Fréttablaðið - 02.03.2012, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 02.03.2012, Blaðsíða 26
2 • LÍFIÐ 2. MARS 2012 Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Umsjón Ellý Ármanns elly@365.is og Kolbrún Pálína Helgadóttir kolbrunp@365.is Forsíðumynd Stefán Karlsson Útlitshönnun Arnór Bogason Förðun og hár Elínar: Vigdís Margrétar Jónsdóttir. Fatnaður Elínar: Verslunin Eva. Auglýsingar Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is Lífið Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 www.visir.is/lifid HVERJIR VORU HVAR? BARN Í VÆNDUM Ein farsælasta fitness-kona landsins, Heiðrún Sigurð- ardóttir, sem á að baki fimm Íslandsmeistaratitla í fit- ness, 8. sæti á EM, 10. sæti á HM og svo mætti lengi telja, býr sig nú undir móðurhlutverkið en hún á von á sér í júní. Hún segir óléttuna hafa komið mjög á óvart en að hún og kærastinn, Sævar Þór Rafnsson, hafi tekið henni fagnandi. „Þetta er án efa besta tilfinn- ing sem ég hef upplifað og finnst alltaf jafn skrýtið að hugsa til þess að inni í mér vaxi og dafni nýtt líf. Og það besta er að ég hef ekki fundið fyrir neinum einkennum; hvorki ógleði, þreytu, né æði fyrir ein- hverju skrítnu eins og margar konur upplifa. Enda átti ég mjög bágt með að trúa þessu og tók nokkrar þungunarprufur til að vera viss.“ Chloé Ophelia og Árni Elliott sem búa í Mar- seille í Frakklandi um þessar mundir þar sem þau starfa og læra, eiga von á sínu fyrsta barni en þau hafa verið par um árabil. Þetta var besti dag- urinn í lífi okkar,“ segir Chloé um daginn þegar þau komust að því að þau ættu von á barni. „Við hlökkum alveg ofsalega til og ég ætla að njóta meðgöngunn- ar sem allra best.“ Spurð um heilsuna segir hún hana ekki geta verið betri! Chloé og Árni eiga von á frumburðinum í ágúst. Lífið óskar pör- unum þremur hjartan- lega til hamingju! Hver glæsikonan eftir aðra hljóp til styrkt- ar einstökum börnum nú í vikunni. Átakið var á vegum Evu Maríu Jónsdóttur. Þar voru fjölmiðlakonurnar og vinkonurnar Júlía Margrét Alexandersdóttir og Marta María Jónasdóttir sem hljóp 10 kílómetra þrátt fyrir snúinn ökkla. Gaman var að sjá hve mörg börn tóku þátt í hlaupinu. Árleg afhending ís- lensku auglýsinga- verðlaunanna, Lúður- inn, voru veitt í Hörp- unni með glæsibrag á föstudaginn þar sem ljósmyndarinn Ari Magg og kona hans Auður Kar- ítas stílisti, Þormóður Jónsson eig- andi Fíton, útvarpsmaðurinn Auð- unn Blöndal, Hólmfríður Einarsdóttir markaðs- stjóri Íslandsbanka og Birna Rún Gísla- dóttir, sem á von á barni í sumar, voru á meðal gesta. Glæsikonan Harpa Þórunn Pétursdóttir, lögfræðingur hjá Orkustofn- un, og Júlíus Kemp leikstjóri eiga von á barni í ágúst. Þau tilkynntu gleðifréttirnar á Facebook á dögunum við mikla gleði vina og vandamanna. Saman eiga þau fjögurra ára son en einnig á Júlíus tvo syni úr fyrra sambandi og því óhætt að segja að þau eigi barnaláni að fagna. HARPA ÞÓRUNN PÉTURSDÓTTIR GJÚGG Í BORG :) HEIÐRÚN SIGURÐARDÓTTIR Mun klárlega halda mikið upp á árið 2011, en fátt mun toppa 2012 :) Held líka að ég verði að fresta „come-backinu“ um eins og eitt ár þar sem ég efast um að ég fái mörg stig svona framstæð eins og ég verð orðin í apríl. CHLOÉ OPHELIA BABY ON BOARD!!!! MYNDIR/ÚR EINKASAFNI FRÉTTABLAÐIÐ/ÚR SAFNI Hvernig kom það t i l að þið fenguð hlutverkin í myndinni? „Mér var boðið að koma í prufu, sem og ég gerði og svo var ég boðuð í aðra prufu vikunni seinna og beint eftir hana bauð Óskar Þór Axelsson leikstjóri mér hlutverkið en ég leik Dagnýju, sem er fyrrver- andi fegurðardrottning, sem hefur leiðst inn í undirheima Reykja- víkur,“ svarar María Birta. „Það kom þannig til að Óskar kallaði mig í prufu í New York þegar hann var sjálfur staddur þar í námi. Ég fór í prufuna til hans fyrir annað hlutverk í myndinni en fékk síðan hlutverk Stebba sækó í kjöl- farið. Ég las bókina fyrir prufuna og þótti hún spennandi.“ Þurftir þú að rifa kjaft í pruf- unni, Þorvaldur? „Já, þetta var mikið slangur en karakterinn Stebbi sækó er ekki grjótharður gæi. Hann er gæi sem kemur að vestan og fer ranga leið í l íf- inu af því að hann á erfitt með að segja nei en Tóti æskufé- lagi hans frá Ólafsvík dregur hann inn í ákveðið sendlastarf.“ María Birta, hvað ráðleggur þú fólki sem vill leika í bíómyndum eins og þú? „Það er erfitt fyrir mig að gefa mörg ráð, en það skipt- ir máli að vera opinn, hreinskilinn og óhræddur í prufum, svo ef þér býðst að koma í prufu, gerðu bara þitt besta,“ segir María áður en þau rjúka bæði í fleiri viðtöl. Lífið hitti Maríu Birtu Bjarnadóttur og Þorvald Davíð Kristjánsson sem eru á meðal leikara í aðalhlutverkum í kvikmyndinni Svartur á leik sem var frumsýnd í gærkvöldi. Leikararnir María Birta og Þorvaldur Davíð. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI REIF KJAFT Í PRUFUNNI Að námskeiðinu standa m.a. læknar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraþjálfarar, næringarfræðingur, íþróttafræðingar og sálfræðingar. Ætlar þú að breyta um lífsstíl? Heilsulausnir henta ein- staklingum sem glíma við offitu, hjartasjúkdóma og/ eða sykursýki. Hefst 12. mars Kynningarfundur 7. mars kl. 20:00 Allir velkomnir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.