Fréttablaðið - 02.03.2012, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 02.03.2012, Blaðsíða 62
2. mars 2012 FÖSTUDAGUR42 „Það er búið að skipta laginu út. Nýju auglýsingarnar eru með öðru lagi. Þetta var bara svona gítar- riff,“ segir Hörður Harðarson hjá VERT markaðsstofu sem sér um markaðsmál fyrir smálánafyrir- tækið Hraðpeningar. Útgáfurisinn EMI hafði sam- band við Hraðpeninga fyrir tæpum mánuði og kvartaði undan aug- lýsingastefi fyrirtækisins. Stef- ið þykir afar líkt kafla úr laginu Seven Nation Army með hljóm- sveitinni White Stripes, sem kom út á plötunni Elephant og var eitt af vinsælustu lögum ársins 2003. Hörður segir stefið hafa verið keypt af tónlistarmanni hér á landi. „Þeir gerðu athugasemd, fannst þetta of líkt. Við sögðum þetta ekki of líkt. En við ætlum ekki að standa í einhverri laga- deilu út af stefi í útvarpsauglýs- ingu. Þannig að við skiptum því út, þar með er málið búið,“ segir hann. Spurður hvort Hraðpeningar hafi þurft að greiða bætur til EMI eða White Stripes segir Hörður svo ekki vera. Geturðu sagt mér hvaða lista- maður seldi ykkur lagið? „Ég ætla ekki að blanda öðrum inn í þetta.“ En er verið að reyna að líkja eftir öðru frægu popplagi í nýju auglýsingunum? „Nei, það er bara svona gítarriff.“ atlifannar@frettabladid.is FÖSTUDAGSLAGIÐ Þeir gerðu athuga- semd, fannst þetta of líkt. Við sögðum þetta ekki of líkt. En við ætlum ekki að standa í einhverri lagadeilu út af stefi í útvarpsauglýsingu. HÖRÐUR HARÐARSON VERT MARKAÐSSTOFA Ég hlusta á tvö lög til að koma mér í helgarstuð. Annað er lagið So Rich, So Pretty með Mickey Avalon og svo hið óborganlega Olsen Olsen með Lúdó Sextett og Stefáni. Aron Bergmann Magnússon, barón af Reykjanesinu og leikmyndahönnuður. „Ég hef aðallega sungið uppi á hálendi Íslands í hestaferðum en þetta var rosalega gaman,“ segir leikarinn Hilmir Snær Guðnason. Hann sýnir á sér nýja hlið sem söngvari í laginu 1989 sem var samið sérstaklega fyrir bjórhátíð Kex Hostels sem nú er í gangi. Lagið verður spilað á staðnum í fyrsta sinn í kvöld en Hilmir Snær verður fjarri góðu gamni því hann er önnum kaf- inn í leikhúsinu. Spurður hvers vegna hann var fenginn í verkefnið segir hann: „Þeir hafa örugglega einhvern tím- ann heyrt mig syngja. En kannski hafa þeir ekki náð í neinn annan, ég veit það ekki,“ segir hann og hlær. Höfundar lagsins eru Bjarki Sig og Benzín-bræðurnir Börk- ur og Daði Birgissynir. Upp- tökur fóru fram á þriðjudag- inn og gengu eins og í sögu. „Þetta var voða skemmtilegt og það er aldrei að vita nema maður geri meira af þessu,“ segir Hilmir Snær hress en hljómsveitin hefur fengið nafnið Hilmir og humlarnir. Er frekara samstarf á döfinni eða jafnvel plata? „Við vitum ekkert um það enn. Það fer bara eftir þessum strákum en ég er til hvenær sem er.“ -fb Hilmir Snær syngur nýtt bjórlag SYNGUR NÝTT BJÓRLAG Hilmir Snær Guðnason sýnir á sér nýja hlið í bjórlaginu 1989 sem var tekið upp fyrr í vikunni. Spænski kvikmyndagerðarmaðurinn Sergio De Vega verður gestur á alþjóðlegu stuttmyndahátíð- inni Northern Wave sem fram fer í Grundarfirði um helgina. Stuttmynd De Vega, Making Counts, verð- ur sýnd á hátíðinni auk þess sem móðir hans mun keppa í hinni vinsælu fiskisúpukeppni sem haldin er í tengslum við hátíðina. „Mömmu hefur alltaf langað til að heimsækja Ísland, fyrir okkur er landið mjög framandi og spennandi, þannig að þegar myndin mín komst að á hátíðinni var aldrei spurning um hver ferðafélagi minn yrði,“ útskýrir De Vega. Hann segir móður sína, Concepción Sánchez Casillas, vera hæfileika- ríkan kokk og því hafi hann ákveðið að skrá hana til þátttöku í fiskisúpukeppninni sem haldin er í tengslum við Northern Wave. „Hún er með tvær hugmyndir að ýsurétti sem hana langar að gera, en hún hefur ekki enn valið á milli þeirra. Önnur er uppskrift frá Norður-Spáni og hin er klassísk uppskrift frá Austur-Spáni.“ De Vega kveðst spenntur fyrir heimsókninni til Íslands og segir það ekki skemma fyrir að stutt- mynd eftir hann verði sýnd á landinu á sama tíma. „Ég hlakka mikið til ferðarinnar. Það eitt að ferðast um landið er mjög spennandi og það eykur aðeins á spennuna að ég fái að sækja stuttmyndahátíð á sama tíma. Þetta verður án efa einstök ferð,“ segir De Vega að lokum. - sm Mæðgin keppa á Northern Wave SPENNTUR FERÐALANGUR Spænski kvikmyndagerðarmaður- inn Sergio De Vega tekur þátt í stuttmyndahátíðinni Northern Wave sem fram fer um helgina. Móðir hans mun einnig taka þátt í fiskisúpukeppninni sem fram fer í tengslum við hátíðina. HÖRÐUR HARÐARSON: ÆTLUM EKKI Í LAGADEILU VEGNA MÁLSINS Breyttu stefi eftir kvörtun frá útgáfu White Stripes AUGLÝSA EKKI LENGUR LÁN Stefið í auglýsingum Hraðpeninga þótti of líkt kafla í laginu Seven Nation Army með White Stripes. Auglýsingunni hefur verið breytt. NORDICPHOTOS/GETTY NÝ KILJA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.