Fréttablaðið - 05.01.2012, Blaðsíða 24
Framhald af forsíðu
Eflaust hugsa margir sér gott
til glóðarinnar að gera áhlaup á
útsölurnar um helgina. Útsöluráp
er full vinna og eins gott að vera vel
undirbúinn andlega og líkamlega
til að endast út daginn. Bandaríska
vefsíðan examiner.com hefur tekið
saman nokkur ráð sem gott er að
hafa í huga í útsölu hamnum og
þótt atgangurinn sé kannski ekki
alveg jafn mikill á útsölum hér og í
Bandaríkjunum er ekki vitlaust að
hafa þessi ráð í huga.
Pokar: Þótt allar verslanir láti
fólk hafa poka utan um vörurnar
er sniðugra að koma með sína
eigin poka að heiman. Rúllið
þeim upp og setjið í stóran
taupoka með renndu hólfi fyrir
kvittanirnar. Þá er auðveldara að
raða vörunum í pokana og jafna
byrðarnar. Skiljið handtöskuna
eftir heima og setjið kreditkort,
peninga og síma í mittistösku.
Stórar handtöskur þvælast bara
fyrir og auka þyngdina á því sem
þarf að bera.
Skór: Verið í þægilegum,
flatbotna skóm, helst æfinga-
skóm með loftpúðum. Það er
nefnilega ótrúlegt hversu mikið
fólk gengur í búðarrápi.
Föt: Kuldinn býður ekki upp á það
að fara léttklæddur að heiman
en best er að vera í þunnri úlpu
sem auðvelt er að rúlla saman og
setja í einn pokanna. Það er mun
sennilegra en ekki að fólk vilji
geta fækkað fötum þegar hitna
fer í kolunum.
Hjálpartæki: Ef þið þurfið
lesgleraugu til að sjá á verðmiðana
er langsniðugast að vera með þau
í snúru um hálsinn þannig að
auðvelt sé að bregða þeim upp á
nefið. Þeir sem ekki vilja láta sjá
sig með gleraugu geta tekið með
sér lítið stækkunar gler og borið
það í sams konar snúru. Það skiptir
öllu að lesa rétt í verð þegar mein-
ingin er að gera góð kaup.
Skipulag: Skipuleggið ferð-
ina frá A-ö. Ákveðið hvaða
búðir þið ætlið að heim-
sækja og byrjið í öðrum enda
verslunarmiðstöðvarinnar og
vinnið ykkur yfir í hinn endann,
ekki ráfa fram og til baka, það
kostar alltof mörg aukaspor.
Geymið að kaupa stærstu hlutina
þar til síðast, þá hafið þið minna
að bera og verðið ekki eins fljótt
þreytt. Góða útsöluveiði.
fridrikab@frettabladid.is
Útsöluráp er full vinna
Nú eru útsölurnar í algleymingi og margir sem hugsa sér að gera góð kaup. Það getur verið þreytandi að
rápa milli búða í leit að góðu kaupunum og því snjallræði að skipuleggja verslunarferðina rækilega.
Þreytan eftir útsöluslaginn hverfur í skuggann af því að hafa gert reyfarakaup. Gott
skipulag auðveldar útsölurápið.
www.enskafyriralla.is
Sumarið 2012 er fyrirhuguð námsferð til Englands fyrir þau sem þess óska
Enskuskóli Erlu Ara auglýsir enskunám í Hafnarfirði fyrir byrjendur og lengra
komna. Á hverri önn sækja um 200 nemendur enskunám í skólanum,
langflest konur á aldrinum 40 ára og eldri.
Við bjóðum upp á: 10 getustig með áherslu á tal.
Styrkt af starfsmenntasjóðum.
Skráning í síma 8917576 og erlaara@gmail.com
Þú ert velkominn í heimsókn og tekur ákvörðum eftir fyrsta tíma
hvort þú viljir taka þátt.
Enskuskóli Erlu Ara
telpurS onuK r
Staðurinn - Ræktin
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • jsb@jsb.is • www.jsb.is
Líkamsrækt á rólegri nótunum
Ný námskeið hefjast 9. janúar
innritun í síma 581 3730
Frjáls
aðgangur að
opna kerfinu
og tækjasal
Sérsniðin líkamsrækt fyrir konur 60 ára og eldri.
Rólegri yfirferð, sérvalin tónlist og skemmtileg stemning.
Myndast hefur einstaklega góður andi og vinskapur
í þessum tímum.
Mánudaga og miðvikudaga kl 9:30
þriðjudaga og fimmtudaga laust kl 9:30
Verð kr. 19.900
Velkomin í okkar hóp!
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
telpurS onuK r
Staðurinn - Ræktin
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • jsb@jsb.is • www.jsb.is
Ný námskeið hefjast 9. janúar
innritun í síma 581 3730
STOTT PILATES er krefjandi æfingakerfi og frábær leið til að:
l Móta líkamann, bæta líkamsvitund og líkamsstöðu.
l Lengja vöðva og styrkja djúpvöðva í kvið og baki.
l Losa spennu, auka liðleika og bæta jafnvægi milli vöðvahópa.
6 vikna námskeið - Mánudaga og miðvikudaga kl. 10:30
Þriðjudaga og fimmtudaga kl. 16:30
Kennari: Agnes Amalía Kristjónsdóttir.
Verð kr. 19.900.
Barnagæsla - Leikland JSB
Velkomin í okkar hóp!
Frjáls
aðgangur að
opna kerfinu
og tækjasal
STOTT PILATES
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
Söngkonan Lady Gaga tók þátt í
gamlársfögnuðinum á Times Square í New
York. Múnderingin minnti á kristalskúluna
sem árlega markar áramótin í borginni.
„Ég prjónaði flestar jólagjafirnar í fyrra, eitthvað
í kringum 30 peysur, en hafði ekki tíma til að prjóna
eins mikið fyrir þessi jól, því miður. Ég hef aðeins
verið að búa til uppskriftir sjálf en styðst líka oft við
uppskriftir í blöðum og breyti þeim kannski aðeins.“
Heiða lærði að prjóna sem krakki og þegar hún
var 17 ára fóru prjónarnir á fullt.
„Ég prjóna úr alls konar garni en aðallega ull,
íslenskri ull og alpaca-ull. Íslenska ullin er skemmti-
leg því hún þæfir sig saman og því hægt að prjóna
opna peysu í hring og klippa á milli án þess að rakni
upp. Hún stingur reyndar svolítið og krakkarnir vilja
oft ekki vera í henni næst sér. Í jólakjólana notaði
ég norska merino-ull. Pífurnar á kjólunum eru úr
mohair silkigarni,“ útskýrir Heiða og dæturnar,
Karína Ísis, fimm ára, og Hera Nótt, tveggja ára,
snúa sér í hring, hæstánægðar með kjólana.
Heiða er á fimmtu önn í fataiðn í Tækniskóla
Íslands. Hún segist ekki ákveðin hvort hún fari í
klæðskerann eða kjólasaum og upphaflega hafi hún
hugsað sér myndlistarnám. „Ég var svo heppin að fá
að föndra og teikna, mála og sauma eins og ég vildi
þegar ég var lítil. Það er erfitt að ákveða sig þegar
maður hefur svo mörg áhugasvið en námið í Tækni-
skólanum er mjög skemmtilegt og á vel við mig.“
heida@frettabladid.is
Karína Ísis er hæstánægð með jólakjólinn sem mamma
hennar prjónaði.
Tískuvikan PFDC L‘Oreal Paris
Bridal Week 2011 LAHORE fór
nýverið fram við góðar undirtektir.
Mikið var um dýrðir á tískuvikunni
PFDC L’Oréal Paris Bridal sem fór
fram í Lahore, höfuðborg Pakistans,
fyrir skemmstu. Helstu hönnuðir og
stílistar landsins, bæði upprennandi
stjörnur og gamlir refir, komu saman og
kynntu til sögunnar helstu strauma og
stefnur í brúðarklæðum og -skarti 2012.
Víða er farið lofsamlegum orðum um
tískuvikuna á Netinu, þar sem einstak-
lega vel þótti heppnast að tvinna saman
hefðbundnum og nýtískulegum fatnaði.
Viðburðurinn fer árlega fram í
Pakistan og er skipulagður af tískuráði
þar í landi.
Fortíð og nútíð
Þessi klæði eru úr smiðju hönnuð ar
ins Emraam Rajput sem var á meðal
þeirra sem sýndu nýverið á tískuvik
unni í Pakistan. noRdicPhotos/GEtty
tilkynnt hefur verið hvaða
stjörnur og smástirni munu taka
þátt í nýjustu þáttaröð donalds
trump, celebrity
Apprentice. Meðal
annarra verða þar
popp og idol
stjarnan clay
Aiken, tia carrere
sem er þekktust
fyrir að leika
kærustu Mike
Myers í Wayne‘s
World, Victoria Gotti, dóttir glæpa
foringjans alræmda John Gotti,
og Arsenio hall sem þekktastur er
fyrir að leika félaga Eddie Murphy í
coming to America.
Fimmta þáttaröðin verður
frumsýnd í Bandaríkjunum 12.
febrúar og verður líklega dramatísk
að vanda.
Smástirni berjast
FiMMtA ÞáttARöð cElEBRity
APPREnticE hEFuR BRátt GönGu
sÍnA Í BAndARÍKJunuM. nú hEFuR
donAld tRuMP tilKynnt hVAðA
sMástiRni BERJAst uM hitunA.
clay Aiken