Fréttablaðið - 02.03.2012, Blaðsíða 10
2. mars 2012 FÖSTUDAGUR10
ÍRAN Stjórnarandstaðan í Íran á
fyrirfram litla möguleika í þing-
kosningunum, sem haldnar verða í
dag. Tveir helstu leiðtogar hennar
hafa því hvatt landsmenn til þess
að taka ekki þátt í kosningunum.
Þetta eru þeir Hussein Mússaví
og Mahdi Karrubi, sem buðu sig
fram gegn Mahmoud Ahmadinejad
forseta í forsetakosningum fyrir
þremur árum. Fjölmenn mótmæli
brutust út í kjölfar þeirra kosn-
inga gegn Ahmadinejads, sem var
sakaður um að hafa látið hagræða
úrslitum kosninganna.
Þau mótmæli voru barin niður
og þeir Mússaví og Karrubi eru
báðir enn í stofufangelsi. Þeir
þurftu því að koma skilaboðum
sínum til kjósenda um að sitja
heima á framfæri í gegnum milli-
göngumenn.
Stjórnvöld óttast að svipuð mót-
mæli geti brotist út í kjölfar þing-
kosninganna í dag. Meðal ann-
ars þess vegna hefur aðgangur
almennings að internetinu verið
takmarkaður verulega og strangt
aðhald haft með fjölmiðlum.
Þeim stjórnarandstæðingum,
sem ætluðu að bjóða sig fram,
hefur auk þess verið meinað að
gera það. Af tæplega 5.900 manns
sem upphaflega hugðust bjóða
sig fram eru nú 3.444 í kjöri, eða
rúmlega tveir þriðju upphaflegra
frambjóðenda.
Kosningabaráttan hefur því
einkum snúist um innbyrðis átök
tveggja meginfylkinga núver-
andi ráðamanna landsins. Ann-
ars vegar eru þar á ferðinni Mah-
moud Ahmadinejad forseti og
fylgismenn hans, einkum starfs-
mannastjóri forsetaskrifstofunnar,
Rahim Mashaie, en hins vegar Ali
Khameini erkiklerkur og mestöll
klerkastéttin.
Þótt Ahmadinejad sé forseti
landsins þá er það klerkastéttin
sem í reynd hefur síðasta orðið
um flest stærri þjóðmálin. Henni
er uppsigað við Ahmadinejad og
Mashaie að því er virðist fyrir
þá sök að þeir hafa stundum látið
þjóðernissjónarmið ráða ferðinni
frekar en trúarleg sjónarmið,
sem birtist meðal annars í nokk-
uð reglulegum belgingi Ahmadin-
ejads gagnvart Vesturlöndum.
Klerkastéttinni virðist mikið
í mun að áhrif Ahmadinejads
minnki í þingkosningunum, og
beitir áhrifum sínum á fjölmiðla
og netmiðla ekki síður til að tak-
marka möguleika Ahmadinejads í
kosningunum. Almennt virðist því
mega búast við því að klerkastétt-
in treysti völd sín í kosningunum á
kostnað forsetans, en stjórnarand-
staðan fái lítið að gert.
gudsteinn@frettabladid.is
Klerkastéttin
gegn forseta
Íranar ganga að kjörborðinu í dag. Tvær fylkingar
keppa um völdin en stjórnarandstaðan fær ekki að
vera með. Allt varð brjálað eftir kosningarnar fyrir
þremur árum vegna ásakana um kosningasvik.
KOSNINGAR Í AÐSIGI Kosningaspjöld hafa verið áberandi víða í borgum Írans, þótt
aðgangur að upplýsingum í fjölmiðlum og á netinu hafi verið takmarkaður.
NORDICPHOTOS/AFP
SÖNGVARA BREYTT Í KARFA
Tenórsöngvarinn Florian Simson var
gjörbreyttur eftir að förðunarmeist-
arar höfðu farið höndum um hann á
förðunarsýningu í Düsseldorf.
NORDICPHOTOS/AFP
VIÐSKIPTI Kínverskir ferðamenn
geta nú notað greiðslukort á
Íslandi. Samningar þess efnis tók-
ust nýlega á milli Borgunar hf. og
kínverska kreditkortarisans Union
Pay sem er eitt stærsta kredit-
kortafyrirtæki heims. Kínversk-
ir ferðamenn þurftu áður að nota
peninga.
Markaðsrannsóknir sýna að kín-
verskir ferðamenn eyða að meðal-
tali meiri peningum en aðrir ferða-
menn. Kínverskum ferðamönnum
hefur fjölgað hratt hér á landi.
Búist er við það haldi áfram á
næstu árum.
Haukur Oddsson, forstjóri Borg-
unar hf., telur að miklir hagsmunir
séu í húfi fyrir íslenska ferðaþjón-
ustu. ,,Þeir Kínverjar sem hingað
koma virðast vera vel efnaðir,“
segir Haukur. Einungis fáein ár
eru síðan nokkrir tugir kínverskra
ferðamanna komu til Íslands en
árið 2010 voru þeir í kringum 5000.
Samkvæmt upplýsingum frá
Alþjóðlegu ferðamálastofnun-
inn (UNWTO) er búist við því að
fjöldi kínverskra ferðamanna til
Evrópu muni fjórfaldast til árs-
ins 2020. Að sögn Hauks er mikill
áhugi á Íslandi á meðal Kínverja
og fastlega er búist við því að aukn-
ing ferðamanna frá Kína haldist í
hendur við þróunina í Evrópu.
Greiðslukortið sem um ræðir
heiti Union Pay og er mest not-
aða greiðslukortið í Kína. Um 2,2
milljarðar manna notast við það í
16 löndum í Asíu. - vgu
Borgun semur við kínverskan greiðslukortarisa:
Kínverskir ferðamenn
geta greitt með korti
DANMÖRK Lögreglan á Austur-Jót-
landi handsamaði í fyrrakvöld
flóttafangann Michael Christian-
sen í nágrenni Randers.
Christiansen hafði verið leitað
í fimm mánuði, en hann slapp
úr varðhaldi eftir að hafa verið
handtekinn fyrir að hafa eitur-
lyf undir höndum. Christansen
staldraði ekki lengi við í varð-
haldinu því hann fór út um
glugga á þriðju hæð fangelsisins.
Hann fikraði sig síðan niður hús-
vegginn og lagði á flótta. Hann
hlaut í kjölfarið viðurnefnið
köngulóarmaðurinn í dönskum
fjölmiðlum. Christiansen, sem
er heljarmenni að burðum, veitti
mikla mótspyrnu og barði meðal
annars lögreglumann með skóflu,
en mátti ekki við margnum. - þj
Lögreglan í Randers:
Handsömuðu
loks „könguló-
armanninn“
STJÓRNMÁL Þingmenn gera athuga-
semdir við að fjármálafyrirtæki
sendi út greiðsluseðla líkt og ófall-
inn sé nýlegur dómur Hæstaréttar
um gengislán. Efnahags- og við-
skiptanefnd Alþingis fundaði á
miðvikudagskvöld um viðbrögð
fjármálafyrirtækja.
„Til okkar kom fulltrúi Samtaka
fjármálafyrirtækja og nefndar-
menn lögðu áherslu á við hann að
fyrirtækin gættu fyllstu varúðar
í þessu máli. Ég geri svo ráð fyrir
að samtökin komi áhyggjum okkar
á framfæri við sín aðildarfyrir-
tæki,“ segir Helgi Hjörvar, for-
maður nefndarinnar, og bætir við
að nefndin hafi einnig fundað með
fulltrúum Fjármálaeftirlitsins sem
hyggist skoða viðbrögðin.
Helgi og Guðlaugur Þór Þórð-
arson þingmaður gerðu viðbrögð
fjármálafyrirtækja við dómnum
að umtalsefni á þingi á miðviku-
dag. Sagði Guðlaugur að komið
hefði fram að það væri almenn
regla hjá fyrirtækjunum að senda
út greiðsluseðla eins og enginn
dómur hefði fallið meðan vinnu við
endurreikning lánanna væri ólok-
ið. Bentu þingmennirnir báðir á að
þessi háttur fyrirtækjanna gæti
valdið því að skuldarar ofgreiði af
lánum sínum. Þá ættu skuldarar
fjárhæð inni hjá fjármálastofnun-
unum en í sumum tilvikum er um
þrotabú að ræða. Í þeim tilvikum
yrði slík inneign að almennri kröfu
í búið sem ekki er víst að fengist
endurgreidd. Þar með gætu skuld-
arar hlotið skaða af.
Þá sagði Helgi að sýslumanns-
embættin í Reykjavík og í Kópa-
vogi hefðu stöðvað aðgerðir sem
beindust að ólögmætum gengis-
lánum. Mikilvægt væri að sýslu-
mannsembætti um allt land tækju
upp sama verklag. - mþl
Endurútreikningi lána í kjölfar gengislánadóms Hæstaréttar er ólokið og greiðsluseðlar eru óbreyttir:
Þingmenn ósáttir við viðbrögð fjármálafyrirtækja
HELGI HJÖRVAR GUÐLAUGUR ÞÓR
ÞÓRÐARSON
er fjöldi
fram-
bjóð-
enda í kosningunum í dag.
Upphaflega hugðust 5.900
manns bjóða sig fram.
3.444