Fréttablaðið - 02.03.2012, Blaðsíða 12
2. mars 2012 FÖSTUDAGUR12
Stjórn Fjármálaeftirlitsins
(FME) kærði í gær Gunn-
ar Þ. Andersen til lögreglu
fyrir meint brot í starfi.
Gunnari er gefið að sök að
hafa aflað sér upplýsinga úr
bankakerfinu með ólögmæt-
um hætti. Gunnari var sagt
upp störfum í gær en hann
þvertekur fyrir að nokkuð
sé hæft í ávirðingum FME í
sinn garð.
Stjórn FME boðaði til blaðamanna-
fundar í gærmorgun með skömm-
um fyrirvara til að tilkynna um þá
ákvörðun sína að Gunnari Þ. Ander-
sen hafi verið sagt upp störfum sem
forstjóra FME. Ástæða uppsagnar-
innar var samkvæmt yfirlýsingu
stjórnar að vegna fortíðar hans
sem framkvæmdastjóra Lands-
bankans teldist hann ekki hæfur til
að gegna starfinu. Stjórn FME til-
kynnti Gunnari um ákvörðun sína
um morguninn og gerði honum að
hætta þegar í stað.
Unnur Gunnarsdóttir, yfirlög-
fræðingur Fjármálaeftirlitsins,
hefur tekið við forstjórastarfinu
tímabundið sem verður auglýst til
umsóknar síðar.
Kærður til lögreglu
Á fundinum var jafnframt greint frá
því að á miðvikudag hafi stjórn FME
borist ábendingar um að Gunnar
kynni að hafa brotið af sér í starfi
með því að afla sér trúnaðarupplýs-
inga úr bankakerfinu með ólögmæt-
um hætti. Stjórnin hafi kært málið
til lögreglu.
Kom fram að Aðalsteini Leifssyni,
stjórnarformanni FME, bárust upp-
lýsingarnar um meint brot Gunn-
ars. „Síðdegis í gær fengum við upp-
lýsingarnar með þeim hætti að við
áttum engan annan kost en að kæra
málið til lögreglu,“ sagði Aðalsteinn
sem vísaði frá sér öllum spurning-
um blaða- og fréttamanna um kæru-
málið. „Það væri fullkomlega óeðli-
legt að ég færi nánar út í efnisatriði
þess máls.“
Kæra stjórnar FME vegna meints
brots hans í starfi og ákvörðun um
að vísa Gunnari úr starfi eru tvö
óskyld mál, að sögn Aðalsteins.
„Hins vegar styður málið þá ákvörð-
un sem við höfðum komist að áður,“
sagði Aðalsteinn sem afhenti upp-
sagnarbréfið persónulega á heimili
Gunnars áður en vinnudagur hófst
hjá FME í gær.
Guðlaugur Þór
Fréttablaðið hefur fengið staðfest
að upplýsingarnar sem meint brot
Gunnars varða snúa að fjármálum
Guðlaugs Þ. Þórðarsonar alþingis-
manns. Þegar Fréttablaðið hafði
samband við Guðlaug í gær vegna
málsins hafði hann ekki upplýsing-
ar um hvaða gögn sé um að ræða.
Fréttablaðið hefur hins vegar
fengið það staðfest að starfsmaður
Landsbankans hafi tekið saman
gögn um einkahagi Guðlaugs stuttu
fyrir orð Gunnars. Starfsmanninum
hefur verið sagt upp störfum. Gögn-
in urðu tilefni umfjöllunar DV á
miðvikudag um sölu Guðlaugs Þórs
á umboði fyrir trygginga miðlun
svissneska tryggingafélagsins
Swiss Life, sem hann seldi til Lands-
bankans á sínum tíma. Í umfjöllun
kemur meðal annars fram að blaðið
hafi reikningsyfirlit Guðlaugs undir
höndum.
Lögmaður sendir tilkynningu
Lögmaður Gunnars, Skúli Bjarnason
hæstaréttarlögmaður, fullyrðir hins
vegar í fréttatilkynningu sem barst
fjölmiðlum síðla dags í gær að „gögn
frá Landsbankanum um umræddan
stjórnmálamann hefur umbjóðandi
minn aldrei séð þrátt fyrir fullyrð-
ingar fjölmiðla nú í dag um hið gagn-
stæða“.
Í fréttatilkynningunni kemur
fram að Gunnar lýsi sig „fullkom-
lega saklausan af öllum sakar-
giftum, jafnvel þótt hann hafi af
því bitra reynslu í samskiptum við
stjórn FME, en stjórnin hefur beitt
ótrúlegum útúrsnúningum og ítrek-
að lýst því opinberlega yfir að þessi
staðfasta afstaða Gunnars til rangs
sakburðar sé sérstök sönnun um
sekt hans en ekki sakleysi!“
Í fréttatilkynningunni kemur
fram að í uppsagnarbréfi Gunnars
komi fram að stjórn FME vitnar í
bréf frá Landsbankanum varðandi
málið sem kært hefur verið til lög-
reglu. „Upplýsingar sem fram koma
i téðu bréfi bankans eru sagðar á
meðal nokkurra nýrra brottrekstrar-
ástæðna umbjóðanda míns,“ segir í
bréfi Skúla.
Ástæða uppsagnar forstjórans
Eins og komið hefur fram í fjöl-
miðlum veitti Gunnar tveimur
aflandsfélögum forstöðu á vegum
Landsbankans þegar hann starfaði
þar sem framkvæmdastjóri. Það
er mat stjórnar FME að hann hafi
tekið þátt í því að „veita FME vill-
andi eða beinlínis rangar upplýs-
ingar um tilvist félaganna“, eins og
segir í yfirlýsingu stjórnar frá því í
gær. Aflandsfélögin tvö báru nöfn-
in NBI Holdings Ltd. og LB Holding
Ltd. og voru sett á fót, að sögn Aðal-
steins, til að fara með eignarhald í
félögum svo það kæmi ekki fram í
efnahagsreikningi Landsbankans og
hafa þannig áhrif á eiginfjárstöðu
bankans. „Þessi viðskiptaflétta hefði
aldrei gengið upp ef Fjármálaeftir-
litið hefði haft vitneskju um þessi
félög,“ sagði Aðalsteinn.
Í máli stjórnarmanna FME kom
fram að röng upplýsingagjöf til
eftir litsins varði við lög og við þeim
liggi refsing. Mál Gunnars sé hins
vegar fyrnt.
Gunnar hefur, frá því að það kom
upp, staðfastlega sagt að hann hafi
staðið rétt að verki við upplýsinga-
miðlun gagnvart FME á sínum tíma.
Í tilkynningu lögmanns hans frá því
í gær segir: „Málið snerist aldrei um
nein rök eða upplýsingar, þaðan af
síður um réttlæti. Engin boðleg rök
hafa verið færð fyrir uppsögn Gunn-
ars, engin ný gögn lögð á borðið. Þá
hefur réttur umbjóðanda míns verið
virtur að vettugi, bæði lögbundinn
andmælaréttur og lögvarin réttindi
hans sem opinbers embættismanns.“
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
Fréttablaðsins í gær náðist ekki í
Gunnar til að hann gæti skýrt ein-
stakar hliðar málsins persónulega.
Fréttatilkynning
Vegna málefna FME sendi efna-
hags- og viðskiptaráðuneytið frá sér
fréttatilkynningu þar sem kemur
fram að staðinn verði vörður um
stjórnskipulegt og faglegt sjálfstæði
FME. Tilkynningin er jafnframt
stuðningsyfirlýsing við stjórn FME.
Trúverðugleiki FME
Aðalsteinn metur stöðu FME með
þeim hætti að trúverðugleiki eftir-
litsins hafi ekki borið skaða af deil-
um þess við Gunnar, þó annað virð-
ist hins vegar blasa við. Hann telur
þvert á móti að framganga stjórnar
FME í málinu muni styrkja trú-
verðugleika stofnunarinnar þegar
til lengri tíma er litið.
Þá sagði Aðalsteinn að uppsögn
Gunnars hafi ekki og muni ekki hafa
nein áhrif á þau mál sem FME hefur
fjallað um á starfstíma Gunnars, en
tugir mála hafa verð sendir embætti
sérstaks saksóknara til meðferðar.
Svavar
Hávarðsson
svavar@frettabladid.is
FORSTJÓRA FJÁRMÁLAEFTIRLITSINS VIKIÐ ÚR STARFI
GUNNAR Þ. ANDERSEN Lögmaður Gunnars Þ. Andersen, fyrrverandi forstjóra FME, segir
Gunnar aldei hafa séð gögn Landsbankans um Guðlaug Þ. Þórðarson alþingismann.
Gunnar rekinn og kærður af stjórn FME
Bæjarlind 6, Kópavogi, sími 517 6067. Opið mán. - fös. 10 -18, laug. 11-16.
Útsalan stendur aðeins frá 2.-10. mars
KOMDU OG GERÐU GÓÐ KAUPHandlaugarWC
Innréttingar
Á HREINLÆTISTÆKJUM AÐ
BÆJARLIND 6 Í KÓPAVOGIÚTSALA
3. APRÍL 2009
Gunnar Þ. Andersen ráðinn forstjóri
Fjármálaeftirlitsins. Hann var valinn úr
hópi nítján umsækjenda.
12. APRÍL 2010
Skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis
kemur út. Þar komu meðal annars fram
upplýsingar um aðkomu Gunnars að
aflandsfélögum í eigu Landsbankans
á árinu 2001 þegar hann starfaði hjá
bankanum. Stjórn FME leitaði í kjölfarið
til Andra Árnasonar hæstaréttarlög-
manns og bað hann um að vinna álit
á hæfi Gunnars til að gegna forstjóra-
starfinu í ljósi þessara upplýsinga.
10. NÓVEMBER
Andri Árnason skilar athugun sinni um
hæfi Gunnars til stjórnar FME. Á grund-
velli þeirrar niðurstöðu ákvað stjórnin
að ekki væri tilefni til að aðhafast frekar
í málinu.
17. NÓVEMBER 2011
Kastljós á RÚV fjallar um
hæfi Gunnars til að starfa
sem forstjóri FME í ljósi
nýrra gagna sem þáttar-
gerðarmenn töldu sig hafa
undir höndum um aðkomu
Gunnars að aflandsfélögum
þegar hann starfaði hjá
Landsbankanum.
18. NÓVEMBER
Stjórn FME ákveður á fundi
sínum að fara fram á að
Andri Árnason vinni við-
bótarathugun á hæfi Gunn-
ars í ljósi þess sem fram
kom í Kastljósinu daginn
áður. Auk þess er ákveðið
að faglegur og óháður aðili
verði fenginn til að rýna í
málið.
13. JANÚAR 2012
Andri skilar öðru áliti
um hæfi Gunnars. Í því
stendur hann að öllu
leyti við fyrri niðurstöður
sínar um hæfi Gunnars
og telur ekkert nýtt hafa
komið fram um málið í
umfjöllun Kastljóss eða í
þeim gögnum sem aflað
var í kjölfar umfjöllunar-
innar. Stjórn FME ákvað
í kjölfarið að fela Ástráði
Haraldssyni hæstaréttar-
lögmanni og Ásbirni
Björnssyni endurskoð-
anda að fara yfir álit
Andra og gögn málsins
og gefa sjálfstætt álit á
hæfi Gunnars.
16. FEBRÚAR
Ástráður og Ásbjörn skila greinargerð til
FME. Þeir komast að því að Gunnar hafi
gefið villandi og ófullnægjandi upplýsingar
um erlenda starfsemi Landsbankans í svari
við fyrirspurn FME til bankans árið 2001.
17. FEBRÚAR
Stjórn FME boðsendir Gunnari bréf þar
segir að honum sé „með þessu bréfi kynnt
sú fyrirætlan að segja þér upp störfum
sem forstjóra stofnunarinnar“. Gunnar
fær frest út mánudaginn 20. febrúar til að
andmæla uppsögninni.
20. FEBRÚAR
Lögmaður Gunnars, Skúli Bjarnason, sendir
bréf til stjórnar FME og óskar eftir lengri
andmælafresti. Stjórnin samþykkir að veita
Gunnari frest fram á fimmtudagskvöldið
23. febrúar.
23. FEBRÚAR
Lögmaður
Gunnars fer fram
á rýmri frest til
andmæla. Hann
er samþykktur og
Gunnar fær frest
til þriðjudagsins
28. febrúar.
29. FEBRÚAR
Fjármálaráðherra
sendir lögmanni
Gunnars bréf
þar sem segir
að hann hafi
réttarstöðu sem
embættismaður
ríkisins í málinu.
1. MARS
Stjórn FME
boðar til blaða-
mannafundar
og tilkynnir að
Gunnari hafi
verið sagt upp
störfum. Enn
fremur hefur
hún kært hann
til lögreglu
vegna þess að
hann kann að
hafa brotið af sér
í starfi með því
að afla sér trún-
aðarupplýsinga
úr bankakerfinu
með ólögmæt-
um hætti.
20
09 ap
ríl
20
10 ap
ríl
nó
ve
m
be
r
20
11
nó
ve
m
be
r
20
12
ja
nú
ar
fe
br
úa
r
m
ar
s
DEILUR FJÁRMÁLAEFTIRLITSINS OG GUNNARS ANDERSEN