Bændablaðið - 03.12.2009, Page 20
20 Bændablaðið | fimmtudagur 3. desember 2009
Líf og starf
Það er ýmislegt lagt á sig til þess
að efla íslenska sauðfjárrækt.
Í haust gerðu sjö skaftfellskir
bændur sér ferð þvert yfir landið
til að sækja nýtt blóð í bústofninn,
nánar tiltekið sextán hrúta sem
sækja þurfti norður á Strandir og
vestur í Ísafjarðardjúp. Þetta var
heilmikið ferðalag sem tók þrjá
daga en þátttakendur í því voru
Torfi og Bjarney frá Bakkakoti
og Sveinn á Lyngum í Meðallandi,
Þóra og Eyþór frá Ásgarði í
Landbroti og Gulla og Siggi frá
Hörgsdal á Síðu.
Þau fyrstnefndu, Torfi og
Bjarney, tóku meðfylgjandi myndir
í ferðinni og sendu Bændablaðinu
stutta skýrslu um hana sem hér
verður endursögð. Þau hjónin
fóru á undan og gistu í Reykjavík
en lögðu upp frá höfuðborginni
snemma morguns þann 3. október
og óku norður á Strandir allt norður
að Melum í Árneshreppi þar sem
fyrstu hrútarnir biðu. Hinir lögðu af
stað um svipað leyti frá Klaustri og
óku í náttstað á Felli í Kollafirði.
Torfi og Bjarney óku á einum
stað fram á afvelta rollu sem
þau réttu snarlega við en þegar
komið var á Ennishálsinn milli
Bitrufjarðar og Kollafjarðar var
föl á veginum og eftir það varð
skyggni lélegt og éljagangur af og
til. Eftir að hafa tekið nesti fyrir bíl
og áhöfn á Hólmavík var ekið sem
leið liggur um Bjarnarfjörð, norður
Bala og heilsað upp á Kaldbak og
Kamb áður en ekið var í gegnum
Djúpavík í lélegu skyggni.
Hyrnan í Trékyllisvík blasti við
ferðalöngunum í vetrarskrúða og á
Melum biðu þeirra tveir hrútar. Eftir
að hafa drukkið kaffi og sporðrennt
kökum með var hrútunum snarað
upp í bílinn og honum snúið sömu
leið til baka að Bassastöðum á
Selströnd í Steingrímsfirði þar sem
þau hjónin gistu.
Full kerra af hrútum
Morguninn eftir hittu þau hina
ferðalangana fimm sem höfðu gist
á Felli í Kollafirði. Ekið var yfir
Steingrímsfjarðarheiðina og út
með Ísafjarðardjúpi norðanverðu
til fundar við Indriða bónda á
Skjaldfönn. Þar var drukkið kaffi
og spjallað áður en leiðin lá út
í fjárhús að ná í þrjá hrúta sem
Indriði hafði valið fyrir gestina.
Aftur var snúið við og komið við
á Bassastöðum þar sem þrír hrútar
bættust í hópinn. Eftir enn meira
kaffi og meðlæti var ekið áfram
suður með viðkomu á Heydalsá
og Smáhömrum í Steingrímsfirði
og Broddanesi við Kollafjörð. Þá
voru hrútarnir orðnir samtals 16
sem búið var að koma fyrir í yfir-
byggðri kerru.
Með það var ekið af stað og
ekki numið staðar fyrr en heim
var komið. Skaftfellskir bændur
voru heldur kátir með árangurinn
af ferðinni, en þeim brá nokkuð
í brún þegar þeir sáu að veturinn
var kominn í Skaftafellssýsluna og
snjór yfir öllu. Það fylgir ekki sög-
unni hvernig hrútunum leist á sig
þar eystra en vonandi gera þeir sitt
gagn á næstu vikum – til þess var
leikurinn gerður.
Hrútakaupaferðin mikla
Sú afvelta komin á réttan kjöl að nýju.
Við bæinn Reykjarvík í Bjarnarfirði voru leitarmenn frá Odda að koma úr
fjárleit.
Kaldbakur var mikilúðlegur að
vanda…
…og ekki var Kamburinn verri, en
þá var skyggninu farið að hraka…
…og í Djúpuvík var það orðið
svona, en Hyrnan stóð fyrir sínu.
Torfi úti fyrir Melum í Árneshreppi. Og hér er Skjaldfönn við Ísafjarðardjúp.
Hrútarnir voru fluttir í þar til gerðri yfirbyggðri kerru og væsti ekki um þá á leiðinni.
Mikið var drukkið af kaffi í ferðinni, m.a. á Skjaldfönn. Að sjálfsögðu þurfti bókhaldið að vera nákvæmt. Austur í Meðallandi var snjór yfir öllu þegar heim var komið.
Svona, komdu vinurinn. Ánægður hrútakaupandi.