Bændablaðið - 03.12.2009, Page 27

Bændablaðið - 03.12.2009, Page 27
27 Bændablaðið | fimmtudagur 3. desember 2009                  Skráning á sauð- fjársæðingum Eins og gerð var grein fyrir á kynn- ingarfundum um sauðfjársæðingar víða um land á síðustu tveim vikum hefur nú verið byggt upp kerfi fyrir heildaruppgjör á árangri sauð- fjársæðinga um allt land. Þetta er rafrænt kerfi í FJARVIS.IS. Þetta kerfi kemur í raun í stað dagbók- ar sæðingamanns sem notuð hefur verið um árabil. Allir fjáreigendur sem hafa aðgang að FJARVIS.IS geta nú skráð sæðingar á eigin búi í þetta kerfi og eru hvattir til að gera það strax að sæðingum loknum. JVJ Nefnd sem samgöngu- og sveit- arstjórnarráðherra skipaði til að fjalla um almenningssamgöngur á Norðurlandi eystra hefur skil- að tillögum sínum. Meðal annars er lagt til að stofnað verði sam- göngufélag sem skipuleggi sam- hæft almenningssamgöngukerfi sem rekið verði sem þróunarlík- an. Svæðið sem nefndin fjallar um í greinargerð sinni er starfssvæði Eyþings allt frá Fjallabyggð í vestri að Langanesbyggð í austri. Lagt er til að sveitarfélögin stofni einka- hlutafélag, samgöngufélag, undir forystu samtakanna sem fengið verði það hlutverk að sjá um þróun, stjórnun og eftirfylgni með upp- byggingu og rekstri samhæfðra almenningssamgangna á svæðinu. Lagt er til að skilgreina svæðið í mismunandi byggðastig til að skapa forsendur fyrir opinberum stuðningi án þess að brjóta í bága við ákvæði samkeppnislaga og regluverk EES. Á þessum grunni verði síðan skilgreindar mismunandi áætl- unarleiðir milli þéttbýlisstaða innan svæðisins og með tenging- um út fyrir svæðið. Komið verði á samhæfðu kerfi sem tengist sam- bærilegum einingum og öðrum ferðamátum, svo og samhæfðu upplýsingakerfi og samræmdu miðasölukerfi. Einnig er lagt til að byggð verði upp samgöngumiðstöð á Akureyri. Í greinargerð nefndarinnar er gerð ítarleg grein fyrir niðurstöð- um í samræmi við skipunarbréfið og þá afmörkun sem nefndin setti sér. Fjallað er um forsendur og markmið almenningssamgangna á Eyþingssvæðinu, stjórnun og rekstur, stefnumótun, uppbyggingu leiðakerfis og upplýsinga- og greiðslukerfi. Greinargerðin fjallar einnig um samvinnu ríkis og sveitarfélaga á sviði almenningssamgangna. Fjallað er um möguleika sem felast í breyttri afstöðu vegna umhverf- is- og efnahagsmála. Einnig mögu- leika sem felast í tækni sem tiltæk er nú þegar og gæti fært almenn- ingssamgöngur nær fólkinu í land- inu. Nefndin lítur á það sem verk- efni væntanlegs samgöngufélags að þróa og skipuleggja kerfi almenn- ingssamganga svæðisins eins og lýst er í greinargerðinni. Lagt til að stofnað verði samgöngufélagEndurvinnslu-tunna við hvert heimili Gert er ráð fyrir endur- vinnslutunnum við öll heim- ili í endurnýjuðum samningi um sorphirðu, sem Hörg ár- byggð hefur gert við Gáma- þjón ustu Norðurlands ehf. Fram undan eru miklar breyt- ingar á meðhöndlun úrgangs á Eyjafjarðarsvæðinu, sem m.a. munu leiða til þess að kostn- aður við förgun óflokkaðs úrgangs mun aukast mikið á næstu árum. Því er mikilvægt að sem allra mest af úrgangi heimila, fyrirtækja og stofnana verði flokkað til endurvinnslu til að halda aftur af kostnaðar- aukningunni. Í því sambandi eru endurvinnslutunnurnar lyk- ilatriði.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.