Fréttablaðið - 05.01.2012, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 05.01.2012, Blaðsíða 10
5. janúar 2012 FIMMTUDAGUR10 oRkUMál Sveitarstjórn Skaga- strandar hefur samþykkt samning við Rarik um lagningu hitaveitu í bæinn. Gert er ráð fyrir að fyrstu hús tengist hitaveitunni haustið 2013 og að öll hús hafi möguleika á tengingu haustið 2014. Á fundi sveitarstjórnarinnar í gær kom fram að Skagaströnd muni leggja fram óafturkræft framlag að upphæð 260 milljónir króna. „Af þeirri fjárhæð hefur sveitarfélagið tryggt sér 80 milljónir með sértækum framlögum á fjárlögum, 50 milljónir á fjáraukalögum 2011 og 30 milljónir á fjárlögum 2012. Beint framlag sveitarfélagsins verði því 180 milljónir króna sem greiðist á árunum 2012- 2014,“ segir í fundargerð þar sem skýrt er frá því að með framlagi sveitarfélagsins og sérstöku framlagi á fjárlögum ríkisins sé arðsemi af veitunni tryggð. Fyrst verður lögð ný stofnæð frá Reykjum við Húnavelli að Blönduósi á árinu 2012. Stofnæð lögð frá Blönduósi til Skagastrandar verður lögð á fyrri hluta árs 2013 og dreifikerfi lagt um byggðina þar sumarið og haustið 2013. Pípukerfi fyrir ljósleiðara á að opna nýja möguleika á flutningi stafrænna gagna. Adolf H. Berndsen oddviti segir hitaveituna mikið framfaraskref sem bæta muni búsetuskilyrði og rekstrarumhverfi fyrirtækja. - gar NoReGUR, AP Verulegur ágreiningur er kominn upp í Noregi um þann úrskurð tveggja réttargeðlækna frá í nóvember að fjölda morðinginn Anders Behring Breivik teljist ekki sakhæfur. Í nýrri skýrslu þriggja sálfræðinga og eins geðlæknis er niðurstaðan þveröfug, nefnilega sú að Breivik geti ekki talist veikur á geði. Að minnsta kosti tíu lögmenn, sem fara með mál fórnarlamba Breiviks eða aðstandenda þeirra, ætla að krefjast þess að gert verði nýtt mat á andlegri heilsu hans. Hann varð 77 manns að bana í Noregi í fyrra. - gb Vatn flæddi inn í íbúð Nokkurt tjón varð þegar vatn flæddi um gólf íbúðar í fjölbýlishúsi í Hafnarfirði um miðjan dag í fyrradag. Einn maður var sofandi í íbúðinni og var hann vakinn upp af nágrönnum. Talið er líklegt að tappi í lagnagrind hafi losnað með þessum afleiðingum. lögreglumál Alhæfði um konur Kvenfélagskonur í Færeyjum voru alls ekki sáttar við orð lögmanns eftir áramótin. FréTTablaðið/GVa FæReyjAR Kaj Leo Johannesen, lögmaður Færeyja, fékk skammir frá kvenfélagasamtökum Færeyja, eftir ummæli sem hann lét falla um nýársræðu Margrétar Dana- drottningar. Sagðist lögmaðurinn ánægður með að drottning hefði vikið orðum að Færeyjum enda lesi færeyskar konur mikið af blöðum í líkingu við Se & Hør, Ude og Hjemme og Familie Journal. Það þótti kvenfélagskonum vera gróf alhæfing um lestraráhuga kvenna þar í landi „og áhuga þeirra fyrir fínum kjólum“. Johannesen baðst afsökunar á ummælum sínum í framhaldinu. - þj Lögmaður Færeyja snupraður: Þótti ýta undir staðalímyndir kópAVogstún bærinn mismunaði og braut lög á umsækjendum um lóðir á Kópavogstúni á árinu 2005. FréTTablaðið/rósa sveITARsTjóRNIR „Umsækjendur um lóðir í Kópavogi geta nú treyst því að umsóknir þeirra verða metnar faglega og málefnalega,“ segir Guðríður Arnardóttir, formaður bæjar- ráðs, í fréttatilkynningu frá bænum. Í dómi Hæstaréttar í desember segir að Kópavogsbær hafi með ólögmætum hætti mismunað umsækjendum um byggingarrétt á Kópavogstúni á árinu 2005. „Reglur Kópavogsbæjar um úthlutun á byggingarrétti fyrir íbúðarhúsnæði eru mun skýrari og ótvíræðari nú en þær voru árið 2005. Því ættu ágreiningsatriði þau sem fram koma í dómi Hæstaréttar frá því fyrir jól ekki að rísa aftur,“ segir í tilkynningu bæjarins. „Vinnubrögð við lóðaúthlutanir í Kópavogi hafa harðlega verið gagnrýnd á undanförnum árum og hafa þær meðal annars verið taldar ólögmætar í þeim tilfellum sem umsækjendur hafa óskað álits innanríkisráðuneytisins, áður félagsmálaráðuneytisins, eða dómstóla,“ segir Guðríður. Í tilkynningunni segir að úthlutunarreglur bæjarins séu nú skýrari og gegnsærri en áður. Ef umsækjendur um lóð eru fleiri en einn er dregið á milli þeirra sem uppfylla skilyrði um fjárhagsstöðu og hafa ekki fengið úthlutun á síðustu tíu árum. Þá kemur fram að ákvæði um að bæjarráð meti umsækjendur út frá fjölskylduaðstæðum, búsetu og fjárhags- og húsnæðisaðstöðu hafi verið afnumið. - gar Bæjaryfirvöld í Kópavogi ítreka að reglur um lóðaúthlutun hafi verið lagfærðar: Kópavogur lofar gegnsæi í lóðaúthlutunum 94DCD710S LÉTT OG STERK BORVÉL 10mm patróna | 2 x 1,3Ah Li-Ion | 2 gírar | Led ljós 35.900 m/vsk Fullt verð 49.900 www.sindri .is / sími 5 75 0000 LÉTTUR VINNUÞJARKUR grýlukerti á Appelsínum Mikil kuldatíð hefur hrjáð íbúa í Flórída í bandaríkjunum undanfarið, eins og sjá má á þessum appelsínutrjám. FréTTablaðið/aP vIðskIPTI Virði eigna Framtaks- sjóðs Íslands ( FSÍ) nær tvöfaldaðist á fyrsta fjárfestinga- ári sjóðsins. Þetta kemur fram í endurmati á eignum hans sem Finnbogi Jónsson, framkvæmda- stjóri FSÍ, kynnti á fundi Félags löggiltra endurskoðenda í gærmorgun. FSÍ var stofnsettur í lok árs 2009 af sextán lífeyrissjóðum. Tilgangur hans var að taka þátt í og móta fjárhagslega og rekstrarlega endurreisn íslensks atvinnulífs í kjölfar bankahrunsins. Síðar komu Lands bankinn, stærsti einstaki eigandi sjóðsins, og VÍS inn í eigenda hópinn. Fyrsta fjárfestingaár sjóðs- ins var frá miðju ári 2010 og til júníloka 2011. Á því tímabili fjár- festi FSÍ í Icelandair Group, Ice- landic Group, Vodafone, SKÝRR, Plastprenti og Húsasmiðjunni. Samtals nam kaupverð 16,8 milljörðum króna. Samkvæmt endurmatinu sem kynnt var á fundinum í gærmorgun hefur virði fjárfestinganna hækkað um 16,6 milljarða króna á þessu eina ári og er samtals 33,4 milljarðar króna. Langmestu munar um Ice- landic Group en FSÍ réðst í gagngera endurskipulagningu á rekstri þess félags. Í henni fólst meðal annars sala á eignum í Frakklandi, Þýskalandi, Banda- ríkjunum og Kína fyrir sam- tals 41 milljarð króna. Eftir söl- una rekur félagið verksmiðjur í Bretlandi, sölustarfsemi víða um heim og er með veltu upp á um 85 milljarða króna á ári. Samhliða þessu hefur virði Icelandic farið úr 8 milljörðum króna í 21 millj- arð króna. Finnbogi segir endurmatið byggja á því að áætlaður ebitda- hagnaður (hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði) félagsins sé 18 milljónir evra, um 2,9 milljarðar króna. Hann er síðan margfaldaður með 5,5 og niðurstaðan lögð saman við reiðufé í eigu Icelandic til að finna út áætlað virði félagsins. Að sögn Finnboga hafa endurskoðendur sagt að það megi margfalda ebitda-hagnaðinn með 6,0. Því sé um varfærið mat að ræða. Í matinu er virði Vodafone, SKÝRR og Plastprent metið á því virði sem félögin voru keypt á. Auk þess er Húsasmiðjan metin sem einskis virði, en hún var seld til dönsku byggingavöru- keðjunnar Bygma í lok árs 2011. Óljóst er hvort FSÍ fær eitthvað greitt vegna þeirra viðskipta. Finnbogi segir mat á virði þessara félaga einnig vera varfærið. „Virði SKÝRR hefur til dæmis klárlega aukist verulega.“ Í haust fjárfesti FSÍ í 49,5% hlut í Plastframleiðandanum Promens fyrir 7,9 milljarða króna og í 16% hlut í N1. Sjóðurinn hefur auk þess samið um að kaupa 39% hlut Arion banka í N1 ef samkeppnisyfirvöld leggja blessun sína yfir kaupin. Gangi það eftir verður heildar- kaupverðið í N1 5,9 milljarðar króna. Ef fjárfestingarnar í Pro- mens og N1 eru metnar á kaup- verði er heildarvirði eignasafns FSÍ því áætlað um 44,5 milljarða króna. thordur@frettabladid.is Virði fjárfestinga FSÍ jókst um 100% Heildarvirði eignasafns FSÍ er áætlað 44,5 milljarðar króna fyrir endurmat hluta eigna. Virði Icelandic og Icelandair jókst um 16,6 milljarða króna á fyrsta fjárfestingaári sjóðsins. Virði eigna hans tvöfaldaðist á fyrsta fjárfestingaári. fsí Finnbogi Jónsson, framkvæmdastjóri Framtakssjóðsins, segir endurmatið á virði eigna sjóðsins vera varfærið. FréTTablaðið/GVa milljarðar er áætlað eignasafn Framtakssjóðs Íslands. 44,5 Anders Behring BreiVik Nefnd segir Breivik sakhæfan: Fleiri krefjast endurmats skAgAströnd Haustið 2013 á að tengja fyrstu húsin á skagaströnd við hitaveitu sem lögð verður rúmlega 30 kílómetra leið. FréTTablaðið/sTEFáN Greiða 260 milljónir og semja við Rarik um lagningu hitaveitu frá Blönduósi: Hitaveita lögð til Skagastrandar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.