Fréttablaðið - 05.01.2012, Blaðsíða 26
Til greina koma allir sem hafa lagt umtalsvert af mörkum til að bæta íslenskt samfélag. Skorað er á lesendur
Fréttablaðsins að senda inn tilnefningar um fólk og félagasamtök sem eiga skilið virðingarvott fyrir verk sín.
Allir koma til greina, jafnt óþekktir einstaklingar sem vinna störf sín í hljóði, félagasamtök og þjóðþekktir karlar
og konur sem hafa með gjörðum sínum og framgöngu verið öðrum fyrirmynd.
HEFUR ÞÚ ORÐIÐ VITNI AÐ GÓÐVERKI?
ÓSKAÐ ER EFTIR TILNEFNINGUM TIL SAMFÉLAGSVERÐLAUNA FRÉTTABLAÐSINS 2012
Heiðursverðlaun
Einstaklingur sem með ævistarfi sínu hefur stuðlað að
betra samfélagi.
Samfélagsverðlaunin
Félagasamtök sem hafa unnið framúrskarandi mannúðar-
eða náttúruverndarstarf og lagt sitt af mörkum til að gera
íslenskt samfélag betra fyrir okkur öll.
Sendið tilnefningar á hlekknum Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins á visir.is/samfelagsverdlaun, með tölvupósti á netfangið
samfelagsverdlaun@frettabladid.is, eða bréfleiðis merkt: Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins, Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík.
Dómnefnd tekur allar innsendar tillögur til skoðunar. Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins verða veitt í mars.
SAMFÉLAGSVERÐLAUNIN ERU VEITT Í FIMM FLOKKUM
Hvunndagshetjan
Einstaklingur sem sýnt hefur sérstaka óeigingirni eða hugrekki,
hvort sem er í tengslum við einn atburð eða með vinnu að
ákveðnum málaflokki í lengri tíma.
Frá kynslóð til kynslóðar
Hér koma til greina kennarar, leiðbeinendur, þjálfarar eða aðrir
uppfræðarar sem skarað hafa fram úr á einhvern hátt.
Einnig koma til greina félagasamtök sem sinna börnum af
sérstökum metnaði og alúð.
Til atlögu gegn fordómum
Einstaklingur eða félagasamtök sem hafa unnið ötullega að
því að eyða fordómum í samfélaginu.
1 4
5 2
3
SAMFÉLAGSVERÐLAUN
að senda t
ilnefninga
r
er til miðn
ættis þann
Frestur til
31. janúar