Fréttablaðið - 05.01.2012, Blaðsíða 20
5. janúar 2012 FIMMTUDAGUR20
timamot@frettabladid.is
„Það stendur ekkert stórkostlegt til í tilefni stórafmælisins
nú, en við höldum árlega innanfélagsafmælisveislu okkar á
laugardagskvöld og köllum hana stjörnuljósakvöld því hún
tengist líka þrettándanum og jólahátíðinni,“ segir Hörður
Sigurðarson stjórnandi Leikfélags Kópavogs sem var stofnað
5. janúar 1957 og er því 55 ára í dag.
„Leikfélagið varð til á uppvaxtarárum Kópavogs en þá
tóku sig saman nokkrir bæjarbúar með leiklistaráhuga og
settu upp fyrstu sýningu félagsins í barnaskólanum, sem
var Spanskflugan. Tveimur árum síðar tók leikfélagið þátt
í byggingu Félagsheimilis Kópavogs, ásamt fleiri félögum,
og setti þar upp leiksýningar þar til á fimmtíu ára afmælinu
að leikfélagið komst loks í nýtt leikhús að Funalind 2 með
aðstoð Kópavogsbæjar,“ segir Hörður og bætir við að það hafi
valdið straumhvörfum fyrir leikfélagið sem nú sé að verða eitt
skemmtilegasta litla leikhúsið á landinu.
„Bæjarbragurinn sem áður einkenndi Kópavog er vitaskuld
ekki sá sami og hann var í árdaga félagsins, en við viljum vera
leikhúsið í bænum og höfða til bæjarbúa um leið og við viljum
fá sem flesta landsmenn í leikhúsið,“ segir Hörður.
Í vikunni hefur leikfélagið æfingar á nýju frumsömdu
verki sem ber vinnuheitið Hringurinn og gerist í umhverfi
fjölleikahúss, en verkið verður frumsýnt um miðjan febrúar.
„Það hefur einkennt leikfélagið að vera í fararbroddi með
svokallaðar „devise-sýningar“ sem unnar eru á staðnum, án
handrits. Þá er búin til leiksýning úr grunnhugmynd eða sögu
í náinni samvinnu leikstjóra og leikhóps, sem var óvanalegt
þegar við byrjuðum á þess háttar leiklistarvinnu en hefur nú
síast inn í stóru leikhúsin líka,“ útskýrir Hörður.
Hann segir leikfélagið öllum opið og einu kröfuna um
inngöngu þá að fólk hafi áhuga á leiklist.
„Hér hafa margir af frægustu leikurum þjóðarinnar stigið
sín fyrstu skref en einnig hafa ýmsir atvinnuleikarar stigið á
fjalirnar í leiksýningum með okkur,“ segir Hörður.
Þess má geta að Leikfélag Kópavogs starfrækir öfluga
unglingadeild sem setur upp leikverk á hverju ári, ásamt því
að vera með vinsæl leiklistarnámskeið fyrir byrjendur og
lengra komna.
Sjá nánar á www.kopleik.is. thordis@frettabladid.is
leikfélag kópavogs: 55 ára
Stökkpallur
leiklistaráhugans
Hálfsextugt leikfélag Hörður sigurðsson stýrir leikfélagi kópavogs
sem í dag er 55 ára. Hann segir félagið ætla að bíða með stórveislu
þar til á sextugsafmælinu, en fagna tímamótunum með nýju,
frumsömdu verki í febrúar. fréttablaðið/gva
Merkisatburðir
1848 franskir skipbrotsmenn koma að landi í breiðdal eftir mikla
hrakninga í hafi. Þeir fóru frá Noregi í október og ætluðu til
frakklands.
1874 fyrsta stjórnarskrá Íslands staðfest af konungi og gekk í
gildi 1. ágúst.
1931 fyrsta barnið fæddist á landspítalanum, tveimur vikum
eftir að hann var tekinn í notkun.
1941 fjölrituðu bréfi var dreift til breskra hermanna í reykjavík
og þeir hvattir til þess að ganga ekki í störf Íslendinga, sem
voru í verkfalli. Herstjórnin leit á þetta sem hvatningu til
uppreisnar. gekk atburðurinn undir nafninu Dreifibréfsmál-
ið.
Davíð Þór Jónsson þýðandi, grínari, rithöfundur
og guðfræðingur er 47 ára.
“Íslensk tunga er dýrasti arfur þjóðarinnar.”
47
Elsku pabbi okkar
Jón Ásgeir Blöndal
Keilusíðu 5g, Akureyri,
varð bráðkvaddur á heimili sínu 23. desember.
Útför hans fór fram í kyrrþey miðvikudaginn 4. janúar
frá Höfðakapellu á Akureyri.
Alexander Jósep, Silja Björk, Birta Rós.
Systkini og aðrir aðstandendur.
Okkar ástkæri,
Hjálmar Örn Jónsson
rafeindavirki,
Hvannalundi 17, Garðabæ,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut
mánudaginn 2. janúar.
Elísabet Ásta Dungal
Gunnar H. Arnarson
Elísabet Arnardóttir Hjálmar G.
Theodórsson
Anna Berglind Arnardóttir Dungal Victor Strange
Jón Örn Arnarson Margrét Helga
Skúladóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Þorgils V. Stefánsson
fyrrverandi yfirkennari,
Háholti 7, Akranesi,
lést á Sjúkrahúsi Akraness miðvikudaginn 28. desem-
ber. Útförin fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn
10. janúar kl. 14. Blóm og kransar vinsamlegast
afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans
er bent á styrktar- og líknarsjóð Oddfellowa.
Ingibjörg F. Hjartar
Dagný Þorgilsdóttir Neal Hermanowicz
Hörður Þorgilsson Lilja Stefánsdóttir
Fríða Þorgilsdóttir
Ásdís Hermanowicz
Stefán Hermanowicz
Dagný Harðardóttir
Rósa Harðardóttir
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir,
systir, amma og langamma,
Kolbrún Magnúsdóttir
Innbæingur, Aðalstræti 66,
lést 28. desember, útförin fer fram frá Akureyrarkirkju
9. janúar kl. 13.30. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast hennar er bent á Minningarsjóð
Guðmundar Ólafssonar hjá Sundfélagi Hafnarfjarðar,
reiknnr. 0327-13-301223 kt. 640269-2789.
Hrafnkell Marinósson Hlín Ástþórsdóttir
Auður Magnúsdóttir
Kolbrún Hrafnkelsdóttir Kjartan Hrafnkelsson
Konráð Hrafnkelsson Kolbeinn Hrafnkelsson
og barnabarnabörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Svavar Guðni Guðnason
Hraunbæ 26, Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut 30. desember
síðastliðinn. Útför hans fer fram frá Árbæjarkirkju
föstudaginn 6. janúar kl. 13.00. Blóm og kransar eru
vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans
er bent á samtökin Heilaheill.
Andrés Svavarsson Þóra Stephensen
Kristín S. Svavarsdóttir Viðar Gíslason
Guðni B. Svavarsson Kristín G. Ólafsdóttir
Rannveig E. Beiter
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg amma okkar,
Herdís Albertsdóttir
Sundstræti 33, Ísafirði,
sem lést á aðfangadag jóla, verður jarðsungin frá
Ísafjarðarkirkju laugardaginn 7. janúar kl. 14.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hennar er bent á Minningarsjóð kvenfélagsins Hlífar
á Ísafirði. Minningarspjöld fást hjá Eymundsson.
Kristjana Sigurðardóttir
og fjölskylda.
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Jón Ágúst Sigmundsson
Strandberg
stýrimaður og tollvörður,
sem lést þriðjudaginn 27. desember 2011 á Hrafnistu
í Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í
Hafnarfirði föstudaginn 6. janúar kl. 13.
Sigurður Örn Jónsson Gunnhildur Halldórsdóttir
Sigríður Jónsdóttir Eggert Þór Ísberg
Ólöf Jónsdóttir Harrý Þór Hólmgeirsson
og barnabörn
Eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Óskar Maríusson
efnaverkfræðingur
Árskógum 6, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Seljakirkju, föstudaginn
6. janúar kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlega
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á
Minningarsjóð Heimahlynningar í síma 543 1159.
Kristbjörg Þórhallsdóttir
Maríus Óskarsson Katrín Hildur Jónasdóttir
Ragnar Óskarsson
Þórhallur Óskarsson Lilja Björgvinsdóttir
og barnabörn.
Maðurinn minn,
Ragnar Sveinsson
Fjóluhlið 1, Hafnarfirði,
lést 2. janúar 2012 á Sólvangi. Útförin fer fram frá
Fríkirkjunni í Hafnarfirði þriðjudaginn 10. janúar
kl. 13:00
Fyrir hönd fjölskyldunnar
Erla Þórðardóttir