Bændablaðið - 11.03.2010, Qupperneq 27

Bændablaðið - 11.03.2010, Qupperneq 27
27 Bændablaðið | fimmtudagur 11. mars 2010 Þorsteinn Logi Einarsson, bóndi í Egilsstaðakoti í Árnessýslu http://www.egilsstadakot.is/ 04.03.2010 – Aðalfundur Félags sauðfjárbænda í Árnessýslu Föstudagskvöldið 27. febrúar var aðalfundur hjá Félagi sauð- fjárbænda í Árnessýslu haldinn í félagsheimilinu Þingborg. Á fund inum flutti Sigurgeir Sindri Sigur geirsson, formaður Lands- samtaka sauðfjárbænda, erindi um starfsemi samtakanna, einnig sagði Margrét Ósk Ingjaldsdóttir ráðunautur frá og sýndi myndir úr námsferð til Noregs og Svíþjóðar. Á fundinum var kosin ný stjórn og hana skipa: Þorsteinn Logi Einarsson, Egils- staðakoti, formaður Margrét Ósk Ingjaldsdóttir, Þjórs ár- nesi, varaformaður Bjarni Másson, Háholti, gjaldkeri Trausti Hjálmarsson, Austurhlíð, rit- ari Halldór Kristjánsson, Stíflisdal, með stjórnandi Bændur blogga Ritstjórn þiggur með þökkum ábendingar um bændur sem notast við blogg til dagbókarskrifa. Þeir sem bent geta á slíkar síður eru vinsamlega beðnir um að senda línu í netfangið ehg@bondi.is Árleg folaldasýning Hrossaræktarfélags Þingeyinga var haldin í reiðskálanum í Saltvík nýlega. Þar var margt fólk saman komið til að velja efnilegustu folöld héraðsins fædd á síðasta ári. Á sýningunni kepptu 35 folöld, 19 hestar og 16 hryssur. Dómarar völdu þrjá bestu hestana og þrjár bestu hryssurnar. Veitt voru þrenn verðlaun í hvorum flokki og var það trésmíðafyrirtækið Norðurpóll sem gaf verð- launabikarana. Þá var einnig valið fallegasta fol- ald sýningarinnar og fengu eigendur þess farand- bikar sem Dýralæknaþjónustan á Húsavík gaf fyrir nokkrum árum. Dómarar völdu eftirtalin folöld til verðlauna: Hestar: 1. Jondalon frá Norðurhlíð. Eigandi: Agnar Kristjáns- son. Foreldrar: Vökull frá Bergsstöðum og Von frá Ey vindarmúla. 2. Hringur frá Laxamýri. Eigandi: Elfa Mjöll Jóns- dóttir o.fl. Foreldrar: Álfur frá Húsavík og Dögun frá Hjalla. 3. Seggur frá Bergsstöðum: Eigandi: Benedikt Arn- björnsson. Foreldrar: Moli frá Skriðu og Bylting frá Bergs- stöðum. Hryssur: 1. Alda frá Saltvík. Eigandi: Bjarni Páll Vilhjálmsson. Foreldrar: Adam frá Ásmundarstöðum og Ör frá Saltvík. 2. Hamingja frá Garði. Eigandi: Katharina Krebs. Ræktandi: Guðmundur Skarphéðinsson og Enrice Ernst. Foreldrar: Þorri frá Þúfu og Sædís frá Garði. 3. Herðubreið frá Húsavík. Eigandi: Gísli Haraldsson. Foreldrar: Adam frá Ásmundarstöðum og Hrauna frá Húsavík. Folald sýningarinnar var valið af gestum. Það var Hringur frá Laxamýri. Folaldasýning í Saltvík Verðlaun fyrir hestfolöld. Agnar Kristjánsson, Hulda Ósk Jónsdóttir, Elva Mjöll Jónsdóttir, Atli Björn Atlason og Benedikt Arnbjörnsson. Verðlaun fyrir hryssur. Bjarni Páll Vilhjálmsson fyrir aftan, Arna Védís Bjarnadóttir, Iðunn Bjarnadóttir, Enrice Ernst og Gísli Haraldsson. Eigendur Hrings, sem valinn var besta folald sýningarinnar, Elfa Mjöll, Atli Björn og Hulda Ósk með Hring í baksýn. Móðir hans Dögun er í taumi. Agnar Kristjánsson var að vonum ánægð- ur með verðlaunin.      Leitum að landi til leigu innan 2-2,5 klst aksturs frá Reykjavík til skotveiða á gæs og ekki skemmir fyrir ef önd er á svæðinu líka. &#    7 #X >  7 >   'Y  O  $  >       G    O  >  !IR>   < Z<Z[OI$> \ B$ Árshátíð Landssamtaka sauðfjárbænda verður haldin föstudaginn 9. apríl nk. í Súlnasal Hótel Sögu         ! skemmta. Dansleikur með hljómsveit Geirmundar að loknu borðhaldi. Veislustjóri verður Guðni Ágústsson fv. ráðherra Forréttur: Laxarúlla með steinseljurótarmauki, silungahrogn- um og sýrðum rjóma "#$ &   '*'    / *!- um, ætiþistlamauki og rauðvínssósu Eftirréttur: Tiramisu að hætti Hótel Sögu Miðaverð fyrir mat, skemmtun og dansleik er kr. 6.000. Tekið er við miðapöntunum hjá Bændasamtökunum í síma 563- 0300. Þeim sem ætla að gista á Hótel Sögu er bent á að tryggja sér herbergi í tíma í síma 525-9900. Árshátíðarnefnd LS. Bændablaðið á netinu... www.bbl.is

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.