Fréttablaðið - 01.02.2012, Síða 10
1. febrúar 2012 MIÐVIKUDAGUR10
JANÚARTILBOÐ
40x40 cm Verð áður 250 kr.
187 KR.
TILBOÐSVERÐ
1 stk.
ÖRTREFJAKLÚTAR
BLÁIR, BLEIKIR OG GULIR
Stórhöfða 42, Reykjavík
Austursíðu 2, Akureyri
587 7788
papco.is
Góð þjónusta
SPRENGJA Í MIÐBÆ REYKJAVÍKUR
LITIÐ GRAFALVARLEGUM AUGUM Lögregla hafði gríðarlegan viðbúnað á staðnum,
og sagði Stefán Eiríksson það til marks um alvarleika málsins. Á þriðja tug lögreglu-
manna voru á vettvangi þegar mest lét. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SPRENGJAN GRANDSKOÐUÐ Lögreglumenn skoðuðu leifarnar af sprengjunni eftir að
búið var að ganga úr skugga um að engin hætta væri á ferðum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
EKKERT GRÍN Lögregla telur að ekkert grín hafi verið á ferðum á Hverfisgötunni. Sprengjusveitir notuðust við fjarstýrt vélmenni
til að kanna vettvanginn og skjóta sprengju að því sem fyrir var á götunni áður en maður íklæddur hlífðarbúnaði var sendur á
staðinn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Stígur
Helgason
stigur@frettabladid.is
Sprengja sprakk nærri
Stjórnarráðshúsinu
eldsnemma í gærmorgun.
Sprengjumannsins er leitað.
Gríðarlegur viðbúnaður var
á vettvangi fram að hádegi.
Sprengjusveitir lögreglu og
Landhelgisgæslunnar voru kall-
aðar að Hverfisgötu í gærmorg-
un eftir að sprengja sprakk þar á
sjöunda tímanum.
Lögregla lokaði Hverfisgötu
frá Lækjargötu upp að Ingólfs-
stræti og rýmdi tvö hús: Hverfis-
götu 4, þar sem eru meðal ann-
ars skrifstofur Ríkissaksóknara,
Ríkislögmanns og Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins, og Hverfisgötu 4A,
bakhús með skrifstofum á vegum
forsætisráðuneytisins.
Enginn hafði verið handtekinn
vegna málsins í gær en mikið
kapp var lagt á að finna þann eða
þá sem voru að verki. Lögregla
lýsir eftir vitnum að atburðinum.
Vitni sem ræddi við frétta-
stofu RÚV í gær kvaðst hafa
heyrt tvær öflugar sprenging-
ar um klukkan 6.40 um morgun-
inn og séð lágvaxinn, feitlaginn
mann á miðjum aldri hlaupa af
vettvangi og aka á brott á litlum,
hvítum sendiferðabíl. Vitnið
hafði samband við lögreglu.
Starfsmaður í Stjórnarráðs-
húsinu varð einnig var við
sprengingu en áttaði sig illa á
hvaðan hljóðið barst. Fljótlega
hafði svæðið verið girt af en lög-
reglumenn héldu sig þó lengst af
í nokkurri fjarlægð frá sprengj-
unni og skýldu sér jafnvel á bak
við bíla.
Um klukkan tíu óku liðsmenn
sprengjusveitar fjarstýrðu vél-
menni að leifum sprengjunnar,
sem lágu fyrir utan inngang-
inn að Hverfisgötu 4. Vélmennið
er útbúið myndavél sem sendi
myndir af sprengjuleifunum inn
í nærstaddan bíl, þaðan sem vél-
menninu var stjórnað. Klukkan
hálfellefu skaut vélmennið lítilli
sprengju að því sem fyrir var á
gangstéttinni svo kvað við.
Skömmu síðar fór liðsmaður
sprengjusveitarinnar, íklædd-
ur miklum hlífðarbúnaði, að
sprengjunni, lagðist yfir hana
og skoðaði gaumgæfilega til að
ganga úr skugga um að af henni
stafaði ekki lengur hætta. Um
hálftólf var aðgerðum lokið og
aðrir lögreglumenn fikruðu
sig loks nær staðnum þar sem
sprengjan hafði sprungið.
Meðan á öllu þessu stóð sat
ríkisstjórnin á fundi í Stjórnar-
ráðshúsinu spölkorn frá. Stefán
Eiríksson lögreglustjóri gekk á
fundinn á ellefta tímanum til að
skýra frá því sem á gekk en ekki
þótti ástæða til að rýma húsið.
Stefán Eiríksson lögreglustjóri
ræddi við fjölmiðlamenn á vett-
vangi þegar aðgerðum þar var
að ljúka en vildi lítið gefa uppi.
„Þetta var alvöru. Þetta voru
ekki strákar að leika sér með
flugelda,“ sagði hann.
Sprengjan er talin hafa verið
samsett úr brúsa af bensíni,
hvellhettu af einhverju tagi og
jafnvel rafgeymi,
Í tilkynningu frá lögreglunni
vegna málsins segir að sprengj-
an hafi ekki verið öflug og hafi
ekki valdið skaða en hætta hafi
þó verið á ferðum í nánasta
umhverfi. Þá sé ljóst að kunnáttu
hafi þurft til að útbúa hana.
Lögregla hefur í sínum fórum
upptökur úr öryggismyndavélum,
en ein þeirra snýr að staðnum þar
sem sprengjan sprakk.
Byggingar rýmdar vegna
sprengju í miðborginni
Þetta var alvöru. Þetta
voru ekki strákar að
leika sér með flugelda.
STEFÁN EIRÍKSSON
LÖGREGLUSTJÓRI