Fréttablaðið - 02.03.2012, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 02.03.2012, Blaðsíða 34
10 • LÍFIÐ 2. MARS 2012 Hver er konan? Þórdís Jóhanns- dóttir heiti ég og er 28 ára gömul, móðir tveggja barna, Sævars Más, 8 ára og Ingu Dísar, 4 ára. Starf? Í dag starfa ég hjá Barna- og fjölskylduljósmyndum í Kópa- vogi. Hlutverk mitt er að fylgjast með rekstri fyrirtækisins og sjá til þess að við höfum nóg að gera. Þar kemur margt fólk sem gaman er að hitta og mikið skemmtilegt um að vera. Bakgrunnur/menntun? Ég er verk- fræðingur að mennt. Lauk B.Sc.- námi í iðnaðarverkfræði 2007 og M.Sc. í iðnaðarverkfræði 2011 við Háskóla Íslands. Ástæðan fyrir því að ég valdi verkfræði umfram annað nám var sú að mér var tjáð að þá væru mér allar leiðir færar og ég gæti starfað við hvað sem er í framtíðinni. Það er svo sann- arlega rétt. Í náminu lagði ég áherslu á nýsköpun, framleiðslu- ferli og stjórnun. Draumaverkefnið? Spunadís er litla draumaverkefnið mitt – það stendur fyrir hálsmen, kraga og fylgihluti sem ég hanna til að festa á kjóla og aðrar fallegar flíkur. Hvaðan kemur nafnið Spunadís? Það er allt fullt af dísum í kring- um mig. Við erum dísir í fjóra ætt- liði og það kom ekki annað til greina en bæta einni í hópinn. Það var svo ein vinkona mín, sem mér þykir vænt um, sem kom strax með nafnið Spunadís, enda er hönnunin spunnin áfram hverju sinni. Ég þurfti ekki að hugsa mig lengi um. Af hverju varð svona hönnun fyrir valinu? Ég hafði um nokkurt skeið hannað og saumað þæfð- ar ullarvörur með mömmu minni. Mamma er sérstaklega nákvæm og vandvirk. Hún kenndi mér það að það borgar sig aldrei að flýta sér. Við unnum vel saman. Ég passaði upp á að halda fram- leiðsluferlinu gangandi og hún passaði upp á vandvirknina og gæðin. Hefurðu alltaf verið fagurkeri? Ég man eftir sjálfri mér frá þriggja ára aldri þar sem ég var bæði saumandi og skapandi. Fjög- urra ára kenndi amma mín mér að prjóna og átta ára prjónaði ég mína fyrstu peysu. Á unglingsár- unum saumaði ég á mig kjóla í stórum stíl. Þegar ég varð ólétt af fyrra barninu mínu átti ég prjónuð ungbarnaföt í stöflum. Auðvitað deildi ég áhuganum með vinum og kunningjum og kenndi mörgum þeirra að prjóna. Móðurhlutverkið í bland við fram- ann, hvernig gengur að tvinna það saman? Það gengur ótrú- lega vel að tvinna saman barna- uppeldi, vinnu og áhugamál. Ég hef til dæmis mikið úthald í að sitja úti á róló tímunum saman því saumadótið er ávallt meðferðis. Ég hugsa að við þrjú gefum hvert öðru innblástur og vangavelturnar um lífið og tilveruna eru stórar og yfirgripsmiklar. DAGUR Í LÍFI ATHAFNAKONAN ALLAR LEIÐIR FÆRAR EFTIR VERKFRÆÐINA 7.00-8.00 Fer á fætur! Tím- inn veltur svona aðeins á því hve lengi ég vann kvöldinu áður. Svara e-mail og undirbý morgun- verð. 8.45 Geng með Ronju í skólann. 9.00 Fer á góða æfingu í World Class í Ögurhvarfi eða hleyp hring í kringum Elliðavatn. 11.00 Hitti grafíska hönn- uðinn minn, hana Blæ Guðmundsdóttur sem vinnur með mér að nýju heimasíðunni minni, Yesmine.com eða Yes- mine.is sem fer í loftið í næstu viku á sama tíma og þessari seríu af mat- reiðsluþáttunum mínum á RÚV lýkur. 13.00 Snæði ljúffengan há- degisverð á Ginger í Síðu- múla með góðum vinum. 14.30 Skipulagsfundur fyrir Bollywood-árshátíð. 15.00 Kaupi matvæli fyrir matreiðslunámskeið kvöldsins. 16.00 Næ í Ronju, dóttur mína. Við fáum okkur snarl og förum á fimleikaæfingu. 17.30 Keyri til Keflavíkur. 18.00-22.00 Kenni ind- verska matargerð á mat- reiðslunámskeiði. 22.30 Held heim á leið. Yesmine Olsson Sjá nánar á visir.is/lifid MYND/ÚR EINKASAFNI FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.