni verður málið enn óljósara. Tekið er skýrt fram og ítrekað að ekki sé verið að búa til þriðja stjórnsýslustigið á milli ríkis og sveitarfélaga. Þau tengjast hins vegar augljóslega því að hægt sé að breyta verkaskiptingu þessara tveggja stjórnsýslu- stiga. Auk þeirra verkefna sem oftast eru nefnd til sögunnar þegar slíkan flutning ber á góma, þ.e. mál- efni aldraðra og fatlaðra og rekstur heilbrigðisstofn- ana og framhaldsskóla eru í greinargerðinni nefnt að svæðin geti annast rekstur svæðisbundinna löggæslu- stöðva, menningarstofnana, flugvalla, almennings- samgangna og viðhald vega. Við lestur þessarar greinargerðar, sem augljóslega á eftir að vinna mikið í, vaknar sú spurning hvort kortið efst á síðunni sé framtíðarsýn um fjölda sveit- arfélaga á Íslandi, að þau verði sex á landsbyggðinni og svo eitthvert óskilgreint kraðak á suðvesturhorn- inu. Hver veit? Ráðuneytum fækkað, stofnanir stokk- aðar upp og sveitarfélög sameinuð Ž € &  =      $       Svæðaskipting landsins sem nú er unnið eftir í gerð Sóknaráætlunar 20/20 á vegum ríkisstjórnarinnar. Um hana er fjallað í rammgrein hér að neðan. Er þetta hið nýja Ísland?

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.