Fréttablaðið - 09.01.2012, Blaðsíða 2
9. janúar 2012 MÁNUDAGUR2
BRIDS
SKÓLINN
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Byrjendur ... 23. janúar ... 8 mánudagar frá 20-23
Framhald ... 25. janúar ... 8 miðvikudagar frá 20-23
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
• Viltu læra brids? Á námskeiðinu fyrir byrjendur er farið
vel yfir leikreglur og undirstöður Standard-sagnkerfisins.
Byrjað alveg frá grunni og hægt að mæta ein/einn.
• Viltu verða betri spilari? Á framhaldsnámskeiðinu er
kafað dýpra í Standard-kerfið og tæknin slípuð í úrspili og
vörn. Ekki þarf að koma með makker.
• Staður: Síðumúli 37 í Reykjavík.
• Sjá nánar á bridge.is undir ”fræðsla”.
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Uppl. og innritun í síma 898-5427 frá 13-18 daglega.
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
NÁttúRA Ætla má að langvarandi snjóþekja
reki gæsir frá grasblettum og á flakk um götur
miðborgar Reykjavíkur segir Þórólfur Jónsson,
garðyrkjustjóri Reykjavíkur. Stórir gæsahópar hafa
mælt göturnar í miðborginni undanfarið.
„Líklegast er að þær séu búnar að læra að þær
fái mat á ákveðnum stöðum, enda verið langur kafli
núna þar sem þær hafa ekki komist í grasið sem
er þeirra fæða alla jafna,“ segir Þórólfur. Þá sé
spurning hvort þær sæki í hlýjuna frá upphituðum
gangstéttum borgarinnar.
Hann segir gæsirnar fóðraðar nokkuð víða á
höfuðborgarsvæðinu. Borgin gefi þeim í Grasa
garðinum í Laugardal og í Vatnsmýrinni, en einnig
séu borgararnir duglegir við að gefa öndum og
gæsum brauð á tjörninni. - bj
Telja matarvonina reka gæsirnar á flakk um miðborg Reykjavíkur:
Gæsagengin mæla göturnar
Á flandri Ekki hafa borist fréttir af því að meira sé um
að ekið sé á gæsir á flandri, enda virðast þær vanar bíla
umferðinni þó ekki séu allar svo snjallar að nýta sér gang
brautirnar. Fréttablaðið/GVa
Viðskipti Skjárinn, sem keypt hefur
útvarpsstöðina Kanann, tók ekki
yfir félagið utan um útvarpsstöðina
heldur keypti út úr því reksturinn
– tæki, hljóðver, vörumerki og
lagalista – auk þess að kaupa tíðnina
á uppboði. Einar Bárðarson, sem
rak Kanann og verður áfram yfir
stöðinni hjá Skjánum, segir að
gamla félagið, Skeifan 7 eignarhald,
standi þó ekki eftir sem tóm skel
með skuldum.
„Það er bara félag sem heldur
áfram í rekstri, til dæmis tónleika
haldi,“ segir Einar. „Það er reyndar
ekki umfangs mikið – tekur ekki
mikið af mínum tíma – en þetta eru
stór verk efni og þau verða áfram
inni í þessu fé lagi.“
Friðrik Friðriksson, for stjóri
Skjásins, segir það aldrei hafa
komið til greina að taka yfir rekstur
félagsins og staða þess aldrei
könnuð með það fyrir augum. „Það
kom aldrei til á lita, enda held ég
að Einar sé með ó skyldan rekstur
þarna inni. Þetta fé lag hefði bara
flækst fyrir okkur.“
Einar segir allt starfsfólk Kanans
– mest megnis verktaka – flytjast
yfir til Skjásins við breytinguna.
„Við borguðum öllu starfs fólki út
síðasta starfandi mánuðinn og síðan
færast bara allir yfir,“ segir hann.
„Þetta eru engir þjóðar flutningar.
Þetta eru tíu stöðu gildi í það heila.“
Í fyrravor færði Einar rekstur
Kanans úr félaginu ÚÍ ehf. yfir í
Skeifuna 7 eignar hald. Við það til
efni sendi hann frá sér yfir lýsingu
þar sem hann sagði á stæðuna vera
óbil girni Lands bankans. Hann hefði
verið í við skiptum við Spari sjóðinn í
Kefla vík, sem hefði sýnt Kananum
mikinn vel vilja, en eftir að Lands
bankinn tók SpKef yfir hefði
yfirdráttar lán ekki fengist fram
lengt og félagið þannig verið gert
órekstrar hæft á einni nóttu. Einar
kvaðst á þeim tíma íhuga málsókn
gegn Landsbankanum vegna þessa.
ÚÍ er nú komið í gjaldþrota
meðferð. Samkvæmt ársreikningi
fyrir árið 2009 skuldaði félagið þá
ríflega 30 milljónir og átti eignir
sem metnar voru á um 20 milljónir.
Samkvæmt heimildum Frétta
blaðsins munu kröfur í þrotabúið
verða meiri en 30 milljónir en litlum
eignum vera til að dreifa.
Skiptastjóri félagsins, Jón
Ármann Guðjónsson, segir að kröfu
lýsingarfrestur renni út á allra
næstu dögum og skiptafundur verði
25. janúar.
„Félagið var orðið fjár vana undir
síðasta vor. Þá var gerður samn
ingur um að selja ákveðinn rekstur
og það er bara verið að skoða þann
samning,“ segir hann.
„Það sem skiptastjóri skoðar er
hvort eðlilegt verð var á honum og
greiðslurnar eðlilegar. Ef kröfu
hafar telja að þetta sé óeðlilegt með
einhverjum hætti þá verður látið
reyna á það í riftunarmáli en það er
algjörlega óafgreitt og verður bara
að koma í ljós,“ segir hann.
Samkvæmt heimildum Frétta
blaðsins hafa kröfu hafar haft sam
band við skipta stjóra, gert athuga
semdir við ráðstöfun eigna og telja
á sér brotið. stigur@frettabladid.is
Þriðja félagið rekur
Kanann síðan 2009
Skjárinn keypti rekstur Kanans út úr félaginu utan um stöðina. Einar Bárðarson
segir félagið munu starfa áfram að tónleikahaldi. Skiptastjóri fyrsta félagsins
utan um Kanann skoðar hvort krefjast skuli riftunar á sölu frá því í fyrravor.
Kaninn Einar bárðarson, annar frá vinstri, færði Kanann úr einu félagi í annað í
fyrravor. Sá gerningur er nú til skoðunar hjá skiptastjóra. Fréttablaðið/GVa
Ef kröfuhafar telja að
þetta sé óeðlilegt
með einhverjum hætti þá
verður látið reyna á það í rift-
unarmáli en það er algjörlega
óafgreitt ...
jón Ármann guðjónsson
SKiptaStjóri
sýRlAND Leiðtogar Arababandalagsins krefjast
þess að stjórnvöld í Sýrlandi bindi enda á ofbeldið
í landinu strax. Þetta voru niðurstöður fundar
bandalagsins í Kaíró í Egyptalandi í gær.
Fulltrúar Arababandalagsins hafa fylgst
með gangi mála í Sýrlandi undanfarið og var
fundurinn í gær til þess að fara yfir stöðu mála.
Aðgerðir bandalagsins hafa verið gagnrýndar
fyrir að vera máttlitlar og áhrifalitlar. Ráðherrar
ríkjanna samþykktu ekki tillögu frá Katar um að
fá sérfræðinga frá Sameinuðu þjóðunum til að
aðstoða við eftirlitið í Sýrlandi. Arababandalagið
mun hittast á nýjan leik og fara yfir gang mála í
lok mánaðarins.
Fréttir hafa borist af því að minnst tuttugu hafi
látið lífið í Sýrlandi í gær, þar af ellefu hermenn.
Þá eru fleiri en hundrað manns sagðir hafa látist
undanfarna þrjá daga, þó erfitt sé að staðfesta það
vegna þess að erlendir fjölmiðlar fá ekki að starfa
í landinu. Sameinuðu þjóðirnar telja að um 5000
óbreyttir borgarar hafi látist síðan uppreisnin
gegn Bashar alAssad forseta hófst fyrir tíu
mánuðum síðan. - þeb
Arababandalagið fundaði um ástandið en hundrað eru taldir látnir:
Vilja ekki aðstoð SÞ í Sýrlandi
fundað í Kaíró leiðtogar ríkja innan arababandalagsins
funduðu um málefni Sýrlands í Egyptalandi í gær, en komust
að þeirri niðurstöðu að ekki ætti að hleypa sérfræðingum
Sameinuðu þjóðanna inn í landið. Fréttablaðið/ap
kAUpMANNAhöfN, Ap Danski sjó
herinn stöðvaði sjó ræningja
skip undan ströndum Afríku og
frelsaði 14 gísla sem voru í haldi
ræningjanna.
Það var danska varðskipið
HDMS Absalon sem náði að yfir
buga sjóræningjana eftir nokkra
eftirför. Danirnir handtóku 25
sjóræningja sem voru um borð og
frelsaði fjórtán gísla. Líklega var
um sjómenn frá Pakistan og Íran
að ræða sem höfðu verið í haldi
ræningjanna í tvo mánuði. - áp
Átök við Sómalíu:
Danir frelsa
fjórtán gísla
eVRópA, Ap Mikil snjókoma hefur
verið í austur hluta Sviss og
vestur hluta Austur ríkis undan
farna daga en snjó þyngslin
hafa meðal annars sett lestar
samgöngur í landinu úr skorðum.
Búið er að loka helstu
járnbrautarleiðum í Ölpunum
með þeim afleiðingum að bæir
og helstu ferðamannastaðir voru
einangraðir í gær. Yfirvöld í Sviss
hafa varað við snjóflóðahættu
næstu daga en því er spáð að
snjókomunni linni í dag. - áp
Snjóþyngsli í Ölpunum
Mikil hætta á
snjóflóðum
miKil snjóKoma óvenju snjóþungt
hefur verið undanfarna daga í Sviss og
austurríki.
Róbert, fiska ekki bara þeir
sem róa?
„jú, og erum við ekki öll á sama
báti?“
róbert Hlöðversson er bæjarfulltrúi í
Hveragerði. bæjarráðið þar kveðst ekki
sætta sig við að sjávarbyggðir fái hærri
hluta en önnur sveitarfélög af veiðigjaldi í
fiskveiðilögsögunni.
ZiMbAbwe Erin Laung Worth,
áströlsk kona lenti í kröppum
dansi er teygjan slitnaði í miðju
teygjustökki með þeim afleið-
ingum að hún féll 110 metra ofan
í straumharða á. Atvikið átti sér
stað nærri Viktoríufossunum
við ánna Zambezi. Laung Worth
náði að synda að árbakkanum þar
sem björgunarmenn tóku á móti
henni.
„Mér leið eins og ég hefði verið
lamin,“ sagði Laung Worth við
fjölmiðla en það þykir krafta-
verki líkast að hún hafi lifað
slysið af. Hún liggur nú á spítala
í Suður-Afríku með minniháttar
áverka. - áp
Teygjan slitnaði í teygjustökki
Ung stúlka féll
110 metra
fólk Talsverður fjöldi fólks
mætti til blysfarar í kringum
Grænavatn í Krýsuvík í gær.
Blysförin var farin í tilefni þess
að hundrað ár voru í gær liðin frá
fæðingardegi Sigurðar Þórarins-
sonar jarðfræðings.
Nokkur félög og samtök sem
tengjast náttúruvísindum, nátt-
úruvernd og útiveru efndu til
blysfararinnar. Með henni vildu
þau heiðra frumkvæði Sigurðar
í náttúruverndarmálum en hann
hélt tímamótaerindi árið 1949
þar sem hann hvatti til þess að
sett yrði náttúruverndarlöggjöf
hér á landi. - þeb
Blysför til minningar:
Gengu blys-
för í kringum
Grænavatn
gengið við grænavatn Gengið var
með kyndla og blys kringum Grænavatn
í gær til að minnast Sigurðar.
Fréttablaðið/anton
VeRslUN Kristján B. Jónasson,
for maður Félags ís lenskra bóka
útgefenda, segir þá hafa áhyggjur
af því hver eignast Pennann
sem Arion banki selur nú í gegn
um félagið Eigna bjarg. Kristján
segir nærri helminga tekna bóka
útgefenda stafa frá Pennanum.
„Því er það mikið áhyggju efni
fyrir alla sem starfa við að gefa
út bækur; rit höfunda, bóka út
gefendur, prentara og dreifingar
aðila, hvernig sölu ferli Eignabjargs
ehf. á Pennanum á Íslandi lyktar,“
skrifar Kristján á bloggi sínu. - gar
Bókaútgefendur áhyggjufullir:
Ekki sama hver
kaupir Pennann
spurning dagsins