Fréttablaðið - 05.01.2012, Blaðsíða 8
5. janúar 2012 FIMMTUDAGUR8
DóMsMál Slitastjórn Glitnis
hefur hætt við að áfrýja frávísun
skaðabótamáls á hendur Jóni
Ásgeiri Jóhannessyni og sex
meintum samverka mönnum
hans fyrir
dómstóli í New
York. Frestur
til að skila inn
gögnum vegna
áfrýjunarinnar
rann út án þess
að það væri
gert.
Í málinu
voru sjö
menningarnir
sakaðir um að
hafa sogið ríflega 250 milljarða
króna út úr Glitni og notað í
þágu eigin fyrirtækja.
Dómari vísaði málinu frá með
þeim rökum að málareksturinn
ætti heima á Íslandi.
Slitastjórnin hyggst höfða
svipað mál á Íslandi en það
verður þó í annarri mynd. - sh
VIðskIpTI Reykjanesbær er að skoða
að selja 15% hlut í HS Veitum til
að greiða niður skuldir sínar.
Sveitarfélagið á í dag 66,7%
hlut í fyrirtækinu. Áætlað er að
sala hlutarins fari fram á fyrstu
mánuðum ársins. Þetta kemur
fram í fjárhagsáætlun Reykjanes
bæjar sem var samþykkt í bæjar
stjórn 3. janúar síðastliðinn. Þá
hefur Orkuveita Reykjavíkur (OR)
hug á því að selja 16,6% eignarhlut
sinn í HS Veitum í samstarfi við
Reykjanesbæ. Íslandsbanki vinnur
nú að verkefninu fyrir hönd
sveitarfélagsins og OR. Því er
samtals tæplega þriðjungshlutur
í fyrirtækinu til sölu.
HS Veitur reka og eiga
dreifiveitur fyrir raforku,
kalt og heitt vatn. Veitusvæði
fyrirtækisins nær til Suðurnesja,
Hafnarfjarðar, Álftaness, hluta
Garðarbæjar, Vestmannaeyja
og Árborgar. Samkvæmt lögum
verða HS Veitur ávallt að vera í
meirihlutaeign ríkis, sveitarfélaga
og/eða fyrirtækja sem eru alfarið
í eigu þessara aðila.
Árni Sigfússon, bæjarstjóri
Reykjanesbæjar, staðfestir að
stefnt sé að sölu á 15% hlut í HS
Veitum á fyrstu mánuðum ársins
2012. Hann telur fyrirtækið
vera ákjósanlega fjárfestingu
fyrir áhugasama fjárfesta vegna
sterkrar eiginfjárstöðu þess og
stöðugs reksturs. „Við höfum það
markmið að eiga áfram meirihluta
í HS Veitum en teljum okkur geta
selt út 15%. Við höfum verið í
samstarfi við Orkuveituna sem er
að gera ráð fyrir að skoða sölu á
sínum hlut. Það yrði því rúmlega
30% hlutur sem yrði seldur út.
Íslandsbanki hefur tekið að sér að
skoða þetta verkefni og undirbúa
það. Það er verið að horfa til þess
að gefa öðrum sveitarfélögum
eða lífeyrissjóðum tækifæri til
að kaupa hlutinn.“ Hann útilokar
JóRDAníA, Ap Samningafulltrúar
Ísraels og Palestínu hittust í
Jórdaníu á þriðjudag í fyrsta
sinn í meira
en ár.
Vonast var til
að fundurinn
yrði upphafið á
nýjum samn
ingaviðræðum,
þar sem meðal
annars yrði
tekið á framtíð
arlandamær
um ríkjanna, öryggismálum og
flóttamönnum.
Auk þeirra Yitzaks Molcho
og Saebs Erekat hittust þar
fulltrúar frá Bandaríkjunum,
Rússlandi, Evrópusambandinu
og Sameinuðu þjóðunum, eða
kvartettinum svonefnda sem
hefur reynt að móta farveg fyrir
viðræðurnar. - gb
sAMFélAGsMál Börnum sem eru ættleidd eftir
átján mánaða aldur er hættara við tilfinninga og
hegðunarvanda en öðrum börnum. Niðurstöður
nýrrar íslenskrar rannsóknar benda til þessa.
Rannsóknin heitir Afdrif barna á Íslandi sem eru
ættleidd erlendis frá og er sagt frá henni í nýjasta
tölublaði Læknablaðsins. Markmiðið með henni
var að kanna hvaða áhættuþættir geta haft áhrif á
andlega líðan og hegðun barna sem eru ættleidd frá
útlöndum.
Börn sem voru ættleidd eftir átján mánaða aldur
og börn sem höfðu dvalið á stofnun lengur en fyrstu
átján mánuðina voru í meiri áhættu á að sýna
einkenni athyglisbrests með ofvirkni og hegðunar og
tilfinningavanda en almennt þekkist. Þá skoruðu börn
sem talin eru hafa sætt alvarlegri tilfinningalegri
vanrækslu marktækt hærra á hegðunar og
tilfinningamatslistum en önnur börn. Börn sem
voru ættleidd fyrir tólf mánaða aldur skoruðu
sambærilega við önnur börn á öllum matslistum.
Í niðurstöðum rannsóknarinnar kemur fram að
leggja beri áherslu á að ættleidd börn komist sem
fyrst til kjörforeldra sinna og dveljist sem styst á
stofnun til að koma í veg fyrir skaða. - þeb
Saeb erekat
Fulltrúar Palestínu og Ísraels:
Reynt að hefja
viðræður á ný
konungSfjölSkyldan Um jólin hittist
breska konungsfjölskyldan að venju á
Sandringham-setrinu. nordicphotoS/AFp
BReTlAnD Lík af konu fannst á
nýársdag á lóð Sandringham
setursins í Bretlandi, en það
er í eigu bresku konungs
fjölskyldunnar.
Lögreglan rannsakar
líkfundinn sem morðmál og sagði
líkið hafa verið þarna í nokkurn
tíma. Ekki er þó talið að konungs
fjölskyldan tengist málinu.
Þetta er í annað sinn í vetur
sem lík finnst nálægt höll í
eigu konungsfjölskyldunnar. Í
október fannst á eyju í St. James
Park í London, í sjónmáli við
Buckinghamhöll, lík af eldheitum
aðdáanda fjölskyldunnar. Líkið
hafði legið þar í um þrjú ár, en
maðurinn hafði komið sér fyrir
á eyjunni til að geta fylgst með
konungsfólkinu. - gb
Lík á lóð Bretadrottningar:
Annar líkfund-
urinn í vetur
UTAh, Ap Oft er talað um að kettir
hafi níu líf. Það gæti vel átt við í
tilfelli Andreu, kattar frá Utah í
Banda ríkjunum. Eftir að starfs
menn dýra athvarfsins þar sem
Andrea bjó höfðu reynt árangurs
laust að finna henni heimili í 30
daga var ákveðið að lóga henni.
Hún var svæfð eins og venja
er, en lifði það af og var því
svæfð aftur. Í fyrstu var útlit
fyrir að seinni tilraunin hefði
tekist en annað kom þó á daginn
stuttu síðar. Eftir að hafa lifað
af tvær tilraunir til svæfingar
var Andreu leyft að lifa. Hún
býr nú í góðu yfirlæti hjá einum
sjálfboðaliða athvarfsins. - trs
Lífseigur köttur:
Lifði af tvær
svæfingar
ættleiðingar Ættleidd börn ættu að komast sem fyrst til
kjörforeldra sinna til að koma í veg fyrir skaða.
Tilfinninga- og hegðunarvandi líklegri ef börnin dveljast á stofnun eða eru eldri:
Ættleidd börn í meiri hættu
bæjarStjórinn Árni Sigfússon útilokar ekki að aðrir áhugasamir fjárfestar en
sveitarfélög og lífeyrissjóðir kaupi sig inn í hS Veitur.
Í fjárhagsáætlun reykjanesbæjar fyrir árið 2012 er einnig fjallað um leiðir
sem sveitarfélagið ætlar að fara til að lækka skuldastöðu sína. Gert er ráð
fyrir að samstæðuskuldir muni lækka um 2,1 milljarð króna á yfirstandandi
ári og verði 37,8 milljarðar króna í lok þess. Meðal annars er gert ráð fyrir að
greiða niður 1,8 milljarða króna lán við hinn þýska depfa banka í byrjun árs
2012.
Fyrir utan sölu á hlut í hS Veitum er gert ráð fyrir að Alterra power, sem
hét áður Magma, kaupi skuldabréf sem félagið gaf sjálft út vegna kaupa í
hS orku til baka að öll leyti eða hluta. Alterra undirritaði viljayfirlýsingu þess
efnis í haust og hefur tíma fram í miðjan febrúar til að ganga frá kaupunum.
ætla að borga upp dePfa-lánið
Vilja selja þriðjung í
HS Veitum sem fyrst
Reykjanesbær vill selja 15% hlut í HS Veitum. Orkuveita Reykjavíkur er líka
að skoða að selja sinn eignarhlut í fyrirtækinu. Íslandsbanki vinnur að því að
finna kaupanda. HS Veitur verða þó áfram í meirihlutaeigu opinberra aðila.
DÝRAhAlD Trippin tvö, sem hafa
verið innikróuð nyrst í Gæsadal
vikum saman, voru orðin svo veik
burða að gefa þurfti þeim næringu
í æð á leið til byggða, samkvæmt
upplýsingum Matvælastofnunar.
Gerður var út leiðangur
björgunar sveitarmanna frá
björgunarsveitinni Ægi á Grenivík
í fyrradag, undir forustu Þórarins
Péturssonar, bónda á Grýtubakka,
í fylgd héraðsdýralæknis,
til að sækja trippin tvö á
snjótroðara Kaldbaksferða. Auk
héraðsdýralæknis voru með í för
dýralæknir og aðstoðarmaður
á vegum eiganda trippanna.
Björgunarsveitarmenn á þremur
sérútbúnum vélsleðum aðstoðuðu
bílstjóra snjótroðarans við að
finna hentuga leið, en hvítt var
yfir öllu og mjög blindað.
Um tvo tíma tók að komast til
trippanna og um þrjá tíma til baka.
Aðstæður voru mjög erfiðar, víða
laus snjór og brattlent. Ógerningur
var að reyna að reka trippin til
byggða sökum fannfergis, auk
bágs ástands þeirra.
Trippin, sem eru hryssur, önnur
veturgömul og hin tveggja vetra,
voru mjög þreytt eftir ferðalagið.
Þau hafa verið innikróuð í
fjöllunum líklegast vikum saman
en fundust fyrir tilviljun 28.
desember. Síðan hefur þeim verið
fært hey samkvæmt fyrirskipun
búfjáreftirlitsins sem hafði gefið
eigandanum frest til vikuloka að
koma trippunum til byggða. Þegar
Ólafur Jónsson, héraðsdýralæknir
Norðausturumdæmis, fékk
vitneskju um málið greip hann
þar inn í og fyrirskipaði að þau
skyldu sótt strax. Útlit er fyrir að
litlu hryssurnar nái sér að fullu.
Héraðsdýralæknir mun óska
eftir því að lögregla skoði þátt
eiganda trippanna í þessu máli.
Hann hafði saknað hrossanna
frá mánaðamótum október og
nóvember. - jss
Héraðsdýralæknir vill að lögregla skoði þátt eiganda tveggja veikburða trippa í sjálfheldu:
Gefa varð trippum í Gæsadal næringu í æð
björgunin Björgunarmenn ásamt
trippunum tveimur.
þó ekki að aðrir áhugasamir
einkafjárfestar getið keypt sig inn
í veitufyrirtækið. „Svo lengi sem
við uppfyllum lagaákvæðið um að
meirihluti sé í eigu opinberra aðila
þá kemur vel til greina að aðrir
fjárfestar sem vilja eignast þennan
hlut gætu gert það.“
Reykjanesbær birti lista yfir
helstu seljanlegu eignir sínar í
fyrravor. Þar kom fram að bókfært
virði 66,7% hlutar sveitarfélagsins
í HS Veitum væri 6,5 milljarðar
króna. Samkvæmt því ætti 15%
hlutur í HS Veitum að vera um 1,5
milljarða króna virði.
HS Veitur högnuðust um
124 milljónir króna á fyrstu
sex mánuðum ársins 2011.
Eiginfjárhlutfall fyrirtækisins um
mitt síðasta ár var 51,4%. HS Veitur
högnuðust um 321 milljón króna á
árinu 2010. Fyrirtækið greiddi
út 250 milljónir króna í arð til
hluthafa á árinu 2011 vegna þeirrar
frammistöðu. thordur@frettabladid.is
jón ÁSgeir
jóhanneSSon
Slitastjórn Glitnis áfrýjar ekki:
Málinu í New
York er lokið
1 Hvar fer Reykjavíkurskákmótið
2012 fram?
2 Hvað heitir kanadíska leikkonan
sem er kærasta Arnars Gunnlaugs-
sonar?
3 Hver er ríkisskattstjóri?
Svör:
1. Í hörpu 2. Michaela Conlin 3. Skúli
Eggert Þórðarson
veiStu Svarið?