Bændablaðið - 22.10.2009, Blaðsíða 15

Bændablaðið - 22.10.2009, Blaðsíða 15
16 Bændablaðið | fimmtudagur 22. október 2009 Vestræn lönd fagna því að Kína hefur ákveðið sig. Kínverjar hafa loksins lýst sig reiðubúna til að taka þátt í baráttunni gegn hlýnun lofthjúpsins. Það voru góðu fréttirnar frá fundi leiðtoga helstu iðnríkja heims í New York í september sl. Hið slæma er að það er hreint ekki Kína sem er dragbíturinn í kerf- inu. Dragbíturinn, sem stendur í vegi fyrir aðgerðum, eru velaldir Vesturlandabúar eins og þú og ég. Það erum við og lífsstíll okkar sem veldur tregðunni á að taka á málum. Þess vegna erum það við Vesturlandabúar sem verðum að borga reikninginn svo að þróun- arlöndin hafi ráð á aðgerðum til að bregðast gegn hlýnuninni. Það getur tæpast talist fréttnæmt. Leiðtogar Vesturlanda á heim- leið af fundinum hrósuðu forseta Kína, Hu Jintao, í hástert. Loksins lítur út fyrir að veðurfarsráðstefn- an í Kaupmannahöfn í desember nk. skili árangri. Þessir leiðtogar blekkja hins vegar kjósendur sína ef þeir láta eins og það séu Kína og þróunarlöndin sem stöðvi málið. Að sjálfsögðu verða þessi lönd að sýna vilja sinn til breytinga, eins og Kína hefur nú gert. En ein- hver verður að borga, ef Kína á að breyta orkustefnu sinni og draga úr losun á CO2. Þessir „einhverjir“ eru kjósendur í ESB, Bandaríkjunum og við. Fæstir þeirra, sem ráða yfir fjár- magni sem þarf í aðgerðir gegn hlýnuninni, eiga heima í Kína. Þeir búa við góðan hag á Vesturlöndum og verða að vera reiðubúnir til að deila útgjöldum vegna umhverf- ismála á réttlátan hátt milli ríkra og fátækra í heiminum. Áætlun Kínverja í umhverfismálum geng- ur út á það að draga úr mengun við núverandi raforkuframleiðslu í landinu, jafnframt því að efla hana, skipta yfir í endurnýjanlega orku, auka skógrækt og nota kjarnorku til rafmagnsframleiðslu. Það kost- ar sitt. Og jafnvel þó að hagkerfi Kína sé að mörgu leyti sterkt, þá glímir þjóðin einnig við gífurlega fátækt sem og umhverfis- og þró- unarvandamál. Hu Jintao er það fullljóst að hann getur ekki lagt það á 1,3 milljarða íbúa Kína að taka einir á sig útgjöld við að leysa umhverfisvandamálin. Að sjálfsögðu eru það stórtíð- indi að forseti Kína, fjölmennasta ríkis heims, sem jafnframt náði því árið 2007 að menga andrúms- loftið mest allra landa, viðurkenni að veðurfarsógnin sé raunveruleg. Hann vill meira að segja gera eitt- hvað í málinu. Þegar núverandi forseti Bandaríkjanna sendir þar að auki frá sér allt önnur skilaboð um veðurfarsvandamál en fyrirrennari hans þá stöndum við á vegamótum, en Bandaríkin hafa um árabil losað mest af CO2 á íbúa á ári í heim- inum. Við skulum því fagna því sem gerðist á fundinum í New York. Og við skulum vona að það leiði til nýrra og brýnna samninga í Kaupmannahöfn í desember. En erfiðar lausnir í veðurfarsmálum nálgast ekki aðeins í tíma og rúmi. Þær höggva einnig nærri lífsstíl okkar og ekki síst fjárráðum okkar. Við eigum engin mótrök gegn þeim málflutningi fátækra landa að það séu ríku löndin sem verða að borga brúsann fyrir það hvern- ig komið er í umhverfismálum. Það er lífsstíll okkar og velmegun sem eru völd að því hvernig komið er. Þess vegna verðum við bæði að draga úr losun gróðurhúsaloft- tegunda og greiða fyrir sjálfbæra þróun í fátækum löndum. Við hljót- um að vænta þess að fátæk lönd vilji iðnvæðast áfram. Og bæta lífs- kjör sín. Þeir, sem veita sér mest, verða að taka á sig mestar byrðar og borga mest. ESB mun hafa reiknað út að það kosti 900 milljarða n.kr. (1.800 milljarða ísl. kr.) á ári að „hreinsa til“ í þróunarlöndunum. Þetta er dökk framtíðarsýn, þrátt fyrir bjartsýni leiðtoganna á fund- inum í New York sem marka stefnu og gefa loforð. En þeir verða einn- ig að sannfæra okkur um það að aðgerðaáætlanir þeirra skili árangri, jafnt heima fyrir og í alþjóðasam- starfi og að þeim verði framfylgt. Nationen/Drude Beer, stytt Utan úr heimi Metan, CH4, er ein af þeim lofttegundum sem skipta hlýnun lofthjúpsins mestu máli, en um 20% hlýnunar hans af manna- völdum má rekja til metans. Hlutfall þess í lofthjúpnum er nú um 25 sinnum meira en fyrir iðnbyltinguna. Fram að nýliðnum aldamótum jókst magn metans í lofthjúpnum um 1% á ári en síðan hefur dreg- ið úr aukningunni og nú helst það nær stöðugt. Mikinn hluta af losun met- ans má nú rekja til niðurbrots líf- rænna efna án aðkomu súrefnis, þ.e. loftfirrts niðurbrots. Það fer fram í náttúrunni í votlendi eða í landbúnaði, svo sem á hrísgrjóna- ökrum og í áburðarkjöllurum, en einnig í sorphaugum. Þá losnar mikið af metani við meltingu trén- is í maga jórturdýra. Ýmsar ástæður eru fyrir því að losun metans hefur dregist saman á síðustu árum, svo sem betri frá- gangur á gasleiðslum og aðgerðir til að safna metani frá sorphaug- um og nýta það sem orkugjafa. Þá vegur þungt aukin losun brenni- steins frá kolakyntum raforkuver- um í Austur- og Suður Asíu. Þessi brennisteinn dreifir sér yfir stór landsvæði, binst kolefni og veld- ur þannig minni losun metans frá hrísgrjónaökrum og öðru votlendi. Þegar lönd á borð við Kína og Indland fara að beita sér fyrir því að draga úr losun brennisteins, af heilsufarsástæðum, mun losun metans aukast. Árið 2007 mældist aftur greini- leg aukning á metani í lofthjúpn- um eða um 0,5%. Þessi aukning virðist halda áfram og hún stafar af aukinni losun metans á norður- slóðum. Þar hefur sífreri legið um langan aldur eins og skjöldur yfir afar víðfeðmu mýra- og votlend- issvæði, þar sem mikið af metani er að finna. Það gildir um Síberíu, Kanada og Alaska. Þarna getur orðið mikil losun metans við hlýn- un lofthjúpsins. Hversu mikil er ógerlegt að spá um en sú losun getur skipt verulegu máli um þróun veðurfars á jörðinni. Hiti hefur stigið hratt að undan- förnu víða á norðlægum slóðum. Í Síberíu hefur hlýnunin verið allt að 2,5-3°C. Þar hefur hún hald- ist í hendur við útbreiðslu skóga og skógarjaðarinn færst norðar og hærra yfir sjávarmál. Þá hefur kjarr aukist á mýrlendi. Þannig hafa svæði hulin snjó minnkað og yfir- borð jarðar bundið sólarorkuna meira. Þetta ferli herðir trúlega sjálf- krafa á sér og klaki í jörðu missir tök sín á sífellt stærri svæðum. Í löndum, sem liggja að Norðuríshafinu, á sér einnig stað mikil losun á hláturgasi, N2O. Það á uppruna sinn í mýrum með djúpa klakabrynju þar sem gróður nær ekki að festa rætur. Undir henni myndast nítrat við súrefnislaust niðurbrot lífrænna efna. Þar er hins vegar ekki gróður sem getur nýtt sér það en aftur á móti bakt- eríur sem breyta því í hláturgas. Það berst síðan út í andrúmsloftið þegar klakinn lætur undan. Metanlosun á hafsbotni Á hafsbotni er mikið af metani í föstu formi, bundið kolvetnum (sykrum). Þegar hiti hækkar eða þrýstingur minnkar breytast þessi efnasambönd í lofttegundir. Fyrir 55 milljónum ára var mikið hlý- indaskeið á jörðinni og sú kenning er uppi að það hafi stafað af því að mikið af metani hafi þá losnað frá hafsbotni og valdið þessari hlýnun. Nú á tímum berst metan frá hafsbotninum, en aðeins lítill hluti þess nær alla leið upp í lofthjúp- inn. Mest af því binst súrefni í hafinu og hefur lítil áhrif á hlýnun hans. Koltvísýringur í andrúmsloft- inu hefur langtímaáhrif, sem mæl- ast í öldum, en helmingunartími metans í lofthjúpnum er aðeins 12 ár. Aðgerðir til að draga úr losun metans til að draga úr hlýnuninni skila sér því miklu fyrr en minnk- un koltvísýrings í lofthjúpnum. Ef unnt væri, fræðilega séð, að stöðva alla losun metans af mannavöldum þá tæki það aðeins nokkra áratugi að kæla lofthjúpinn niður í hitastig hans fyrir iðnbyltinguna. Slíkt er að sjálfsögðu ekki unnt, þvert á móti er hætta á að losun metans aukist verulega ef sífrer- inn í jörðu sleppir tökum sínum á víðfeðmu votlendi á norðurslóðum á sama tíma og auka verður veru- lega matvælaframleiðslu í heim- inum. Sú aukning blasir við næstu áratugi, bæði fjölgar fólki og kjöt- neysla eykst meðal þjóða þar sem lífskjör fara batnandi. FAO áætlar að kjötframleiðsla vaxi úr 284 milljónum tonna í 465 milljónir tonna árið 2050. Aukin framleiðsla á líforku, svo sem úr sykurreyr og maís, eykur einnig losun metans. Bondevennen/Tryggve Refsdal Áhrif metans á hlýnun lofthjúpsins Breytingar í dönskum landbúnaði Mikið breytingaskeið gengur nú yfir í dönskum landbúnaði. Þess er vænst að setnum bújörðum fækki um helming næsta áratug- inn og að þær verði þá komnar niður í um 22 þúsund. Af þeim verða tvær af hverjum þrem- ur mjög litlar og reknar ásamt vinnu utan bús. Á þessum jörð- um verður hvorki mjólkurfram- leiðsla né svínarækt, en á hinn bóginn kjötframleiðsla af naut- gripum og garðrækt af ýmsu tagi. Þá verða þar einnig rækt- aðar nytjajurtir til líforkufram- leiðslu, svo sem sykurrófur og maís. Meðalstór bú munu aftur nán- ast hverfa en stór bú munu stækka enn frekar og meðalfjöldi slátur- grísa á búi á ári verður um 7.000 í stað 1.900 nú. Af þessu leiðir að það dregur úr fjölskyldubúskap og búin verða í auknum mæli rekin sem fyrirtæki. Sjálfseignabændur verða ekki lengur hin ráðandi stétt í dönskum sveitum, en í stað þess mun fjölga þar fólki sem sækir dag lega vinnu til borga og bæja í grenndinni. Eftirsókn eftir kostum dreifbýl- isins mun aukast, jafnframt því sem tómstundabændum, sem stunda lífræna ræktun og framleiða lúxus matvæli, mun fjölga. Á hinn bóginn munu verða til landsvæði sérhæfð í stórrekstri þar sem hefðbundin átök við samfé- lagið í kring munu harðna. Danskur landbúnaður er bjart- sýnn á þessa þróun. Bóndinn er ekki á útleið, en staða hans breyt- ist. Fjölbreytnin vex og landbún- aðurinn fær nýtt hlutverk, – einnig við orkuframleiðslu. Bondevennen/Kristelig Dagblad í Danmörku Fæstir búa í Kína Vísindalegur ráðgjafi bresku ríkis stjórnarinnar, Jonathon Porr itt, hefur kynnt þá hugmynd að bresku þjóðinni þurfi að fækka úr 61 milljón manns í 30 milljónir árið 2100. Tilgangurinn með því væri að koma í veg fyrir matarskort, draga úr átökum og minnka losun gróðurhúsaloftteg- unda um 80%. Jonathon Porritt bendir á að færra fólk gefi bæði fólki og fé aukið rými, fallegra umhverfi, meira næði og færri árekstra fólks. Bretar eigi að ganga á undan með góðu fordæmi og stefna að því að konur eignist ekki fleiri en tvö börn. Þá verði einnig að herða inn- flytjendalöggjöfina. Stóra-Bretland verði að framleiða mat til eigin þarfa í auknum mæli og láta þróun- arlöndin njóta sjálf í meira mæli þeirra matvæla sem þau framleiða. Áætlað er að íbúafjöldi jarð- ar sé nú um 6,5 milljarðar en að hann geti orðið 12-13 milljarðar um næstu aldamót að óbreyttri þróun, en það gengi mjög nærri varanlegum auðlindum jarðar, svo sem jarðvegi og vatni. Markmiðið er hins vegar að á jörðinni lifi dýr og menn í sátt við náttúruna. Færra fólk þarfnast einnig minni fæðu. Á stórum verksmiðjubúum á búfé þess lítinn kost að hreyfa sig og í stað þéttsetinna flotkvía, sem menga umhverfið, getum við látið náttúrulegar fisktegundir hafsins fjölga sér á eðlilegan hátt. Í sumum löndum fækkar fólki. Á Ítalíu eignast hver kona að með- altali 1,3 börn og á Spáni er stað- an svipuð. Í Japan, þar sem nú búa 120 milljónir manna, er áætlað að íbúafjöldinn verði 90 milljónir um næstu aldamót. Í Rússlandi eru nú 142 milljónir íbúa en talið að þeir verði 100 milljónir um 2100. Hin ríku G20-lönd eiga nú að taka forystuna í þessum efnum, að áliti Jonathon Porritt. Bretar nota 125 sinnum meiri orku á mann en hver íbúi í Darfur í Súdan. Norðmenn framleiða 150 sinnum meiri orku á mann en Darfurbúinn. Ríku löndin taka sífellt meira til sín af gæðum jarðar. Byltingin verður því að hefjast á norðurhveli jarð- ar. Takmörkun fólksfjölda mundi einnig leiða til minni fólksflutn- inga. Fjórðungur Breta vill eignast tvö börn eða fleiri, sem kollvarpar þessum áætlunum og gerir að engu allar áætlanir um betri framtíð. Til að vinna þeim fylgi verður að verðlauna fjölskyldur sem eignast aðeins eitt barn. Lækka verður laun til þess að hlífa auðlindum jarðar. Heildarneyslan verður að minnka. Það eru einkum ríku löndin sem verða að draga úr neyslunni. Ráð, sem enginn þorir að beita, er að lækka svo um munar laun hinna hæstlaunuðu. Hvaða stjórnmála- flokkur þorir að setja það í stefnu- skrá sína? Launahópar með lægri laun létu ekkert teljandi af hendi. Vilja stjórnmálamenn hlusta á það? Hvenær hefur forstjóri fyrirtæk- is lýst sig reiðubúinn til að lækka í launum og sleppa hlunnindum í formi kaupauka og bónusa? Hvað gerðist ef launakjör jöfn- uðust? Neyslan minnkaði, færri bílar, minni mengun o.s.frv. Sam- staða þýðir það að við venjum okkur við að standa jafnar að vígi. Vinnan varðar ekki aðeins laun, heldur einnig velferð og samkennd. Í hörðu samkeppnisþjóðfélagi er hlegið að fólki sem talar máli hóf- semdar. Norski heimspekingurinn Peter Wessel Zappe (1899-1990) hélt því fram að maðurinn ætti of auð- velt með að fjölga sér. Þess vegna væri hegðun hans jörðinni skaðleg. Austurríski vísindamaðurinn og umhverfissinninn Tim Flannery hefur talað fyrir minni neyslu og minni kaupmætti stórra þjóðfélags- hópa. Jonathon Porritt er ekki hinn fyrsti til að viðra þessar hugmyndir. Bondebladet/John Gustavsen, stytt Fólksfækkun um helming og lækkuð laun

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.