Fréttablaðið - 02.03.2012, Blaðsíða 33
LÍFIÐ 2. MARS 2012 • 9
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
s
ér
r
ét
t
til
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
50
32
7
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Akureyri sími: 461 1099 • www.heimsferdir.is
Bókaðu beint á heimsferdir.is
í allt sumar!
Bodrum hefur slegið í gegn!
Bókaðu strax og tryggðu þér10.000 kr. afsl.á mann á völdum dagsetningumGildir til 10. mars
Skráðu þig í netklúbb
Heimsferða á heimsferdir.is
Tyrkland
margir vina okkar eru þekktir sjálf-
stæðismenn. Ég á mig sjálf.
Nú ert þú ein þeirra kvenna sem
nefnd hefur verið á nafn í for-
setaumræðunni – að öllu gamni
slepptu, er það eitthvað sem þú
getur raunverulega hugsað þér að
skoða? Já, það get ég. Það eru hins
vegar ýmis ljón á veginum. Fyrsta
ljónið er núverandi forseti. Ætlar
hann að gefa kost á sér í fimmta sinn
eður ei. Hann stóð illa eftir hrunið,
og tengsl hans við almenning höfðu
beðið skaða, en svo hefur hann náð
aftur sambandi við fólkið í landinu til
dæmis með því að efna til þjóðarat-
kvæðagreiðslu um Icesave-samning-
inn. En að mínum dómi er þetta orðið
ágætt eftir sextán ár í embætti. Það
þarf að hleypa frískum vindum inn á
Bessastaði. Fleiri ljón eru á veginum
fyrir hugsanlega forsetaframbjóð-
endur. Kostnaður við slíkt framboð
er óheyrilegur og fjármálin voru fram-
bjóðendum árið 1996 þrautin þyngri.
Síðast en ekki síst er afar óljóst um
stöðu forseta Íslands í framtíðinni
vegna boðaðra stjórnarskrárbreyt-
inga. Hvað mig sjálfa snertir þá hef
ég ekki hugmynd um hvort ég hefði
eitthvað fylgi meðal kjósenda, en það
er að sjálfsögðu lykilatriði. Ég gef því
minni líkur en meiri að ég verði næsti
húsráðandi á Bessastöðum, segir
Elín og kímir.
Hvaða áherslur leggur Elín Hirst
forseti Íslands á? Ég vil færa for-
setaembættið nær fólkinu í landinu
þar sem forsetinn yrði fremstur á
meðal jafningja sem ynni með þjóð-
inni að hinu góða hverju nafni sem
það nefnist. Svo einfalt er það. Allt
annað yrðu praktísk úrlausnarefni
með þetta meginþema.
Hverjar eru þínar fyrirmyndir og
af hverju? Forfeður mínir sem þorðu
að taka þá áhættu að flytja til Vest-
urheims með fjögur ung börn í leit
að betri lífskjörum, sem þeim tókst.
Þetta fólk sem ekkert átti var líka
annálað fyrir góðmennsku, gjafmildi
og hjálpsemi við þá sem þurftu á að
halda.
Hvar sérðu þig eftir 10 ár? Ætli
við Margrét Stefanía verðum ekki að
bauka eitthvað skemmtilegt saman
með hinum barnabörnunum sem þá
hafa bæst í hópinn.
Eitthvað að lokum? Já, þú vilt að
ég nefni einhverja speki og í því sam-
bandi er ég mjög hrifin af því sem
Albert Einstein sagði: að árangur
væri 1% snilli og 99% vinna. Þetta
finnst mér afar gott veganesti í lífinu.
sjálfboðastörf tengd mannúðarmál-
um, sem er mjög gaman og gefandi.
Einnig er ég að ljúka við gerð heim-
ildarmyndar um stofnfrumur ásamt
Ásvaldi Kristjánssyni kvikmynda-
gerðarmanni sem er afar spennandi
og skemmtilegt verkefni.
Þú varst viðloðandi pólitík fyrir
allmörgum árum hjá Sjálfstæðis-
flokknum, geturðu hugsað þér að
fara aftur í pólitíkina? Nei, ég hef
aldrei verið í pólitík, nema að ég slys-
aðist inn í stjórn Heimdallar þegar
ég var rúmlega tvítug en var fljót að
hætta þar vegna starfa minna sem
blaðamaður. Flokkapólitík og hags-
munagæsla í tengslum við hana fer í
raun mjög gegn mínu eðli. Ég hugsa
eins og fréttamaður, vil alltaf skoða
allar hliðar, þess vegna valdi ég líka
fréttamennsku sem ævistarf. Það
fer oft í taugarnar á eiginmannin-
um sem er mjög pólitískur og mikill
sjálfstæðismaður hvað ég læt illa að
stjórn. Samt hefur sá stimpill loðað
við mig alla tíð að ég sé eldheitur
sjálfstæðis maður, líklega af því að